Morgunblaðið - 28.07.1963, Síða 13

Morgunblaðið - 28.07.1963, Síða 13
Sunnudagur 28. júlf 1963 MORCVNBLAÐ1Ð 13 Fögur hátíð VÍGSLA Skálholtskirkju sl. sunnudag tókst með ágætum. At- höfnin var fögur og tilkomumikil. Vegna óhagstæðs veðurs komu þó miklu færri til Skálholts en ella hefði orðið. Af þeim sökum var einnig óhægt að haldast við úti nema þar sem menn gátu komizt í skjól. Engu að síður þótti mönnum hátíðlegt að sjá hina löngu skrúðgöngu presta og biskupa. Þeir, sem inni í kirkj- unni voru, nutu alls, er fram fór að fullu. Orgelleikur og söngur tókst svo vel, að menn töldu sig ekki hafa í annað sinn betra heyrt. Öllum kemur saman um, að sjálf sé kirkjan hið fegursta hús, falli vel inn í umhverfið og sé hið innra aðlaðandi en þó virðuleg. Mikil velvild r Formaður prestafélagsins sænska, hálærður guðfræðidokt- or, sagði frá því, að hann hefði aldrei heyrt Skálholts getið fyrr en hann kom hingað til íslands á raunum. Vonandi verða myndir eins og þessi ekki teknar aítur. REYKJAVÍKURBRÉF « Laugard. 27. júlí prestafélagsfund 1956. Á slíku þurfa menn sízt að furða sig. Þekking okkar á sögu annarra þjóða og merkisstöðum í þeirra •löndum er í brotum. Þurfum við þó oft meira á slíkri þekkingu að halda um aðra en þeir um okkur. Enda vita ekki ýkja margir er- lendis mikið um land okkar eða þjóð, þó að öðru hverju rekist menn á þá, sem merkilega mikið vita. Endurreisn Skálholtsstaðar og vígsla dómkirkjunnar er þess vegna ekki atburður, sem vænta megi að veki athygli víðsvegar utan íslands. Því eftirtektarverð- ari er sú velvild, sem víða að hefur orðið vart af þessu til- efni. Koma margra góðra gesta sannar hana og boð til þeirra byggðist á því, að þeir sjálfir eða félagsskapur, sem þeir eru full- trúar fyrir, höfðu þegar áður sýnt málinu áhuga og velvild. Ýmsir, einkum í Danmörku og Noregi, hafa gefið ótrúlega háar fjárhæðir til kirkjunnar og Skál- holtsstaðar. Allir góðir íslending- ar hljóta að vera þessum mönn- um þakklátir fyrir vinarhug þeirra. Verður biskups- setur endurreist í Skálholti? Þjóðkirkjan hefur nú tekið við umráðum Skálholtsstaðar. Það er því á hennar valdi, þ.e. biskups og kirkjuráðs, hvað héðan í frá verður þar gert, að sjálfsögðu innan ramma laga og réttar. Kirkjunni er t.d. í sjálfsvald sett að koma þar upp kirkjulegum lýðskóla utan hins almenna skóla kerfis, svo sem nú virðist ákveð- ið. Biskupsstóll verður hinsvegar ekki endurreistur í Skálholti nema með samþykki löggjafar- valdsins. Margir telja, að endur- reisn Skálholts sé ekki fullnuð fyrr en biskup hafi fengið þar að- setur á ný. Um slíkt má enda- laust deila Víst er það, að margs- konar óhagræði mundi af því leiða, ef biskup væri ekki búsett- ur í Reykjavík. Er og hvergi meiri þörf á honum en þar sem mannfjöldinn er mestur. Hugsa má sér að hafa biskupa fleiri en einn, en því fylgir kostnaður, ekki svo lítill. Það er ekki nóg að hola biskupi niður, þó að í Skál- holti sé. Einmitt seta á slíkum stað mundi kosta mun meiri um- búnað og risnu en í Reykjavík, og virðist hæpið að leggja í slíkt einungis fyrir metnaðarsakir. Umræður um þetta mega þó bíða um sinn. Nú er það fengið, að hinn fornfrægi sögustaður hefur á ný fengið skammlausa ytri á- sýnd. Ófagurt hljóð úr horni Engin regla er án undantekn- inga og ánægja manna yfir end- urreisn Skálholts á sér einnig sína undantekningu. Þjóðviljinn hefur hvern daginn eftir annan helt úr skálum reiði sinnar af þessum orsökum. Hann hefur al- mennt fundið að kirkjubygging- unni og einn blaða ónotazt út af því, að allmargir afbrotamenn skyldu náðaðir í sambandi við vígslu Skálholtskirkju. Er nú að heyra annað hljóð úr strokki hans en þegar hann árum saman heimtaði algera sakaruppgjöf til handa þeim ólánslýð, sena gerði aðför að Alþingishúsinu í marz 1949. Fyrir það fólk dugði ekki einföld