Morgunblaðið - 20.10.1963, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.10.1963, Blaðsíða 20
sem hann var að koma út úr hótelinu og bjóst til eftirlits- göngu niður með skurðinum langa, sem nú var verið að moka ofan í í óðaönn. — Jaeja, Hermann. Þá er strengurinn kominn í jörðina. — Já. Þetta hefur nú gengið vel. Þú hefðir átt að sja til okkar í morgun, þegar við vor um að draga strenginn út. Halarófan var víst á annan kílómetra. Þetta er bráðdug- legt fólk. — Hann hefir reynzt nógu langur? — Ég var nú smeykur um tíma, að hann næði ekki. Ég var hérna uppfrá við kefiið og fannst minnka ískyggilega ört á því. Loksins hætti það að snúast, en þá var ekki eft- ir á því nema 20 m spotti. Það stóð glöggt. Ég slóst í för með Her- Framhald á bls. 19 Rétt í þann mund er blaðið var að fara í prentun í gær- kvöldi hafði það spurnir af því að ekið hafði verið á konu aust- ur í Flóa í Árnessýslu. Mun konan hafa slasast mikið og var flutt á sjúkrahúsið á Selfossi en síðan átti að flytja hana til Reykjavíkur. Ekki reyndist kleift að fá nánari upplýsing- ar um slysið þar sem lögreglan mun hafa verið upptekin við Tekinn fyrír bókohnupl 1 GÆR um hádegisbilið var drukkinn rnaður staðinn að því að stinga inn á sig tveim- ur bókum og tveimur útlendum tímaritsheftum í Bókaverzlun Lárusar Blöndal í Vesturveri. Málið upplýstist á staðnum og lögreglan var til kvödd og mað- urinn tekinn til athugunar. Mjnðmnr- grindnrbrotnnði Bæ, Höfðaströnd, 19. okt.: í gær skeði það að Gröf á Höfða- strönd, að bóndinn þar, Ólafur Jónsson, var að vinna við dráttar véL Var hann með kaðal og var að reyna hann, en kaðallinn slitnaði og féll þá bóndinn á steinstéttarhorn og slasaðist. — Var hann fluttur á sjúkrahús í gær illa haldinn af slæmu mjaðm argrindarbroti. — Björn. Akureyri, 19. október. EINS og kunnugt er af frétt hér í blaðinu gaf Flugmála- stjórnin SkíSahótelinu í Hlíð- arfjalli þriggja kílómetra lang an jarðsímastreng í fyrri viku. Hermann Sigtryggson, íþrótta fultrúi, hafði spurnir af streng þessum fyrra miðvikudag, fékk heimild eigenda til að sækja hann á fimmtudag og sótti hann upp á Vaðlaheiði á föstudag með aðstoð tveggja þekktra skíðamanna, Magnús- ar Guðmundssonar og Guð- mundar Tulinius og 20—30 pilta úr Gagnfræðaskólanum. Rafveita Akureyrar Iagði til sterkan vörubíl og kefli til að vefja strenginn á. Eftir helgina var fengin dráttarvél með plógi til að grafa skurð fyrir strenginn frá Lögmannshlíð og upp að hótelinu, eða langleiðina þang að. Á föstudagsmorgun var allt tilbúið undir niðurlagn- ingu strengsins. Fór þá fram annað „herút- boð“, bæði í Menntaskólanum og Gagnfræðaskólanum, og náði kvaðningin til 56 ungl- inga, 33ja pilta og stúlkna úr MA og 23ja pilta úr GA. Auk þeirra fóru 4 fullorðnir, eða alls 60 manns. Með birtingu á föstudag hélt hinn vaski hópur til fjalls og brátt stóðu 120 hendur fram úr ermum svo að um munaði. Ég kom upp í fjallið skömmu eftir hádegi til að virða fyrir fúsar hendur og sigurglöð fúsar hendur og siguyrglöð andiit. Ég hitti Hermann Sig- tryggsson fyrstan manna, þar Hermanm Sigtryggsson íþróttafulltrúi t. v. og hinn gamalkunni skiðafrömuður Hermann Stefánsson. Kona verður fyrir bíl og stórslasast rannsókn þess og læknirinn á Sel fossi að annast um sjúklinginn. Landlega Akranesi, 19. okt.: — Nú er hann á ANA 5—6 yindstig. Bensi er á sjó í dag og önnur trilla til Sigrún landaði 205 tunnum síldar í gær og Haraldur 1-00 tunnum. Landlega er hjá síldarbátunum í dag. leggja síma Skólanemar Harður árekstur Merkjasaía fyrir blinda 5 blind börn í . Blindravina- í GÆR kl. 16.00 varð harð- ur árekstur á mótum Miklu- brautar og Eskihlíðar. Bíll, sem hafði komið austan