Morgunblaðið - 11.07.1963, Blaðsíða 2
♦
2
MORCVNBL 'A ÐIÐ
Flmmtudagur 11. júlí 1963
Ltanríkisviðskiptin 1962 :
Innflutningur jdkst um
19%. útflutningur um 18%
Viðskiptin v/ð Austur-Evrópu
fara minnkandi
VERULEG aukningf varð á inn-
og útflutningi íslendinga á sl. ári.
Innflutningurinn jókst um 19%
frá árinu áður og nam 3.843 millj.
kr. Útflutningurinn jókst um
18% frá árinu 1961 og nam 3.619
millj. kr. Ekki var um að ræða
neinar stórvægilegar breytingar
á samsetningi útflutningsins árið
1962.
Viðskiptin við vöruskiptalönd
in, sem aðallega eru kommún-
istaríkin í Austur-Evrópu, héldu
áfram að dragast saman, en við-
skipti við frjálsgjaldeyrislöndin
aukast að sama skapi. Á árinu
1962 komu 79.3% innflutnings
þjóðarinnar frá frjálsgjaldeyris-
löndunum, en 20.7% frá vöru-
skiptalöndunum. Árið 1959 komu
hins vegar 37.4% innflutningsins
frá vöruskiptalöndunum, en 62.6
% frá frjálsgjaldeyrislöndunum.
Á árinu 1962 fóru 80.1% út-
flutnings þjóðarinnar til frjáls-
gjaldeyrislandanna, en 19.9% til
vöruskiptalandanna. Árið 1959
fóru hins vegar 39.6% útflutnings
ins til vöruskiptalandanna, en
60.4% til frjálsgjaldeyrisland-
anna.
f nýútkomnu hefti af FjármáJa
tíðindum, sem gefin eru út af
hagdeild Seðlabankans, er yfirlit
Happdrætti
Háskólans
Miðvikudaginn 10. júlí var
dregið í 7. flokki Happdrættis
Háskóla fslands. Dregnir voru
1100 vinningar að fjárhæð
2.010,000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 200,000
krónur, kom á hálfmiða númer
28,934 sem seldur var í umboði
Jóns St. Arnórssonar, Banka-
stræti 11, Reykjavík.
100,000 krónur komu á heil-
miða númer 39,778 sem einnig
var seldur hjá Jóni St. Arnórs-
synL
10.000 krónur:
12137 14731 22747 24380 28933
32085 34163 38179
44690 46481 47030
49819 49885 56890
57351 57862 58136
59080
(Birt án ábyrgðar).
28935 31777
40370 42644
48245 4M71
57006 57076
58463
um utanríkisviðskipti fslendinga
árið 1962 með nokkrum saman-
burði við undanfarandi ár. Er
þar greint frá því, áð árið 1962
hafi innflutningurinn aukizt úr
3.228 millj. kr. 1961 í 3.843 millj.
kr., eða um 19%, en útflutning-
urinn úr 3.075 millj. kr. í 3.619
millj. kr., en það er aukning um
tæp 18%.
Árið 1961 lækkaði verðmæti
innflutningsins hins vegar um
tæp 15%, en verðmæti útflutn-
ings jókst um tæp 7%.
Vöruskiptajöfnuðurinn 1962
varð nokkru óhagstæðari en árið
áður, eða um tæpar 224 millj.
kr. Árið 1961 var hann óhag-
stæður um tæpar 154 mUlj. kr.
Ekki var um að ræða neinar
stórvægilegar breytingar á sam-
setningu útflutningsins árið 1962,
en smávægilegar hlutfallslegar
breytingar verða jafnan frá ári
til árs. Nokkur samdráttur varð
á útflutningi ísfisks, saltfisks,
skreiðar og fiskmjöls, en hins
vegar hlutfallsleg aukning á út-
flutningi freðfisks og síldaraf-
urða.
Á árinu 1962 voru um 4/5
hlutar inn- og útflutningsins frá
frjálsgjaldeyrislöndunum, en 1/5
hluti frá vöruskiptalöndunum. —
Innflutningurinn frá vöruskipta-
löndunum minnkaði enn hlutfalls
lega á árinu, eða úr 24.7% í
20.7% af heildarinnflutningi árs-
ins. Útflutningurinn til þessara
landa jókst hins vegar nokkuð á
þessu ári, en annars hefur hann
farið minnkandi frá ári til árs
undanfarið. Jókst hann úr 15.9%
1961 í 19.9% heildarútflutnings-
ins. Þessa aukningu er eingöngu
að rekja til aukins útflutnings
til Rússlands, en hann var óeðli-
lega lágur 1961. Útflutningurinn
til annarra vöruskiptalanda
minnkaði almennt.
