Morgunblaðið - 01.03.1963, Qupperneq 14
14
M O R C V 1\ B l 4 fí 1 Ð
Föstudagur 1. marz 196S
Innilegar þakkir færi ég öllum, sem með heimsókn-
um, gjöfnun og á annan hátt glöddu mig á 70 ára afmælis-
degi mínum.
Jóhanna Magnúsdóttir, SvarfhólL
Ég sendi ölium vinum og vandamönnum, sem gerðu
mér afmælisdaginn minn 19. febrúar ógleymanlegan á
alian hátt, með heimsóknum, gjöfum, blómum og heilla-
skeytum mínar hjartans þakkir. — Guð blessi ykkur öll.
Geirþrúður Sigurjónsdóttir, Hraunteigi 28, R.
Tilboð óskast í
Ford Consul Cortina 1963
í því ástandi sem bifreiðin er nú eftir veltu. Bif-
reiðin verður til sýnis að „Bifreiðaverkst. Hemill“,
Elliðaárvogi 103 í dag. Tilboð óskast send bifreiða-
deild vorri að Laugavegi 178,götuhæð fyrir kl. 12
laugardaginn 2. marz.
TRYGGING H.F.
Laugavegi 178.
Fósturdóttir mín,
GUÐRÍ7N SIGFÚSDÓTTIR
Vesturgötu 44,
andaðist 27. þ. m. í Landakotsspítala.
Fyrir mína hönd og annara ættingja.
Pálina Þorláksdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
ÓLÍNA J. MELSTED
lézt að Elliheimilinu Grund 26. febrúar.
Gunnar, Lilja og Páll Melsted.
Faðir okkar og tengdafaðir
HALLMUNDUR SUMARLIÐASON
andaðist að Bollagötu 6, 28. febrúar. Jarðarförin ákveðin
síðar.
Börn og tengdaböm.
Eiginmaður minn
SIGFÚS Þ. ÖFJÖRÐ
* Lækjamóti,
sem andaðist 23. þ. m. verður jarðsunginn frá Selfoss-
kirkju laugardaginn 2. marz kl. 2 e.h. — Blóm eru
vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans
er bent á sjúkrahúsið á Selfossi.
Lára Guðmundsdóttir.
Útför móður minnar,
SIGRÍDAR FRIÐJÓNSDÓTTUR
frá Sílalæk, Hagamel 36,
fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 2. marz n.k.
kl. 10,30. Athöfninni verður útvarp?*
Fyrir hönd vandamanna.
Jónas Jónasson.
Ég þakka auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
mannsins mins
MAGNÚSAR JÓNSSONAR
frá SjónarhólL
Fyrir mfna hönd, barna og annarra vandamanna.
Erlendsína Helgadóttir.
Þökkum innilega öllum, sem auðsýndu okkur samúð
og hluttekningu, við andlát og jarðarför móður okkar,
tengdamóður og ömmu
STEINUNNAR GÍSLADÓTTUR
Nóatúni 26.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum hjartanlega sýnda vináttu og samúð við
andlát og jarðarför dóttur okkar og systur
R U T H
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og hjúkr-
unarliði lyflæknisdeildar Landsspitalans svo og öllum
er glöddu og heimsóttu hana í veikindum hennar. Einnig
Þökkum við af alhug allar gjafir, skeyti og kork
Sigurbjörn og Adam Hoffritz, .
og systkini hinnar látnu.
Vigfús Guttormsson
S/öð — Minning
HINN 6. þ.m. var til moldar bor-
inn hér í Reykjavík Vigfús Gutt-
ormsson fyrrum bóndi á Ána-
stöðum í BreiðdaL Foreldrar
hans voru séra Guttormur síðast
prestur að Stöð í Stöðvarfirði og
frú Þórhildur Sigurðardóttir frá
Harðbak í Þistilfirði, og var hún
siðari kona hans. Séra Guttorm-
ur var fyrst prestur á Svalbarði
og þar fæddist Vigfús sál. 10.
júlí 1879 en fluttist þaðan með
foreldrum sínum 1888 að Stöð í
Stöðvarfirði er séra Guttormur
hafði fengið veitingu fyrir 7.
marz sama ár.
Vigfús heitinn var af góðu
bergi brotinn og stóðu að honum
miklar prestaættir austur þar.