náðun, heldur var haldið upp á myndun vinstri stjórnar- innar 1956 með almennri sakar- uppgjöf því til handa. Geðvonzk- an yfir vígslu Skálholtskirkju birtist þó bjánalegast þegar Þjóð- viljinn sendir yfir Matthías Jo- hannessen dag eftir dag hnútu fyrir að hafa gerzt svo djarfur að yrkja kvæði um kirkjuna og birta það á vígsludegi hennar! Ekki ein báran stök fyrir kommum Ekki er ein báran stök í hrell- ingunum, sem ganga yfir komm- únista um þessar mundir. Fyrir kosningar fóru forystumenn þeirra ekki í sínum hópi leynt með að eftir kosningar hygðust þeir mundu hreinsa til í flokkn- um. í eldhúsræðu sinni, rétt eftir að samkomulagið hafði verið gert við Þjóðvörn, sneyddi Einar Ol- geirsson að mestu eða öllu að minnast á Þjóðvörn en lagði ríka áherzlu á styrk sósíalistaflokks- ins. Úrslitin urðu kommúnistum hinsvegar svo mikil vonbrigði, að þeir drógu inn klærnar. Á aðal- fundi Sósíalistafélags Reykjavík- ur talaði Einar sem sannur frið- arhöfðingi um nauðsyn þess, að allir stæðu saman og létu ýfingar niður falla. Þjóðvarnarmennirnir sumir a.m.k. virðast þó ekki á þeim buxunum. Formaður Sósíal- istafélagsins, Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, sakar þá um klofningsstarfsemi og það, sem enn verra er, „Rússaróg“. Af því tilefni segir hann: „Næst skulum við svo skoða hversu máttugur þessi Rússaróg- ur hefur reynzt sem lífsafl stjórn málaflokks á íslandi. Hvaða ár- angur hefur hinn mjóróma söng- ur Þjóðvarnar með öskurkór auð- valdspressunnar borið? Hann hef ur lukkast þetta svo ljómandi vel að Þjóðvarnarflokkurinn, sem settur var til höfuðs Sósíalista- flokknum, varð i seinustu kosn- ingum að leita á náðir þessa höf- uðfjanda síns til þess að geta boð- ið fram“! Ekki er nú friðvænlegt undir niðri, þegar upp úr sýður með þessum hætti á milli þeirra, sem fyrir örfáum mánuðum sórust í fóstbræðralag í augsýn alþjóðar. Staðreyndir ráða meira en kenningahelsi Þetta er þó minnstur hluti af raunum kommúnista. Hinn árangurslausi sáttafundur Sov- éthöfðingjanna og Kínakomma gerir að verkum að hriktir í skjám kommúnista um heim allan. Trú þeirra hvílir á því, að fyrir hendi séu óhagganlegar — vísindalega staðfestar — kenn- ingar, sem kommúnistar einir hafi uppgötvað, sem leiða hljóti til alsældar mannkynsins, eftir að þeir hafi náð vödum. Nú er kom- ið í ljós, að fullt ósamkomulag ríkir um túlkun kenninganna meðal helztu forsvarsmanna þeirra. Sannleikurinn er sá, að þótt um kenningar sé deilt í orði kveðnu, þá er þar að mestu um orðaleik að ræða. Á bak við býr djúpur skoðanaágreiningur, sem sprettur af ólíkum hugsun- arhætti, hagsmunaágreiningi, mismunandi þjóðerni og þjóðfé- lagsaðstæðum. Þegar á reynir rýkur kenningamoldrykið út í veður og vind. Eftir standa ger- ólíkir hagsmunir og vandamál, sem verða því torleystari sem þau um stund duldust vegna kenninga moldviðrisins. Krúsjeff sýnir Kínverjum fyrirlitningu Erfitt er að hugsa sér meiri fyrirlitningu en Krúsjeff sýndi kínversku sendinefndinni meðan hún dvaldist í Moskvu. Til þess að forðast að taka á móti henni brá hann sér úr bænum, þegar hún kom í fyrstu. Sú fjarvera varð þó ekki til þess að hann léti vera að tala við þá, sem hann fýsti að hitta. Spaak, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Atlants- hafsbandalagsins, flaug á eftir Krúsjeff til að spjalla við hann einmitt um sömu mundir og kenningaviðræðumar voru að hefjast í Moskvu, að Krúsjeff fjarstöddum. Eftir að hann hafði rabbað við Spaak, fór Krúsjeff á ný til Moskvu til þess að taka þar á móti Kadar hinum ung- verska og síðar til þess að vera staddur við upphaf samninga við Bandaríkin og Bretland um bann við helsprengjutilraunum. — Að sjálfsögðu var það ekki einber tilviljun, að þessar umræður skyldu einmitt látnar hefjast í Moskvu samtímis sem kenninga- viðræðurnar