Morgunblaðið - 10.03.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.03.1963, Blaðsíða 2
2 MORGUWBLAÐIÐ Sunnudagur 10. marz 1963 Starísfræðsiunám- skeið fyrir kennara Á FUNDI borgarstjómar s.l. fimmtudag urðu allmiklar um- ræður um starfsfræðslu í skól- um borgarinnar. Tilefni uimræðnanna var til- laga, er Örlygur Hálfdánarson ('F) flutti þess efnis, að skipu- ieggj a í tilraunaskyni starfskynn ingu í nokkruim bekkjum ungl- inga og gagnfræðastigsins á kom andi skólaári. Til að undirbúa það sem bezt skyldi fela Ólafi Gunnarssyni að skipuleggja starfsfræðslunámiskeið fyrir kenn ara á hausti komanda. Flutti tillögumaður langa fram söguræðu um gildi starfsfræðsl- unnar fyrir þjóðfélagið. Óraunhæfur tillöguflutningur. Þórir Kr. Þórðarson (S) taldi Starfsfræðsluna vera merkilegt mál og væru sennilega allir sam- mlála um gildi hennar. Hann gat hins merka brautryðjendastarfs Ólafs Gunnarssonar, sálifræðings, í þessum efnum, en hann hefur starfað hjá Reykjavíkurborg síð- án 1951 og árið 1955 hóf hann starfsfræðslu í 2. bakkjardeild- um unglinga og gagnfræðastigs- ins og hefur því síðan verið hald- ið áfram í öllum þessum bekkj- ardeildum skólanna. Auk þess Laugavegs-A pot ek laust í SÍÐASTA Lögbirtingarblaði er auglýst laust til umsóknar lyf- söluleyfi í Lai.gavegs-Apoteki og er umsóknarfrestur til 1. apríl. Stefán Thorarensen hefur rekið Laugavegsapotek í áratugi. hiefði verið hald- inn á vegium borgarinnar al- mennur stairfs- fræðsludagur, sem vakið hefði athygli og gafið góða raun. Taldi í»KÞ ekki raunihæft nú að flytja til- lögu um að „skipuleggja í til- raunaskyni“, það sem þegar hefði verið reynt í nokkur ár. Þá upplýsti ÞKÞ, að starfs- fræðslunámskeið kennara hefði þegar verið ákveðið og yrði það haldið í september n.k. Væri á- kveðið að fá hingað danskan sér- fræðing í þessum efnum, er stæði fyrir kennaranámskeiðinu. Yrði það námskeið haldið af fræðslu- stjóra Reykjavíkur. Það væri því ljóst, sagði ÞKÞ, að þegar hafa verið ákveðnar þær framkvæmdir, sem þessi þátot ur tillögunnar gerði ráð fyrir. Lagði ræðumaður til, að til- lögu ÖH yrði visað til fræðslu- stjóra. Hann taldi að vísu, að það hefði ekki mikinn tilgang, þar sem varla yrði roeira gert í þessum efnurn. Kristján Benediktsson (F) hvatti til þess, að tillaga flokks- bróður hans yrði samþykkt, þrátt fyrir fengnar upplýsingar. Óskar Hallgrímsson (A) var ekki sammála því, að færa starfs- kynningnuna smám saman ytfir á hendur kennaranna. Taldi hann, að við starfsfræðslu þyrfitu að staa’fa sérmenntaðir menn, Benti hann á í því samfoandi, hvort ekki væri æskilegt, að við framhaldsdeild kennaraskólans yrði efnt til sérstakra námskeiða fyrir þá kennara, sem vildu sér- hæfa sig í starfsfræðslu. Alfreð Gíslason (K) hneýksl- aðist mjög á því, að flá ætti hing að „danskan" menn, til að „kenna börnum starfsfræðslu“, enda hlyti slíkur maður að vera ó- kunnugur íslenzku atvinnulífi. Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri, benti á, að hér væri um misskilning að ræða hjá borg- arfullitrúanum, eins og reyndar oft áður. Hinn danski sérfræð- ingur kæmi hingað aðeins til að skipuleggja starfsfræðslunám- skeið fyrir kennara. Tillaga Þóris Kr. Þórðarsonar var að lokum samþykkt gegn atkvæðum Framsóknarmanna og kommúnista. , Tékkneski sengvarinn Jíri Koutný syngur hér HINGAÐ til lands er kominn á vegum Tónlistarfélagsins tékkn- eski söngvarinn Jirí Koutný og mun hann halda hér tvenna tón- leiika (Ljóðakvöld), n.k. mánu- dag og þriðjudag kl. 7 e.h. í Aust urbæjarbíói, fyrir styrktarfélaga