Morgunblaðið - 12.03.1963, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 12.03.1963, Qupperneq 23
MOKCVISBLAÐIÐ 23 í>riðju<Jagur 12. marz 1963 Gjafir til ÞJóðminja- safnsins TTT. VIÐBÓTAR þeÍTn gjöfum, •em Þjóðminjasafni íslands bár- ust á aldarafmæli sínu og þegar hefur verið skýrt frá af safnsins hálfu, skal hér nú talið annað, lem fólk hefur vikið safninu á þessum tímamótuim: Hansína Jónsdóttir, Kambsvegi 33, Reykjavík, gaf glitofið áklæði frá 1857. Halldóra Sigurjðnsdóttir, l'orn haga 11, Reykjavík, gaf saumavél sem vera mun meðal hinna elztu hérlendis, keypt á Eyrarbakka á Sinni tíð. < Sigurbjörg Jónsdóttir, Njáls- feötu 10A, Reykjavík, gaf útskorn ar trafaöskjur frá 1737, sennilega úr Rangárvallasýslu. I Séra Jón M. Guðjónsson, Akra- nesi, gaf teikningu af gamla bæn |Um á Melum í Melasveit, þeim er *éra Hel.gi Sigurðsson bjó L I Brynjúlfur Dagsson læknir færði safninu handritaböggul með örnefnaskrám, sem afi hans Brynjúlfur Jónsson frá Minna- Núpi haíði skrifað. Þessi gjöf var frá afkomendum Brynjúlfs Jóns- •onar. Jón Leifs tónskáld færði safn- inu gjafabréf fyrir 65 vaxhólkum með gömlum upptökum islenzkra þjóðlaga. Hákonía J. Hákonardóttir, Vest urgötu 10, Reykjavík, gaf prýði lega gert vesti, sem hún hafði caumað handa manni sínum ár- ið 1900. Andrés J. Johnson, Ásoúð, Hafnarfirði, gaf stóran og fagran silfurpening, sem Deifur Kaldal hafði gert fyrir hann í tilefni dags ins. Haye-Walter Hansen gaf teikn ingu af fjörunafri. Guðmundur Einarsson frá Mið dal gaf upphleypta vangamynd, sem hann hefur gert af Páli Erlingssyni sundkennara. Kristján Helgason, fyrrum bóndi í Dunkárbakka, gaf rokk, prýðilega smíðaðan. Inga Filippusdóttir gaf gamla stundaklufcku. Guðrún Jónsdóttir frá Skál á Siðu gaf útskorna pennastöng úr hvalbeinL Áður hefur verið skýrt frá gjöf tem erlendra gesta, svo og þeirra Annie, Cecilie, Þórhildar og Páls Helgasonar, Haralds Ólafssonar og Ásmundar Jónssonar og Jenn ýjar Guðmundsdóttur, enn frem ur hinni rausnarlegu peningagjöf Reykj avíkurborgar. i Þjóðminjasafn íslands metur allar þessar góðu gjafir mifcils og færir gefendunum öllum hugheil ar þakkir. Reykjavík, 1. marz 1963, Kristján Eldjára þjóðminjavörður. — íþróttir Framh. af bls. 22. Stangarstökk drengja vann Kári Guðm,, Á (bróðir Skúla Guðm/undss.), á 3,00 m, en Hreið ■r J úliíusson, ÍR fór somu hæð. Kúluvarp: (15,60 m er gildandi ísl.met og meth. Huseby 1951). 1. Jón Péturssan, KR 14,72 m 2. Airtihur Ólafsson, Á 14,01 m 3. Kjartan Guðjónss., KR 13,42 m 4. Jón Þ. Ólafsson, ÍR 12,71 m Stangarstökk: (4,36 m Valbjörn, 1963). 1. VaTlbj. Þoriáksson, KR 4,25 m 3. Páll H. Eiríkss., ÍR 3,60 m Vallbjörn átti góða tilraun við 4,36, eem hafði verið nýfct innan- tnúsamet. ,, UTAN UR HEIMI Fjðgur ár frá hild- arleiknum í Tíbet MYNDIN, sem hér fylgir, var tekin sl. fimmtudag af tibetsk um flóttabömum, sem hafa ver ið flutt til Englands, en þau voru flest í hópi þúsunda flótta manna er komust til Indlands í uppreisninni árið 1956. Mörg urðu viðskila við foreldra sína á flóttanum, en önnur hafa misst mæður sínar og feður síð ar. Börn þessi eru á aldrinum 5 til 13 ára og komu tuttugu saman til Englands, sérstak- lega valin af sjálfum Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta, sem dvelzt landflótta í Ind- landi. Kveðst hann vonast til þess að börnin njóti í Englandi þerirar menntunar, að þau geti e.t.v. síðar komizt heim til Tíbet sem t.d. læknar eða kennarar og aðstoðað landa