Morgunblaðið - 25.06.1963, Qupperneq 23
Þriðjudagur 25. júní 1963
TUORGVNBLAÐ1Ð
23
Hrafn Tulinius, læknir, ásamt konu sinni, Helgu Brynjólfsdótt-
ur og böruiáp-
Frá þingi Krabbameinsfélaga
Norðurlanda:
Hrafn Tulinius hlaut
83 þús. kr. styrk
Rækileg legkrabbaleit að hefjast
Ný stjórn / Israel
Esbkol fylgir stefnu Ben Gurions
— Osvald
Framhald af bls. 24.
myndír. Hornstrandamyndin tek
ur hálftíma og sýnir ýmsa gamla
vinnuhætti, auk hins hrikalega
landslags 'þar norður frá. Gerði
Osvaldur hana upp í vetur og
bætti í hana köflum, sem hann
hefur tekið að undanförnu.
onnur af filmum Osvaldar,
Öskjumyndin, var nýlega sýnd
víða um Bandaríkin. Dr. Sigurð
ur Þórarinsson, jarðfræðingur,
hafði hana með sér í fyrirlestrar
ferð um bandaríska háskóla, og
sýndi hana við aðal jarðfræði-
stofnanir þar í landi. Segir hann
að myndin hafi vakið mikla at-
hygli. M.a. var hún sýnd í Den-
var í Colorado, en jarðfræðistofn
unin þar á gott eldfjallamynda-
safn. Var Öskjumyndin borin
saman við kvikmyndir, sem hafa
verið teknar af fagmönnum þar,
og stóðst fyllilega samanburð við
myndir atvinnumanna, sem sér-
staklega höfðu verið gerðir út til
kvikmyndatöku af eldgosum.
'Voru áhorfendur mjög hrifnir af
tónlistinni við myndina, sem
Magnús B1 Jóhannsson hefur gert
og hafði engum áður dottið í hug
að auka áhrifin af eldgosum með
nútímatónlist.
íslendingar skoða einnig kvik
myndir Ósvaldar. Sonur hans er
um þessar mundir á sýningarferð
um Vestfirði með 4 kvikmyndir,
Öskjumyndina, myndina um Hall
dór Kiljan Laxnes, Fjallaslóðir
og Barnið er horfið.
— Kennedy
Framhald af bls. 1.
einaðrar Evrópu við Bandaríkin
á j afnréttisgrundvelli. Segir, að
við samræðurnar l dag hafi feng
izt staðfesting á því, að aðilarnir
eéu sammála um, að Atlantshafs-
bandalagið sé og verði framtíð-
inni mikilvægt varðveizlu frið-
arins, og allt verði gert til þess,
að efla sameiginlega skipulagn-
ingu varna bandalagsins.
í yfirlýsingunni segir, að líta
megi á sameiginlegan kjarnorku-
her Atlantshafsbandalagsins, sem
mikilvægan lið í samræmingu
varna bandalagsríkjanna. Benda
lAdenauer og Kennedy á, að
xnikilvægt sé, að öll lönd innan
Atlantshafsbandalagsins, sem
éhuga hafi á stofnun kjarnorku-
hersins, taki þátt í viðræðunum
um grundvallaratriðin, sem
semja þarf um, áður en hann
verður stofnaður.
í tilkynningunni er einnig
rædd sameining Þýzkalands og
segjast Adenauer og Kennedy
vona, að hún takist á friðsam-
legan hátt. Segjast þeir munu
gera allt, sem í þeirra valdi
stendur, til þess að varðveita
frelsi Vestur-Berlínar og nota
hvert tækifæri til þess að for-
dæma Berlínarmúrinn og hin ó-
mannúðlegu áhrif, sem hann hef-
ur á lífið í borginni.
Stjórnmálamennirnir segjast
vera sammála um nauðsyn samn
ings um bann við kjarnorkutil-
raunum hið allra fyrsta. Einnig
segjast þeir vera sammála um
höfuðatriðin á sviði efnahags-
mála og vilja sérstaklega benda
á nauðsyn aukinnar þátttöku
hinna vanþróuðu landa í heims-
verzluninni.
