Alþýðublaðið - 04.01.1930, Side 4

Alþýðublaðið - 04.01.1930, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ nm kjör bifreiðarstjóra í tveim borgum, Hamborg og Berlín. í fymefndu borginni er vinnutím- inn 60 stundir á viku, þannig að bifreiðarstjórinn vinnur í 6 daga 10 stundir á dag, en á frí sjö- unda daginn. Sumarleyfi er 10 dagar fyrir j)á, sem verið hafa iár í vistinni, en 7 dagar fyrir þá, er ekki hafa verið nema 6 mán- uði. Fyrir frídaga og sumarleyf- isdaga fær bifreiðarstjórinn borg- að 91/2 mörk — 10,25 ísl. kr. dag hvem. I Berlín er v.innutím- inn enn þá styttri, ekki nema 48 stundir á viku, eða til jafnaðar 8 stundir á dag (en má fara sipp í 12). Frídagur eftir sex vinnudaga, Sumarleyfi frá 5 tij 12 dagar. I Vínarborg er vinnutími bif- reiðarstjóra talinn frá því hann íekur bifreið úr geymslu og þar til hann skilar henni aftur, en þurfi bifreiðarstjórinn að bíða eftir að geta tekið eða skilað bifreið, reiknast það sem vinnu- timi. Alls er vinnutíminri 10 stundir, en þar frá dragast tvœr stundir til máltíða, svo hann er raunverulega að eins átía stund- ir. Frídagur er sjöunda hvern dag. Sumarleyfi með fullu kaupi S hálfan mánuð eftir fimm ár, en vika eftir eitt ár á sama stað. Loks má geta þess, að í Sví- þjóð er vinnutími bifreiðarstjóra ákveðinn 8 stundir samkvæmt al- inennum lögum um vinnutíma. Eftirvinna er þó leyfð (með sér- stökum skilyrðum). Einn dagur á viku hvíldardagur. Sumarleyfi ein vika, eftir sex mánaða vinnu hjá sama félagi. III. Þess er vert að geta, að al- menning varðar um vinnutíma bifreiðarstjóra frekar en vinnu- stundir flestra annara stétta, þvj menn eiga líf sitt undir þvi, að bifreiðarstjórar séu aldrei preytt- tr. Vegirnir okkar eru þannig, að ékki er hægt að aka bifreið í tíu mínútur út úr bænum, án j>ess að fara margoft framhjá stöð- um, þar sem það gæti orðið far- þegum eða bifreiðarstjóra sjálf- ,um að bana, ef hann misti valdið yfir bifreiðinni, eða væri eitthvað utan við sig í bara eina sekúndu. Þrjátíu km. á kfukkustund _cr ekki mikil ferð á bifreið, en er þó liðugir 8 metrar á sekúndu (átta metrar eru átta væn skref meðalmanns). Þegar nú er at- hugað, að erlendar hagskýrslur sýna, að 3/i hlutar allra slysa við vélar verða tvær síðustu stundir vxnnutímans (þegar menn tdfcg að þreytast), ætti flestum að vera augljóst, til hve mikilla slysa er stofnað með hinum takmarka- lausa vinnutíma islenzkra bifreiða- stjóra. Margir tala um hvað við eigum að sýna útlendingum, er hingað koma á þessu merkilega ári 1930. Ég skal nú ekkert segja um hvað viö eigum að sýna þeim, en eitt af því sem við ættum ekki að sýna þeim eiu út-andskotaðir bif- reiðarstjórar. ólaf ur Pridriksson. Erlesstl sína&keyti*' Lundúnum, FB., 3. jan. Lát þýzk-rússneskra bænda- barna. „United Press“ tilkynnir: Frá Berlín er símað: 52 börn hafa nú látist úr mislingunum í einangrunarstöðinni í Hammer- stein. Sum bamanna hafa einnig fengið lungnabólgu. Önnur Haagsamkundan sett. Frá Haag er símað: Önnur Haag-samkundan var sett í dag. Lundúnum, FB., 4. jan. Slys. Frá Shrewe í Ohio í Banda- ríkjúm N.