Morgunblaðið - 25.06.1963, Side 8
8
MORCUISBLAÐIÐ
Þriðjudagur 25. júní 1963
RINAULT RENNUR ÖT
RENAULT R-8
★
★
er bíll framtíðarinnar.
★ Diskahemlar á öllum 4 hjólum (sá fyrsti í heimi
í þessum verðflokki), en diskahemlar eru tvisvar
sinnum öruggari og fjórum sinnum léttari í notk-
un og endast mun betur og auk þess einfaldari
og ódýrari í endurnýjun.
★ 4ra cyl. 48 ha. toppventlavél með 5 höfuðlegum,
sem gerir gang vélarinnar þýðan og hljóðlausan
og endinguna meiri.
Benzíneyðsla aðeins 6,9 lítrar á 100 km.
Innsiglað vatnskerfi, sem er öruggt í allt að 40°
frosti. Tveggja ára ábyrgð á kerfinu.
Kraftmikil vatnsmiðstöð, sem gefur þægilegan
stofuhita um allan bílinn þegar í stað, og heitt
loft á framrúðu og hliðarrúður.
Innbyggt loftræstingarkerfi, sem heldur ávallt
hreinu og fersku Iofti í bílnum.
Stór farangursgeymsla.
Þægileg og handliæg hilla fyrir yfirhafnir.
Sér geymsla fyrir varahjól.
Kraftmikið 12 volta rafkerfi.
Sérstök stöðuljós á brettum auk stefnuljósa.
RENAULT R-8 er 4ra dyra með sérstökum
barnaöryggislæsingum á afturhurðum.
Allur ryðvarinn og kvoðaður.
Renault bifrciðarnar hafa reynzt afburðavel hér
á Iandi. Allir þekkja endingu Renault 1946.
Eigum örfáa bíla, sem enn er óráðstafað.
Verð, krónur: 147.500,00.
Viðgerðarverkstæði er í rúmgóðum húsa-
kynnum að Grensásvegi 18. — Varahluta-
birgðir fyrirliggjandi.
★
★
★
★
★
★
★
★
mw?55'
m:
w&iM Wm&fc ■' ' "
Renault R4L og R4 (350 kg) sameina kosti
sendibílsins og fjölskyldubílsins.
Renault-bílamar eru í sér-
flokki, vegna gæða og end-
ingar.
★Verð kr: 92 þús. á R4.
★ Verð kr: 121 þús. á R4L
Lítið inn í RENAULT bílabúðina Lækjargötu 4. —
Sýningarbílar á staðnum.
RENAULI (I! RÍTTl BÍLL
Columbus hf.
Símar 22118 og 22116.
Ólöf Gestsdóttir
INIeðra - Hálsi áttræð
ÓLÖF Gestsdóttir er fædd 25.
júní 1883 að Eyrarútkoti í Kjós.
Foreldrar hennar voru^þau hjón-
in Guðrún Gísladóttir og Gestur
Jónsson, er þar bjuggu. Eins og
að ofan getur er Ólöf fædd í Eyr-
arútkoti, en ólst upp frá tveggja
ára aldri á Kiðafelli. Árið 1885
fengu foreldrar hennar Kiðafell í
Kjós til ábúðar, en um svipað
leyti og þangað skyldi flytja
um vorið, drukknaði faðir Ólaf-
ar. Flutti þá móðir hennar að
Kiðafelli með börn sín, og bjó
þar fram til ársins 1901. Brá hún
>á búi, og dvaldist eftir það á
vegum Ólafar dóttur sinnar.
Árið 1901 giftist Ólöf Andrési
Ólafssyni I Bæ í Kjós. í Bæ
bjuggu þau hjónin Ólöf og Andr-
és fram til ársins 1922, að þau
fluttust að Neðra-Hálsi, og hefur
Ólöf átt þar heima síðan. Mann
sinn missti Ólöf 1931. Eftir dauða
hans bjó Ólöf að N-Hálsi með
bömum sínum til ársins 1947, að
synir hennar tveir, Oddur og
Gísli, tóku við jörðinni. Eftir
það hefur Ólöf dvalizt þar í
skjóli þeirra.
Eins og sjá má af þessum fáu
örðum, sem hér hafa verið sögð
af æviferli Ólafar á N-Hálsi, læt-
ur það af líkum, að ekki hafi ævi
braut hennar alltaf verið stráð
rósum, og að ekki muni vera
hægt að þakka þá átta áratugi,
sem hún hefur lagt að baki, að
hún hafi átt svo náðuga daga
eða hlíft sér við erfiði um æv-
ina. Öðru nær. Lengst af hefur
starfsdagurinn verið langur og
strangur. Ólöf er aðeins tveggja
ára, þegar faðir hennar fellur
frá. Segir það sína sögu um það,
að snemma hafi hún orðið að
taka til hendi, því að ekki mun
ekkjunni á Kiðafelli >afa veitt
af allri þeirri hjálp, sem tiltæk
var, ef heimilið átti að geta hald
izt saman. Og ekki mun erfiðið
hafa minnkað, er hún hóf sjálf
búskap, aðeins 18 ára að aldri,
enda stækkaði fjölskylda þeirra
hjónanna, Ólafar og Andrésar,
fljótt. Þau hjónin eignuðust 14
börn, sem öll komust til þroska
nema eitt, er dó fárra vikna gam
alt.
