Morgunblaðið - 01.03.1963, Síða 17
Fðstu(3»£ur 1. marz 1963
MORGVIS B r. Á ÐIÐ
17
Gís// Sigurgeirsson 70 ára
Úlfar Kristjánsson
Kvebja
TÍMINN líður. Fyrir 39 árum
lágu leiðir okkar Gísla Sigur-
geirssonar fyrst saman á fundi
í Góðtemplarareglunni. Um nán-
ari kynni varð J>ó frekar lítið
um skeið. En tvx> síðustu ára-
tugina hefur samstarf ofekar
verið mjög náið, svo náið, að
ég hef stundum kallað heimili
hans mitt annað heimili, og fer
fjarri því að það sé nokkurt
öfugmæli.
I Mjög væri því freistandi að
skrifa ítarlega um þennan ágæta
vin minn á þessum tímamótum
í líifi hans, þegar það er orðin
tízka í landi voru, og lög þó,
að heimilt sé að taka starfið frá
mönnum á þeim aldri — leggja
|>á til hliðar. En í stað þess verð-
ur þetta aðeins stutt afmælis-
kveðja.
1 Gísli er borinn og barnfæddur
Hafnfirðingur, fæddur 1. marz
1893, og hefur alið þar allan ald-
ur sinn.
Foreldrer hans voru merkis-
hjónin Sigurgeir Gíslason, verk-
stjóri, og síðar sparisjóðsgjald-
keri, mikiHil bindindishetja oig
kirkjuvinur, og Marín Jónsdóttir,
yndisleg kona og móðir. Veit ég,
að Gísli telur það verið hafa
mikla hamingju lífs síns að alast
upp á fyrirmyndarheimili, þar
*em fagrar dyggðir mótuðu all-
an heimilisbraig og sáð var heil-
brigðum frækornum í ungar sál-
ir.
Og eplið féll heldur ekki langt
frá eikinni. Gísli fetaði trúlega
i fótspor föður síns. Hann gekk
ungur í Flensborgarskólann og
lauk þaðan kennaraprófi. Á sumr
um stundaði hann vegavinnu
víða um land hjá föður sínum
og var síðan sjálfur lengi verk-
ítjóri. En nú um tvo áratugi
hefur hann verið starfsmaður
á skrifstofu Hafnarfjarðarbæj-
ar og er nú jafnframt heilbrigð-
isfulltrúi bæjarins. Vel ætla ég
að Gísli hafi rækit skyldustörfin,
|>ví að bæði er hann verkmaður
og myndvirkur og snyrtimennsk
an honum í blóð borin.
Hitt er miér þó kunnara, að
hann á ýmis hugðarmál, sem
hann- hefur lagt mikla alúð við
og fórnað miiklu starfi, enda unn
ið ómælt gagn. Ber þar hæst
tvœr hugsjónir, hugsjón krist-
innar trúar og bindindishugsjón-
in, en hann ann báðum heilshug-
ar.
Gísli gekk barn að aldri í stúk-
una Morgunstjörnuna í Hafnar-
firði og hefur lengi verið einn
af aðal forystumönnum hennar,
og um áratugi í framvarðarsveit
íslenzkra templara. Hann átti
sæti í framkvæmdanefnd Stór-
stúku íslands meira en tvo ára-
tugi, og ávallt reiðubúinn til að
þoka fram merki Reglunnar og
bindindismálsins, ef færi gafst.
Vel kann hann til verka í félags-
málabaráttunni,, fróður um þá
hluti, vel máli farinn og ósérhlíf-
inn, einlægur og brennandi í and-
anum. Sannarlega hefur hann á
vaxtað trúlega arfinn úr for-
eldragarði.
Samstarf okkar Gísla er orðið
nokkuð mikið í Góðtemplara-
reglunni, og þar kynntist ég
fyrst áhuga hans og starfshæfni.
En samstarf okkar hefur þó
ekki verið síður náið í Fríkirkju
söfnuðinum í Hafnarfirði nú hátt
á annan áratug. Allan þann tíma,
og lengur þó, hefur Gísl1 verið í
stjórn safnaðarins, alltaf staðið
á söngpalli og oftsinnis annazt
orgelleiik við guðsþjónustur, er
á milli hefur borið. En Gísli
ann mjög hinni svásu list söngs-
ins eins og allri hljómlist yfir-
leitt.
