Morgunblaðið - 01.03.1963, Qupperneq 24
fe
HIBYLAPRYÐI HF
__Hallarmúla s f m I 38 177
50. tbl. — Föstudagur 1. marz 1963
Bifreið út af veginum d FagradaL
Steyptist70m
Ökumanninum tókst að henda sér út
og slapp ómeiddur
ReyðarfirSi og Egilsstööum,
28. febrúar.
JEPPABIFREIÐIN U-138 frá
Norðfirði fór út af veginum
í Skriðum á Fagradal um há-
degisbilið í dag. Rann bifreið-
in fyrst niður um 12 metra
bratta og tókst ökumannin-
lun þá að kasta sér út. Stéypt-
ist bifreiðin svo niður í
gljúfrið, um 70 metra fall.
Ökumaðurinh, Árni Þórhalls
son, Kirkjubóli í Norðfirði, var á
leið til Egilsstaða einn síns liðs.
Ók hann nýjum Austin-Gypsy-
jeppa, U-138.
Þegar jeppinn var kominn all-
ofarlega í svonefndar Skriður á
Fagradal missti Ámi stjórn á
honum. Nokkurt svell var á veg-
inum, en kanturiiin þó auður.
Jeppinn rann niður snarbratt-
an halla, um 12 me.tra langan.
Tókst Árna þá að opna hurðina
og henda sér út áður en jeppinn
kom að- klettabrúninni. Frá
henni er a.m.k. 70 metra fall nið-
ur í gljúfrið, sem Fagradalsá
rennur eftir. Jeppinn steyptist
þangað niður. Er hann svo mikið
skemmdur, að hann er talinn
gjörónýtur.
Ámi slapp með smávægilegar
skrámur. Hann fór upp á veginn
aftur og lagði af stað gangandi
til Reyðarfjarðar, en það er um
8 kílómetra vegalengd. Nokkru
síðar kom bifreið eftir veginum
og fékk Árni far með henni til
Reyðarfjarðar.
Þar tilkynnti hann um slysið
og fór svo til læknis í öryggis-
skyni. Hann fór síðdegis heim til
sín.
Árni Þórhallsson sagði, að
hann hefði misst stjórnina á bif-
reiðinni sökum þess að stýri
hennar hafi farið úr sambandi.
Veður var ágætt, þegar slysið
varð, en nokkur rigning var.
Reynt verður síðar að ná bifreið-
inni upp.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Egilsstöðum átti í gær tal við
Sigurð Sveinsson, bifreiðaeftir-
litsmann, Reyðarfirði, sem fór
niður að flaki jeppans.
Telur Sigurður, að líkleg
ástæða fyrir slysinu sé sú, að á
Framhald á bls. 23.
Karlamirfengu sjó í
matinn sinn
Þýzki tógarinn nú í Vestmannaeyjahöfn
— Viðtal við hafnsögumanninn
en þá var
ÞÝZKI TOGARINN Trave frá
Kiel liggur nú á Friðarhöfn í
Vestmannaeyjum, en hann tók
niðri á Faxaskeri við Eyjar í af
takabrimi og roki aðfaranótt
miðvikudags. í fyrrinótt lá tog-
arinn undir Eiðinu og hjá honum
voru varðskipin Albert og Óðinn.
Albert dró togarann til hafnar
og aðstoðaði dráttarbáturinn
Lóðsinn við það verk. Óðinn fór
í humátt á eftir ef frekari hjálp
þyrfti. Togarinn var kominn til
hafnar um kl. 10:30 í gærmorg-
un og hafði tekið um tvo tíma að
draga hann undan Eiðinu og inn
til Eyja.
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá í gær mótti engu muna, að
togarinn sykki eftir að hann tók
niðri á Faxaskeri, enda afspyrnu
slæmt veður, hávaðarok og mik
ið brim.
Morgunblaðið átti í gær tal við
Jón í. Sigurðsson, hafnsögumann
í Vestmannaeyjum og fer frásögn
hans hér á eftir:
— Lóðsinn fór af stað héðan á
níunda tímanum í morgun til að
aðstoða varðskipin við að koma
Trave til hafnar. Veður var slæmt
og versnaðí þegar á leið.
— Ætlunin var að fara af stað
fyrr um morguninn,
of mikið rok.
— Albert dró togarann og hafði
úti um 170 faðma af dráttarvírn-
um. Lóðsinn hjálpaði líka til, því
togarinn gat enga björg sér veitt,
var stýrislaus, skrúfan brotin, og
aflvélarnar störfuðu ekki.
— Það tók um tvo tíma að
koma togaranum inn á höfnina,
þar sem hann liggur nú. Leki er
á honum og verður kafari send
ur niður á morgun til að kanna
skemmdirnar, ef veður leyfir.
— Togarinn rakst á Faxasker
með bakborðssíðuna, líklega á
norð-véstur horn skersins. Það
varð þeim til lífs. Helgi fórst á
Reykjanes-
kjördæmi
KJÖRDÆMISFUNDUR Sjálfstæð
isflokksins í Reykjaneskjördæmi
verður n. k. föstudag 8. marz í
Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði og
hefst kl. 21. Fundarefni: Ákvörð
un framboðs Sjálfstæðisflokksins
í Reykjaneskjördæmi.
sínum tíma við Faxasker sunnan
vert. ,
— Það var engin furða þótt
Þjóðverjunum litist ekki á blik
una, þegar óhappið varð. O'fsa-
veður var, mikið brim og kol-.
svarta myrkur. Þetta leit illa út.