-Ameríku er símað:Slys varð hér með þeim hætti, að stór fólksflutningabifreið rakst á faiþegalest. A. m. k. 8 menn biðu bana og 6 meiddust hættu- lega. I fólksflutningabifreiðinni voru 18 knattleikarar frá mið- skólanum í Burbank. Bruni i þjóðþlnghússbyggingu Bandarikjanna. Frá Washington er símað: Eld- ur kom upþ í gærkveldi i Capí- tol, þjóðþinghússbyggingu Banda- ríkjanna. Herbergi, sem viðauka- skjalasafn var geymt i, brann innan, en þar, sem herbergi þetta er á fjórðu hæð í byggingunni, var alt í flóði á neðri hæðunum, þegar búið var að slökkva eldinn. Skaðinn af skjalaeyðileggingunni er áætlaður 7 þúsurid dollarar. (Eftirprentun bönnuð.) Ágætur skautais er nú á tjörninni og ætti fólk, sem því getur komið við, nú að nota tækifærið og fá sér hressandi skautasprett meöan góða veðrið helzt. Bruni á Þórshöfn. Frést hefir, að bruni hafi orðið á Þórshöfn við Þistilfjörð. Siminn þangað er bilaður, svo að nánari fiegnir hafa ekki náðst. ., m 11 m mt-uM „Dagsbrúnar“fundur verður í kvöld kL 8 í -templara- salnum Bjargi við Bröttugötu. Auk almennra félagsmála verður þar rætt um deiluna um kaup sjómanna á línuveiðurunum og um bæjarstjórnarkosningarnar. KL 91/2 heldur Halldór Kiljan Laxness ræðu Guðjón Benedikts- son segir fréttir af Siglufirði. — Félagar! Sækið fundirm vel og stundvLslega. Messur á morgun: í dómkirkjunni kL 11 séna Bjarrii Jónsson, kL 2 barnaguðsþjónusta, séra Friðrik- Hallgrímsson. Engin gíðdegis- messa. í fríkirkjunni kl. 5 séra Árni Sigurðsson. í Landakots- kirkju og Spítalakirkjunni í Hafn- arfirði kl. 9 f. m. hámessa, kl. 6 e. m. guðsþjónusta með pre- dikun. I Aðventkirkjunni kl. 8 e. m. séra O. J. Olsen. Umræðuefni: „Hinn gamli sáttmáli borinn sam- an við hinn nýja.“ — Samkomur: Sjómannastofunnar kl. 6 e. m. í Varðarhúsinu. Á Njálsgatu 1 kl. 8 e. m. Kosningaskrifstofa Alþýðuflokks- ins er í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu, sími 2394. Kjörskrá er þar til sýnis. Háskólinn. ' Heimspekideild háskólans hefir mæit með því, að Barði Guð- munásson verði settur eftirmaður Páls Eggerts Ólasonar. Páli var forseti heimspekideildarinnar. Hefir Ágúst H. Bjarnason verið kosin deiidarforseti í hans stað. 1 l L Unglingastúkan .Bylgja* heldur jólatrésfagnað á þriðju- dnginn kemur fyrir skuldlausa félaga. Sjá nánar tilkynningu hér að framan! Kærufrestur um kjörskrána hér i Reykjavík er útrunninn kl. 12 í nótt. Auðvaldsblððin og kaup línuskipa- sjómanna. ,Mgbl.' fjandskapast að venju við samtök sjómanna, og ,Vísír‘ e'tir pað, eins og hann er vanur þegar auðvaldsliðið er að ybba sig gegn því, að sjómenn og verka- menn fái þolanlegt kaup. Það var eitthvað annað