Morgunblaðið - 10.02.1963, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.02.1963, Blaðsíða 10
10 MORCXJTSBLÁfílÐ Sunnudagur 10. febrúar 1963 Í3í v mynimm Okkur vantar bara strákinn Nýgift ÞRIÐJA brúðkaupsmyndin, sem birtist í Dagbók Morgun-- blaðsins, var af Gíslínu Krist- jánsdóttur og Guðjóni Odds- syni, starfsmanni hjá Málar- anum. Birtist hún í blaðinu 11. febrúar 1960. Ein af stúlkunum, sem vinn ur hér á blaðinu, rak augun í brúðkaupsmyndina, þar sem hún lá á borðinu hjá okkur: „Nú, ætlið þið að eiga viðtal við Gíslínu og Guðjón,“ sagði hún. „Ég mundi ráðleggja ykkur að borða ekki of mik- ið áður en þið farið til þeirra, þau taka svo afskaplega vel á móti gesturn." Þessi orð lýsa viðtökunum ef til vill betur en nokkuð annað. Og var einhver að segja að ungu húsmæðurnar nú til dags væru ómyndarlegar og kynnu tæpast til verka. Gíslína og Guðjón hafa fest kaup á rúmgóðum og björt- um kjallara á Ægissíðu 64 og búið hann smekklega hús- gögnum á nýtízku vísu. Fyrst eftir að þau giftust bjuggu þau á Fálkagötu 26, „eða ná- kvæmlega eitt ár, einn mán- uð og einn dag,“ sagði frúin. Þau hjónin hafa eignazt tvær dætur, Jóhönnu Mar- gréti, sem verður tveggja ára í marz, og þriggja mánaða ó- skírt telpukríli. Hanna litla fékk að vera á fótum svo- lítið lengur en venjulega vegna komu blaðamannsins: hún tifaði á stuttum og bústn- um fótunum fram og aftur um stofugólfið og lék sér að ný' fengnu leikfangi: lukkutrölli. Eitthvað var hún óánægð með, hvað tröllið var úfið um hár- ið og endurtók í sífellu: „Klippa — klippa." „Það er leikur einn að sjá um heimilið, þegar krakk- arnir eru frískir," sagði Gísl- ína, „en stelpurnar lágu báðar í mislingum fyrir stuttu og sú yngri er eiginlega enn ekki búin að ná sér. Þá óskaði ég þess ég hefði margar hendur og gæti haldið á þeim báðum í einu.“ „Við höfum heyrt þið stund ið mikið íþróttir.“ Þau fóru bæði að skelli- hlæja. „Við gerðum það hérna áð- ur fyrr,“ sagði Guðjón. „En þá vorum við svo af- skaplega létt á fæti,“ sagði Gíslína. „Hún var í handknattleiks- liði Þróttar, sem sigraði í Is- landsmóti 1958,“ sagði Guðjón. „Hann var í meistaraflokki í fótbolta," sagði Gíslína, „var kosinn í stjórn Þróttar 1957 og situr þar enn.“ „En hvers vegna hættuð þiðJ“ spurðum við. „Ég var á æfingum tvö kvöld í viku, Gíslína önnur tvö, og svo þurfti ég að fara á fundi við og við,“ sagði Guðjón. „Afleiðingin varð sú að við sáumst ekki nema með höppum og glöppum og þá á- kváðum við að hætta. En við förum stundum á Völlinn og inn á Hálogaland til að fylgj- ast með.“ ..H............. Guðjón og Gíslína með b örn sin. „Allir kannast nú við barn fóstruvandræðin,“ sagði Gísl- ína. „Þegar við fáum barn- fóstru viljum við heldur fara í bíó eða út að borða og dansa, svo Hálogalandsferð- irnar eru nú ekki eins margar og ég hefði kosið,“ „Etru ekki í saumaklúbb?" spyrjum við Gíslínu. „Jú, jú, ág fer í saumaklúbb tvisvar í mánuði. Við skóla- systurnar í gagnfræðaskóla verknáms ákváðum að halda hópinn með því að hittast í saumaklúbb reglulega, en nú hafa nokkrar helzt úr lestinni og nýjar bætzt við eins og gengur." „Vinnurðu enn í Málaran- um?“ spyrjum við Guðjón. „Já, ég er búinn að vinna þar í sjö ár, afgreiði á efri hæðinni." „Eruð þið bæði Reykvíking ar?“ „Já, Guðjón er meira' að segja uppalinn hérna á Holt- inu,“ sagði Gíslína, „en flutti þaðan um tíma. Segja má, að hann sé kominn aftur á forn- ar slóðir.