Morgunblaðið - 11.04.1963, Side 10

Morgunblaðið - 11.04.1963, Side 10
10 MORCVNBL .4 ÐIÐ Fimmtudagur 11. apríl 1963 EIN er sú sveit hér á landi, sem verður þeim er þangað koma hugstæðari en flestar aðrar. Hún var fyrrum í þjóðbraut, en nú eiga þar fáir leið um. Þykir mörgum þess vegna í full mikið ráðizt að fara þangað, þótt það sé í rauninni ekki meira fyrir- tæki en að fara til Vestmanna- eyja. Þessi sveit er öræfasveit, sem að norðan liggur upp undir Vatnajökul, en takmarkast að austan og vestan af stórfljótum og ógreiðfærum söndum. f suð- ur er svo hafið og opin hafnlaus strönd. Öræfingar hafa þó kunnað að notfæra sér alla þá möguleika, sem nútíma samgöngutækni hef- ur getað veitt þeim. Innan síns héraðs aka þeir á jeppum, og þeir eiga góðan flugvöll, sem jafnt sumar sem vetur er í föstu áætlunarsambandi við Reykjavík og Hornafjörð. Afurðir sínar flytja þeir á flugvélum á hverju hausti. Þrátt fyrir þetta verður því ekki neitað, að sveitin er af- skekkt, og eins og annars staðar þar sem þannig er háttað, hefur það mótað fólkið. Sérátakir sið- ir ríkja í sveitinni, sem eru ó- þekktir annars staðar, og mál- farið er örlítið öðruvísi en að- komumenn eiga að venjast. Fært er á bílum úr öræfum snemma vors, meðan minnst er í vötnunum, en annars eru um tvær leiðir að velja til að komast þangað. Önnur þeirra er að fara flugleiðis, en hin að fara á bíl frá Hornafirði um Suðursveit og yfir Breiðamerkursand og fá sig síðan ferjaðan yfir Jökulsárlón- ið. Síðan taka Öræfingar við og koma þér á áfangastað. Ekki er nein gistihúsaaðstaða í öræfum, en tjaldnæði er þar nóg, og öræfingar eru hjálplegir með þær vistir, sem ferðalangar þurfa. — ★ — Það er gaman að vakna að morgni í tjaldi skammt frá bæjarhlaðinu á Skaftafelli. Fugl- arnir syngja í skóginum fyrir utan tjaldið, árniður heyrist í fjarska og nær hjalar bæjarlæk- urinn. Veðrinu þarf sjaldnast að kvíða, því óvíða á íslandi er jneiri veðursæld en í öræfum. Það er nóg að skoða, svo rétt mundi vera að byrja daginn snemma og ganga upp í Bæjar- gilið, sem bæjarlækurinn renn- ur um. 'Skammt ofan við bæinn endar gilið, og þar fellur lækurinn nið- ur í háa, skeifulaga stuðlabergs- hvelfingu. Gilið snýr móti suðri og hlíðarnar eru vaxnar þéttum gróðri, og þótt ekkert skyggi á sólina er samt þægilega svalt eft- ir að komið er inn í hvelfingúna að Svartafossi. Lækurinn er vatnslítill, og ósjálfrátt undrast maður, að hann skuli hafa getað grafið þetta gil. ■ Það hefur verið haft fyrir satt, að stuðlarnir kringunj þenn- an foss hafi verið fyrirmynd Guðjóns Samúelssonar, þegar hann teiknaði Þjóðleikhúsið, og vissulega er sami þungi hátíð- leikablærinn yfir báðum stöðun- um. Við erum á ferð þarna hópur skólasystkina og erum að eyða saman síðustu dögum fjögurra vetra samveru. Það er óeirð í okk ur, og við látum ekki þennan fall ega stað binda okkur til lengdar, heldur göngum við fljótlega út úr skeifunni og upp á Skafta- fellsheiðina, sem raunverulega er engin heiði, heldur aðeins ás milli tvegigja skriðjökla. Hann er að miklu leyti vaxinn kjarri, en fé hefur um aldaraðir troðið sér götur milli runnanna. Að vestanverðu við heiðina eru brattar skógiklæddar brekk- ur, svo brattar, að velja verður leiðina niður þær í Morsárdal, en þar rennur Morsá. Er þá hollast að velja fjárgöturnar. Yfir ána verður að vaða til að komast í Bæjarstaðaskóg, og það er auð- fundið að hún hefur aðeins runn- ið skamma leið úr jöklinum. Menn skyldu halda, að í nám- unda við annað eins ísbákn og Vatnajökul, legði kaldan gust frá jöklinum, en svo er þó ekki. Meðan við göngum yfir sandana í Morsárdal fækkum við klæð- um sem mest við megum. Eins og annað gróðurlendi í öræfum liggur skógurinn í brekku, sem vatnsflaumurinn nær ekki til í vorleysingum eða þegar Skeiðará ryður