Tónilistarfélagsins. Á efnisskrá þessara tónleika eru þessi verk: „Liederkreis" op. 39 eftir Robert Sohumann. Söngv arinn syngur öll lög úr „Sehwan- engesang" eftir Franz Schubert, „Am Meer“, „Der Atlas“, „Ihr Bild“ og Das Fishermádohen". Þá koma fjórir sígaunasöngvar eft ir Adolf Dvorák. Sögvar þess- ir eru gerðir við Ijóð úr sam- nefndum kvæðaflokki eftir skáld ið Adolf Heyduk. Þeir fjalla um líf sigaunans í blíðu og stríðu, um ástir hans og þrár, og er sígauninn, hinn hrjáði en frelsis unnandi sonur nátúirunnar, í hug- um beggja höfunda tákn ánauð- ugar þjóðar þeirra. Við opnun útibúsins í Keflavík. A myndinni eru talið frá vinstri: Sveinn Jónsson, bæjar- stjóri Keflavíkur .Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Verzlunarb ankans, Alfreð Gíslason, bæjar- fógeti í Keflavík, Þorvaldur G uðmundsson, flormaður bankar áðs Verzlunarbankans og Björn Eiríksson, bankastjóri hins nýja útibús. y IJtibú Verzlunarbankanns I Keflavík VERZLUNARBANKI fslands opn aði í gær útibúi í Keflavík og er það fyrsta útibúið frá þeim banka utan Reykjavikur. Útibú Verzlunarbankans í Keflavík sbenidur við helztu aðal- götu bæjarins, Hafnargötu, í húsi nr. 31. Húsakynnin eru vistleg og smekklega innréttuð eftir þörfum nútíma þanikastarfsemi. Veitir það Keflvíkingum alla þá þjónustu sem Verzlunarbankinn lætur í té. Bankaistjóri hins nýja útibús er Björn Eiriksson, fyrrverandi flul'ltrúi í Verzlunarbankanum, en aðrir starfsmerm eru: Hrafn Þórisson ,gjaldkeri og Alda Kjart ansdóttir, bankaritari. Hið nýja útibú Verzlu narbankans í Keflavík. Sinfóníutónleikar TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveit ar íslands, sem haldnir voru í samkomuhúsi Háskólans í fyrra- kvöld undir stjórn Williams Stricklands, hófust með Egmont- forleik Beethovens og tveimur sönglögum hans úr harmleikn- um Egmont eftir Göthe. Tals- verð reisn var yfir flutningi forleiksins og gaman að fá að heyra sönglögin, sem voru ágæt- lega flutt af amerísku söng- konunni Sylvia Stahlmann. Hún söng einnig „Sieben frúhe Lied- Þá syngur Koutný 3 lög eftir Hugo Wolf, „Versohwiegene Liebe“, „Verborgenheit" og „Der Rattanfánger“ „Sá einn er þekk- ir þrá“ og lag úr ,-,Don Juan“ efltir sama tónskáld. Tékneski baritónsöngvarinn Jirí Koutný er fæddur árið 1930. Hann stundaði söngnám í Tón- listarbáskólanom í Prag og lauk þaðan burtfararprófi. Árið 1958 hlaut Koutný fyrstu verðlaun í „Haydn-Schubert söngkeppni“ í Vníarborg, og tveimur árum síðar hlaut hann viðurkenningarskjal fyrir frá- bæra framimistöðu í söngkeppni í Berlín, helgaðri Robert Scshu- mann. Jiri Koutný hefur komið fram á tónleikum víða um lönd. Hann er nú fastráðinn einsöngvari við Karlin-söngleikahúsið í Prag. Árni Kristjánsson pianóleikari annast undirleik með þessum söngvara á tónleikum Tónlistar- félagsins. Kirkjukvöld í Lougorneskirkju NÆSTKOMANDI þriðjudags- kvöld kl. 8,30 efnir Bræðrafélag Laugarnessóknar til fjölbreyti- legrar samverustundar í Laugar neskirkju. Hefir Bræðrafélagið starfað innan safnaðirns um nær tíu ára skeið og unnið kirkju sinni og söfnuði af mikilli alúð. Dagskrá þessa kirkjukvölds er vönduð mjög svo sem sjá má af þessari upptalningu: Fyrst mun séra Þorsteinn Jó- hannesson, fyrrv. prófastur í Vatnsfirði og ritari félagsins flytja ávarp. Þá syngur kirkjukórinn nokk ur lög undir stjórn Kristins Ingv arssonar. Þá mun síra Bjarni Jóns son, vígslubiskup flytja ræðu kvöldsins. Kristinn Hallsson óperusöngvari syngur þar næst nokkur lög. Þá les Jakob Hafstein upp, en hann er einn í stjórn félagsins. Undir lokin syngur svo kirkju kórinn enn fáein lög. Og loks lýkur sóknarpresturinn samkom unni. Aðgangur er ókeypis, og er þessu kirkjukvöldi eingöngu ætl að að vera til uppbyggingar og gleði, þeim, er þangað koma. Er vonandi að sóknarbúar meti þessa viðleitni Bræðrafélagsins, og fjölmenni í Laugarneskirkju á I 1 þriðjudagskvöldið næsta. 