sína, sem söðugt búa við ánauð kínversfcra kommúnista. Börn in munu búa í flóttabarnaþorp inu Sedlescombe í Sussex, þar sem búsett eru 40 önnur börn frá 14 þjóðum. -- XXX ---- Um þessar mundir eru liðin fjögur ár frá því Dalai Lama flýði frá Lasha, höfuðborg Tib ets, til Indlands, meðan upp- reisn landsmanna þar var misk unnarlaust bæld niður af kín verskum kommúnistum. Flótti Dalai Lama var hinn sögu- legasti og lengi var ekkert um örlög hans vitað. í för með honum var fjöl- skylda hans, nánustu vinir og dálítill hópur Khamba her- manna. Flóttafólkið fór nær 500 km. torvelda fjallaleið og varð allan tímann að vera á ferli í skjóli næturmyrkurs, en leynast á daginn. Og allan tímann leitaði þeirra gífur- legur fjöldi kínverskra her- manna og flugvéla. -- XXX ----- Uppreisnin 1959 átti sér lang an aðdraganda. Allt frá því árið 1951, þegar Kínverjar neyddu forystumenn Tíbeta til þess að afsala sér meðferð ut- anríkis- og hermála í hendur Pekingstjórninni, höfðu bloss að upp smáskærur og upp- reisnir. Það var Khambaætt- flokkurinn í austurhluta lands ins, sem harðasta mótspyrnu veitti og var hann Kínverjum ætíð óþægur ljár í þúfu. Hin- ir nýju herrar reyndu að dreifa ættflokknum um landið og síðar var gripið til eyðingar herferða gegn honum, því hvarvetna stóð hann fyrir skæruhernaði gegn Kínverj- um og gerði þeim marga skráveifu. Kínverjar unnu markvisst að því að styrkja aðstöðu sína í þessu erfiða fjallalandi og sérhver andófstilraun þjóðar- innar var miskunnarlaust bæld niður. Jafnan var erfitt að fá nokkrar upplýsingar um það, sem fram fór í Tíbet, því að samgöngur voru nær engar nema til Kína. Rétt áður en uppreisnin brauzt út tóku þó að berast fregnir af átökum til þorpsins Kalimpong á landamörkum Tíbets, Indlands og smáríkis- ins Sikkim. Það sem olli því, Tíbetska flóttabörnin í Bretlandi hlýða kennslu Búddhaprests- ins, Tsultin Gyelsten. að endanlega sauð upp úr var grunur fólksins um, að Kín- verjar ætluðu að ræna trúar- leiðtoga þeirra, Dalai Lama — sem þá var orðinn 23 ára, og átti samkvæmt venju að leggja land undir fót og heimsækja klaustrin í landinu. Kínverjar óttuðust mjög, að för hans yrði til þess að efla andspyrnu og baráttuþrek landsbúa og því var það, að kínverski her stjórninn í Lhasa sendi Dalai Lama boð, hinn 10. marz, að vera viðstaddur leiksýningu í aðalbækistöð kínverska hers- ins í Lhasa. Óskað var eftir þvL að hann kæmi einn og án lífvarða, og gagnstætt allri venju var honum afhent boð þetta persónulega, en ekki fyr ir milligöngu stjórnarinnar. Fregnir af þessu leikhúsboði bárust til fólksins í Lhasa og læsti sá grunur sig þegar fast ann, að ætlunin væri að ræna leiðtoga þjóðarinnar. Fjöldi presta og pílagríma var í borg inni til þess að fagna nýja ár- inu og hylla leiðtogann, sem orðinn var fullvaxta. Þyrpt- ist fjöldi fólks til sumarhallar hans, Norbulingkh, og hvatti hann til þess að fara hvergi. -- XXX ------ Dalai Lama hafnaði boði herstjórans — en í þeirri þjóð ernisvakningu, sem hafði grip ið um sig, tóku nokkur þúsund konur sig til og sömdu skjal, þar sem krafizt var uppsagn ar samkomulagsins frá 1951 og brottfarar kínverskra kommúnista úr tíbetsku landi. Fóru þær þess á leit við sendi herra Indlands, Nepals og Bhú an, að þeir fylgdu sér til aðal- stöðva Kínverja og væru vitni að afhendingu þessa skjals. Ekki vildu þeir blanda sér í málið, en þegar skjalið var af hent nokkru síðar höfðu allir tíbetsku þingmennirnir og tíbetska stjórnin skrifað undir það. Næstu daga urðu dagleg á- tök í Lhasa, — Kínverjar reyndu miskunnarlaust að kæfa kröfur landsbúa, en allt kom fyrir ekki, átökin hörðn- uðu og urðu að blóðugri ákafri og átakanlegri frelsisbaráttu. Hvernig þeim hildarleik lykt- aði ætti að vera öllum í fersku minni. 