Morgunblaðið - 28.07.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.07.1963, Blaðsíða 3
Sunnudagur 28. júlí 1963 MORGUNBLAÐIÐ Sr. Jón Auðuns, dómprófastur: Helgi leikstjóri flytur stutta hugvekju. Frá vinstri: Erlingur, Guðrun, Helga, Petur, Brynja 1 Helgi. GLAÐIR YFIR að hafa greitt skerf af gamalli skuld, komu menn saman í Skálholti síðasta sunnudag. Vér höfðum lengi til þess funtlið, að niðurlæging Skál holts var þjóðarskömm ósamboð in söguþjóð, sem rækja vill minn ingu feðranna. Dagurinn rann upp regnþrung inn, kaldur. Mun það miklu hafa um valdið að ekki var meira fjölmenni í Skálholti en raun varð á óg miklu minna en saman kom á Skálholtshátíðinni 1956, þegar vegsamlega var minnzt 9 alda afmælis biskupsstóls á þeim fornhelga stað. og {vernig á að htaupa aí sér horr Helgi Skúlason æfir nýjan gamanleik CM ÞESSAR mundir er leik- flokkur Helga Skúlasonar að æfa nýjan bandarískan gam- anleik, sem sýndur verður á næstunni víðsvegar um land og síðan í haust hér í Reykja vík. Leikurinn heitir: Hlauptu af þér hornin og er eftir Neil Simon. Helgi er sjálfur leik stjóri, en aðrir leikendur eru Brynja Benediktsdóttir, Helga Bachmann, Guðrún Stephen- sen, Erlingur Gíslason og Pét- ur Einarsson. Leikurinn er í þremur þáttum og hlægilegur mjög. Fólk má því vænta hressilegrar upplyftingar und- ir ágústmánanum, en í sept- ember verður leikurinn sýnd ur í Iðnó. Fátt er draugalegra en mannlaust leikhús. Af auðum bekkjunum stafar tómleikinn, þessum bekkjum, sem svo oft óma af hlátri eða klútum er brugðið á loft á úrslitastundu harmleiksins. Þegar blaðamaður Mbl. var að reyna að ræða við nokkra leikara, sem voru að æfing- um úti í Iðnó á föstudag, þá hélt hann fyrst, að eitthvað undarlegt væri á seyði, því að inn 1 samtalið fléttuðst furðulegar setningar, eins og t.d.: Mamma, hvað ert þú að gera hérna? Náðu í sódapúlv er, ég er kominn með nábít. Það var ekki fyrr en andar- tökum síðar, að okkur varð ljóst, að við vorum að trufla textaæfingu og Guðrún Step- hensen var að liðka sig á setningunum sínum áður en æfingin hæfist. ★ Eftir að búið var að bera inn nokkur húsgögn og leik- endur höfðu hagrætt sviðs- munum hófst æfingin. Erling ur Gislason er að reyna að leita á Brynju Benediktsdótt- ur, en hún fer undan í flæm ■ingi: Svona ekki núna, láttu ekki svona, segir hún, en Erl- ingur virðist þó hafa fullan hug á því að hugðarefni hans nái fram að ganga. Inn kem- ur yngri bróðir Erlings í leikn um, Pétur Einarsson. Hann er hlaupinn að heiman. Þá ber að móður þeirra, Guð- rúnu Stephensen, föður, Helga Skúlason og ástmeyju, Helgu Bachmann. Af þessum gestagangi skapast margvís- leg vandamál og skemmtileg. Þarna er verið að æfa bráð skemmtilegan gamanleik, sem nefndur er á íslenzku: Hlauptu af þér hornin eftir bandarískan höfund, Neil Simon. Leikur þessi var fyrst frumsýndur í Bandaríkjunum fyrir þremur árum og hlaut mjög góðar undirtektir. Leik- flokkur Helga Skúlasonar er að æfa þennan leik ®g verð- ur hann sýndur víðsvegar um land á næstunni og að lok- um hér í Reykjavík í haust. Helgi Skúlason stjórnar leiknum og leikur jafnframt eitt hlutverkið. Aðrir leikend- ur eru Brynja Benediktsdótt- ir, Helga Bachmann, Guðrún Stephensen, Erlingur