Morgunblaðið - 12.03.1963, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.03.1963, Qupperneq 24
HIBÝLARRÝÐI HF HailarmQla «10111 38177 Borga 1500 kr. á dag fyrir stðngina Hrútafjarðcurá leigð fyrir 181.500 krónur HRÚTAFJARÐARÁ hefur verið lcigð Sveini Kjarval, arkitekt, og fleirum til þriggja ára. Ársleigan fyrir ána er 181.500. Fyrrverandi leigutakar greiddu 43 þúsund kr. fyrir ána. Laxveiði má stunda í ánni 60 daga á ári og veiða með tveim stöngum. Undanfarin ár hafa að jafnaði veiðst þar um 300 laxar á ári. Samkvæmt hinu nýja leigu- verði kostar áin' rúmar 3000 kr. fyrir hvem veiðidag eða um 1500 krónur fyrir stöngina. Miðað við veiddan laxafjölda árlega kostar hver lax því 500—600 krónur. í>etta mun vera hæsta leiga, sem hér hefur verið greidd fyrir laxveiðiá, miðað við daga og veiði. í>að eru hændur, sem eiga land að ánni, sem leigja hana Sveini Kjarval og félögum hans. Sam- kvæmt leigusamningu munu hin ir nýju leigutakar reisa veiðihús við ána. Þar er nú fyrir veglegt hús, sem fyrri leigutakar byggðu og hefur ekki verið falazt eftir þvi af hinum nýju. Munu þeir hafa í huga, að leigja það sem sumarbústað, enda getur stór fjöO skylda komizt þar fyrir. Fyrstu kerin í sjó í júnímánuði 40-50 vinna við landshafnargerð í Þorlákshöfn „Góöur af kvefi eftir einn dag á sjónum“ Eirtkur Kristófersson EIRÍKUR KRISTÓFERSSON, skipherra, sem lét af störfum hjá Landhelgisgæzlunni sl. haust eftir áratuga þjónustu, skrapp á sjóinn enn einu sinni nýlega og fór með togarann Sigurð í söluferð til Þýzka- lands. Morgunblaðið hefur átt sam- tal við hinn aldna sjógarp um ferðina og fórust honum svo orð: — Það var hringt til mín dag inn áður en Sigurður fór og Eiríkur Kristófersson fór með togara í söluferð var ég beðinn að fara með hann, því Auðunn Auðunsson, skipstjóri og 1. stýrimaður, ætl uðu í frí. Eg féllst strax á það. — Við fórum um 5 leytið þann 1. marz og hóldum beint til Bremerhaven og komum þangað siðdegis þriðjudaginn 5. marz. — Markaðurinn var kominn niður úr öllu valdi, svo beðið var með söluna og seldum við svo á fimmtudagsmorgun 165 tonn af fiski fyrir 105.600 mörk. Sem dæmi um, hversu lélegur markaðurinn var þeg- ar við komum, má geta þess, að þýzkur togari seldi um það leyti 250 tónn af Grænlands- miðum fyrir 57 þúsund mörk. — Klukkutíma eftir að við vorum búnir að selja héldum við heimleiðis og komum til Reykjavíkur sl. sunnudags- kvöld. — Siglingin út og heim aft- ur gekk prýðilega, enda skip- ið gott og gangmikið. Sigurður er sjóborg, sem kallað er og jafnast að sjóhæfni fyllilega á við Óðinn og Þór. Á Weser- fljóti var nokkurt íshrafl, en það olli okkur ekki erfiðleik- um. — Eg hef oft áður farið með togara í söiuferðir. Gerði það oft í stríðinu og fékk þá frí hjá LandhelgisgæzlunnL — Eg hafði gaman af þessari ferð og hún var ágæt upplyft- ing. Það er alltaf gott að fara á sjóinn. Þó ég sé með kvef í landi er ég orðinn góður eftir einn dag á sjónum. — Ef einhverja fleiri skyldi vanta skipstjóra til að sigla er ég til í að-fara fleiri ferðir. Hefði gaman af þvL — Svo vil ég geta þess að lokum, að reglusemi á skip- verjum var meiri en ég reikn aði með, eftir því sem sögur ganga af slíku. Sæf/n / bílnum loguðu undir Jbe/m Akranesi, 11. marz: ITM 40—50 manns vinna nú við byggingu landshafnarinnar í Þor lákshöfn. Unnið er að þvi um þessar mundir að smíða mótin fyrir kerin, sem hafnargarðamir verða byggðir úr. Það er hlutafélagið Efra-Fall, sem annast byggingarframkvæmd Drengurinn lézf af vold- um slyssins LITLl DRENGURINN, sem varð fyrir bíl á Bústaðavegi nokkru fyrir hádegi sl. laugardag, lézt í Landakotsspítala um kl. 19,20 sið degis sama dag. Hann hét Samúel Kristinn Sam úelsson, fæddur 28. júli 1961. Samúel var sonur hjónanna Kristínar Guðjónsdóttur og Sam úels Þ. Haraldssonar, Fossvegs- bletti 39 við Bústaðaveg. irnar. Búizt er við, að fjölga verði til muna mönnum við verkið, þegar