Árin 1959—62 hafa viðskiptin
við frjálsgjaldeyrislöndin og
vöruskiptalöndin skiptzt sem hér
segir í hlutfallstölum:
INNFLUTNINGUR
Fr jálsgjaldeyrislönd Vöruskiptal.
1959 62.6% 37.4%
1960 74.8% 25.2%
1961 75.3% 24.7%
1962 79.3% 20.7%
ÚTFLUTNINGUR
Frjálsgjaldeyrislönd Vöruskiptal.
1959 60.4% 39.6%
1960 74.3% 25.7%
1961 84.1% 15.9%
1962 80.1% 19.9%
Rækjuverksmiðja starf-
rækt í Ingólfsfirði
í GÆR átti blaðið tal við Gunn-
ar Guðjónsson á Eyri við Ingólfs-
fjör5 á Ströndum. Þeir Gunnar
og Ingólfur bróðir hans hafa ráð-
izt í að byggja þar rækjuverk-
smiðju með frystihúsi.
Gunnari sagðist svo frá:
— Hafizt var handa um bygg-
ingu verksmiðjunnar í fyrra-
haust og hóf hún vinnslu í vet-
ur. í upphafi var fengin pillun-
arvél eða skelflettivél öðru nafni.
Var hún smíðuð á ísafirði eftir
þýzkri teikningu. Vélin hefir
ekki komið að notum til þessa,
en þýzkur sérfræðingur er vænt-
anlegur hingað í september til
að stilla vélina og lagfæra svo
sem þurfa þykir.
Rækjan hefur því verið hand-
úlluð og heilfryst en fremur lít-
ill vinnukraftur er til þess hér
á staðnum.
1 /^ NA tS hnútor | SV SOhnúhr X Sn/Honn • Oi! 7 Skúrir S Þrumur Wiz, KMukit ZS Hihtkit HHmt 1
rc T5—""7 7"
HÆG N-átt er ríkjandi um Grænlandi og hafinu þar suð-
norðanvert Atlantshaf og ur undan. Engar fregnir höíðu
stilluveður. Grunn lægð yfir borizt af ísreki við Horn^
Norðurlöndum en hæð yfir strandir lsl. 15 í gær.
Við tókum á móti milli 30 og
40 tonnum af rækju sl. vetur.
Fólksfæð hamlar framleiðsluaf-
köstunum, en nægilegt hráefni
virðist vera fyrir hendi.
Frágangi verksmiðjunnar er
enn ekki að fullu lokið, enda
ekki allur vélakostur kominn í
hana. Ef þýzka vélin reynist vel,
þegar sérfræðingurinn hefir farið
höndum um hana stórbreytir það
að sjálfsögðu afköstunum. Eins
og er, er verksmiðjan aðalfram-
leiðslutæki staðarins. Verið er nú
að byggja upp bryggju síldar-
verksmiðj unnar. Tekin var hálf-
ur vélakostur henhar árið 1957
og fluttur til Seyðisfjarðar, en
hinn helminginn er hægt að taka
í notkun með dálitlum fyrirvara.
Menn lifa stöðugt í þeirri von
að aftur komi síld á norðvestur-
svæðið.
Hér á Eyri er nú fámennt orð-
ið, eða um 20 manns. Þó flutti
ein fjölskylda hingað nú nýlega.
Sláttur er yfirleitt ekki hafinn
hér nyrðra, en veðurblíða er dag
hvem, þótt ísinn sé hér skammt
undan. Sést hann greinilega ef
gengið er nokkuð upp í fjalls-
hlíðarnar, sagði Gunnar að lok-
- Óeiröir
Framhald af bls. 1.
sem er í för með konungshjón-
unum.
Páll Grikkjakonungur og Fred
erika drottning sátu seinna há-
degisverðarboð sir Ralph Perr-
ings, borgarstjóra í London, og
var gestunum ákaft fagnað við
komuna til Guildhall. Um kvöld-
ið fóru þau í leikhús, eins og
fyrr greinir, og sáu hátíðasýn-
ingu á „Jónsmessunseturdraum",
Shakespeares.
„Á heimleið", höggmynd eftir Gunnfríði Jónsdóttur.