Gísla- son og Pétur Einarsson, ungur og efnilegur leikari, sem nem ur við Þjóðleikhússkólann. Leiktjöldin hefur Steinþór Sigurðsson málað og hann hafði verkstjórn á hendi við smíði leiktjaldanna, en leik- endur voru óbreyttir smiðir. Tjöldin eru eins og að líkum lætur hin mesta Völundar- smíð og lystilega skreytt og máluð. Þau sex hafa öll störf við sýningarnar með höndum, saumaskap, miðasölu, auglýs- ingar, leiksviðsstörf og and- litsförðun að leiknum sjálfum ógleymdum. Um kvöldmatarskeið var hlé gert á æfingunni og Brynja steikir lostæta „ham- borgara“ fyrir leikarana og blaðamanninum er boðið í veizluna. Milli bita gefst kost- ur á því að ræða nokkuð við Helga Skúlason. ★ Það er mjög hressandi að fara út um land með leikrit eins og þetta. Það er hvíld frá leikritum alvarlegs efnis og það er gaman að ferðast og hitta fólk, þótt ferðalagið geti orðið þreytandi á stund- um. Það er líka mjög fróðlegt að sjá svona um allar hlið- ar sýningarinnar, bætir ein- hver við, ég hef lært mikið á þessu. Og æfingin heldur áfram. Helgi leikstjóri gefur stuttar fyrirskipanir og leikurinn rennur liðugt áfram. Það er með semingi, sem blaðamað- urinn yfirgefur æfinguna í miðjum þriðja þætti, þegar farið er að hitna í kolunum fyrir alvöru, og fetar út á blað til þess að færa þessar línur í letur. Ef til vill hittir hann einhvern bráðlega, sem séð hefur leikinn úti á landi og getur frætt hann um enda- lokin og hver giftist hverjum. Það verður of langt að bíða fram í september og sjá leik- inn hér í Iðnó. Brynja steikir „hamborgara" á sviðinu í Iðn ó. Leikararnir fylgjast með af áhuga og eftir- væntingu, en Halli, sonur Helga, er eitt hvað vantrúaður á þessa eldamennsku. 3 báltar í árekstrum í Eyfa/irði í tjær AKUREYRI, 25. júlí. — Mikið hefur verið um óhöpp í umferð- inni í dag, bæði á Akureyri og í nágrenni hennar. Harður árekst- ur fjögurra bíla varð syðst í Skipagötu kl. 12.55. Þar rakst R 898 aftan á O 88322 (sænskan), sem kastaðist aftan á A 190, en hann síðan aftan á A 2137. Allir bílarnir skemmdust nokkuð, en mest sá sænski, sem er stór- skemmdur. Þá rákust á leigubíll og mjólk- urbíllinn úr Öngulstaðahreppi ofan við heimreiðina að Rifkels- stöðum kl. 16.15. Allmiklar skemmdir urðu á báðum bílun- um. Bíll úr Reykjavík fór út af veginum hjá Þorvaldsstaðaá á Árskógsströnd um kl. 8 í kvöld og skemmdist eitthvað. Loks varð mjög harður árekst- ur á mótum Hríseyjargötu og Gránufélagsgötu kl. 20.35 í kvöld. Volkswagenbíll og leigubíll lentu saman af miklu afli. Skemmdir urðu miklar á báðum bílunum og sá minni algerlega óökufær. Engin meiðsli urðu á mönnum í árekstrum þessum. — Sv. P. Sidney 25 júlí. UM 200 stúdentar köstuðu appel sinum og salernispappírsrúllu að sendiráðsritara Sovétríkjanna í Canberra, er hann hélt fyrirlest ur um eldflaugar og önnur vopn í háskólanum hér í dag. í stuttu iríáli Aþenu 25, júlí GRÍSKA stjórnin hefur bannað alla opinbera fundi sértrúaflokks ins „Votta Jehóva“ í landinu. Grískkaþólska kirkjan hafði áð ui birt aðvörun þess efnis að hún mundi efna til mótmæla- göngu frá Saloniki til Aþenu ef trúarflokkurinn, sem telur um 20 þúsund manns í Grikklandi, fengi að halda fjöldafund í Aþenu á þriðjudag. Chrysostomos erkibisk