“ „Og þið kunnið vel -við til- við í seinustu viku, í sama veruna?“ spurðum við að lok- um. „Ég er nú hrædd um það,“ svöruðu þau einum rómi. „Nú vantar okkur bara strákinn, en kannski við bíðum með hann þangað til stelpurnar komast á barnfóstrualdurinn.“ Tilveran er skattskýrsla FJÓRÐA brúðkaupsmyndin birtist 12. febrúar 1960. Undir henni stóð: „S.l. laugardag voru gefin saman í hjónaband ungfrú Guðrún Karlsdóttir og Bene- dikt Blöndal, cand. jur.“ Tæpum þremur árum síðar nánar tiltekið miðvikudaginn 30. janúar á heimili þeirra hjóna á Víðimel 60. Húsbónd- inn situr í ruggustól, frúin ber fram kaffi og 14 mánaða gamall sonur þeirra leikur sér að gömlu útvarpstæki á gólf- inu. Benedikt: Jú, við biðum með að giftast þar til ég hafði lokið námi. Ég lauk lögfræði- prófi 25. janúar 1960 og við giftum okkur nokkrum dög- um síðar, þegar ég var búinn að jafna mig. Ég fór strax.að vinna á skrifstofu hjá Bæjar- útgerðinni, um haustið fórum við til Englands,' og var ég við nám á lögfræðiskrifstofu í London í nokkra mánuði. I janúar 1961 snerum við aftur heim, ég fór aftur að vinna hjá Bæjarútgerðinni, jafnhliða sem ég tek að mér lögfræði- störf í skrifstofuholu minni hér í bæ eftir vinnutíma þar. Nú, nú, þegar við komum aftur tókst okkur, með hjálp góðra manna, að kaupa þessa íbúð og höfum átt hér heima í rúmt ár. Konan hefur nóg að gera með heimilisverkin, auk þess sem hún hefur allar fjármálaáhyggjurnar. Og til- veran hjá mér um þessar mundir er ein einasta skatt- skýrsla. Þetta er allt og sumt sem ég hef að segja — er ekki annars erfitt að hafa viðtöl við fólk sem ekkert getur sagt? Blaðam.: Jú, frekar. Benedikt: Þá get ég bætt því við, að við vöknum milli 8 og 9 á morgnana, og ef drengur- inn vaknar á undan okkur sit- ur hann grafkyrr í rúmi sínu og gefur ekki frá sér hljóð fyrr en við vöknum. Þetta er þægt og gott barn, þó við segjum sjálf frá, konan sér um upp- eldið. Nú, ef Morgunblaðið er komið áður en ég fer í vinn- una, renni ég augunum yfir það, annars les ég blaðið þeg- ar ég kem heim í hádegismat. Að vinnutíma loknum sitjum við hjónin í rólegheitum heima og njótum líðandi stund ar. Blaðam.: Takið þið engan þátt í félagslífi? Benedikt: Hvað eigið þið Guð'rún, Karl og Benedikt ‘■'ssPWEBl \ V, Nýgift við með félagslífi? Við kjós- um í almennum kosningum og borgum þjóðfélagsgjöldin. Blaðam.: Farið þið aldrei í leikhús, bíó eða þess háttar? Benedikt: Það kemur fyrir, en ég vil fara þangað til að hlæja — það er hægt að gráta heima hjá sér. Það er annars alveg voðalegt hvað allt er sorglegt í heimi hér, maður þarf ekki annað en skrúfa frá útvarpinu og þá er sagt frá því í fréttum hvað de Gaulle sé vondur við Breta- greyin og Krúsjeff við aum- ingja Kastró og þannig mætti lengi telja. Skemmtilegasta útvarpsefni, að mínum dómi, er morgunleikfimin; það er ekkert eins gaman, þegar mað ur vaknar tímanlega, að skrúfa frú útvarpinu og hlusta á morgunleikfimina. Blaðam.: Hvenrig kunnuð þið við ykkur í Bretlandi? Guðrún: Alveg prýðilega, þó veðrið hafi ekki verið upp á það bezta. Heimilishald í Bretlandi og hér á íslandi er annars ekki sambærilegt, hér eru heimilistæki miklu al- gengari og lifsþægindin meiri Blaðam.: Ég finn það á kök unum að þú hefur verið í húsmæðraskóla. Framh. á bls. 15. tni.M

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.