Morgunblaðið - 07.04.1963, Blaðsíða 12
12
MORClJlVIiLAÐ 1Ð
Sunnudagur 7. aprfl 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Jóhannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Að&lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakió.
RAFMAGN Á HVERT
HEIMILI
¥ borgum, kaupstöðum og
•*- öðru þéttbýli er raiorka
til allra heimilisnota og hvers
konar atvinnureksturs talin
til frumstæðustu þarfa og
lífsþæginda. En þrátt fyrir
það að iinnið hefur verið
mjög ötullega að dreifingu
raforkimnar um allt ísland
eru þó enn rúmlega 11 þús-
und manns hér á landi, -sem
ekki njóta raforku á heimil-
um sínum. Hlýtur að sjálf-
sögðu að verða að því stefnt
að styðja þennan hluta þjóð-
arinnar til þess að fá raf-
orku til þarfa sinna eins og
aðra landsmenn.
Þegar þeir Jón Þorláksson
og Jón á Reynistað fluttu
fyrstu frumvörpin um hag-
nýtingu vatnsaflsins í þágu
sveita sem sjávarsíðu þótti
það djörf hugmynd og marg-
ir töldu hana gersamlega ó-
raimhæfa. Þannig lýsti t.d.
formaður Framsóknarflokks-
ins því yfir, að rafvæðing
sveitanna mundi setja landið
á hausinn. Þegar Sjálfstæðis-
menn fluttu fyrsta frumvarp
ið um virkjun Sogsfossa
kölluðu Framsóknarmenn það
„samsæri andstæðinga Fram-
sóknarflokksins“ og rufu Al-
þingi til þess að koma í veg
fyrir að frumvarpið næði
fram að ganga!
En Sjálfstæðismenn héldu
baráttunni áfram, Sogið var
virkjað og hin íslenzka höf-
uðborg og nálæg héruð
fengu frá henni orku, Ijós og
yl. Árið 1942 beittu Sjálf-
stæðismenn á Alþingi sér
fyrir stofnun raforkusjóðs og
árið 1946 voru raforkulögin
sett fyrir frumkvæði nýsköp-
unarstjórnarinnar og Sjálf-
stæðismanna.
Sjálfstæðisflokkurinn hélt
baráttunni enn áfram. Þegar
Ölafur Thors myndaði ríkis-
stjóm sumarið 1953 var 10
ára rafvæðingaráætlun eitt
stærsta mál þeirrar ríkis-
stjómar. Að framkvæmd
hennar hefur verið unnið
síðan með glæsilegum ár-
angri. Raftaugarnar hafa
teygt sig lengra og lengra út
í sveitimar og nú er unnið
að því að gera nýja áætlun
um að tryggja því fólki raf-
orku, sem ennþá fer á mis
við lífsþægindi hennar og
nytsemi.
Rafmagnið er eitt af undra-
öflum hins nýja tíma. Það
veitir birtu og yl inn á heim-
ilin og skapar skilyrði stöð-
ugt fjölbreytilegra atvinnu-
lífs. Þess vegna getur eng-
inn án þess verið. Sjálf-
stæðismenn munu halda á-
fram að veita raforkunni út
um byggðir íslands. Tak-
mark þeirra er rafmagn á
hvert heimih.
STVTTRI KOSN-
INGABARÁTTA
FMtt af einkennum kosninga-
baráttunnar í okkar
landi er að hún er lengH en
tíðkast í flestum lýðræðis-
löndum. I nágrannalöndum
okkar, t.d. Bretlandi og á
Norðurlöndum, em kosning-
ar oft ákveðnar með eins eða
tveggja mánaða fyrirvara.
Hér á íslandi er aðdragandi
kosninganna oftast miklu
lengri. —• Kosningabaráttan
stendur hér oft og einatt 6—
8 mánuði. Á meðan má segja
að þjóðfélagið sé á öðrum
endanum. Svo hátt rísa öld-
umar í hinni pólitísku bar-
áttu í landi kunningsskapar-
ins, þar sefh allir þekkja alla.
Ekkert er að sjálfsögðu
eðlilegra en að menn deili,
og deili jafnvel hart fyrir
kosningar. íslendinga greinir
á um menn og málefni, ekki
síður en aðrar þjóðir. En all-
ir ættu að geta verið sam-
mála um það, að æskilegt er
að þessi harða barátta standi
hóflegan tíma.
Frá þessu sj ónarmiði séð
er það þess vegna mjög til
bóta að ríkisstjórnin hefur
nú ákveðið kjördaginn í sum-
ar 9. júní eða rúmum hálfum
mánuði fyrr en venjulega,
þegar kosið er að sumri til.
Þetta þýðir, að kosningabar-
áttan verður nokkuð styttri.