★
Á fundinum, sem Kennedy hélt
með fréttamönnum, benti hann
á hættuna, sem stafa myndi af
því, að fleiri ríki fengju kjarn-
orkuvopn. Sagðist hann óttast,
að þetta yrði innan þriggja ára
og þá væri voðinn vís. Þess vegna
væri nauðsyn samnings um bann
við kjarnorkuvopnatilraunum
meiri nú en nokkru sinni. For-
Betinn ræddi sáttmála Frakk-
lands og Vestur-Þýzkalands,
eagði hann, að Bandaríkin væru
ánægð með vináttu þessara ríkja,
en lagði áherzlu á að Bandaríkja
menn vildu fyrst og fremst efla
Atlantshafsbandalagið í heild.
Á miðvikudaginn fer Kennedy
til 'Vestur-Berlínar og þaðan
heldur hann til írlands sama
dag.
í GÆR var tilkynnt á þingi
norrænu krabbameinssamtak-
anna. að Hrafn Tulinius, lækn
ir, hefði hlotið styrk samtak
anna í ár. Styrkurinn nemur
10 þúsund krónum sænskum
eða 82.743 íslenzkum krónum.
Hrafn er 32ja ára gamall. Hann
tók stúdentspróf frá Verzlunar-
skólanum 1950 og læknisfræði-
próf við Háskóla íslands 1958,
vann síðan við háskólann og
seinna við sjúkdómarannsókna-
stofnun prófessors Búchners í
Freiburg í Baden-Wúrttemberg
í Vestur-Þýzkalandi. Þar starf-
aði hann að krabbameinsrann-
sóknum. Síðan var hann ráðinn
til starfa við M. D. Anderson
Hospital í Houston í Texas. Vinn
ur hann þar að rannsóknum á
krabbameini ásamt prófessor
William O. Russell.
★
Samband krabbameinsfélaga á
Norðurlöndum — Nordisk Can-
cerunion — heldur árlega þing,
þar sem formenn og ritarar félag
anna á Norðurlöndum bera sam-
an bækur sínar og úthluta
styrknum. Þingin hafa verið hald
in frá árinu 1948. Á íslandi hefur
þing verið haldið einu sinni áður,
árið 1958.
Þessir sitja þingið að þessu
sinni: Frá Danmörku: dr. Charles
Jacobsen, dr. med. E. Meulengr-
acht, prófessor, og T. Cramer,
framkvæmdastjóri. Frá Finn-
landi: dr. med. S. Mustakallio,
prófessor, og N. Voipið, ritari.
Vitni vantar
Þann. 18. þ.m. var ekið á Volks-
wagenbílinn R 13664 á bílastæði
móts við Hótel Sögu. Var aftur-
bretti bílsins dældað, svo og
þakið, þannig að sýnt er að bíll-
inn, sem skemmdunum olli, hef-
ur verið stór vörubíll. Eru þeir,
sem upplýsingar geta gefið um
málið beðnir að snúa sér til um-
ferðardeildar rannsóknarlögregl-
unnar.
Þann 21. júní var ekið utan í
Volkswagenbílinn R 710, á bíla-
stæði SÍS við Ingólfsstræti. Vit-
að er að gömul, blá Moskvitsbif-
reið átti þarna hlut að máli, og
er hér með skorað á ökumann
hennar að hafa samband við rann
sóknarlögregluna, og einnig þeir,
sem sjónarvottar kunna að hafa
verið að málinu.
Frá Islandi: Níels Dungal, próf-
essor, dr. med. Friðrik Einars-
son og Halldóra Thoroddsen, rit-
ari. Frá Noregi: dr. med. R. Eker,
forstjóri og O. Jacobsen, ritari.
Frá Svíþjóð: dr. med. E. Berven,
prófessor og frú G. Julin, ráðu-
neytisstjóri.
Hvað á að segja krabba-
meinssjúkling?