sig. Um skóginn falla margir lækir, sem hafa skafið farveg sinn niðúr á klöpp, og falla í fossum niður hlíðina. Undir mörgum fossun- um hafa myndazt skálar í klöpp- ina nokkuð djúpar — og til að flýja hitann leggjumst við í skálarnar. Það þarf ekki að hafa áhyggjur af að þurkka sér, held- ur leggjumst við á klappirnar og látum sólina þurrka okkur á eft- ir. Eftir að hafa staldrað við í Bæjarstaðaskógi er erfitt að slíta sig þaðan. Þó er þarna á næstu grösum merkilegt náttúrufyrir- bæri, sem ekki er unnt að láta hjá líða að skoða. Skammt fyrir vestan skðginn eru upptök Skeiðarár. Flestir verða eftir í skóginum, en ég hef löngun til að sjá hvar þessi á kemur undan jöklinum, þessi á, sem hefur reynzt einhver þrálátasti farar- tálminn, og löngun mín verður værðinni yfirsterkari. Ég hef ekki gengið lengi, þegar ég kem að jöklinum og árniður- inn berst að eyrum mér. Það er sem það bergmáli í jöklinum og annað slagið heyrist marra í hon um. Framundan eru nokkrir sandhólar, og handan við þá hljóta upptökin að vera. Nú finnum við að það er farið að kólna, enda eru ekki nema nokkur hundruð metrar að jökl- inum. Síðasta spölinn göngum við með fram Skeiðaránni, sem beljar fram í feiknalegum straumköstum, þótt hún falli nærri því eftir jafnsléttu. Hún er ekki mórauð, heldur öllu frekar eins og freyðandi, grá- brún leðja. Sandhólarnir eru ekki það sem þeir sýnast. Aðeins efsta lagið er sandur, en undir því eru stórir ísjakar, sem hafa brotnað úr jöklinum í hlaupi og orðið eftir. Nú eru þeir srtlám saman að bráðna og skilja þá eftir sig feiknadjúpar skálar, sem næsta hlaup fyllir aur og sandi. Þegar ég hef klifið einn hólinn blasir allt í einu við mér feikna- leg sýn. Út um þröngt op neðst á skriðjöklinum, op, sem er marg falt minna en rás árinnar annars staðar, brýzt hún með miklum boðaföllum. Sandurinn, sem ég stend á, nötrar undan átökunum, 0g við og við þyrlar straumiðan vatninu langt upp á jökulvegg- inn. Einstaka smájakar, sem hafa brotnað úr jöklinum, liggja í far- vegi árinnar skammt frá, en þeir láta örugglega fljótt á sjá undan straumþunga jökulleðjunnar •— en stöðugt bætast nýir við. Eftir að hafa séð upptök þess- arar ár, jafnvel þegar hún er hvað vatnsminnst, getur engum dulizt eyðileggingarnríáttur henn ar, og hugsa sér svo þær nátt- úruhamfarir sem verða, þegar hlaup kemur í hana. Síðari hluta þessa góðviðris- dags hefst á Svínafelli, sem er ekki fjarri Skaftafelli, árshátíð Öræfinga, en þá er slegið saman flestum tyllidögum ársins, og Öræfingar taka sér frí frá störf- um eftir því, sem búskapurinn framast leyfir. Þegar við komum úr göngu« ferð okkar heim í tjöldin er orð- ið áliðið dags. Allir eru frá sér numdir af sveitinni, sem þeir ‘hafa kynnzt, en nú gefst okkur tækifæri til að kynnast fólkinu. Þrír jeppar bíða okkar hjá tjöld- unum, þegar við komum, og okk- ur er boðið á hátíðina. Sveitin er það lítil, að ferðahópurinn leyn- ist þar ekki, og Öræfingunum finnst við ekki með nokkru móti mega standa utan við skemmtun þeirra. Allir í sveitinni, sem vettlingi igeta valdið, taka þátt í gleðinni af lífi og sál. Hátíðin er haldin á túninu á Svínafelli, danspallur hefur verið settur upp, og kaffi- veitingar eru undir berum himni. Skortir ekki á veiting- arnar, hvorki mat né alls kyns drykk, þótt Öræfingar verði löng um að vera sjálfum sér nógir um flest, enda hefur lengi vors verið undirbúin þessi hátíð, Það á vel við þegar sjaldan er gerður dagamunur að skemmta sér bæði vel og lengi, og það er liðið langt fram undir morgun, áður en sveitarfójkið fer að sýna á sér fararsnið. Þann sama dag höldum við félagarnir aftur í þéttbýlið. Daganna í Öræfum hef ég minnzt síðan og þeir munu seint ^iverfa mér úr huga Þór Hagalín. í / ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.