Morgunblaðið - 16.06.1963, Qupperneq 23
Sunnudagur U^júni 1963
TUORGVNBLAÐIÐ
23
i
i
i
95 ára 17. júm:
Þóra Jónsdótfir frá Dalbæ
XÆÁNUDAGINN, 17. júní, verður
ifyrrverandi húsfreyja að Dal-
bæ, Vestmannaeyjum, Þóra Jóns-
dóttir, 95 ára gömul.
Hún er fædd að Fresthúsum
í Mýrdal 17. dag júnímánaðar
1868. Foreldrar hennar voru
hjónin, Rannveig Björnsdóttir
Jónsscmar og Guðrúnar Jónsdótt-
ur, að Steinum undir Eyjafjöll-
um, og eiginmaður hennar Jón
Ögmundsson frá Reynisholti. En
Jón Ögmundsson var seinni mað
ur Rannveigar.
Fyrri maður Rannveigar var
Hannes Hannesson Gottsveins-
sonar, pósts, og Margrétar Jóns-
dóttur, að Brekkum í Mýrdal.
Hann missti hún í miklu sjó-
slysi frá Reynishverfi 1864. Voru
hálfsystkini Þóru frá fyrra hjóna
bandi móður hennar, sem upp
komust fimm, en alsystkini henn
ar voru tvö. Tvær hálfsystur
hennar fluttust til Suðurnesja
og giftust þar. Þær Guðrún Hann
esdóttir að Gaukstöðum í Garði,
sem fleiri börn en hennar eigin
kölluðu mömmu, og Margrét
Hannesdóttir að Endagerði, Mið-
nesi. Til Norðfjarðar fluttist
hálfsystir hennar Hólmfriður, er
starfaði þar sem saumakona um
fjölda ára. Og til Kanada fluttist
Ingigerður með eiginmanni sín-
um Jóni Inga Einarssyni. En Jón
hálfbróðir Þóru var heilsulítill
og dó ungur, uppkominn. Allt
er þetta fólk dáið, en á afkom-
endur á lífi.
Alsystkini Þóru af seinna hjóna
bandi móður hennar voru Jó-
hannes er fluttist til Ameríku,
giftist og á afkomendur, en er
nú dáinn og Guðný sem dó ung
1883.
Móðir Þóru, Rannveig í Prest-
húsum lézt 1875. Var heimilið
þá fljótlega tekið upp, og flutt-
ust bömin víst flest að Görðum
í Mýrdal til móðursystur þeirra
Guðrúnar Björnsdóttur, og eigin-
manns hennar Hallgríms Eiríks-
sonar, og sem áður er sagt, síð-
ar til Suðurnesja með fjölskyldu
Hallgríms og Guðrúnar. Sum
börnin munu þó áður hafa verið
farin til Suðurnesja. MunU þau
hjón Guðrún í Görðum og Hall-
grímur hafa unnið mikið kær-
leiksterk á þessum systkinum,
sumt var ef til vill endurgoldið
seinna.
Árið 1881 fiuttist Þóra til föð-
ur síns í Vestmannaeyjum, þar
sem hún átti eftir að starfa öll
sín beztu ár.
Árið 1894 gekk Þóra að eiga
eiginmann sinn, Helga Guðmunds
son Helgasonar og Margrétar Ei-
ríksdóttur frá Steinum undir
Eyjafjöllum. Helgi var fæddur 1.
júlí 1870. Þau giftust á Seyðis-
firði og byrjuðu búskap þar. Um
aldamótin fluttu þau til Vest-
mannaeyja, þar sem þau áttu
eftir að starfa um fjölda ára. Þar
varð Helgi einn af framá mönn-
um í formennsku og vélbátaút-
gerð. Var einn af fyrstu vélbáta
formönnum í Eyjum. Helgi dó
á sóttarsæng 1924.
Börn þeirra Þóru og Helga
voru: Guðjón fæddur 1895,
drukknaði 1918. Rannveig, lengi
hjúkrunarkona við Vestmanna-
eyjaspítala, giftist Óskari
Bjarnasyni frá Vestmanna-
eyjum, fluttust til Reykjavíkur
þar sem Óskar varð háskólavörð-
ur, þau bæði dáin. Margrét dó
1921 á sóttarsæng heima. Jónína
gift Guðmundi Ketilssyni frá
Stokkseyri, nú á Selfossi þar sem
heimili Þóru er nú.
Þóra í Dalbæ, eins og við frænd
fólk hennar kölluðum hana og
köllum stundum enn, hefur alla
tíð verið mikil stillingar og geð-
prýðis kona. Andlegur styrkur
hennar og trúfesta tel ég að
muni vera nokkuð fátíð. Bóndi
hennar mun hafa verið henni
mikið samstilltur, að mörgu leyti
Verðlækkun Verðlækkun
Remington þráðlausar
rafmagnsrakvélar
Nýtt verð ........... — 2.019,25
Verð áður ........... kr. 2.504,85
TAKMARKAÐAR. BIRCÐIR
PENNAVIÐGERÐSN
Vonarstræti 4. — Sími 10-207.
og börnin líka enda alin upp við
Guðsótta og góðar siðavenjur á
æskuheimilinu. Barnamissi í
gegnum veikindi og slys hefur
Þóra vafalaust mætt með orð-
unum alkunnu: „Drottinn gaf,
Drottinn tók, lofað veri Drottins
nafn“.