Afi hans, faðir séra Guttorms,
séra Vigfús, sem hann hét eftir
var prestur að Ási í Fellum
Guttormsson fyrst prestur við
Reykjavíkurskóla 1807 og siðar
prests að Hólmum í Reyðarfirði
og síðast að Vallanesi, fjölhæfur
lærdómsmaður. Hann var sonur
séra Páls prests Magnússonar á
Valþjófsstað. Kona séra Gutt-
orms Pálssonar var Margrét
Vigfúsdóttir prests í Valþjófs-
setað Ormssonar en kona séra
Vigfúsar í Ási var Björg Stef-
ánsdóttir persts á Valþjófsstað
Árnasonar, sem voru foreldrar
séra Guttorms 1 Stöð.
Hér er nú aðeins sagt frá
næstu ættingjum, sem sýna það
sem áður er sagt, að góðir stofn-
ar stóðu að Vigfúsi heitnum.
Hann ólst upp 1 föðurgarði og
mun hgur hans hafa staðið til
meira náms, einkum í þeirri
fræðigrein, sem forfeður hans
voru mest rómaðir fyrir, nefni-
lega málfræði. Skilyrði öll virt-
Guðrún
Oddsdóttir
TIL MINNINGAR UM
okkar kæru trúarsystur,
GUÐRÚNU ODDSDÓTTUR,
F. 6. sept. 1882, d. 2. maí 1962.
Frá trúarsystrum.
Sem slokkni Ijós, sem hverfi rós
af kvisti,
nú hljóðnuð er þín rödd og
bænarmál.
í dýrðarborg hjá Drottni Jesú
Kristi
frá dimmu jarðar horfin er þin
sáL
Hann fann þig unga, Frelsarinn
vor blíði.
ViS fótskör hans þér veittist
trúarglóð.
Hann átti þina sál í starfi og
stríði,
þinn styrkur var hans endur-
lausnarblóð.
Við þökkum, Guðrún, geisla-
brotin björtu,
sem bárust okkur til frá þinni
sál,
og einatt glöddu okkar veiku
hjörtu,
í eldraun skírð við Jesú kær-
leiksbáL
Nú blessa vinir bjarta minning
þina
og bíða endurfunda Jesú hjá.
Þá mun hans brúður björt sem
sóiin skína
í birtu Drottins náðarstóli frá.
Kristín Sæmunds.
ATHUGIÐ !
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum.
ust líka fyrir hendd. Faðirinn
fjölfróður um þessa hluti og son-
urinn móttækilegur og fullur
áhuga.
En lífið er nú ekki svo einfalt,
sem það lítur út fyrir frá bæjar-
dyrum þeirra, sem standa fjær.
Stöð í Stöðvarfirði er gamalt
prestssetur, og þar hafa margir
merkir prestar verið, en líklega
fáir ríkir. Jörðin er að vísu all-
góð bújörð, en fremur lítil og án
allra hlunninda. Sveitin lítil og
fámenn. Presturinn, sem jafn-
framt var bóndinn, var í röð
merkra klerka sem góður sálu-
sorgari og kennari, enda hafði
hann kennt mörgum piltum und-
ir æðra skólanám, málamaður
og latinuhestur, fátækur með
stóra fjölskyldu, en allt öðrum
hugðarefnum en vera bóndi.
Vinnufólkið svokallaða var þá
að hverfa úr sveitum og flytja í
þéttbýlið. En búið verður að
reka, það er höfuðskilyrði þess
að fjölskyldan geti lifað sóma-
samlegu lífi í sveit á íslandi um
þessar mundir. Embættislaunin
lítil og greiðast oft í baugabrot-
um og skjaldaskriftum. Og niður
staðan? Jú, elzti sonurinn verður
að vinna og systkinin öll, eftir
því sem aldur og þroski leyfir.
Enn timinn líður og áhuginn fyr-
ir menntamálum dofnar. Þannig
er sagan, sem er víst ekkert eins-
dæmL
Árið 1903, um haustið, hefur
Vigfús sig þó upp í það að slíta
heimdrangann og siglir til Nor-
egs og gengur þar í lýðháskóla
vetrarlangt, sem verður hans
eina skólaganga fyrir utan heima
kennslu föðursins og sjálfs-
menntunar, sem var að mestu
bundin við málakennslu í ýms-
um tungumálum, svo sem latínu,
frönsku og norðurlandamálin.
Árið 1904 kvæntist Vigfús
Ingigerði Ko'nráðsdóttur, Sveins-
sonar og konu hans Sigríðar
Hjálmarsdóttur, hreppstjóra og
stórbónda á Brekku í Mjóafirði.
