Morgunblaðið - 27.07.1963, Page 2
HORGUNBL~ABIB
fyaugardagur 27. júlí 1963.
Merkur vinur
íslands í heimsókn
— dr Max Adenauer, borgarstjóri í Köln
í GÆRMORGUN kom hingað
til lands dr. Max Adenauer,
borgarstjóri í Köln, sonur
kanzlarans. Hann mun dvelja
hérlendis og ferðast í fjórar
vikur. Með honum er 16 ára
gömul dóttir hans, Bettina og
tvítug frænka þeirra, Bárbel
Reiners.
— Eg hafði lofað dóttur
minni íslandsferð, ef hún
stæði sig vel í skólanum, sagði
Adenauer í stuttu samtali við
Mbl. í gær. Eg hefði nú senni
lega samt farið, bættí hann
við brosandi.
Blaðamaður Mbl. hitti dr.
Max Adenauer í gær í Ás-
grímssafninu, en hann kom
þar, ásamt stúlkunum og dr.
Jóni Vestdal.
— xxx —
Þetta er í þriðja skipti, sem
ég kem til íslands, sagði borg
arstjórinn, fyrst 1930, síðan
1954 og svo nú. Þér eruð ekki
heppnir með veður, sögðum
við, en Adenauer vildi ekki
gera mikið úr því. Veðrið var
ágætt í gær, sagði hann, sjáið
þér ekki hvað ég er orðinn
brúnn. Eg veit líka, að það á
eftir að skána. Á sunnudaginn
skrepp ég til Grænlands, þang
að hef ég ekki komið áðúr.
Við spyrjum Adenauer,
hvort hann sæi miklar breyt
ingar frá 1954. Mikil ósköp,
sagði hann strax, allar bygg
ingamar hér í Reykjavík.
Borgin er eins og einn stór
byggingarstaður.
Hvað er að fregna frá Þýzka
landi?
Fréttir frá Þýzkalandi eru í
blöðunum, sagði Adenauer.
Eg get þó sagt það, að þýzk
stefna hefur verið mörkuð og
það er ekki útlit fyrir neinar
breytingar á stefnu þýzku
stjórnarinnar. Þýzk-franski
samningurinn er ánægjulegt
skref í samvinnu þessara ná-
grannaþjóða og mun ekki
breyta neinu, eins og sumir
virðast ætla.
-- XXX -----
Hvað viljið þér segja um
samvinnu lands yðar og ís-
lendinga?
SAMVINNA Þýzkalands og
íslands hefur alltaf verið mjög
góð frá fornu fari. Þetta sam
band hefur fremur aukizt en
hitt, og fjöldi íslenzkra stúd
enta nema nú í Þýzkalandi. Eg
vil fagna því innilega, að mál
íslands vegna landhelginnar
hefur nú náð fram að ganga.
Þess má geta að dr. Adenau
er er form. þýzk-íslenzka fé-
lagsins í Köln og er það
stærst slíkra vinafélaga við
önnur lönd í Köln. Félagið
nær yfir Nordrhein-Westfalen
og er dr. Adenauer, kanzlari,
meðlimur í féiaginu.
DR. MAX ADENAUER
skoðaði myndirnar í Ásgríms
safninu og var einkum forvit
inn um Húsafellsmyndirnar,
sem þar eru nú, því að hann
er á förum upp að Húsafelli,
þar sem hann mun m.a. fara
á hestum í Surtshelli.
Ðr.
Max
Adenauer í Ásgrímssafni ásamt dóttur sinnu og
frænku.
Æ skulýösskemmtun
BORGARNESI, 26. júlí. — A
aunnudaginn kemur verður hald
in nýstárleg skemmtun í Brún í
Bæjarsveit í Borgarfirði. Eir það
aeskulýðsskemmtun, sem er ein-
vörðungu fyrir unglinga á aldrin
um 14—20 ára. Hafa sýslunefnd-
ít Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
haft til athugunar hvað hægt
vceri að gera til þess að gefa
unglinguim kost á heilbrigðum
skemmtunum við þeirra hæfi.
Svo hagar til að unglingum inn
an 16 ára aldurs er bannaður að
gangur að almennum dansleikj-
um í héraðinu í því skyni að fylgj
ast með slíku banni hafa verið
tekin upp vegabref unglinga í
héraðinu, og stendur til að fylgja
þeirri skyldu frekar eftir á næst-
unni. Sýnist mönnum ekki rétt
að banna unglingum allar
skemmtanir við sitt hæfi. Hefir
því verið hlutast til um að koma
upp sérstakri æskulýðsnefnd, sem
mun ásamt héraðslögreglunni
annast undirbúning þessarar
skemmtunar. Takist hún þannig
að menn verði ánægðir með hana
er ráðgert að æskulýðsnefndin
haldi fleiri slíkar skemmtanir.