byrjað verður að steypa kerin. Nú er verið að Ijúka við húsið, sem notað verður til að steypa kerin i, og jafnframt brautirnar, sem þau verða látin renna eftir út í sjó. Vonast er til, að sjálf kerasmíð in geti hafizt í næsta mánuði eða í byrjun maí og fyrstu kerin fari í sjó í júnL Samkvæmt samningi á verkinu að ljúka 30 mánuðum eftir að það hefst. Væntanlega verður verkið langt'komið næsta haust. Spilakvöld HAFNARFIRÐI — Félagsvist Sjálfstæðisfélaganna verður í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld kl. 8,30. — Veitt verða kvöldverð laun og síðar heildarverðlaun, sem er ferð til Kaupmannahafn- ar með GullfossL Klukkan 11 á sunnudagsmorgun- inn varð fólksbíllinn E-302 stadd ur á Lambhagamelum en ferðinni var heitið eitthvað vestur fyrir Hvítá. Fimm menn héðan voru í bíln- um. Þarna á melnum vissu þeir ekki fyrr til, en að sætin loguðu undir þeim. Þeir tóku fram teppi til að kæfa eldinn. Þegar það bar ekki árangur hlupu þeir að litlum polli skammt frá, gegn bleyttu eitt af teppunum og hugðust nú slökkva ledinn, en hann jókst æ meir og kafareykur fyllti bílinn. Urðu þeir nú frá að hverfa. Eigandi bílsins Ingólfur Sigurðs son, var aðgangsharðastur við slökkvistarfið og mun hafa hlotið lítilsháttar brunasár. Bíllinn brann þarna á skammri stundu. Benzíngeymirinn var full ur. Þegar hann hitnaði þandist geymirinn út eins og lóðabelgur, en hann sprakk ekki. Telja þeir, að geymirinn hefði sprungið, ef minna benzín hefði verið í hon- um. Eldsupptök eru ókunn. — Oddur. * Arsgamall selur í maga hákarlsins Akranesi, 11. marz. Þeir reyttu dálitið á laugar- dag og sunnudag í þorskanet- in, urðu vel varir í þorskanót- ina, en fiskuðu ekkert á lin- una- Laugardagsróðurinn varð í meira lagi sögulegur hjá skips höfninni á Ólafi Magnússyni. Þeir fengu stóra skepnu í þorskanetin, hákarl á þriðja faðm að lengd og ferlega kvið mikinn. Enda kom á daginn, að inn- an úr hákarlinum valt á aðra tunnu af lifur, nærri ársgam- all selur, gleyptur í heilu lagi, þorskar, ýsa, rauðmagar og karfar. Hákarlinn var að byrja að melta selinn. Hálkarlinn fengu þeir í net- in hérna út í For. — Oddur. ÞRIGGJA ára drengur, Þröstur Magnússon, til heimilis að Stór- holti 3ð, varð fyrir bil kL 11.24 í gærmorgun. Foreldrar drengsins fóru með hann á Slysavarðstofuna, en meiðsli hans munu hafa reynzt lítil. í GÆRMORGUN kviknaði í ge ymsluskúr vestur á Grímssíaðah olti. Var talsverður eldur í drasli, iem geymt var í skúrnum, en slökkviliðinu tókst fljótlega að ráð a niðurlögum eldsins og koma í veg fyrir að hann kæmist í áfast íbúðarhús. — Ljósm.: Kr. Magn. Lít finnst við Oddeyrartanga AkureyrL 11. marz. LÍK Páls Halldórssonar, verka manns, Oddeyrargötu 6, fannst í morgun við Oddeyrartanga. Páll hafði farið að heiman frá sér kl. um 10 í gærmorgun, en þegar hann kom ekki til hádegis- verðar, var farið að undrast um hann. Leit var hafin eftir hádegið og leitað fram í myrkur án árang- urs, en í morgun var Mk hans slætt upp við Oddeyrarbryggjur. Páll heitinn hafði verið veill fyrir hjarta að undanförnu og ekki þolað erfiðisvinnu. Hafði hann það oft sér til afþreyingar að ganga um bryggjurnar, enda sjómaður fyrr á árum. Hann var 55 ára að aldri, ó- kvæntur og barnlaus. — Sv. P. Dr. Kristinn í stnttri heimsókn DR. KRISTINN Guðmundsson, ambassador íslands í Moskvu, kom til Reykjavíkur sl. laugar- dagskvöld. Ambassadorinn er komina heim í einkaerindum, að því ea: hann sagði Morgunblaðiniu í gær og mun hann dveljiast hiér i rúima viku. Dr. Kristni þótti ■veðurWiíða á íslandi, þvl þegar hann fór frá Kaupmanna höfn sL laugar- dag var þar stór- ihríð og tafðisi ifliugvélin um 4 tima á fluvell- Dr. Kristinn in'u«i veSna Guðmundsson ^fn®- I Moskvu var Ihins vegar mikill snjór, en hiti um frostmark. Sagði dr. Krist- inn, að búast mætti við því, að eystra mildaðist táðin á naasitu vikum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.