— Sjór gekk yfir skipið, eink-
um áftan til. Nokkrar skemmdir
hlutust af þessu og karlarnir
fengu sjó í matinn sinn. Þeir
fengu vist sumir sjokk, enda allt
í svartakafi.
— Farið var með togarann und
ir Eiðið, þar sem hann lá sl. nótt
við akkeri. Albert lá við síðuna
og dæhir voru settar um borð
til 'að hamia gegn lekanum.
Framih. á bls. 23.
9 ára drengur
fótbrotnar
NÍU ára drengur, Guðmundur
Pétursson, varð fyrir bifreið á
gatnamótum Þinghólsbrautar og
Kópavogsbrautar kl. 11.45 í gær-
morgun.
Guðmundur brotnaði á hægra
fæti og var hann fluttur í Landa-
kotsspítalann.
Egilsstöðum, 27. febr.: -
I gærkvöldi kom hlaup i j
Grímsá og sprengdi hún af sér .
allan ís, 50—60 cm þykkt lag,
og kastaði jökunum upp á!
bakkann.
Við bæinn Hvamm í Valla- |
hreppi brotnaði staur í há-
spennulinu, sem liggur að Hall'
ormsstað. Var í dag unnið að '
viðgerð á linunni.
Meðfylgjandi mynd sýnir |
verksummerki.
(Ljósm.: Ari Björnsson).
Ók drukkinn út af
AKUREYRI, 28. febrúar. — Um
kl. 18 í kvöld fór bifreið, sem
var á leið frá Akureyri til Lauga
lands, út af veginum hjá bænum
Gröf í Kaupvangssveit
Tveir menn voru í bifreiðinni
og sluppu báðir ómeiddir. Eig-
andinn ók ekki sjálfur, en hafði
falið félaga sinum stjórnina. —.
Grunur leikur á, að ökumaður-
inn hafi verið undir áhrifum
áfengis.
Bifreiðin, sem var nýkomin af
verkstæði, er mjög mikið
skemmd. Mál ökumannsins er 1
rannsókn. — Sv. P.
Heimdallur
MÁLFUNDAKLÚBBUR, fundur
verður í kvöld kl. 8,30.
Stjórnin.
Börnin, sem sjást hér á myndinni skemmtu sér greinilega konunglega, þótt sum þeirra virð-
ist hafa á tilfinningunni að þau megi í rauninni ekki hlæja. Spumingin er að hverju bau eru
að hlæja og svarið við því er á 3. sáSu blaðsins í dag. (Ljósm. Sv. Þorm.).
Rangá komst áleiðis |
Fjögux íslenzk skip d Kattegat í gær
FJÖGUR íslenzk skip voru í
gær á íssvæðinu á Kattegat
og var ekki vitað til þess í
gærkvöldi, að neitt þeirra
væri komið á leiðarenda.
• Rangá, annað flutninga-
skip Hafskips, sem i gær var
fast í ís á Kattegat, losnaði
í gærmorgun, en komst ekki
til Gautaborgar. í gærmorgun
mun ísinn á Kattegat hafa
gliðnað nokkuð, og Rangá,
sem þá hafði verið fast í
ísnum rúman sólarhring, losn-
aði og hélt áleiðis til Gauta-
borgar. Um hódegisbilið bár-
ust þær fréttir að skipið væri
búið að fara um 12 milur, en
ferðin gengi seint, þvi renn-
urnar, sem mynduðust í ísn-
umum opnuðust og lokuðust
á vixl.
í gærkvöldi barst svo
skeyti frá skipinu, þar sem
aðeins sagði að skipið hefði
stoppað um hálfníu leytið,
eftir sænskum tíma. Ekki var
gefin nein skýring hvort það
væri frekar af völdum ísa eða
myrkurs. Þoka var i gær á
þessum slóðum og munu
ísbrjótar ekki hafa verið að
starfi af völdum hennar.
• Þrjú önnur skip eru á
þessum slóðum, Dísarfell,
Fjallfoss og Tungufoss. Dísar-
fell er á leið til Gautaborgar
en beið í gær við ísröndina,
17 mílur fró Vinga, eftir að-
stoð ísbrjóts, sem ekki unnu
í gær vegna þoku. '
• Fjallfoss var á 'leið til
Kaupmannahafnar, og í gær-
kvöldi var ekki vitað hvort
hann væri kominn, en hann
hafði verið væntanlegur sið-
degis í gær. Leiðin til Kaup-
mannahafnar mun nú 'vera
greiðfærarí og íslítil renna
meðfram Sjálandi.
• Tungufoss var ó leið til
Lysekil, en var snúið þaðan
vegna ísa til Gautaborgar.
Ekki var vitað hvernig ferð
skipsins gengi, en talið ó-
s^nnilegt að það hefði lagt
í ísinn.