Sveinn, faðir Konráðs, var Her-
mannsson, Hermannssonar í Firði
í Mjóafirði og Þóru Jónsdóttur,
en kona Sveins var Ragnhildur
Konráðsdóttir Salómonssonar frá
Vík í Lóni og var hann bróðir
þriðju konu Hermanns í Firði
Jónssonar Pamfíls, en albróðir
þeirra var Árni bóndi í Svínhól-
um í Lóni og Jón verzlunarstjóri
á Kúvíkum við Reyðarfjörð, sem
margt mætra manna er frá kom-
ið. —
Fyrstu árin bjó Vigfús í Stöð
móti föður sínum, en 1907 flutt-
ust þau að Ánastöðum í Miðdal,
lítilfjörlegu harðbýliskoti, innsta
bæ sunnan ár í suðurdalnum,
sem nú er kominn í eyði og þar
bjuggu þau í 18 ár eða til 1925, að
konan missti heilsuna og þau
fluttust til Norðfjarðar og þar dó
Ingigerður ’ eftir langvarandi
heilsuleysL
Þau eignuðust 2 börn, Sigríði,
sem dó rúmlega 20 ára, f. 18. 8.
1905, og Guttorm Hermann, f. 6.
6. 1906 og er hann þjónn á Gull-
fossi.
Eftir að þau fluttust til Norð-
fjarðar stundaði Vigfús barna-
kennslu á vetrum en ýmiskonar
kaupavinnu á sumrum. Eftir lát
konu sinnar fluttist hann til
Stöðvarfjarðar, en stundaði far-
kennslu, aðallega í Fáskrúðs-
fjarðarhreppi, má svo segja óslit-
ið úr því til 1951 að hann fluttist
til Reykjavíkur, þar sem sonur
hans var þá búsettur og stund-
aði Vigfús smábarnakennslu á-
fram þar til nú fyrir þrem árum,
en jafnhliða því hafði hann at-
vinnu við að skrifa upp orðtök
fyrir orðabókarnefndina, sem ég
held þeim hafi líkað vel, enda
var Vigfús orðlagður fyrir trú-
mennsku og einstaka samvizku-
semi í hverju starfi.
Kynni mín sem þetta rita af
Vigfúsi voru ekki mikil framan
af ævi, og urðu fyrst náin er við
vorum báðir fluttir til Reykjavík
ur, sem mun hafa verið sama ár-
ið, 1951,’en eftir það fundumst
við oft og rifjuðum upp gamlar
minningar frá æskustöðvunum.
Ég þakka honum því hér með
samveruna um leið og ég sakna
samveruslitanna.
Að lokum vil ég votta einlæga
samúð mína til sonarins og eft-
irlifandi systkina og annarra
náinna vina og frænda við frá-
fall hins samvizkusama og góða
drengs, sem Vigfús Guttormsson
áreiðanlega var. Lifið heil.
Marteinn Þorsteinsson.
Washington 27. febr. NTB.
V a marTruála ráðherra V.-
Þýzkailands, Kai-Uwe von
Hassel ræddi í dag við Kenn-
edy Bandarikj afor se.ta í Wash
ington. Að viðræðum þeirra
loknum ræddi þýzki ráðherr-
ann við fréttamenn og lagði
álhorzlu á það, að sitjórnir
Bandiaríkjanna og Vestur-
Þýzkalan-ds væru sammáia
um stefnuna, sem taika sikyidi
i vannanmálum Evrópu Hann
sagði, að Vestur-Þjóðiverjar
væru reiðuibúnir að taka þátt
1 kjarnorkuiher AtJantshafs-
bandalagsins, sem nú væri f
ráði að koma á íót
Vil kaupa
Willys station 6 cyl.
í fullkomun lagi, ekki eldri en árgang ’55.
Skipti á rússneskum jeppa yfirbyggðum koma til
greina.
Upplýsingar að Laugateig 19 kjallara eftit kl. 3 í dag.
íbúð — Húshjálp
íbúð 2—3 herbergja óskast nú þegar, 4 fuliorðið
í heimili. Húshjálp og barnagæzla eftir samkomu-
lagi. — Upplýsingar í sima 33494. -
Sumarnómskeið í Englondi
Dalhousie School, Bexhill-on-Sea, Sussex, Englandi
heldur enskunámskeið íyrir stúlkur innan við 17 ám
aldur, frá 31. mai til 30. ágúst Tekið verður á móti
nemendum á Lundúnaflugvelli, ef óskað er. Állar
nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra.