Morgunblaðið - 25.06.1963, Side 17
Þriðjudagur 25. júní 1963
MORGVTSBLAÐIÐ
17
Bergvin Jónsson
Fæddur 1. ágúst 1918. —
Dáinn 18. júní 1963.
ÞAÐ er margs að minnast er
Við í dag fylgjum Begga, en
svo var hann kallaður af flest-
um,,hinzta spölin að gröf hans.
Hann andaðist eftir mjög erf-
iða sjúkdómslegu á Bæjarsjúkra-
húsi Reykjavíkur 18. þ.m.
Beggi fæddist 1. ágúst 1918 að
Brekku í Aðaldal í S-Þingeyjar-
sýslu, sonur hjónanna Margrétar
Sigurtryggvadóttur og Jóns
Bergvinssonar.
Hann giftist 14. maí 1944, Fann
eyju Sigurbaldursdóttur frá ísa-
firði, æskuvinkonu minni, sem
á nú um svo sárt að binda. Þau
eignuðust 3 myndarleg börn, Petr
ínu Margréti 18 ára, Þóreyju
Huldu 8 ára, og Jón litla 5 ára.
Víst eru vegir guðs órannsak-
anlegir okkur mannanna börn-
um, og við spyrjum hvers vegna
er elskulegur eiginmaður og fað-
ir burtu tekinn í blóma lífsins.
Það vita allir sem til þekktu
að þau stóðu saman hjónin, að
skapa yndislegt heimili, börnum
sínum á Skúlagötu 72, sem gott
var að heimsækja, ekki sízt á
gleði og hátíðar stundum.
Beggi var að eðlisfari mjög
glaðlyndur maður með sérstak-
lega hlýtt bros.
Eflaust eru margir, sem minn-
ast hans frá því hann stóð dyra-
vagt í Sjálfstæðishúsinu í 13 ár
og gerðist svo meiri ábyrgðar-
maður þar, enda trúr í starfi sínu
ffehkÍKt
^ CADA Cirtl IDI
muw UTANBORÐSMOTORAR
FARA SIGURFÖR UM HEIMINN
ÞEIR ÉRU fRAMLElDDIR í STÆRÐUNUM:
4'/i, 6Vt, 18, 30 OG 40 HESTÖFL
^ Ufanborðsmótorana má panta
* Með mismunandi skrúfum
*■ f tveim lengdum (dýptum) -
. * Með stjórnbúnaði og öðrum
aukaútbúnaði eftir vali
LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA HJÁ ÓSS EÐA
KAUPFÉLÖGUNUM
DRÁTTARVELAR H.F.
■M flehkms stenzt öll próf
>f
Danskar
sumarpeysur
Nýtt
úrval
Verð írá kr, 789.—
Fata- & gordínudeild Laugavegi 31 - Sími 12816
og veit ég að ekki var hann allt-
af heill heilsu.
Tvisvar varð hann að yfirgefa
konu og börn og dvelja á Víf-
ilsstöðum, en þann sjúkdóm hafði
hann yfirstigið, og framtíðin virt
ist björt og fögur. Undanfarin ár
vann hann í Liverpool, og vann
þar, þar til í desember, en var
þá orðinn heltekinn af þeim sjúk
dómi, er hann fyrir ári kenndi
sér fyrst meins.
Allt til hins síðasta bar hann
þrautir sínar með karlmennsku
og aldrei heyrðist æðru orð, held
ur hafði hann gamanyrði á vör,
og lýsir það eindæma þreki.
Þetta hefur verið mikil raun
fyrir Fanneyju og hefur hún
gert allt til að létta honum sjúk
dómsleguna, og síðustu dagana
vék hún ekki frá rúmi hans.
Fanney mín og börn, megi
guð vera ykkur styrkur og ljós í
framtíðinni og minnumst þess að I
Hann hefur búið okkur öllum
stað, þar sem ástvinir hittast að
nýju.
Þórey Þorsteinsdóttir
Timburhúsið
Bergstaðastræti 52
er til sölu til brottflutnings. Tilboð óskast afhent
undirrituðum fyrir 28. þ.m., sem jafnframt veitir
nánari upplýsingar.
ADOLF SMITH
Bergstaðastræti 52 — Sími 14030.
Síldarsöltunarstúlkur
Stúlkur óskast til síldarsöltunar á Siglu-
firði. Fríar ferðir. Gott húsnæði.
Upplýsingar í síma 24754.
yex er nýtt syntetiskt þvottaduft, er léttir störf þvottadagsins.
vex þvottaduftið leysir upp óhreinindi við lógt hitastig votnsins
og er sérstaklcga gott í ollon þvott.
vex gefur hreinna og hvítara tau og skýrari liti.
vex er aðeins framleitt úr beztu fóonlegum syntetiskum efnum.
Reynið vex í næsta þyott.
vex fæst í næstu verzlun.
ekkert heimili án húsbúnaðar
samband
húsgagna
framleiðenda
laugavegi 26
simi 20 9 70