Höggmynd Gnnnfríðor Jónsdóltur
sett upp við skóln í Reykjnvík
FYRIR nokkru birtust í Morg-
unblaðinu myndir og frásagnir
af listaverkum, sem prýða eiga
höÆuðborgina í framtíðinni. Nú
er nýkomin til landsins bronzaf-
steypa af höggmynd Gunnfríðar
Jónsdóttur, sem heitir „Á heim-
leið“. Reykjavíkurborg keypti
styttuna fyrir nokkru og ætlar
að setja hana upp við einhveru
skóla.
Höggmynd Gunnfríðar „A
heimleið“ var á Norðurlandasýn
ingunni í Stokkhólmi 1947, og
var eina styttan eftir íslenzka
konu á þeirri sýningu.
Selstran darve gur
tilhúinn í haust
Bílfært kringum Steingrímsfjörð
UNNEÐ er nú að svonefndum
Selstrandarvegi í Steingrímsfirði.
Ligur hann frá Drangsnesi, yzt
við Steingrímsfjörð norðanverð-
an, og inn með firðinum að Háls
götugili, þar sem hann kemur
á Reykjarfjarðarveg.
Áður var vegasamband við
Drangsnes yfir Bjarnarfjarðar-
háls, út með Kaldrananesi og
suður fyrir Bjarnarnes, en sá
vegur lokast yfirleitt á vetrum.
Hefur Drangsnesingum því ver-
Syndið
200 metrana
Akranesi, 10. júlí: —
Klukkan 12 í dag voru 620 manns
búnir að synda hér 200 metrana.
Keppnin stendur yfir til 15. sept-
ember. Flestum þykir sýnt að
landsmenn verði að herða sókn-
ina ef þeir eiga að vinna. Sund
laugar í landinu, sem búið er að
verja offjár til að byggja, þurfa
allar að vera í nothæfu ástandi til
15. sept. Verðlaunagripurinn
kvað vera undrafagur. Vegna á-
lits þess, sem Norðurlönd njóta
mun orðstír þess lands, sem sig-
ur vinnur í sundkeppninni, berast
um allan heim. — Oddur.
Leiðrétting
í FRÁSÖGN um ferð umboðs-
manns Síldarútvegsnefndar í
Finnlandi, Kai Juuranto ræðis-
manns í Helsinki, og finnskra
síldarkaupmanna til Siglufjarð-
ar í blaðinu í gær var það rang
hermt að Sveinn Benediktsson
væri formaður Síldarútvegsnefnd
ar. Erlendur Þorsteinsson er for-
maður nefndarinnar. Hins vegar
á Sveinn sæti í nefndinni og er
formaður Félags síldarsaltenda á
Norður- og Austurlandi og í
stjórn Síldarverksmiðja ríkis-
ins.
ið það kappsmál að fá vega-
samband meðfram Selströnd,
norðan Steingrímsfjarðar.
Samkvæmt því, sem vegamála
stjóri, Sigurður Jóhannsson, tjáði
Mbl. í gær, eru um tveir kíló-
metrar eftir af vegarlagning-
imni, og ætti því að verða ak-
vegur kringum allan Steingríms-
fjörð í haust.
Skipun síldar i
útvegsitefndor
VEGNA fyrirspnma, sem
blaðinu hafa borizt skal hér
skýrt frá skipun síldarútvegs-
nefndar.
í sildarútvegsnefnd eiga
sæti 7 menn. Alþingi kýs þrjá
menn í nefndina, og eru þeir
Erlendur Þorsteinsson, for-
maður, Jón L. Þórðarson frá
Laugabóli, varaformaður og
Jón Skaftason, alþingismaður.
Aðrir nefndarmenn eru Val-
týr Þorsteinsson, útgerðarmað
ur, kjörinn af Landssambandi
ísl. útvegsmanna, Sveinn
Benediktsson, kjörinn af Fé-
lagi síldarsaltenda á Norður-
og Austurlandi, Ólafur Jóns-
son frá Sandgerði, kjörinn af
Félagi síldarsaltenda á Suð-
ur og Vesturlandi og Hanni-
bal Valdimarsson, tilnefndur
af Alþýðusambandi tslands.
Formaður og varaformaður
síldarútvegsnefndar em til-
nefndir af atvinnumálaráð-
herra og skulu þeir samkvæmt
lögum um Síldarútvegsnefnd
vera valdir meðal hinna þing
kjörnu nefndarmanna. Kjör-
tímabil síldarútvegsnefndar
er þrjú ár, og er þetta annað
árið, sem núverandi nefnd
starfar.