Sjálfsagt eru þeir teljandi dag-
arnir, sem Ólöf hefur lagzt ó-
lúin til hvíldar að kvöldi, meðan
hinn stóri barnahópur yar að
komast á legg, en heimilið og
börnin var hennar heimur, og
því ekki talið eftir $ér, þótt starfs
dagurinn væri langur og þreytt-
ur lagzt til hvíldar. Og ein stóð
Ólöf heldur ekki í lífsbarátt-
unni. Við hlið- hennar stóð eig-
inmaðurinn, traustur og mikil-
hæfur mannkostamaður, virtur
og metinn af öllum sem til hans
þekktu. Samhent voru þau hjón-
in í að koma börnum sínum til
manns og skapa þeim sem bezta
Klæðningar — húsgögn
Höfum fyrirligg'jandi sófasett frá
krónum 7.350,00. —
Svefnsófar, svefnbekkir, svefnstólar o. fl.
5 ára ábyrgð er tekin á allri nýsmíði.
Klæðum og gerum við bólstruð húsgögn.
Húsgagnaverzl. og vinnustofa, Þórsgötu 15
(Baldursgötumegin) — Sími 12131
Til leigu
6 herb. íbúð til leigu nú eða síðar. Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir 26. þ.m., merkt: „6 herb. — 5765“.
Nauðungaruppboð
Uppboð það sem auglýst var í 50., 55. og 56. tbl. Lög
birtingablaðsins 1962 á vélbátnum Vísi KE 70 fer
fram að kröfu Fiskveiðasjóðs íslands í skrifstofu
embættisins að Mánagötu 5, Keflavík þriðjudag-
inn 2. júlí kl. 10,30 f.h.
21. júní 1963.
Ræjarfógetkin í Keflavík.
jóúur vörubíll
Chevrolet ’53 til sölu. Skipti á 5 manna bíl koma til
greina. Upplýsingar í síma 50124.
framtíð. Það tókst þeim líka með
ágætum. Mun vart hafa sézt öllu
mannvænlegri systkinahópur ea
börn þeirra Hálshjónanna, Ólaf-
ar og Andrésar.
Einnig sorginni hefur Ólöf
fengið að kynnast, eins og flest-
ir þeir, sem eitthvað komast til
aldurs. Þremur börnum sínum
hefur Ólöf orðið að sjá á bak:
Ágústu, er dó sem ungbarn. Gesti
hreppstjóra og bónda á Hálsi,
er drukknaði í Meðalfellsvatni
árið 1947 ásamt konu sinni og
Guðbjörgu, er lézt fyrir tveim
árum. Þyngsta áfallið hlaut
Ólöf þó, er hún missti mann sinn
frá mörgum barna þeirra þá enn
á bernskuskeiði. Var Andrés eins
og áður getur mikill mannkosta-
maður. Forvígismaður í öllum fé
lags- og menningarmálum sveit-
ar sinnar, er til heilla horfðu.
Organisti var hann um áratugi á
kirkjum sínum, Saurbæjar- og
Reynivallakirkju. Hreppstjóri
var hann um rúman tug ára.
Þótt Ólöf hafi ekki farið var-
hluta af mótlæti og erfiðleikum
lífsins, þá mun henni þó ekki
hafa verið neitt fjær skapi en
að æðrast né gefast upp. Hóg-
værðin og prúðmennskan, trú-
mennskan og skapfestan hafa ver
ið hennar góðu fylginautar. Og
svo vel þykist ég þekkja til Ólaf-
ar á N-Hálsi, að ég tel mig geta
fullyrt, að þegar hún lítur nú
áttræð yfir liðna ævi, þá sé henni
þakklætið efst í huga. Þakklæt-
ið fyrir gæfuríkt líf. Þakklætið
fyrir hina mörgu sólargeisla, sem
á lífsbraut hennar hafa skinið.
Þakklætið fyrir að hafa fengið
að heyja lífsbaráttuna við hlið
góðs og göfugs eiginmanns. Þakk
lætið fyrir að hafa fengið að sjá
björnin sín verða að nýtum og
virtum þjóðfélagsþegnum. Þakk-
lætið fyrir að hafa mætt erfið-
leikum lífsins og sorgum sem
eðlilegum afleiðingum þess að
hafa notið gleði og blessunar.
Megi heiðríkja þessa göfuga
lífsskilnings lýsa þér áfram um
ævikvöldið, kæra vinkona.
Kristján Bjarnason
Demparar til fyrirliggj-
andi í flestar gerðir
bifreiða.
Hvítir dekkjahringir
Aurhlífar
framan og aftan
Bremsuskálar
Bremsudælur
Bremstuslöngur
Spindilkúlur
Spindilboltar
Stýrisendar
Kúplingsdiskar
Kúplingspressur
Púströr
Hljóðkútar
Bílamottur
Sprautulökk
til blettunar
Tjakkar 1V2—12’/2 tonn
Innihurðahúnar
Luktarammar
Flautur 6, 12 og 24 volt
BÍLANAUST HF,
Höfðatúni 2. — Sími 20185.
Stapafell, Keflavík. Sírni 1730.