998piegel66-málið - USSR Framhald af bls. 1. áhrif kommúnista á umheim- inn. • Af ummælum Orr-Ewings kom m.a. fram, að Sovétríkin munu nú eiga nokkur hundruð kafbáta, þ.á.m. rúmlega 20, sem eru knúnir af kjarnorkuhreyfl- um, og búnir eldflaugum, er bor- ið geta kjarnorkusprengjur. • þá mun það vera ætlun ráðamanna Sovétríkjanna að auka svo við verzlunarflota sinn, að hann verði um 20 milljón brúttólestir 1980. Ráðherrann lét nokkur orð falla um „sérfræðinga“ Sovét- ríkjanna, sem sendir hafa verið til ýmissa landa, m.a. til þess að vinna að hafnarmannvirkjum. — Kvað hann það mjög athyglis- vert í því sambandi, að margar hafna þeirra, sem um ræðir, væru á þeim stöðum, er hefðu sérstaka hernaðarþýðingu. — Nefndi hann se mdæmi, að Sov- étríkin hefðu nú varið stórfé (um 500 millj. ísl. kr.) til bygg- ingar hafnarinnar Hodeide í Je- men. Sagði hann höfn þessa nú koma sér vel fyrir upDreisnar- menn þar í landL Loks sagði ráðherrann, að það væri ljóst, af þeim upplýsingum, er fyrir liggja, að Sovétríkin hefðu látið mjög mörgum lönd- um, sem nytu „aðstoðar“, í té kafbáta og önnur hernaðartæki, sem ekki gætu talizt liður í efna- hagsaðstoð. Mætti þar nefna eldflaugabúna eftirlitsbáta, sem sendir hefðu verið til Kúbu, senda ætti innan tíðar til Indó- nesíu og fleiri staða. 26 tonn af ufsa á tveimur dögum Þorlákshöfn, 11. marz: — Tuttugu og sex tonn af ufsa hafa borizt hingað sl. tvo daga, 13 tonn hvorn daginn. Bátarnir fengu ufs ann í net skammt héðan. í gær kom Leó frá Vestmanna- eyjum með 8,7 tonn af ufsa, sem fluttur var til Reykjavíkur. — Annars hefur ufsinn verið flak- aður hér og saltaður. Ufsi fæst yfirleitt ekki í net. Hann er að jafnaði veiddur á handfærL — Magnús, Bonn, 11. marz — NTB VARAFORMAÐUR flokks sósíaldemókrata í V-Þýzka- landi, Fritz Erler, lýsti því yfir í dag, á fundi, sem hann hélt með fréttamönnum, að Adenauer, kanzlari, hefði ekki sagt allan sannleikann, er „Spiegel“-málið svokall- aða var á dagskrá í október í fyrra, Lagði Erler fram rúmlega 100 blaðsíðna skýrslu, er Sós- íaldemókrataflokkurinn hef- ur látið gera um málið. Eru þar bornar brigður á yfirlýs- ingar stjómar Adenauers, þ.á.m. sérstaka skýrslu, er stjómin lét leggja fram fyrir mörgum vikum, Telur Erler, og talsmenn flokksins, að saksóknaraembætt- ið hafi ekki farið að settum regl- um í meðferð málsins, en lagt sig fyrst og fremst fram við að gæta hagsmuna landvarnaráðuneytis- ins. I skýrslu þessari, sem lögð var fram í dag, segir, að stjórn Ad- enauers hafi gefið rangar upp- lýsingar á þingi, er málið var þar tekið fyrir á sínum tíma. Er talið, að framburður talsmanna stjórnarinnar hafi verið rangur eða villandi, að því er tekur til 15 atriða málsins. • Er Adenauer, kanzlari, sagður hafa látið sér ósönn orð um munn fara — einu sinni. • Hermann Höcherl, innan- rikisráðherra — fimm sinnum. • Strauss, landvarnaráðherra — niu sinnum. Lygi Adenauers á að vera f þvl fólgin, að hann hafi, gegn betri vitund, lýst því yfir, að hann hafi fyrst fengið um „Spiegel“- málið að vita, þ.e. aðgerðirnar gegn starfsmönnum blaðsins, er þær voru í þann veginn að hefj- ast. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.