Kjósendur hafa að sjálfsögðu
alla sömu möguleika og áður
til þess að mynda sér rök-
studda skoðun á stjórnmála-
flokkunum og stefnumiðum
þeirra. Þegar vika er af júní
er einnig nokkum veginn
víst að sæmilegt veður muni
verða á kjördegi, enda þótt
segja megi að erfitt sé að
fullyrða nokkuð um veður-
far á einstökum dögum á
hvaða tíma sem er í þessu
norðlæga landi. Kosningar 9.
júní hafa einnig þann kost,
að þá er minni hreyfing
komin á fólkið, sjómennirnir
em þá fæstir farnir til síld-
veiða fyrir Norðurlandi og
sumarleyfi em ekki almennt
byrjuð. Margt mælir því með
þeirri ákvörðun ríkisstjóm-
arinnar að færa kjördaginn
fram.
Kosningar fyrir
dyrum í Kanada
Mánudaginn 8. apríl fara
fram þingkosningar í Kan- ■
ada. Undangengin kosninga-
barátta hefur verið hörð og
ströng, og megi nokkuð mark
af skoðanakönnunum, er ekki
útlit fyrir, að neinn flokkur
verði, að kosningum loknum,
nægilega sterkur til þess að
mynda merihlutastjórn.
Kosið er um 265 þingsæti og
keppa fjórir flokkar um sæt-
in. Skipting milli flokkanna er
nú þannig: íhaldsflokkurinn hef-
ur 113 þingsæti, Frjálslyndi
flokkurinn hefur 99, Socíal Cred
it-flokkurinn, sem er hægri flokk
ur, hefur 30 þingsæti og Nýi
Demókrataflokkurinn, einskon-
ar bændaflokkur, hefur 19 sæti.
Fjögur sæti eru auð.
Sem fyrr segir hefur kosning-
arbaráttan verið hörð, — senni-
lega sú harðasta frá árinu 1940
og helztu deiluefnin landvama-
mnáil og efnahagsmál.
Allmiklir fj árhagsörðul eikar
hafa steðjað að Kanada undan-
gengin fjögur ár og atvinnuleysi
er þar töluvert. Oreiðslulhalli
á fjárlöguim sex síðustu ára hef-
ur samtals numið um 2.700 millj.
dala og vextir af þeirri fjárhæð
fara yfir 100 milljón dali ár-
lega.
Deila sú, er upp kom milli
stjórna Bandaríkjanna og Kanada
fyrir nokkru um það, hvort eld-
flaugar í kanadískum bækistöðv
um skyldu búnar kjarnorkuvopn-
um, hefur orðið hávært umræðu-
efni manna í kosningaba ,1ítt-
unni. Sú skoðun kemur fram
hjá bandaríska vikuritinu U: S.
MJÖLKURFRAM-
LEIÐSLAN EYKST
Camkvæmt skýrslu Mjólkur-
^ samsölunnar í Reykja-
vík hefur innvegið mjólkur-
magn á öllu sölusvæði henn-
ar aukizt um 5Vz% á árinu
1962. Er hér um að ræða enn
eina sönnun þess, að þróun-
in í landbúnaðinum hbldur
áfram öruggum skreíum. —
Framleiðsla búanna eykst
ekki aðeins hér á Suður- og
Suðvesturlandi heldur og um
land allt.
Þetta eru vissulega gleði-
legar staðreyndir. íslending-
ar fá beztu og hollustu mat-
væli sín úr sveitunum. Þess
vegna er ákaflega þýðingar-
mikið að framfarirnar þar
haldi áfram, framleiðslan
aukist og verði betri og fjöl-
breyttari. Fólkinu í landinu
fjölgar og þjóðin þarf þess
vegna að fá meiri mjólk, kjöt
og grænmeti til þess að full-
nægja þörfum sínum.
Hin aukna mjólkurfram-
leiðsla sannar einnig, að raus
Framsóknarmanna um kyrr-
stöðu og samdrátt í sveitun-
um eru staðlausir stafir.
Diefenbaker
News & Worid Report, að hvem-
ig svo sem úrslit kosninganna
verði, sé ekki séð fyrir endann
á þeirri deilu.
