Morgunblaðið - 01.03.1963, Síða 20

Morgunblaðið - 01.03.1963, Síða 20
20 MORfíVHRlAÐIÐ Föstudagur 1. marz 1963 PATRICIA WENTWORTH: — MAUD SILVER ________ KEMUR I HEIMSÓKN á eftir mér. — I>að er þá Alan Crover skrif erinn minn — hann á heima í Melling. Jú, mínir herrar, það er ekki nema rétt, að ég heim- sótti frú Weiby bæði þessi kvöld, og það er vonandi ekki glæpsam legt að heimsækja fagra konu. En hitt er annað mál, a. maður hefur engan áhuga á að auglýsa slíkt, í öðru eins kjaftábæli og þorpið hérna er, en ég er fús til að viðurkenna þessar tvær heim sóknir mínar. En hvað er ann- ars um þær? Drake sagði hvasst: — >ér vor uð í nágrenninu við Mellinghús ið milli tíu og hálfellefu á mið- vikudagskvöldið? Hr. Holderness brosti. — Já, ég var að heimsækja frú Welby. — Á þeim tíma? Brosið hvarf ekki. — Góði lög reglufulltrúi minn.... — f>ér segizt hafa verið hjá frú Welby. — Hún mun vafalaust stað- festa það. Það var stutt þögn. Drake leit á iögreglustjórann. March sagði: — Vitið þér þá ekki, að frú Welby er dáin? Höndin, sem hafði haldið á skjalinu lyftist með rykk, en féll síðan aftur niður á hnéð. Roð inn í kinnunum hafði greinilega dofnað. — Nei! >að eru óhugnanlegar fréttir. — Svo að þér vissuð það ekki? — Nei, hvernig hefði ég átt að vita það? — >ér voruð hjá henni á laug ardagskvöldið og á sunnudags- morgun var hún látin. — Hvernig dó hún? — Af of miklum svefntöflum. Hr. Holderness hallaði sér aft- ur í stólnum og sagði í hálfum hljóðum: — >að kemur mér illilega á óvart — ég hef þekkt hana síðan hún var barn. Og svo bætti hann við: — Lofið þér mér aðeins að jafna mig. >egar mínúta var liðin, hafði hann jafnað sig og sagði rólega. — Eg sé, að ég verð að seja ykkur það, sem ég var að vona, að ég kæmist hjá að segja. Frú Welby var ekki beinlínis skjól- stæðingur minn, en hún var alda vinur og spurði mig stundum til ráða. Hún kom hingað á laugar dagsmorguninn og trúði mér fyrir því, að hún væri í alvarlegum vandræðum stödd: Eg skal taka það fram, að hún var búin að búa þarna í Hliðhúsinu í nokk ur ár, fyrir sama sem enga leigu. Frú Lessiher hafði útvegað henni húsgögn í húsið og — með réttu eða röngu — skildi frú Welby þetta þannig, að þessir innanstokksmunir væru gjöf tiil sín. Hún gekk meira að segja svo langt að selja suma af þeim >egar hr. Lessiter kom heim, gekk hann í málið — og kom til mín, til að ráðgast um það. Hann grunaði, að eitthvað af þessum munum hefði verið selt, þar á meðal Cosway-smámynd, sem var mjög verðmæt, og hann var í sérlega hefni gjörnu skapi. Eg reyndi að blíðka hann, eftir því sem ég gat, en hann vildi ekki láta telja sig af' því að kæra þetta, ef hann fengi nægar sann anir í hendurnar. Á miðvikudags kvöldið hringdi hann mig upp tii að segja mér, að hann hefði fund ið minnisblað, sem móðir hans hefði skilið eftir handa honum, og þar stæði svart á hvítu, að innanstokksmunirnir í Hliðhús- inu hefðu aðeins verið léðir frú Welby, en alls ekki gefnir. Svo endurtók hann þann ásetning 52 sinn að kæra hana. Eg gat mér þess til, að frú Welby hefði feng ið samskonar tilkynningu, og vissi vel, hve nærri hún myndi taka sér það, svo ég tók bílinn minn og fór að finna hana. Hér gerði hann þögn. >egar hvorki Drake né lög- reglustjórinn gerðu neina athuga semd lyfti hann hendi á sama hátt og áður, lét hana síðan falla á hné sér og hélt áfram ræðu sinni. — Eg fann hana afskaplega illa á sig komna. Hún sagðist hafa farið upp í Mellingbúsið að reyna að hitta James Lessiter, en er hún varð þess vör, að ung frú Cray var stödd hjá honum hafði hún snúið frá aftur. Hún vildi reyna aftur að hitta hann, en ég benti henni á, að það myndi alls ekki vera hyggilegt — miklu betra að lofa honum að sofa á þessu um nóttina. Eg sagði henni, að ég þættist viss um. að hann mundi koma til mín og ráðgast um málið, og þ-á mundi ég benda honum á, hvílík ur álitshnekkir það gseti örðið honum ef hann færi að fara eins langt og hann kæmist og grípa til örþrifaráða. Eg fullvissaði hana um, að það væri mjög ó- liklegt, að hann gripi tiil hörku bragðs. Hún talaði eitthvað um að gera aðra tilraun til að tala við hann sjálfan, en ég réð henni eindregið frá því. Og þegar ég skildi við hana hélt ég, að hún væri hætt við það.. Hann þagn aði, leit á lögreglustjórann og sagði. — Viljið þér bóka eitthvað af þessu? Eg sé, að fulltrúinn skrifar ekki neitt. March svaraði með alvörusvip: — >ér getið gefið skýrslu seinna ef þér óskið þess. Og þér gerið yður ljóst, að