Morgunblaðið - 10.03.1963, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.03.1963, Blaðsíða 17
MOP r. T’1\ RL AÐIÐ r Sunnudagur 10. marz 1963 17 Stefán Jónsson námstjóri f 70 ára Á MORGNI þessarar aldar ljóm- aði yfir landi okkar og þjóð undursamleg þirta nýrrar dag- renningar. | Þeir, sem þá voru að vaxa úr grasi gengu mót nýjum degi með sterka trú og þjartar vonir um endurheimt þjóðfrelsi og um miklar framfarir í ættlandinu. Með birtu hins nýja dags í aug- um voru þeir búnír til sóknar og varnar þeim hugsjónum, sem foringjar sjálfstæðisbaráttunnar og góðskáldin höfðu mótað og greypt í hug og lijarta. | Aldamótakvæði Hannesar Haf- steins var í senn dagskipan geSin á aldarmorgni og stefnumark. ) Fjöldi ungra manna og kvenna skipuðu sér í fylkingar aldamóta mannanna, gengu hugsjónum þeirra á hönd hiklaust og af heil- um hug. Þeir horfðu fram, stefndu hátt, en mundu og byggðu á dýrustu arfleifð trúar, sögu og tungu. ' Þrátt fyrir gerningaveður tveggja heimsstyrjalda eru flest- ir þessara manna enn í dag trúir þessum hugsjónum og munu verða það til hinztu stundar. Þeir trúa á sigur hins góða, þrátt fyrir allt, og berja höfðinu við steininn, þótt erfiðlega gangi að samrýmast sjónarmiðum nýrra veralda. j Að baki hafa þeir lagt langan starfsdag — og langan veg um torleiði margvíslegra örðugleika. Kosturinn oftast verið smár -— laun og þökk x öfugu hlutfalli við erfiðið. Þrátt fyrir það, eða máske þessvegna, brenna þeim enn eldar hugsjóna í hjarta — og enn skín þeim í augum birta hins nýja dags — frá því að för I var hafin í morgunljóma nýrrar aldar. Einn þessara morgunmanna ald arinnar er Stefán Jónsson náms- stjóri, sem er sjötugur í dag. Hap er Snæfellingur í þess orðs beztu merkingu, fæddur sunnanfjalls, starfaði beztu ár ævinnar norðan fjalls, lifði og hrærðist sem maður hins fagra héraðs um áratugi. Hann er fæddur þ. 10. marz 1893 að Snorrastöðum, sonur hjónanna Jóns bónda þar Guð- mundssonar og Sólveigar Magn- úsdóttur. Hann stundaði nám í Alþýðuskólanum á Hvítárbakka, síðan í Kennaraskóla íslands og lauk þaðan kennaraprófi vorið 1917. Tvær námsferðir hefur hann farið til Norðurlanda og kynnt sér framkvæmd fræðslu- mála þar. Stefán Jónsson er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Þórðardóttir. Börn þeirra eru frú Bjarghildur búsett í Reykjavík og Davíð menntaskólakennari í Noregi. Seinni kona Stefáns er Lovísa Þorvaldsdóttir og eiga þau tvö börn, enn ung að árum. Stefán Jónsson á nú að baki um 48 starfsár, sem ná yfir um- brotamestu tíma í sögu þjóðarinn ar. Hann var um fjögur ár kenn- ari. Skólastjóri í Stykkishólmi frá 1919-1946 — eða 27 ár — námsstjóri samtímis skólastjóra- starfinu í fjögur ár, en hefur gegnt námsstjóraembættínu ein- göngu síðan 1946 að hann flutt- ist úr Stykkishólmi. Meðan hann var í Stykkishólmi lét hann fé- lagsmál mikið til sín taka á sviði æskulýðsmála, samvinnumála og stjórnmála. Hann er maður vel máli farinn og ágætlega ritfær. Hefur hann m. a. flutt fjölda erinda um fræðslumál, flutt útvarpserindi um ýmis efni, ritað um marg- vísleg efni og þýtt allmargar unglingabækur. Nú síðustu árin hefur hann verið ritstjóri æsku- lýðsþáttar tímaritsins „Heima er bezt.