Miklubraut rakst þar á hlið bíls, sem hafði komið vestan brautina og beygt inn í Eskihlíð. Bílstjórarnir voru báðir einir í bílunum, skrám- uðust báðir en ekki alvarlega. Bílamir stórskemmdust, ann- ar snerist við og kastaðist langa leið. Bœndaskólinn á Hólum fullsetinn æ, H'öfðaströnd. Bændaskólinn á Hóiluim var ítitur þann 16. þ.m. af hinum ýskipaða skódastjóra, Hauki örundssyni. Al'ls sóttiu 32 um skólavist, en reir eru enn ókomnir. Skólinn r því fu.lilskipaður. Á Hólum er ð mestu nýtit kennaralið. Auk kólastjóra eru kennarar Hólrn- irn Jósepsson, Stefán Jónsson, teSán Þorlóiksson tæknifræðing- ur, Kári Árnason leikfimikenn- ' ari og lífcur til að Árni Péturs- son, sem var skólastjóri í fyrra verði enníreimur kennari. Undan- farin ár hefir verið eitt mötu- neyti fyrir bæði sólasveina og starfsfólk en nú verða mötu- neytin tvö, annað fyrir starfslið búsins en hitt fyrir nemendur. Á búinu verða á fóðrum 550 fjár, 60 nautgripir og 50—60 hross. Björn skólíinum HIN árlega merkjasala félagsins er í dag. Á fjársöfnun þessa dags byggir félagið að mestu starf- semi sína, sem er hjálp til blindra manna. í skóla félagsins eru nú 5 blind börn við nám. Þar er þeim kennt allt það sjáandi börnum er kennt á þeirra aldri. Mikil áherzla er lögð á handavinnu og kennslu í þeim iðngreinum, sem bezt eru fallnar sjónlitlu — eða sjónlausu fólki. Nokkrir nemend ur hafa legt stund á hljóðfæra- leik og orðið vel ágengt. Skóli þessi hefur starfað í 30 ár eða frá 1933, en á þessu ára bili hafa fallið úr nokkur ár, sem engin blind börn eða ung- lingar hafa verið á skóla aldri. Á þessu tímabili hafa um 20 nemendur verið í skólanum. — Flestir hafa nemendur verið 5 samtímis, fyrstu ár skólans og svo nú þennan vetur. Skólimn var fyrst til húsa í Elliheimilinu við Hringbraut,\en er nú í Bjark- argötu 8. Fyrsti kennari skólans var frú Ragnheiður Kjartans- dóttir frá Hruna, en nú síðari árin hefur Einar Halldórsson ver- ið aðalkennari hans. Vinnustofur félagsins hafa verið starfræktar frá stofnun þess, þar hefur blindu fólki ver- ið kenndur sá iðnaður, sem þeim hefur bezt hentað, þeir, sem ekki hafa, eftir nám sitt hjá fé- laginu, starfað sjálfstætt, hafa ílengzt í vinnustofunnL Þar er nú aðallega unnið að burstagerð og körfugerð, áður var nokkuð unnið að vefnaði. Heimilið að Bjarkargötu 8 er einn liður í starfsemi félagsins, þar búa nokkrir blindir menn við mjög hagstæð kjör, þar er og heimavist fyrir blind börn, sem í skólanum dvelja. Það sem félagið vinnur nú helzt að, að undanskildu því, sem þegar er sagt, er að afla sér fleiri segulbandstækja, sem lán- uð eru blindum mönnum með söguefni þeim til yndisauka, Félagið á nú aðeins nokkur tæki, en þarf að eignazt fleiri svo þessi starfsemi gæti náð til fleiri blindra manna. Félagið er að safna sér spólusafni af sögum eða nokkurskonar bókasafni í þessu skyni. Til þess að auka megi þessa . starfsemi þá þarf merkjasalan að ganga vel og er það á valdi hvers einstaklings hve vel má hjálpa blindum mönnum, að þessu sinni. Góðir íslendingar, leggið hér hönd að verki, og látið ekki hina ungu gesti yðar, synjandi frá yður fara. Frá Blindravinaf. íslands. Tvímennings- keppnin HAFNARFIRÐI — Nú stendur yfir tvknenningskeppni hjá bridgefélaginu og eru _ þessir efstir eftir 1. umiferð.: Árni og Sævar 158 stig, Böðvar og Stígur 153%, Reynir og Kristján 148%, Einar og Haukur 139, Hilmar og Sveinn 137, Sæmundur og Bragi 134 stig. Næsta umferð verður spiluð á miðvikudagskvöld kl. 8. Að tví- menningstkeppninni lokinni, en spilaðar verða 3 umiferðir, hefst sveitakeppni. — Næstkomandi laugardag verður vetrarfagnaður í AJjþýðuihiúsimu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.