up hefur lýst vottum Jehova sem guðleysingjum og stjórnleysingj um. Blöð og útvarp verða ekki um það sökuð að hafa ekki brýnt fyr ir almenningi, að dagurinn væri dagur þjóðarinnar allrar. En nokkur atriði vöktu spurn um það, hvort þjóðin stæði eins ein huga og sjálfsagt væri um þenn an mikla atburð. Ríkisstjórnir síðustu ára hafa lagt fram mikið af almannafé til uppbyggingar Skálholts. En þeg - ar við blasa stórmannlegar gjafir bræðraþjóðanna á Norðurlöndum til Skálholtskirkju og -staðar, gjafir sem vekja oss óskipta virð ingu og þakkarhug, verður mörg um að spyrja: hvar eru gjafir ís- lenzkra manna? Hvað hafa þeir lagt þessum þjóðarhelgidómi, þegar frá eru skildar fjárveiting ar úr ríkissjóði? Annað veit ég að ýmsum flaug í hug, þetta: Hvar eru skáldin? Þau hafa jafnan áður slegið hörpu sína, þegar stóru atburð irnir urðu í þjóðarsögunni, svo að í ljóðum þeirra má lesa mikið mál íslandssögu. Ýmsir þeirra ortu fagurlega í sambandi við Skálholtshátíðina 1956, en var ekki tækifæri til að yrkja nú? Raunar gerði eitt yngstu skáld- anna sinn hlut stórmannlegan með fögrum ljóðaflokki, sem birt ist í Lesbók Morgunblaðsins á hátíðardaginn, en „hvar voru hin ir níu?“ | Vígsluhátíðin í Skálholti var að sumu færð í þann búning, sem minnti á guðsþjónustuform fyrri alda í Skálholti, minnti á fortíð ina. Það er heilsusamlegt að minn ast stórrar fortíðar. Ekki til þess að reyna að kalla til lífs það sem er dáið og á sér ekki lífsvon lengur, ekki til þess að miklast af fortíðinni eins og barn, — held ur til þess að skoða nútíðina með hana að bakgrunni og læra að skilja hvernig skuldin við hana verði greidd. E. t. v. er hirðuleysi vorrar ald ar um kirkjuna brennandi á- minning til vor um að í starfshátt um og túlkun hinnar heilögu stofnunar þurfi fleira að breytast en vér viljum horfast í augu við. En hitt er víst, að verði tengslin við fortíðina rofin, verðum vér rótlausir menn í rótlausri kirkju. Hér þarf varúð og vit í leið sögn. Eigi kirkjan að lifa verður hún að mæla á því máli, sem samtíðin talar og skilur. Postilla Vídalíns verður aldrei aftur les in á íslandi. Krosskvæði meistara Brynjúlfs þekkja aðeins örfáir menn með þjóð vorri nú. Og þó létu þessir höfðingjar og aðrir oss eftir arf, sem vér megum ekki glata. Vér megum ekki gleyma því að rætur þess, sem vér erum í dag, liggja aftur í aldir, sem fyrir löngu eru liðnar, að vér lifum á fórnum, sem fyrr voru færðar, og njótum blessunar af lífi manna, sem luku vegferðinni um þessa jörð. Sumir þessara manna stýrðu stóli og skóla í Skálholti. Hvað skuldum vér þeim arfi, er þeir létu oss eftir.? Ekki það að nota þau tjáning- arform þeirra, sem samtíð vor skilur ekki lengur. Bein má taka upp úr gömlum gröfum og mæla þau til þessað auka við þekkingu sína, en þau verða ekki klædd holdi og blóði að nýju. Um hitt erum vér við gamlan arf í skuld, að bera kyndil Krists fram fyrir samtíð vora eins vel og þeir beztu í Skálholti báru hann fram fyrir samtíð sína. Framtíðin ein má um það dæma hvort það muni lærast í hinu nýja Skálholti eftir að hátíðin er liðin, glaumurinn er hljóðnað- ur og kröfur daglegs lífs taka að kalla á starf. í Skálholti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.