hljóðið í ,Mogga‘ þegar hann var að hæla Guðmundi Hannessyni og iækn- unum fyrir samtökin og stéttartil- finninguna, heldur en nú, þegar hann úthúðar Sigurjóni Óláfssyni og sjómönnum fyrir samtök þeirra. Læknarnir hafa líka yfirleitt miklu hærri tekjur en sjómenn. Veðrið. Kl. 8 í morgun var 1 stigs hit til 5 stiga frost, 3 stiga frost í Reykjavík, Úilit hér um slóðir: Breytileg átt, víðast norðaustan- kaldi. Úrkomulaust að mestu. Togaramir. ,Andri‘ kom af veiðum í gær- kveldi með um 900 kassa ísfiskj- ar og „Geir“ í gær frá EnglandL (Jm da§inn og veglura, Næturlæknlr er í nótt Sveinn Gunnarsson Óðinsgötu 1, sími 2263, og aðra nótt Einar Ástráðsson, Pósthús- stræti 7, 2. hæð, sími 2014. UNGLINGASTÚKAN UNNUR. — Jólafagnaður félagsins verður i Góðtemplarahúsinu 10. janúar kl. 7 síðdegís. Aðgöngumiðar verða afhentir á fundinum á morgun. UNGLINGASTÚKAN BYLGJA — heldur jóíatrésfagnað fyrir með- limi sína þriðjudaginn 7. þ. m. kl. 6 e. h. í Góðtemplarahúsinu. Þeir meðlimir stúkunnar er standa i skuld við haaa, geta þvi að eins fengið aðgang að skemtun- inni, að þeir gieiði eða semji um áfallna skuld um leið og þeir vitja aðgöngumiða. Aðgöngu- miðar verða seldir á mánudag frá kl. 1—7 e. h. í Góðtemplara- hásinu og kosíá 1 krónu. Gæzlumaður. Rikísprentsmiðjan. Eigendaskifti urðu að prent- smiðjurmi „Gutenberg" um ára- mótin. Er hún nú ríkisprent- smdðja. Prentsmiðjustjóri er Steingrímur Guðmundsson. Næturvörður er næstu viku i iyfjabúð Reykja- víkur og lyfjabúðinni „Iðunni“. Sjómannafélag Reykjavikur heldur fund kl. 2 á morgun í íþróttahúsi „K. R“. vlð Vonarstræti. Rætt verður um deiluna um kjörin á linuveiðaskipunum. Skorað er á alla sjómenn, sem ætla að vinna á skipvmum i vetur, að sækja fundinn. Bjarni & Guðmundur hafa flutt klæðavinnustofu sína í P sthússtræti 13, næsta hús við Hótel Borg. Bæjarstjórnarkosningarnar í Neskaupstað við Norðfj'írð og i yestmannaeyjum fara fram í dag, en á Akureyri um miðbik mánaðarins. Atþýðublaðiö er 6 síður í dag. Hermann Jónasson lögreglustjóri hefir beðið Alþýðublaðið að geta þess, að út af ummælum „MgbL“ í dag og orðum, sem fallið hafi á síðasta bæjarstjórnr1 arfundi, muni hann skrifa greina- flokk í blaðið „Ingólf“ (sem er kosningablað „Framsóknar“-i flokksins), þar sem hann taki tii athugunar athæfi manna á gaml- árskvöldum undanfarið, hvernig löggæzlan hafi verið framkvæmd þá og afstöðu bæjarstjórnarinnar, flokka og ýmsra einstaklinga, til lögreglumála Reykjavíkur. Eœkur. Byltlngln i Rússlandt eftir Ste- fén Pétursson dr. phii. JlmiOur er ég uefndm*', effia Upton Sindaír. Ragnar E. Kvara* þýddi og skrifaði eförmáia. Kommúniaia-ávarpíd eftír Karl Marx og Friedricfa Engel*. Byltlng eg Ihald úr „Bréfi tíl Láru". JriúsflS við Norðará". ísIeneS laynllðgreglasaga., afar-speananði. Fást í áfgreiðsia Alþbl.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.