Framkvæmdastjórar félaganna
hittust á sunnudag, en á mánu-
dag hófst sjálft þingið í húsi
Krabbameinsfélagsins á Suður-
götu 22. í dag verða umræður
um efnið: „Hvað á að segja
krabbameinssjúklingi?“, og flyt-
ur dr. Friðrik Einarsson inngangs
erindi að umræðunum. Á mið-
vikudag og fimmtudag ferðast
þingfulltrúar um Borgarfjörð og
Snæfellsnes.
Legkrabbamein breiðist út
Á fundi með blaðamönnum í
gær sagði Níels Dungal, að fund-
urinn þá um morguninn hefði
verið mjög lærdómsríkur. Öll
félögin væru að byrja nákvæma
leit að legkrabbameini. Maga-
krabbi væri algengastur, en örð
ugt væri að uppgötva hann í
tíma. Öðru máli gegndi um leg-
krabbamein. Hann væri mjög auð
velt að finna á byrjunarstigi og
útrýma honum. Ef allar konur
létu rannsaka sig reglulega,
mætti útrýma legkrabbameini að
fullu.
Legkrabbi er sífellt að verða
algengari. í Bandaríkjunum er
hann að ná háskalegri útbreiðslu,
og einnig á Norðurlöndum kveð-
ur æ meira að honum. Hér á ís-
landi fer útbreiðsla hans sívax-
andi, einkum í Reykjavík. Auð-
séð væri, hvert stefndi, og nú
væri um að gera að kæfa hann
í fæðingunni.
Krabbameinsfélagið vonast til
þess að geta hafið leit að leg-
krabbameini í haust. Það er þó
ýmsum annmörkum háð, aðal-
lega vegna skorts á sérþjálfuðu
fólki. Ætlunin er að byrja á því
að skoða allar konur í Reykja-
vík á aldrinum 25 til 60 ára,
en siðan hefst sams konar leit
úti á landi. Verða konurnar síðan
skoðaðar annað eða þriðja hvert
ár. Mikið er komið undir sam-
stafi við kvenfólkið, því að vita-
skuld verður ekki hægt að
þvinga konur til þess að gangast
undir rannsóknina.
Jerúsalem, 24. júní (NTB)
L E V I Eshkol skýrði forseta
ísraels, Shazar, frá því í dag,
að Itann hefði myndað stjórn,
sem í ættu sæti nær allir ráð-
herrarnir í fráfarandi stjórn
Ben Gurions. Lýsti Eshkol
því yfir, að hann myndi í
meginatriðum fylgja sömu
stefnu og Ben Gurion.
Eshkol verður bæði forsætis-
og varnarmálaráðherra, Golda
Meir verður utanríkisráðherra,
Pinhas Sapir fjármála- og við-
skiptamálaráðherra og Dov
Joseph dómsmálaráðherra. Eru
þau öll meðlimir sósíaldemókrat-
íska Mapai-flokksins.
Aðrir flokkar í samsteypu-
stjórn Eshkols eru þjóðlegur
flokkur trúaðra og vinstrisinnaði
Acduth Avodah-flokkurinn.
- Iþróttir
Framh á bls- 22
Þremur mínútum síðar fá Akur
eyringar vítaspyrnu á Val fyrir
grófa hindrun í mikilli mark-
hættu. Skúli Ágústsson skoraði
aði 2—1 fyrir Akureyri.
Þremur mín. síðar komast Vals
menn í gegn út á miðju fyrir
klaufalegan varnarleik Ak. Berg-
steinn sótti upp hægri kant og
tókst að gefa vel fyrir. Hermann
útherji skoraði auðveldlega þvi
Einar markvörður hafði hlaupið
út móti Bergsteini.
Fáum sekúndum fyrir hlé náði
Valur forystu enn fyrir klaufa-
lega vörn. Hermann gaf fyrir
markið og þar var allt opið.
Steingímur innherji læddi bolt-
anum í netið fyrirhafnarlaust.
3—2 í hléi fyrir Val var væg-
ast sagt á ódýran máta. En mörk-
in telja — og Akureyringar geta
sér um kennt að staðan var
svona.
