Morgunblaðið - 25.06.1963, Síða 13
Þriðjudagur 25. júní 1963
MORCVNBLAÐ1Ð
13
Þura í Garði jarðselt
að Skútustöðum
MÝVATNSSVEIT, 26. júní — Út-
för Þuru skáldkonu í Garði fór
fram í Skútustaðakirkju s.l. laug
ardag að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Sr. Örn Friðriksson, prest
ur á Skútustöðum, jarðsöng.
Þura Árnadóttir var fædd í
Garði í Mývatnssveit 26. janúar
1891 og dvaldi þar mestan hluta
ævinnar. Það kom snemma í ljós
að hún átti létt með að yrkja
og varð fljótlega landskunn fyrir
kveðskap sinn. Hún gaf fyrstu
ljóðabók sína út árið 1953, sem
nefndist: „Vísur Þuru í Garði“,
og var hún endurprentuð með
smávegis viðauka og breyting-
um árið 1957. Einnig gaf Þura
út ættfræðirit, „Skútustaðaætt-
in“.
Þura í Garði tók mikinn þátt
i félagslífi sveitar sinnar og var
um skeið formaður Ungmenna-
félagsins Mývetningur. Hún var
alla tíð mjög hneigð fyrir garð-
yrkjustörf og síðustu tvo ára-
tugina vann hún að mestu við
þau störf, lengstum sem umsjón
armaður Lystigarðsins á Akur-
eyri, eða um það bil 17 ár. Áður
hafði hún unnið mikið starf við
gróðursetningu á Höfða í Mý-
vatnssveit.
Þura í Garði lézt á fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 13. júní
s.l. — Jóhannes.
Paul Levy á
fundi Varðbergs
Tveir erlendir ferðamenn, Galster frá Þýzkalandi (t.v.) og Verhoog frá Hollandi í safni Einars i
Jónssonar myndhöggvara í gær. A gólfinu stendur vasi gerður af Einari, með blómum í tilefni
40 ára afmælis safnsins. ' (Ljósm. Sv. Þ.)
Gestir í satni Einars Jóns-
sonar flesfir erlendir
Allt að 500 manns á dag
sfá safnið, sem nú er 40 ára
að safn meistarans, og óhætt
er að lofa hverjum þeim, sem
þangað kemur, að hann fer út
betri maður en hann kom.
FÉLAGIÐ Varðberg efndi á laug-
ardaginn til hádegisverðarfundar
í Þjóðleikhúskjallaranum og
flutti þar ræðu Paul M. G. Levy,
yfirmaður upplýsingadeildár Ev-
rópuráðsins, sem hafði skamma
viðdvöl hér á landi — á heim-
leið úr fyrirlestrarferð í Banda-
ríkjunum.
Formaður Varðbergs, Heimir
Hannesson, bauð gestinn velko'm-
inn, en Þór Vilhjálmsson, borg-
ardórxari, og starfsmaður upp-
lýsingadeildar Evrópuráðsins hér
á landi, kynnti gestinn.
Paúl Levy hefur um áratuga-
skeið verið jöfnum höndum há-
skólakennari og blaðamaður í
heimalandi sínu, Belgíu. Síðustu
árin fyrir styrj.öldina var hann
fréttastjóri belgíska útvarpsins,
en er Þjóðverjar lögðu undir sig
SÁ staður, sem erlendir ferða-
menn heimsækja hvað mest í
Reykjavík, er listasafn Ein-
ars Jónssonar, myndhöggvara,
á Skólavörðuholti, sem um
þessar mundir er 4Q ára gam-
alt. Er það raunar svo, að
safnið heimsækja " tiltölulega
fleiri útlendingar en Islend-
ingar, og verða flestir furðu
lostnir, sökum þess að þeir
hafa ekki átt von á því að sjá
verk listamanns á borð - við
Einar Jónsson hér norður á
hjara veraldar. Þeim erlend-
um ferðamönnum, sem heim-
sótt hafa safnið, ber saman
rnn að Eirtar Jónsson hafi ekki
aðeins verið einn mesti lista-
maður, sem íslenzka þjóðin
hefur átt, heldur hafi hann
einnig skipað sér veglegan
sess meðal hinna miklu er-
lendu myndhöggvara með
verkum sínum, og þá einkum
með hinum trúarlegu lista-
verkum sínum.
Fréttamenn Mbl. gengu í
gær um safnið og fylgdust
með viðbrögðum gestanna,
sem flestir eru erlendir. Menn
gengu þar um með lotningar-
svip, stöldruðu lengi við hvert
einstakt verk og virtu það fyr
ir sér í þögulli aðdáun.