við Kínakomma áttu sér þar stað. Krúsjeff vill bersýnilega, að það fari ekki fram hjá neinum, að aðalágreiningurinn milli hans og Kínakomma sé hvort vísvit- andi skuli stefn'. út í kjarnorku- stríð. Vel má þó vera, að í þessu sé meiri eða minni leikaraskapur. Jafnframt því sem Krúsjeff ögr- ar Kínverjum, vill hann láta Vesturveldin skilja, að nái hann ekki samkomulagi við þau, þá geti hann hvenær sem er samið við Kínverja. Eftir stendur að Krúsjeff hitti ekki kínversku full trúana fyrr en ráðstefnan með þeim var raunverulega farin út um þúfur, og þá til þess að biðja þá vel að lifa! Bíða og sjá hvað setur Nærri má geta, hvílíkum glund roða þessi ágreiningur veldur meðal hinna sanntrúuðu komm- únista, þeirra sem enn trúa á kenningaruglið, hér á landi sem hvarvetna annars staðar. Kínavin ir hér voru og ekki lengi að birta bréfið fræga frá Kínverjum, sem Moskvustjórn bannaði að birt væri í hennar landi og lét leon- stjórnirnar í Austur-Evrópu einn ig gera í sínum löndum. Fæstir mundu þá hafa óttast þann sam- setning, svo torlesinn sem hann er, því að hann minnir meira á endileysur Erasmus Montanus hjá Holberg en skrif nútíma- manna. Raunin mun sú, að flest- ir kommúnistar hér slái enn úr og í, bíði og sjái hvað gerist. Sú skoðun lýsti sér strax í skrifum Magnúsar Torfa Ólafssonar, en kemur einnig heim við stefnu kommúnistaforingjanna í Aust- ur-Evrópu þó að af ólíkum á- stæðum sé að nokkru. Sletzt hefur upp á vinskapinn milli Sovétstjórnarinnar og lepp- stjórnarinnar í Rúmeníu. Sovét- stjórnin ætlaði nýlega að fá hin- ar leppstjórnirnar í lið með sér til að kreppa að Rúmeníustjórn. Hinir lepparnir reyndu að skjóta sér undan að þurfa að taka af- stöðu í ágreiningnum, sem á yfir- borði er meira talinn lun efna- hagsmál en beinlínis um stjórn- mál. Þykir sýnt, að leppstjórn- irnar séu ekki undir niðri vissar um, hverjir ofan á verði að lok- um í sjálfu Sovétrússlandi og vilji a.m.k. nota sér örðugleika Krúsjeffs til þess að festa sjálfa. sig í sessi hver í sínu heimalandi. Þannig eru óheilindin og sjálfs- hyggjan yfirsterkust um leið og á bjátar fyrir yfirdrottnaranurru Bann við kjarn- orkutilraunum Samningur Bandaríkjamanna, Bretlands og Rússlands um bann við kjarnorkutilraunum er mikils verður. Hann nær þó ekki til allra kjarnorkutilrauna þeirra ríkja, því að neðanjarðartilraunir sýnast ekki munu hætta. Samn- ingurinn tekur heldur ekki til annarra ríkja. Frakkar og Kín- verjar munu því halda áfram til- raunum sínum, en væntanlega verður þeim ekki veitt aðstoð til þeirra af samningsaðilunum. Tilraunabannið felur og engan veginn í sér að kjarnorustríð sé óhugsanlegt. Þau þrjú veldi, sem að samningnum standa, búa nú þegar yfir svo miklum birgð- um kjarnorkuvopna, að þau gætu gereytt heimsbyggðinni. Er því rétt að hafa hóf á bjartsýni sinni, þrátt fyrir þessa samningsgerð, jafnframt því sem henni ber að fagna, því hún er sannarlega spor í rétta átt Góður hagui ríkisssjóðs Skoplegt er að sjá upphlaup Tímans og Þjóðviljans yfir hin- um góða hag ríkissjóðs og þeirri fyrirhyggju að leggja nú lögúm samkvæmt fé til hliðar, er grípa megi til, þegar versnar í ári. Því- lík skynsemi er síður en svo eftir kokkabókum stjórnarandstæð- inga. Nú þykjast þeir vilja hóf- semi í skattheimtu. Almenningur þekkir þá hófsemi af sárri raun. Aðferð Eysteins Jónssonar var öll önnur en Gunnars Thorodd- sen. Eysteinn Jónsson hafði það að meginstefnu að áætla fjárlög vitlaust til þess að hafa úr sem mestu að moða utan fjárlaga. Þá gerði hann sér leik að því að fá stórkostlegum tekjuafgangi út- hlutað, þó að sýnt væri að af því stafaði geigvænleg verðbólgu- hætta. Nú er með viturlegri fjár- málastjórn tryggður góður hagur ríkissjóðs jafnframt því sem unn- ið er á móti verðbólgu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.