bún getur orðið notuð sem vitnisburður. — Vitanlega. En svo að ég haldi , áfram, þá frétti ég um andlát James Lessiters á fimmtu dagsmorgun. Mér varð afskap- lega hverft við. Lögreglan bað um aðstoð mina til að komast að því, hvort nokkurs væri saknað úr húsinu, og ég fór með skrif- aranum og bar saman við skrána yfir innanstokksmuni. Varr Rob ertson leitaði ráða hjá mér, varð andi afstöðu sína til málsins, og mér þótti rétt að láta þess getið. að Cyril Mayhew hefði sézt í Lenton, kvöldið sem morðið var framið. Eg réði Robertson til að gefa lögreglunni ítarlega skýrslu Laugardagsmorguninn kom svo frú Welby í skrifstofuna til mín Eg hef ekki leyfi til að skýra frá öllu, sem hún sagði mér, en eins og á stendur finnst mér það skylda mín að segja, að hún gaf í skyn, að hún hefði farið aftur til Mellinghússiys þetta kvöld, eftir að ég skildi við hana Og sálarástand hennar fyllti mig óróa. Eg bað hana að fara heim og leggja sig og svo skyldi ég koma og tala við hana um kvöldið. Eg var í hálfgerðum SHtltvarpiö Föstudagur 1. marr 15.00 Síðdegisútvarp. 8.00 Morgunútvarp. 17.40 Framburðarkennsla I esper- anto og spænsku. 18.00 „Þeir gerðu garðinn frægan"*: Guðmundur M. Þorláksson talar um Jón Sigurðsson. 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Erindi: Verkalýðurinn og þjóð félagsþróunin (Hannes Jóns- son félagsfræðingur). 20.35 Tónleikar: Píanókonsert nr. 1 1 Des-dúr op. 10 eftir Pro- kofj ef f. 20.50 í ljóði: Að vera fslendingur, þáttur i umsjá Baldurs Pálma sonar. 21.15 Tónleikar: Kvintett fyrir horn, fiðlu, tvær víólur og selió (K407) eftir Mozart. 21.30 Útvarpssagan: „íslenzkur að- all“ eftir Þórberg Þórðarson; X. (Höfundur les). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmar (17). 22.20 Efst á baugi (Tómas Karls- son og Björgvin Guðmunds- son). 22.50 Á síðkvöldi: Létt-klassisk tónlist. 23.25 Dagskrárlok. Laugardagur 2. mari. 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 Óskalög sjúklinga (Kristín Anna Þórarinsdóttir). 14.40 Vikan framundan: Kynning á dagskrárefni útvarpsins. 15.00 Fréttir. — Laugardagslögin. 16.30 Danskennsla (Hreiðar Ást- valdsson). 17.00 Fréttir. — Æskulýðstónleikar, kynntir af dr. Hallgr. Helga- syni. 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Vista skipti“ eftir Einar H. Kvaran; 111. (Helgi Hjörvar). 18.20 V eðurfregnir. 18.30 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). 18.55 Tilkynningar. — 19.30 Fréttir. 20.00 „Karnaval“, forleikur op. 92 eftir Dvorák. 20.10 Leikrit: „Glataði sonurinn** eftir Alek?ej Arbuzov, 1 þýð« ingu Halldórs Stefánssonar, — Leikstj.: Gísli Halldórsson. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmar (18). 22.20 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. 16250 VINNINGAR! Fjórði hver miði vinnur að meðaltatil Hæstu vinningar 1/2 miHjón krónur, Lægstu 1000 krónur. Dregið 5,‘hvers mánaðar. ALLTAF FJÖLGAR YOLKSWAGEN Akið mót hækkandi sól og sumri í nýjum VOLKSWAGEN VORIÐ Vinsældir VOLKSWAGEN hér á landi sanna ótvírætt kosti hans við okkar staðhætti — VOLKSWAGEN er ekkert tízkufyrirbæri, það sannar bezt hið háa endursöluverð hans. Verð aðeins kr. 121.525,00. VOLKSWAGEN er vandaður sígildur bíll. Volkswagen er einmitt framleiddur fyrir yður. — PANTIÐ TÍMANLECA - VOLKSWAGEN ER 5 MANNA BÍLL HElLDVfRZLUNIH HEKLA HF Laugavegi 170—172 — Reykjavík — Sími 11275. iNú er rétti tíminn a3 panta 20ára reynsla hérlendis SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON aCQ HF KALLI KUREKI - * * - TeiknarL* Fred Harman T9IS OLD GUÖ GlVES ME. A FUWWY FEELIM&.' X CAW JUST SEE THE &HOST OF AK) OLD COMaUISTADOE STAMDIM&A M'&HTWATCH/ BROMCO.'YOd SCARED OF 6+tOSTS ? A HARD-CASE UKE YOU? JUST 'CAUSE ÝDU'RE EDUCATED DOM'T MEAM YOU KW0W EVERYTHIW&.' IVE SEEN SOME THIW&S /A ■— Þessi gamla byssa vekur hjá mér ' einkennilega tilfinningu. Það er eins ©g ég sjái fyrir mér framliðinn, •pánskan sigurfara, sem stendur á ^ verði við herbúðirnar. — Þú... .þú sagðir framliðinn. ^ —- Bikkju-Bjami, ertu hræddur við drauga? Jafn harðsvíraður karl og þú ert. — Þó þú sért eitthvað menntaður, þýðir það ekki að þú vitir allt. Ég hef séð sitthvað, sem.... — (Það getur orðið gaman að þessu). Hversvegna ætti ég að halda því fram að þú hefðir á röngu að standa. Hversvegna skyldu þessir gömlu hermenn ekki verða órólegir á tunglskinsnóttu. Maður fær beinlínis gæsahúð við tilhugsunina. — REYNDU AÐ HALDA ÞÉR SAMAN.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.