Þess má geta að báðar sýslunefnd
ir héraðsins lögðu fram nokk-
urt fé af mörkum til æskulýðs-
starfsemi.
Skemmtunin á sunnudagskvö'ld
ið er eingöngu fyrir unglinga á
aldrinum 14—20 ára, og verða
þeir að sýna skírteini um aldur
sinn. Þeim unglingum sem reyna
að koma með áfengi á skemmti
staðinn verður framvegis meinað
ur aðgangur að slíkum samkom-
um.
Æskumenn munu sjálfir ann-
ast gæzlu á staðnum undir eftir-
liti héraðslögreglunnar. Ráðgert
er að skemmtunin hefjist kl. 9
stundvíslega, en húsirvu verður
lokað kl. 10. — H.
40 skipbrotsmönnum var bjarg-
að af ísjökum og bátum á
síðustu stundu
Færeyjngarnir af Bliki koma
til Reykjavíkur í kvöld
í KVÖUD er þýzka eftirlitsskipið
Poseidon væntanlegt til Reykja-
víkur með skipbrotsmennina af
færeyska flutningaskipinu Bliki,
sem fórst á miðvikudagskvöld
við Hvarf, eftir að hafa rekizt á
ísjaka.
Skipbrotsmenn eru 40 'talsins,
ekki 35 eins og talið var í fyrstu
og í hópnum eru einnig farþegar
Líður þeim öllum vel.
Útgerðarmaðurinn, Z. Niclasen
hefur í huga að sækja skipbrots
mennina til Reykjavíkur með
flugrvél.
Danska blaðið B.T. hefur náð
sambandi við skipstjórann á Bliki
Hans Nicolai Jatnagard, en þetta
er í annað skipti, sem hann miss
ír skip, án þess að áhöfnina saki.
I september 1961 var hann með á-
ætlunarbátinn Tjald, er hann
rakst á skipið Colorado á Eyrar-
sundi, ag 240 farþega sakaði ekki
Skipstjórinn lýsir skipbrotinu við
Grænland þannig í samtalinu vð
B.T..
Nokkrum stundum fyrir mið-
nætti rakst Blikur á ísjakahröngl
svo að stefnið rifnaði. Sjórinn
fossaði inn, og fljótlega varð ljóst
að lekann var ekki hægt að
stöðva. Sjóherstöðin í Grönnedal
heyrði neyðarkall frá okkur, og
Katalínu-flugbátur var sendur á
staðinn. Katalínan fann Biik og
gat leiðbeint þýzka eftirlitsskip
inu Poseidon til Bliks. — Þá voru
allir, bæði farþegar og áhöfn,
húnir að yfirgefa skipið. Sumir
v *u í bátum, en aðrir á isjökum.
Poseidon kom á staðinn á sein
ustu stund, því að nokkrum mín-
útum síðar hafði þétt þoka grúfzt
yfir allt svæðið, svo að þýðingar
laust hefði verið að leita skip-
brotsmannanna. Óvenju mikili ís
er á þessum slóðum.
Blikur var einungis sjö ára
gamalt skip. Hann var á leið frá
Færeyingahöfn til Hvarfs me<5
útbúnað til nýs fiskivers, sem
Færeyingar eru að koma þar upp
á Eggersey. Um borð voru fjórir
fiskibátar, íbúðarbraggar, salt
benzín og vistir.
Úhgerðarmaðurinn hefur skýrt
svo frá, að mjög erfitt sé að sjá
ísjaka á ratsjá. Þeir þurfi að vera
mjög stórir til þess.
Hans Nicolai Jatnagard, skipstjóri
IVIesta síldveiði-
nóttin í fyrrinött
AÐFARANÓTT föstudags var
mesta síldveiði, sem verið hefur
hingað til á þessu sumri. Frá
því kl. 7 á fimmtudagsmorgun
til jafnlengdar á föstudag fengu
64 skip 29 þús. mál og tunnur.
Sildin fékkst á öllu austursvæð-
inu að heita má.
í gær var vitað um afla 20
skipa með um 10 þús. tunnur.
★
Raufarhöfn, 26. júlí
í dag fengu þessi skip afla
suður í Reyðarfjarðardjúpi (afli
í tunnum): Höfrungur II. 400,
Björgúlfur 800, Björgvin 200, Sel
ey 550, Snæfugl 160, Mars 150,
Jón Gunnlaugs 250, Akurey 500,
Víðir SU 400, Gissur hvíti 500,
Lómur 900, Guðmundur Péturs
600, Ingiber Ólafsson 700, Draupn
Ingi R.
