Morgunblaðið - 20.10.1963, Page 5
Sunnudagur 20 olct. 1963
MORCU N BLAÐIÐ
5
Skipaferðír
Skip koma og fara og rrukil mergð skipa er jafnam í öllum höfnum,
©g eins og Karl sálugi ísfeld sagði einu sinni:
Katla er komin af haii,
Kári selur í Húll,
Bæbjörg hjá Suðurnesjum,
Belfoss í Liverpool,
Sindri á Siglufirði,
Súðin austan við land,
Lyra liggur í Bergen,
Laxioss við Sprengisand.
Myndin, «?em hér birtist, er frá Hudson ánni I New York, þ-ar
sem allra pjóða skip niætast. Þekkja má eftirtalin skip á henni,
©g er þá talið að neðan og upp: America, United States, Bremen,
Carinthia og Queen Elizabeth sem er að sigla frá sínum hafnargarði.
MESSUR
í Neskirkju í dag kl. 2. Séra
Bjarni Jónsson, vígslubiskup.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson, prest-
nr á Siglufirði, umsækjandi um Grens
Asprestakall í Reykjavik, messar í
Réttarholtsskóla í dag kl. 11 fyrir
hádegi. Messunni verður útvarpað á
bylgjulengdinni 212 metrum.
Risasæskjaldbaka
í fyrradag sýndi Einar
Hansen frá Hólmavík sæ-
skjaldbökuna á Akranesi
og munu um 400-500
manns hafa skoðað hana,
þegar böm eru meðtalinn.
í gær kom Einar Hans-
en með „Böggu“ sína til
Reykjavíkur á mótorbátn-
um Haraldi, og var henni
strax komið í geymslu í
frystihúsi á Grandagarði.
í dag verður svo almenn
ingi gefinn kostur á að sjá
dýrið, en því verður kom-
ið fyrir í porti nýja Fiski-
félagshússins.
Sýningin verður á tím-
anum kl. 2-4 e.h. og er að
gangseyrir kr. 10.00 fyrir
fullorðna og kr. 5.00 fyrir
hörn.
Einar sagði fréttamanni
Mbl. að lokum, að verið
væri að ganga frá samning
um um sölu á Skjaldbök-
unni til Náttúrugripasafns
ins.
Japanskir morgnar mjúkri birtu stafa
á marardjúpin fyrir hvítum sandi.
Og ungir sveinar ýta bát frá landi
og eftir hafsins dýru perluni kafa.
En seinna, þegar húm
á strendur hnígur
og höfin bláu vagga tærum öldum,
á mánabjörtum, mildum
sumarkvpldum,
mansöngur lágt um kóralskóga stígur.
Því meðan æskan unir
hvítum runnum
og elskendurnir liljusveiga binda,
leiftrandi uggum, litlir fiskar synda
á lítil stefnumót í djúpum unnum.
Af ást og sælu litlu tálknin titra.
í tunglskinsbjarma þang og
skeljar glitra.
Tómas Guðmundsson.
Orð spekinnar
Orð prédikarans, sonar Davíðs,
konungs í Jerúsalem. Aumasti
hégómi, segir prédikarinn, aum-
asti hégómi. Allt er hégómi!
Hvaða ávinning hefur maðurinn
af öllu striti sínu, er hann
streitist við undir sólinni?
Ein kynslóðin fer og önnur
kemur, en jörðin stendur að
eilífu.
Prédikarinn, 1, 1—5.
+ Gencrið +
24. scptember 1963.
Kaup Sala
1 enskt pund _ _ 120.16 120,46
1 Bantíarikjadollar 42.95 43.06
1 Kanadadollar 39,80 39,91
100 Danskar krónur __ 621,73 623.63
100 Norskar kr. ..... 600,09 601,63
100 Sænskar kr. 826,75 828,90
100 Finnsk mörk _ 1.335,72 1.339,14
100 Franskir fr. — 876,40 878.64
100 Svissn. frankar _ 993,53 996,08
100 Vestur-þýzk mörk 1.078.74 1.081,50
Tekið á móti
tilkynningum
frá kl. 10-12 f.h.
Læknar fjarverandi
Eyþór Gunarsson, læknir, fjarver- ■
andi í óákveðinn tíma. Staðgengill j
Viktor Gestsson.
Guðmundur Björnsson verður fjar j
verandi 12. til 27. október. Staðgeng
ill: Pétur Traustason.
Hulda Sveinsson verður fjarverandi
5. okt. til 4. nóv. Staðgengill Jón G.
Hallgrímsson.
Ótfeigur J. Ófeigsson verður fjar-
andi til í. desember. Staðgengill Jón
G. Hallgrímsson, Laugavegi 36. Við-
talstími hans er 13:30 til 14:30
nema miðvikudaga 17—18. Viðtalstími
í síma frá 12:30 — 13 í síma 24948.
Valtýr Albertsson verður fjarver- |
andi í óákveðinn tíma. Staðgengill
Ragnar Arinbjarnar.
...með kvöldkaffinu
ÞEGAR ÞÉR gistið i Kaup-
mannahöfn, getið hér lesið
IMorgunblaðið samdægurs, .—
með kvöldkaff”. •:,Í7*fórborg -
inni.
FAXÁK FÍugféÍags Ísláml,- .
<ia blaðið. daglega cs það-
/ er komið samdægurs i blaða-
f söluturninn í aðatjárnbrautar-
f'. stöðinni við Ráðhústorgið —
liovedbanegardens Aviskiosk.
