Morgunblaðið - 16.06.1963, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 16. júní 1963
Hvað segja sérfræðingar erlendra
stórblaða og tímarita um
TAUNUS 12 M „CARDINAL“
EFTIRFARANDI ER ÚTDRÁTTUR ÚR GREINUM SÉRFRÆÐINGA ÝMISSA ERLENDRA STÓRBLAÐA
OG TÍMARITA, SEM ÞAULREYNT HAFA TAUNUS 12M „CARDINAL“ OG KVEÐIÐ UPP SINN DÓM:
Gírskipting.
Auto, Motor und Sport 22/62.
. . . Gírskiptingin, sem tekin er
í aðalatriðum úr Taunus 17M, er
enn ein sú bezta stýrisgírskipting
sem við þekkjum . . .
The Motor World. Nóv. 62.
. . . Það skal hér tekið fram, að
gírskiptingin á Taunus 12M er
sannarlega dásamleg. Ég man að-
eins eftir einum bíl með sam-
bærilega gírskiptingu og það er
stóri bróðir 12M (Taunus 17M)
Sports Car Graphic. Febr. 63.
. . . Sérstaklega skal rætt um gír-
kassann, sem ég vil dæma einn
af þeim allra beztu af stýris-
skiptingar-gírkössum. Hann er
mjög léttur í skiptingu, nákvæm-
iur og sannkölluð ánægja að
nota . . .
Mecanica Popular. Marz 63.
. . Fjögurra gíra skiptingin er
sú sama og í Taunus 17M og er
álitin sú bezta, sem fáanleg er
í evrópiskum bíl . . .
Þægindi — Fyrirkomulag.
Kölnische Rundschau. 20. 10. 62.
. . . Ökumaður og farþegi í fram-
sæti hafa mjög gott rými. Það er
hvorki hryggur fyrir drifskaft
né hjólskálar til óþæginda fyrir
fætur . . . Það sem mesta athygli
vekur við fyrstu athugun á bíln-
um, er hversu breiður hann er
Hobby 21/62.
. . . Rými húrra! Þetta er regluleg
yfirstærð í þessum stærðarflokki
bíla. Gólf bílsins að framan
beygist upp nákvæmlega þann-
ig að það virkar sem fóthvíla.
Lengi hfi þægindi!
The Motor World. Nov. 62.
. . . Það, að vera algjörlega laus
við hjólskálar eykur á allt rými
og þægindi og þrír gætu setið
í framsætinu . . . Þetta er mjög
rúmgóður bíll með geysistórri
farangursgeymslu, fyrir þennan
stærðarflokk bíla, eða jafnvel
flesta aðra stærðarflokka . . .
The Motor. Sept. 62.
. . . Það er í alla staði nægilegt
rými, jafnvel stærstu menn geta
látið fara vel um sig . . . Það fer
þægilega um fimm fullorðna og
hreifingar ekki takmarkaðar af
drifskafts-hrygg svo sem í flest-
um öðrum bílum og þar að auki
mjög stór farangursgeymsla . . .
Mot. 10/62.
. . . Við rólega íhugun virðist
ljóst hverjum, sem er að velja
sér bíl, að þessi 12M gjörbreytir
í eitt skipti fyrir öll þeim mæli-
kvarða sem hingað til hefir verið
notaður fyrir „stærri smábíla“
og „minni stóra bíla“. Hér fá
menn fullkominn bíl með mjög
eftirtektarverða eiginleika við
ótrúlega lágu verði.
Hemlar.
L’Equipe Paris. 14. 9. 62.
. . . Hemlar eru frábærir. Þeir
virka samstundis, eru áreiðan-
legir og öruggir.
Automobil. 20/62.
. . . Hemlarnir komu okkur
skemmtilega að óvörum því þeir
eru óaðfinnanlega öruggir. Oftar
en einu sinni í reynsluakstrinum
gátum við náð því, sem vísinda-
lega er kallað 100% hemlun og
jafnvel eftir sjö neyðarhemlanir
á 100 km. hraða fannst ekkert
athugavert við hemlana.
Aksturseiginleikar.
Kölnische Rundschau. 20. 10. 62.
. . . Bíllinn er algjörlega ónæmur
fyrir hliðarvindi . . .
Frankfurter Rundschau. 15. 9. 62.
. . . Að mínum dómi, virðist akst-
urshæfni, fjöðrun og hemlun
verðskulda óendanlegt hól.
Vegna framhjóladrifsins valda
beygjur þessum bíl ekki neinum
vandræðum þótt þær séu teknar
sem í kappakstri . . .
L’Auto-Joumal Paris 20. 9. 62.
. . . Það er algjör öryggistilfinn-
ing, jafnvel við erfiðustu að-
stæður . . .
Bunte Illustrierte 41/62.
. . . 12M hagaði sér eðlilega jafn-
vel á 150 km., hraða. Það var
jafnvel ekki á neinn hátt finnan-
legt að bílnum væri ofboðið á
þessum mikla hraða. Aksturseig-
inleikar á beygjum reyndust
framúrskarandi og get ég þvi
sagt, að 12M er áreiðanlegur bíll,
sem ætti ekki að valda ökumanm
neinum óþægindum . . . Frá-
bærir eiginleikar: Framleiddur
svo sem bezt verður á kosið fyrir
fjölskyldubíl.