“ Hann er mikill unnandi þjóð- legrar sögu og móðurmálið er honum mikið hjartans mál. Hann er smekkmaður og fegurðardýrk- andi, orúður maður og virðuleg- ur. Framkoman er aðlaðandi og á hann mjög auðveit með að umgangast fólk á öllum aldri. Hann þótti ágætur kennari og skólastjóri. Þegar föstu skipulagi var komið á námsstjórn í skólum hér á landi, föstu skólaeftirliti, haustið 1941, var Stefán Jónsson einn þeirra manna, er Jakob Kristinsson ' fræðslumálastjóri, valdi til námsstjórastarfa. Hann var fyrstu fjögur árin námsstjóri Austurlands, síðan í Borgarfirði, Snæfellsnesi og Húnavatnssýslurn árin 1946—1954 og námsstjóri Norðurlands síðan 1954. Ferðalög námsstjóra eru erfið, þeir oftast eigin bifreiðastjórar. Stefán Jónsson hefur reynzt hinn mesti ferðagarpur, ekkert síður hin seinni árin en áður fyrr. Mörg verkefni námsstjóra eru vandasöm og viðkvæm. Reynir mikið á lagni og mannþekkingu namsstjórans og kemur sér þá einnig vel félagsleg þjálfun. Að- eins eitt af mörgu sem fellur í hlut námsstjóra, skal hér nefnt, en það er sameining farskólahér aða um einn heimavistarskóla. Undanfarin ár hefur mikið áunn- izt í þessum efnum. Þó verður að segja það eins og er, að hér er oft við ramman reip að draga, þar sem við hreppapólitíkina er að eiga. í lok 22 ára starfs sem námsstjóri getur Stefán Jónsson litið til baka yfir fjölskrúðugt og mikið starf. M. a. má nefna að honum hefur tekist í samvinnu við jákvæða aðila að sam- eina flesta hreppa Vestur- Húnavatnssýslu og alla hreppa Austur-Húnavatnssýslu, utan kauptúna, um tvo heimavistar- skóla — og nú er í byggingu glæsilegur heimavistarskóli að Laugalandi á Þelmörk í Hörgár- dal fyrir næstu farskólahéruðin. Það sem mest kann þó að vera um vert í störfum námsstjórans verður alltaf ósagt og ekki auð- velt að meta. Það kemur máske bezt fram í því að hann sé auðfúsugestur í skólunum, að í fylgd með honum sé sólskin og ylur hjartahlýjunn- ar — samfara því aðhaldi og trausti, sem heimsókn hans veit- ir, að hann sé fær um að ná full um trúnaði þeirra, sem hann á skipti við og kunni þá list að fara vel með. Það fer ekki milli mála, að þetta hefur Stefáni Jónssyni tekizt mjög vel. Skólastjórar og kennarar — og eigi síður ungir nemendur skólanna, eiga þar traustan hollvin og heilshuga máissvara, hjartahlýjan og skiln- ingsríkan. Af því hef ég haft náin kynni á undanförnum árum, þe'g ar haun hefur sótt mála þeirra eða varið. . Við þessi og að sumu leyti ör- lagaríku tímamót í ævi Stefáns námsstjóra er margs að minnast og mikið að þakka. Eg þakka hon um áratuga trausta vináttu, ánægjuleg kynni og heilindi t samstarfi. Söanu þökk eiga hon um að gjalda fjöldi einstaklinga viðsvegar um landið. En þjóðin öll hefur ástæðu til að gjalda hon um einlægar þakkir fyrir langan starfsdag og mikið og gifturíkt starf í þágu æsku landsins í nær fimmtíu ár. Samkvæmt lögum landsins skal sjötugur maður láta af embætti. Það mun og Stefán námsstjóri gera í lok þessa árs. Hann mun þó ekki setjast í helgan stein. Mörgu er enn ólokið — og alltaf munu einhver nauðsynjamál æskunnar kalla hann til starfa. Vakandi hugur hans mun gegna því kalJi og verða fundvís á verkefni, sem unnin verða áfram til heilla landi og þjóð. Hann er enn með yfirbragð æskunnar, sem í aldarbyrjun hóf göngu mót nýjum degi og hækk- andi sól. Birta þess dags er hon- um enn í augum. Það er einlæg afmælisósk mín til þessa vinar míns og samstarfs- manns að sá dagur megi honum enn endast um langan aldur og að hann megi verða sem virkast- ur þátttakandi í sigrum þeirra hugsjóna, sem hann hefur helg- að sig á langri starfsævi. Þeim hjónunum og mannvæn- legum börnum þeirra óska ég bjartrar framtíðar. Aðalsteinn Eiríksson. ---------------------- V Söluturn óska að taka á leigu sælgætis búð eða húsnæði undir sæl- gætisbúð. Fyrirframgr. á leigu möguleg. Kaup koma einnig til greina. Tilb. sendist afgr. Mbl. fyr- ir 15. marz, merkt: „Söluturn — 6112.“ Hér sjáið þið hinn frœga Renault R8, sem er bíil tramfíðarinnar. Nú er tœkifœri til að kynnast þessari einstœðu bifreið, sem er með: * 4ra cylendra vél með 5 höfuðlegum -K diskabremsum á ötlum hjólum - É í SýningarbTll er í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.