FÁTT er ánægjulégra en að’
/ lesa nýtt’ Morgunblað, þegar
i verið er á ferðalagi vtra eða
'dvalizf bar. i r ,®
VISUKORN
Man ég forðum marga stund
Mjöð á borðum glitra.
Af frygðarorðum fagurt sprund
fara úr skorðum — titra.
ATOMLJÓÐ.
Svona yrkist atomljóð,
íslenzk þjóð!
Eitt orð hérna,
annað þar
úti’um blaðið- alls staðar-,
öðruvísi það áður var.
Þá var öilu þjappað saman,
ekki var það eintómt gaman.
Að stuðla var oft strangur leikur,
maður gerðist magaveikur.
Ailt er lífið aðeins reykur.
unz niður hverfur
nárinn bleikur.
Aðalsteinn Th.
Gíslason (Blásteinn).
SVAR
SVAR VIÐ SPURNINGU DAGSINS:
Fangahús.
líbúð
Góð íhúð til leigu i Rvik.
Upplýsingar í síma 2265,
K-flugvelli.
| Ungan háskólastúdent
vantar vinnu seinni hluta
dags. Tilb. merkt: „Blankur
— 3905“ sendist Mbl.
| Vinna
Tvítugan pilt vantar vinnu
eftir hádegi (frá kl. 2) eða
á ‘kvöldin. Tilboð sendist
Morgunlblaðinu, merkt: —
„3904“ fyrir fimmtudag.
[ Peningaskápur
til sölu, eldtraustur, frekar
lítill. Uppl. Skipasundi 30,
kjallara og í síma 18528
SA INÍÆST BEZTI
Sigurbjörn í Vísi þekkja allir Reykvikingar. Eitt sinn kom til
hans á skrifstofuna maður, sem var vinur hans mikill, og við
skulum kalla hann Guðgeir.
Guðgeir: Heyrðu, Sigurbjórn. Gætir þú ekki lánað mér 25 kall?
Sigurbjörn: Nei, því er nú verr og miður. Ég á ekki nema 15
krónur í vasanum.
Guðgeir- Það er allt í lagi, Bjössi. Ég á þá bara 10 kall hjá
þér, þangað til næst!
íbúð til leigu
Rúmgóð þriggja herbergja
risíbúð til leigu í 10 mán-
uði. Fyrirframgreiðsla. Til-
boð sendist Mbl., merkt:
„Austurbær — 3906“.
Matsvein
vantar nú þegar í mötu-
neyti hér í borg Tilboð
merkt: „Matsveinn í mötu-
neyti — 3907“ sendist Mbl.
Herbergi óskast
á leigu. Tilboð sendist Mbl.,
merkt: „3807“ sem fyrst.
Bílskúr
Bílskúr til sölu (flytjanleg-
ur) Uppl. að Laufásvegi 8,
kjallara í dag og morgun.
Kvöldkjólar — Jerseykjólar
Vetrarkápur
Tökum fram á morgun Kvöldkjóla, Þýzka Berlinar-
model verð frá 1500.— til 2500.— aðeins einn af
gerð. — Höfum einnig fengið tvískipta Jerseykjóla
yfirstærðir og vetrarkápur með skinnum og skinna-
lausar. Helanca teygjubuxur grænar seldar með
afslætti áður 950_Nú 550.—
Dömubúðin LAUFIÐ
Austurstræti 1 (áður Hafnarstræti 8).
íbúðir óskast
Höfum kaupendur að 2ja og 3ja herb. hæðum. —
Útborgun frá kr. 250—400 þús.
Höfum kaupendur að 4ra—6 herb. hæðum. —
Útb. frá kr. 400—600 þús., ennfremur að eldri
íbúðum af öllum stærðum. — Góðar útb.
Til sölu
7 herb. raðhús við Sólheima, með innbyggðum bíl-
skúr. — Húsið er í góðu standi og getur verið
laust í desember n.k.
Einar Sigurðsson hdl
Ingólfsstræti 4. — Sími 16767.
Heimasími kl. 7—8. — 35993.
IMámskeið í enskri hraðritun
Fyrirhugað er að halda 9 mánaða námskeið í enskri
hraðritun, sem hefjast mun 1. desember næstk.
Kennt verður eftir hinu einfalda Gregg kerfi,
(simplified Gregg), sem nú orðið er nær eingöngu
notað í Ameríku.
Tilgangslaust er fyrir þá að sækja um þátttöku,
sem ekki hafa fullkomið vald á enskri tungu, enda
verður enskukennsla námskeiðsins einvörðungu
miðuð við slíka kunnáttu.
Áætlað er að kennslutímabilið verði frá 1. des.,
1963 til 31. maí, 1964 og síðan aftur frá 1. sept., 1964
til 30. nóv., 1964. Kennslustundir verða 5 á dag, frá
kl. 9—12 og 1—3, alla daga vikunnar nema laugar-
daga og sunnudaga.
Þátttökugjaldið er áætlað kr. 15.000,00—20.000,00
fyrir allt tímabilið, og verður nemendafjöldi mjög
takmarkaður til þess að tryggja hverjum nemanda
nægjanlegan tíma á degi hverjum með kennara
sínum.
Þeir, sem áhuga hefðu á þátttöku í námskeiði þessu
vinsamlega leggið inn fyrirspurn, sem tilgreini
símanúmer viðkomanda, í pósthólf 194 í Reykja-
vík fyrir næstkomandi sunnudag 27. október.
Munið eftir FERMING ARSKEYTUM sumarstarfs KFUM og KFUK.