Við tókum tali tvo menn,
Gáister frá Þýzkalandi og
Henk Verhoog frá Hollandi.
Báðum bar þeim saman um
að þeir hefðu orðið undrandi
á því að í Reykjavík fyndist
slíkt safn. Annar þeirra hafði
séð póstkort með einni mynda
Einars; - hinn hafði í húsi í
borginni rekizt á bókina um
Einar Jónsson og verk hans
og báðir ákyáðu að eyða dag-
stund í safninu á SkólaVörðu-
holti. '
Þegar við fórum fengum við
þær upplýsingar,. að þá daga
sem erlend skemmtiferðaskip
væru í Reykjavíkurhöfn,
kæmu 4—500 útlendingar á
dag í safnið, en að sjálfsögðu
minna aðra daga.
En einkennilegt er það, að í
Reykjavík skuli vera e. t. v.
þúsundir, sem ekki hafa skoð-
Henk Verhoog virðir fyrir sér höggmyndina Bæn.
Góður humarafli
Grindavíkurbáfa
Grindavík, 24. júní.
HÉR hefur verið fremur kalt í
vor, og hefur gróðri farið lítið
fram, en í gær og í dag hefur
verið blíðuveður, sunnan andvari
og eftir hádegi í dag var 40 stiga
hiti móti sólu og 16 stig í for-
sæluL
Afli hefur verið góður hér hjá
humarbátum að undanförnu;
mestan humarafla í einni sjóferð
hefur Flóaklettur fengið, 7.8 tonn.
Bátarnir eru tvo sólarhringa í
veiðiferðinni. í dag lönduðu fimm
bátar, og fékk Kári mestan hum-
arafla, 4 tonn 670 kg, Ólafur fékk
4 tonn 590 kg, Staðarberg var
þriðja með 4 tonn 540 kg.
Mikið er að gera hjá fyrirtækj-
unum. Langt mun vera komið að
pakka öllum saltfiski frá vertíð-
inni, og nú vinnur mikið af kven
fólki og krökkum hjá báðum
frystihúsunum í humar.
Sex bátar fóru héðan á síld-
veiðar fyrir Norðurlandi, og
fóru þeir allir tíunda til fimmt-
ánda þ. mán.
— G.
Mikil ölvun
ú Akureyri
AKUREYRI, 24. júní — Ölvun
var mjög almenn á Akureyri að-
faranótt sunnuda.gs, eftir að fólk
kom af dansleikjum í nágrenni
bæjarins, og var lögreglan önn-
um kafin fram undir moigun við
að stilla til friðar og fjarlægja
ölóða karla og konur af götum
bæjarins.
Mikið var um aðkomufólk í
bænum og átti það sinn bátt í
sukkinu — St.E.
Belgíu var Levy í hópi þeirra,
sem lenti í fangelsi þeirra.
Tveimur árum síðar flutti BBC
frétt um að Levy væri einn
þeirra, sem látizt hefðu af illri
meðferð í fangabúðum þeirra, en
þetta var ekki rétt. Til þess að
afsanna fregnina létu Þjóðverjar
Levy lausan og komst hann síðar
undan á flótta til Bretlands og
starfaði með belgískum flótta-
mönnum þar unz styrjöldinni
lauk.
Levy hefur haft töluverð af-
skipti af stjórnmálum og hefur
unnið hjá Evrópuráðinu allt frá
stofnun þess.
í ræðu sinni rakti hann að
nokkru sögu Evrópuráðsins og
ýmis þáu vandamál, sem það
hefði fengizt við. Hann ræddi
einnig um vandamál heimsins nú
á tímum, andstæðurnar milli lýð
ræðis og einræðis og hlutverk
Evrópu í uppbyggingu varanlegs
frjáls heims. Berlínarmúrinn,
sagði hann, er táknrænn fyrir
djúpið, sem skilur Austrið og
Vestrið. Og Berlínarvandamálið
verður ekki leyst án þess að
vandamál Þýzkalands verði jafn
framt leyst. Og skapizt slíkt and-
rúmsloft, að hægt verði að leysa
þýzka vandamálið, þá verður
auðvelt að leysa öll önnur vanda-
mál í samskiftum Austurs og
Vesturs. — Styrkur okkar, ekki
sízt smáþjóðanna, mundi aukast,
ef hin frjálsa Evrópa sameinað-
ist undir einu merki í sókninni
fram til varanlegs frelsis og lýð-
ræðis til handa öllum þjóðum,
| sagði Levy að lokum.