Ég get ekki lokið þessari af-
mælisgrein án þess að minnast
heimilis afmælisbarnsins og
þakka fyrir mig liðna tíð, en
líkt hið sama, veit óg, að marg
ir vildu nú gera. Á heimili hjón
anna Gísla Sigurgeirssonar og
frú Jensínu Egilsdóttur að Strand
götu 19, ríkir jafnan glaðværð
og þar er gestrisni og rausn svo
mikil og einlæg, að öllum hlýtur
að líða þar vel. En húsbóndinn
á þar ekki einn hlut að máli.
Þáttur húsfreyjunnar er þar sízt
minni.
Gísli Sigurgeirsson skildi það
þegar í æsku, og öll reynsla hans
hefur staðfest það, að
.......allt var ógert verk,
sem ekki studdi mannúð sterk.“
Sá, sem lifir og starfar í þeirri
trú, hefur ekki til ónýtis lifað.
Ég óska afmælisbarninu, fjöl-
skyldu hans og ástvinum, heilla
og blessun á þessum merkisdegi
og um ókomin ár.
Kristinn Stefánsson.
'A Fundur ráðherra
V ars j árbandal.
Varsjá, 28. febr. (NTB)
Varnarmálaráðherrar og
æðstu hershöfðingjár Varsjár
bandalagslandanna eru nú sam
ankomnir á fundi í Varsjá. —
Ekki hefur verið skýrt frá því
hver sé ástæðan til fundarins,
eða hvað verði rætt..
SÚ harmafregn barst mér sunnu-
daginn 24. febrúar sl. að Úlfar
vinur minn hefði farizt 1 hús-
bruna þá um morguninn.
Mig setti hljóðan. Gat þetta
verið satt. Gátu örlögin verið
svona grimm.
Úlfar Kristjánsson rafvirki
var fæddur 7. desember 1930,
sonur ágætishjónanna Guðrúnar
Bjarnadóttur og Kristjáns
Sveinssonar. '
Leiðir okkar Úlfars lágu sam-
an í Ljósafoss h.f. 1952, þegar
ég hóf þar nám í rafvirkjun hjá
Jóni Sveinssyni rafvirkjameist-
ara. Úlfar hafði byrjað nám hjá
honum nokkru áður. Á ég marg-
ar ánægjulegar minningar um
samstarf okkar þar. Ég man allt-
af eftir því að oftast var hringt
og beðið um Úlfar til hvers kon-
ar vinnu. Fór það svo að virð-
ing mín jókst mjög á honum og
ég fann að mig langaði til að
líkjast honum í starfinu. Að
loknu námi skildu leiðir okkar
um stund. En svo hófum við starf
saman í Ljósvakanum h.f. árið
1957.
Tókst þá með okkur mikil vin-
átta, sem hélzt ávallt síðan. Þó
fór svo að lokum að sjórinn, sem
Úlfar hafði ávallt þráð og var
honum efst í huga gegn um öll
árin, varð til að skilja líiðir okk-
ar að nokkru leyti. Virtist mér
Úlfar aldrei hafa verið eins ham-
ingjusamur eins og eftir að hann
komst á sjóinn. Þar virtist hann
eiga heima. Þó var nokkuð sem
skyggði á hamingju hans, þótt
hann léti það lítt í ljós. Það var
sífelld vanheilsa konu hans, því
hana og börnin elskaði hann
framar öllu. Fylgdist ég vel með
þessu, því oft og einatt kom
hann við hjá mér þegar hann
kom úr heimsóknartímum af
spítalanum frá henni. Svo núna
þegar allir vonuðu að konan væri
að verða hraust, varð hann að
kveðja okkur svo skyndilega.
Eftirlifandi kona hans, Hrefna
Svava Þorsteinsdóttir, reyndist
honum góður lífsförunautur og
átti hann henni margt ómetan-
legt að þakka. Ég bið góðan guð
að blessa og vernda börnin hans,
Þorstein 5 ára, Unni 7 ára og
Guðlaugu 8 ára, sem voru auga-
steinar föður síns.
Kæri vinur. Ég kveð þig með
söknuði, þar sem leiðirnar hafa
skilið að sinni, en minningin um
góðan dreng verður mér og öðr-
um vinum þínum gott veganesti
þar til við sjáumst aftur. —
Konu þinni, börnum og foreldr-
um votta ég mína dýpstu samúð.
Stefán Jóhannsson.
BÖKAMARKAÐUR
BðKSALAFfLAGSIMS
í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
Austurstrœti 18
|
Mikill fjöldi gamalla íslenzkra bóka ,
frá öllum stærstu útgefendum lands- i
ins á ótrúlega lágu verði. 1
Allt að 70% afsláttur frá upphaflegu 1
bókaverði.
• • i 1
Sjaldgœft tœkifœri til hagkvcemra bókakaupa
Bóksalafélag íslands