í júlímánuði síðastliðnum vildi
Þóru það slys til að lærbrotna
og hefur hún legið í Sjúkrahúsi
Selfoss síðan, er þó nú aðeins
byrjuð að staulast um með stuðn-
ingi annarra. Það er ekki neitt
verið að kvarta þariia, þetta er
allt eins og lífið gerist, og taka
skal hverri raun með þolinmæði
og þrautseigju. Þetta eru orð
Þóru um svona atvik.
Það var einn sumardag 1918,
að inná Vestmannaeyjahöfn kom
seglskip, skonnorta er nefndist
Rigmor, og var frá Norðfirði. Er-
indið var að leggja á land veik-
an mann, og fá annan í staðinn
ef mögulegt væri. Einn um borð
þekkti ungan mann í Eyjum,
Guðjón Helgason í Dalbæ, hann
hafði mikinn hug á að fá Guðjón
um borð, vissi að þar fór dug-
andi maður. Atvikin höguðu því
þannig að Guðjón fór um borð,
•veiki maðurinn var orðinn hraust
ur nokkru eftir að skipið fór.
Það fór til Spánar, en á heim-
leið um haustið fórst það í ofsa-
veðri í Bisckyaflóanum, í sama
veðri mun hafa farizt dönsk
skonnorta á svipuðum slóðum,
þar var stýrimaður Sveinn Jóns-
son skipstjóri frá Gaukstöðum,
voru þeir systrasynir, Guðjón og
Sveinn. Kunnugur maður í Eyj-
um hefur sagt mér, að Guðjón
hafi verið einn af allra efnileg-
ustu af ungum mönnum þar.
Sveinn heitinn Jónsson frá
Gaukstöðum var fyrsta flokks
Somkomui
Fíladelfía
bænadagur Filadelfíusafnaðar
ins, Brotning brauðsins kl.
10.30. Útisamkoma verður i
trjágarðinum í Laugardal kl.
4 ef veður leyfir. Almenn sam
koma að Hátúni 2 kl. 8,30,
Ásmundur Eiríksson prédik-
ar Leifur og Gunnbritt kveðja.
Fórn tekin vegna kirkjubygg
ingarinnar.
Bræðraborgarstígur 34
Samkoma í kvöld kl. 8,30.
Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Sunnud. kl. 11: Helgunar-
samkoma. kl. 4: Útisamkoma.
Lúðrasveitin spilar. Kl. 8.30:
Síðasta samkoma áður en
lúðrasveitin fer til Norags. —
17. júní: Kaffisala í salnum
til ágóða fyrir starfið.
Velkomin.
sjómaður. Foreldrum Guðjóns
hefur vafalaust verið það mikið
áfall að missa Guðjón, sem og
aðstandendum Sveins heitins,
báða þessa frændur mína þótti
mér mikið vænt um. Þetta voru
framtíðarmenn báðir tveir, hefði
þeim verið lífs áauðið.
Ég er viss um að ótal vinir
og kunningjar Þóru frá Dalbæ,
senda henni á þessum tímamót-
um hjartkærar kveðjur og bless-
unaróskir. Margir munu áreið-
anlega vilja heilsa henni, ef hún
væri á ferli. Ég veit að frænd-
fólk hennar allt hér í Reykjavík
sendir henni sínar beztu óskir og
Guð gefi henni blessun sína um
tíma og eilífð. Þessar fátæklegu
sundurlausu setningar vona ég
að hún virði til vorkunnar hjá
frænda sínum.
Guð blessi þig.
Svbj. Einarsson
Ný
DÖNS^
ENSK
AMERÍSK
BLÖÐ
Bókaverzlun
Sigurðar Kristjánssonar
Bankastræti 3.
siiuson
skellinoðrur
Verð kr. 7975. -
Hestöfl 1,9 — Þyngd 53 kg.
Hámarkshraði 50 km.
Reiðhjólaverzlunin Örninn
Spítalastíg 8 — Reykjavík.
Kaupfélag Hafnfirðinga
Strandgötu 28 — Hafnarfirði.
Iðnd
Dansað í kvöld kl. 9—11,30.
Sextett Óla Ben.
Söngkona: Bertha Biering.
Öll vinsælustu lögin leikin og sungin.
2ja og 3ja herbergja íbúðir við Háaleitisbraut. íbúðirnar verða seldar tilbúnar
undir tréverk öll sameign fullfrágengin og með vélum í þvottahúsi.
x x-: 5
HUSA OG SKIPASALAN
sími 18429 Laugavegi 18.