Automobil 20/62.
. . . Undravert, þessi fjöðrun er
framúrskarandi. Blaðfjaðrirnar,
sem oft eru ranglega álitnar
stífar, virkuðu nákvæmlega við
minnstu ójöfnur og jafnvægið
milli fram- og afturfjöðrunar var
mjög fullkomið. Jafnvel á leið-
indar „þvottabrettum“ er hvorki
upp eða niður hristingur eða
hliðarsveiflur . . .
Auto, Moter und Sport 22/62.
. . . Það er eftirtektarvert hvað
12M hefir mjúka fjöðrun, sem þér
finnið annars ekki í bílum í sama
verðaflokki. Fjöðrunin er ekkj að
eins mjúk heldur einnig mjög
jafnvægð. Það er áberandi hvað
vel fer um farþega í aftursæti,
jafnvel á „þvottabrettum" verð-
ur ekki vart við þennan óþægi-
lega snögga hristing, sem er oft
svo óþægilegur fyrir farþega í
aftursæti margra, jafnvel stærri
bíla . . .
Sports Car Graphic Febr. 63.
. . . í hraðakstri og jafnvel þrátt
fyrir sterkan hliðarvind var bíll-
inn mjög stöðugur, óneitanlega
yfirburðir vegna framhjóladrifs-
ins og um leið þýðingarmikið
öryggisatriði . . . Ég dæmi
áksturseiginleika hins nýja Taun-
us 12M framúrskarandi góða . . .
Mecanica Popular Marz 63.
. . . Hann hélt veginum eins og
hann væri á járnbrautarteinum,
jafnvel þegar snögglega var
hemlað og stýrisrattinu sleppt
um leið . . .
The Motor Sept. 62.
. . . Þetta er bíll, sem ökumenn
hafa ánægju af að aka hratt,
öruggir um, að þeir séu færir um
ef þörf krefúr, að breyta snögg-
lega um stefnu, en þurfa ekki
stanzlaust að gæta stefnunnar
vegna þess að bíllinn rási, sem
afleiðing hliðarvinda, sporvangs
teina eða ójöfnu í vegum . . .
Vélin.
Súddeutsche Zeitung 6. 11. 62.
.. . Vélin hefir undravert aflögu-
afl í brekkum . . . Það er auðséð
hér hversu mikil og nákvæm
vinna ásamt hugvitsemi hefir
verið lögð i kælikerfið. Afrakst-
urinn af þessu er ekki aðeins
kælikerfi með stöðugu og réttu
hitastigi heldur einnig miðstöð,
sem er svo afkastamikil að undr-
un sætir.
Kölnische Rundschau 20. 10. 62.
. . . í borgarumferð er þessi bíll
einn af fljótustu „umferðaljósa-
spretthlaupurum“ . . .
Súddeutsche Zeitung 6. 11. 62.
. . . Benzíneyðsla virtist okkur
ótrúlega lítil eftir fyrstu mæling-
ar, að minnsta kosti. Þessi eftir-
tektarverða sparneytni hélt þrátt
fyrir allt áfram gegnum allan
reynsluaksturinn og vakti mikla
athygli . . .
Karfan.
Bunte Illustrierte 41/62.
. . . Öryggi er einnig ábyrgst
með hinu framúrskarandi útsýni
úr 12M. Fram- og afturrúðurnar
eru háar og breiðar og hinar
stóru hliðarrúður bjóða ökumann
inum bezta mögulegt útsýni . . .
Autoniobil 20/62.
. . . Þetta er rúmbezti bíllinn,
sem boðinn hefir verið, á svo hag
kvæmu verði . . . í þessum
verð- og stærðarflokki er áreið-
anlega enginn annar bíll með
svona mikið rými. Engar hjól-
skálar til að angra, enginn drif-
skaftshryggur, enginn gírkassa-
hjúpur . . . Útsýni óaðfinnanlegt
í allar áttir.
Auto, Motor und Sport 22/62.
. . . Það fer ekki framhjá nein-
um, að Taunus 12M er byggður
af kunnáttu og nákvæmni. Fyrir
ekki þyngri bil er undravert
hversu stór og rúmgóður hann er
og þrátt fyrir allt er ekki finnari-
legt, að það komi á nokkurn hátt
fram á stöðugleika bílsins. Karf-
an er laus við skrölt og er sterk-
byggð í öllum smáatriðum . . .
Það er auðséð, að hér hafa fag-
menn verið að verki, sem eru
ekki að framleiða bíl í fyrsta
skipti. Samkvæmt grundvallar-
kenningum Henry Ford ættu
allir bílar að vera traustbyggðir
og hefir þeirri kenningu verið
dyggilega fylgt við býggingu
Taunus 12M.
i
I
i
l
i
I
j
ÍSLENDINGAR VIRÐAST SAMMÁLA SÉRFRÆÐINGUNUM, — ÞVÍ ÞEIR
KAUPA YFIR SEX SINNUM FLEIRI „CARDINAL“ BÍLA, EN AF NOKK-
URRI ANNARRI FORD GERÐ.
Skoðið ,,CARDINAL" sýningarbilana
Aukin sala sömu tegundar —
Aukin varahlutaþjónusta ==
Aukið endursöluverð
SUDURLANDSBRAUT 2 • SIMI 3 53 00