1 Garðar Svavarsson. er“ (sjö lög frá æskuárum) eftir Alban Berg. Þessi lög eru samin á ‘árunum 1905—8, meðan tón- skáldið var enn í hinum stranga skóla Arnolds Schönbergs. Þau eru í síðrómantískum stíl með impressionistísku ívafi, ljóðræn Og einkar fínlega unnin, og merkileg heimild um þroska- feril þess manns, sem síðar varð höfundar óperunnar Wozzeks. Einnig þessi lög flutti söngkonan af listrænni nákvæmni og mik- illi tónvísi, og er tvímælalaust, að hér er á ferð ágætlega mennt- uð og reynd listákona. Hún hefði sannarlega átt skilið til- litssamari og nærfærnari undir- leik heldur en þann, sem Sin- fóníuhljómsveitin hafði að bjóða að þessu sinni. Aðalviðfangsefni hljómsveitar- innar var „ítalska" sinfónían eftir Mendelssohn. Flutningur hennar var hversdagslegur og blæbrigðalítill, verkið var „spil- að í gegn“ en náði aldrei flug- inu. Einstöku sinnum, t. d. í upp- hafi lokaþáttarins, brá fyrir leiftrum, sem lofuðu góðu, en þau lýstu skamma stund. Yfir öllum flutningnum var grófgerð- ur og þyngslalegur blær, sem fer þessu fíngerða verki sérlega illa. — Að lokum söng Sylvia Stahlmann tvær aríur úr óper- um eftir Puccini. Staðsetning þeirra á efnisskránni var út í hött, enda uku þær litlu við gildi hennar, og hefði farið stór- um betur, að tónleikarnir hefðu endað á sinfóníunni. Við höfum nú með stuttu millibili hlýtt á þrenna „sin- fóníutónleika“, þar sem fram hafa komið frægir og ágætir söngvarar: fyrst Kim Borg, þá Irmgard Seefried og nú loks Sylvia Stahlmann. 1 öll skiptin hefir söngvarinn verið aðalatrið- ið en hljómsveitin aukaatriði Hún hefir „aðstoðað" söngvarana og síðan leikið, eins og til upp- fyllingar, eitthvað af þeim verk- um, sem hún hefir oftast flutt áður og þarf því minnst fyrir að hafa að koma upp sómasamlega Tónleikar hennar eru með sama áfrahaldi á hraðri leið til að verða „rútínu“-fyrirbæri. Hér þarf að vera á verði, og aðai- stjórnandinn, Mr. Stricland, verður að taka hlutina fastari tökum en verið hefir, éf hljóm- sveitin á ekki að koðna niður Og stárf hennar að breytast í eins konar „uppmælingarvinnu", þótt hún eigi nú meira mannvali á að skipa en nokkru sinni hefir verið áður. Jón Þórarinsson. — Tugir marma ... Framhald af bls. 1. sem varð snemma í morgun ! nágrenni Arnsberg. Nær fimmtíu manns særðust svo að flytja varð í sjúkrahús. Sprengingin varð á annarrl hæð verksmiðjubyggingar og hrundi þak hennar yfir verka- menn, er þar voru að starfi. —- Margir grófust til bana í rústun- um. Eftir sprenginguna steig svart, þétt ský upp af slysstaðnum og breiddist yfir nágrennið og allt til Arnsberg, sem er í tæpra 25 kílómetra fjarlægð. Ráðstefna SUS í dag í DAG lýkur ráðstefnu Sam- bands ungra Sjálfstæðismanna um íbúðabyggingar. Fundirn-i ir í dag hefjast kl. 14.30 og fundarstaður er Sjálfstæðis- húsið við Borgarholtsbraut í Kópavogi. í dag flytja erindl Gisli Halldórsson, arkitekt, um lækkun byggingarkostnaðar og Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt, um byggingarlistina og ibúðina. Síðar í dag verður farlff í kynnisferð og skoðaðar íbúðir1 i í Reykjavík. Hópferð verður á furdar- stað frá Valhöll og verður I lagt af stað kl. 1.15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.