í 7.-8. sæti
SVÆÐISMÓTINU í Halle (Þýzka
landi), sem Ingi R. Jóhannsson,
hefir tekið þátt í, er lokið. Efst
nr várð Portish með 14 vinn-
inga, annar Larsen með 13, Ivkov
og Robatsh 12 hvor og verða
þeir að heyja einvígi um hvor
verður í þriðja sæti, því að ein
ungis þrír halda keppni áfram,
5.—6. eru Malik og XJhlman með
11 hvor, 7.—8. Ingi R. og Trifonu
vic 10%. — Allir, sem voru fyrir
ofan Inga, eru stórmeistarar að
einum undanskildum.
f síðustu umferð mótsins gerði
Ingi jafntefli við Trofonuvic.
Þetta er sterkasta mót, sem
Ingi hefir tekið þátt í, og er
frammistaða hans með miklum
ágætum.
ir 450, Þráinn 650, Ver 350, Stef-
án Árnason 400, Sigurður Bjarna
son er að háfa, þegar þetta er
sent, sennilega á annað þúsund
tunnur. Ljósafell, Rán SU og
Gullfaxi hafa einnig fengið eitt-
hvað.
Síldin í Reyðarfjarðardjúpi er
mjög góð söltunarsíid og fer öll
í salt á hafnimar frá Seyðisfirði
og suður úr.
Vestan Langaness varð ekkert
Bátahrakn-
ingar í
Kópavogi
KL. AÐ GANGA tíu í gær-
kvöldi slitnaði vélbátur frá
bryggju á sunnanverðu Kárs-
esi í Kópavagi og bar fljótt út
Kópavog Og út á Skerjafjörð
Eigandi bátsins fékk þá lítinn
trillubát að láni og fór við
annan maon á eftir vélbátn
um.
Svo illa vildi til, að kaðall
festist í skrúfu trillubátsins
og rak hann nú stjómlausan
út voginn og fram á Skerja-
fjörð. Á meðan bar vólbátinn
að landi á Alftanesi og
skemmdist ekki vitund. Gerð
ar voru í skyndi ráðstafanir
til þess að koma mönnunum
á trillubátnum til hjálpar en
Skerjafjörður ber nafn með
rentu. Öttuðust menn, að þá
kynni að reka upp á sker.
Fjöldi manna fylgdist með
því úr landi, er trillubátinh
bar út fjörð. Laust eftir kl.
hálftólf bar hann a<5 landi við
Shell-bryggjuna. Sakaði þvi
engan, hvorki báta né menn.
vart við síld í dag. Veður er nú
tekið að spillast heldur á öllum
miðum fyrir Norðurlandi, Norð-
austuriandi og Austurlandi, og
veðurspá er óhagstæð.
í dag var saltað af miklu
kappi á öllum söltunarstöðvum
hér á Raufarhöfn. — Bakkafoss
lestaði njjöl til útflutnings.
★
Eskifirði, 26. júlí
í morgun komu þessir bátar
inn með síld, aflinn í tunnum:
Steingrímur trölli 100, Guðrún
Þorkelsdóttir 150, Jónas Jónas-
son 250, Þorbjörn GK 700 og
Keilir 300. Síldin er allsæmileg.
Síldarbræðslan hefur hafið
móttöku eftir aukninguna og
breytinguna, sem á heríhi voru
gerðar. Hún á að geta brætt
2500—3000 mál á sólarhring.
Byrjað er að salta á tveimur
af þremur söltunarstöðvum, en
sú þriðja byrjar á morgun. ,Þær
eru Auðbjörg, Askja og Fram-
nes. — G. W,
Petrosjan
orðinn efstuv
Fiiðrik í 3. sæti
LOS ANGELES, 26. júlí: —.
Tigran Petrosjan er nú efstur á
Piatrigorsky-skákmótinu fyrir
14. og síðustu umferðina, sem
tefld verður á sunnudag. Vann
hann biðskák sína við Panno.
Keres vann biðskákina við Frið-
rik Ólafsson, en Najdorf og Res-
hefsky sömdu jafntefli. Þá vann
Reshevsky skák sína við Keres,
sem var ótefld úr 11. umferð.
Staðan er nú þessi:
1. Tigran Petrosjan...... 8
2. PaulKeres............. 7%
3. Friðrik Ólafsson ...... 7
Miguel Najdorf......... 7
5. Samuel Reshevsky.......6%
6. Svetozar Gligoric......6
7. Oscar Panno ........... 5
Pal Benkö ..............5
í síðustu umferð eigast við
Gligoric og Keres, Reshevsky og
Petrosjan, Najdorf og Benkö og
Friðrik Ólafsson og Panno.