ár Lokasókn Akureyrar
Valur jók í 4—2 á 28. mín. síð.
hálfleiks og það var eina fallega
mark þeirra. Bergsteinn gaf fyrir
og út frá endamörkum meistara-
lega vel fyrir Hermann sem kom
aðvífandi og skallaði snöggt með
jörðu — alveg óverjandi.
Nú héldu menn að úrslitin
væru ráðin. En Akureyringar ger
breyttust. Kári Árnason sem kom
inn sem varamaður seint í fyrri
hálfleik hafði nú sameinast lið-
inu og gerði slíkan usla í Vals-
Nýja stjórnin nýtur stuðnings
68 af 120 þingmönnum ísraels.
Laxveiðif réttir úr
Dölum og Borgarf.
Akranesi, 24. júní.
Fjórir laxveiðimenn fóru á
fimmtudagskvöldið vestur í Dali,
tveir til að veiða í Fáskrúð og
tveir í Haukadalsá. Komu lax-
veiðimennirnir heim á laugar-
dag og höfðu veitt ails 12 laxa, 8
í Haukadalsá og 4 í Fáskrúð. Lax
arnir voru allir svipaðir að
þyngd, um 10 pund hver.
— Veiðin er afar treg í Laxá,
þótt vatnsmagnið sé gott í ánni,
sagði Sigurður Sigurðsson, bóndi
í Lambhaga mér um Laxá í Leir-
ársveit, og átti þá við neðri og
betri hluta árinnar. Flestir hafa
5 laxar veiðzt á einum degi. 25
laxar eru veiddir síðan byrjáð
var 12. júní.
vörninni að framverðir og bak
verðir vissu ekki sitt rjúkandi
ráð. Á 29. mín. nýtti hann méist-
aralega eitt af hinum glæsilegu
útspörkum Einars markvarðar,
hljóp með sendingu hans gegnum
alla vörn og skoraði auðveldlega.
Á 36. mín. lék hann í gegn á
miðju vallarins, komst einn inn-
fyrir vörn og skoraði með hörkti-
skoti, sem snerti stöng og þver-
slá í senn — gersamlega óverj-
andi.
Máttu Valsmenn í lokin þakka
fyrir jafnteflið og stig í leiknum
þó öðruvísi væri spáð í upphafi.
★ Liðin
Akureyrarliðið er nú mjög að
vakna og er hverju liði hættulegt
hér — hvað þá er á heimavöllinn
kemur. Steingrímur er mjög létt-
ur og leikinn að verða svo og
Kári með sinn mikla hraða. Með
Skúla og Guðna að baki og Einar
í markinu eru meginstoðirnar
taldar. Með betri útherjum væri
erfitt að standast Akureyringum
snúning.
Valsliðið má ekki af Árna Njáls
syni sjá. Hann var fjarverandi
og vörnin óvenjulega máttlítil.
Framverðirnir sáust ekki á löng-
um köflum og liðið slitnaði. Út-
herjarnir eru meginstyrkurinn,
en miðjutríóið vaklandi og óör-
uggt.
Hannes Sigurðsson dæmdi
mjög veL
— A. St.
B
Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir
GUÐRÍÐUR SVEINSDÓTTIR
Höfðaborg 75,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27.
þ. m. kl."1,30 e.h. — Blóm vinsamlega afbeðin, en þeim,
sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofn-
anir.
Þorgrímur Ólafsson,
Ólafur Þorgrímsson, Valgerður Eiðsdóttir,
Ingibjörg Þorgrímsdóttir, Harald ísaksen,
Inga Helma Þorgrímsd., Einar Frímannsson,
Sigurður Þorgrímsson, Anna Kristmundsdóttir.
Útför hjartkærrar eiginkonu og móður okkar
ÓLAFAR JÓHÖNNU KRISTJÁNSDÓTTUR
sem andaðist 18. þ. m. verður gerð frá Fossvogskirkju
miðvikud. 26. júní kl. 13,30.
Kristján Eggertsson og börn hinnar látnu.
Þökkum innilega auðsýnda hluttekningu vegna frá-
falls og jarðarfarar
eggerts o. briem
frá Árgeirsvöllum.
Eiginkona og synir.