Blaðið telur, að verði Lester
Pearson, foringi Frjálslyndra
næsti forsætisráðherra Kanada,
megi vænta meiri vinsemdar í
garð Bandaríkjamanna og samn-
ingalipurðair um deiluna. í kosn
ÍBgbaráttunni hafi hann jafnan
tekið vinsamlega afstöðu til skoð
unar Bandaríkjastjórnar og ver-
ið þvl hlynntur að búa kanadiska
herinn kjamorkuvopnum. Hins
vegar hafi það gert honum all
erfitt fyrir, þegar Robert Mac-
Namara, upplýsti 29. marz s.l.,
að Bomarc loftvarnaflaugarnar
— en nokkuð af þeim hefur ver-
ið í Kanada s.l. fjögur ár — væru
í rauninni ekki sérlega mikil-
virk varnarvopn. Var ætlun
landvarnaráðherrans að draga
með þessu úr hinum háværu
deilum í Kanada, en í raun og
veru sló hann helzta vopn Pear-
sons úr höndum hans og fékk
það Diefenibaker, forsætisráð-
heræa, sem til þessa hafði átt i
vök að verjast í kosningabar-
áttunni.
Eftir þetta staðhæfði Diefen-
baker, að í raun og veru fælist
það í ummæl'Um MacNamara,
að eldlflaugastöðlvar í Kanada
væru eingöngu í sýndarskyni og
til þess eins ætlaðar að draga
athyglj, Rússa frá veigameiri
stöðvum bandarískum. í viðtali
við fréttamenn sagði Diefenbak*
er, að urnmæli MacNamara
hefðu komið á hinni einu réttu
stund fyrir sig og þau réttlætu
að fullu það, sem hann hefði
sagt fyrr í kosningabaráttunni,
en hlotið harða gagnrýni fyrir.
Atti Diefenbaker þar m.a. við
blaðið „Globe and Mail“ í Tor-
onto, sem studdi hann í síðústt*
kosningum, en hefur að undan-
förnu gagnrýnt hann harðlega
fyrir að nota hvert tækifæri til
að varpa fram lævíslegum hnjóðs
yrðum um Bandaríkj amenn.
„Það er ef til vil.1 of mikið að
segja, að hann hafi sýnt Banda-
ríkjastjóm beinan fjandskap'*,
segir blaðið, en heldur áfran*
„hann hefúr haft þann hátt á,
að læða út úr sér dulibúnum, ill-
kvittnum, athugasemdum un»
hana og fylgja þeim siðan eftir
með háværum yfirlýsingum um»
nauðsyn þess að vemda sjálf-
stæði og sjálfsákvörðunarrétl
Kanada gegn erlendum yfirráð-
um“. Víða hefur verið tekið und-
ir þessa gagnrýni blaðsins, meðal
annars af nokkrum kunnum
stuðningsmönnum hans sjálfs.
Að sjálfisögðu hafa stuðnings-
blöð Pearsons gert sem mest úr
þessari gagnrýni á baráttuaðferð
Ddefenbakens, til dæmis' segár
„Daily Star“ í Toronto, að ekki
sé annað sýnna en Diefenbaker
„reyni af ásettu ráði að skapa
haturshug í garð Bandarikjanna
— þess lands, sem öryggi Kanada
og varnir bygeist að öllu leyti á.
RAIIÐA BOKIN
SAMKVÆMT SÍA-skýrslu um flokksstjórnarfund Kommúnista-
flokksins í desember 1958 lýsti Lúðvík Jósepsson „baráttu" komm-
únista í vinstri stjórninni fyrir helzta „hugsjónamáli“ flokksins svo:
„Lúðvík sagði að hann sjálfur og Hannibal hefðu verið hvata-
menn þess, að samið hafi verið um frestun á endurskoðun herstöðva-
samningsins í nokkra mánuði 1956. Síðan hefði ekkert verið gert,
nema hvað einhver bréfaskipti hefðu átt sér s^að í nóvember 1957“,
SÍA-MENN í Austur-Þýzkalandi höfðu í einnl af skýrslum sínum
látið í ljós svofellt álit á hernaðar- og varnarmálum: „Samkvæmt
marxískri herfræði (!) verður kjarnorku- og vetnisstríð ekki út-
kljáð á nokkrum klukkustundum“.
SÍA-kommúnistum á íslandi stóð hins vegar nokkur stuggur af
þessari „marxísku herfræði" og sendu flokksbræðrum sínum í ríkl
Ulbrichts eftirfarandi áminningu: „Við bendum á, að þetta brýtur
í bága við barátturök okkar gegn herstöðvunum, og teljum við
hættulegt, ef slíkar skoðanir kæmust á kreik meðal hernámsand-
stæðinga hér. Við vekjum athygli ykkar á, að málflutningur her-
námsandstæðinga hefur breytzt nokkuð frá því, er áður var, þ.e.
að í stað þess að leggja höfuðáherzlu á svívirðingu við ástkæra fóst-
urjörð og þá hættu, sem efnahagskerfi og menningu þjóðarinnar
stafar af hersetunni, er aðaláherzlan nú lögð á tortímingarhættuna
vegna tilkomu nýjustu gereyðingarvopna",