Morgunblaðið - 30.01.1964, Síða 1

Morgunblaðið - 30.01.1964, Síða 1
24 sí3ur Blún bar þyngsta gervihnöfi, sem farið hefur umhverfis jörðu 4 Kennedyhöfði, 29. janúar — AP — NTB: — Kl. 15.25 í dag, eftir íslenzkum tíma, hóf þyngsta og aflmesta eldflaug heims sig á loft frá skotpalli á Kennedyhöfða, í Florida. Eldflaugin, Saturnus I, var 50 m. há, vó full- hlaðin 562 tonn, en gervihnöttur sá, Sem hún bar, vegur 19 tonn. Sjálft geimskotið tók tíu og hálfa mínútu. Þá var gervihnötturinn kominn á braut umhverfis jörðu. Sérfræðingar telja, að með þessu afreki hafi Bandaríkjamenn sennilega tekið forystuna af sov- ézkum vísindamönnum, í smíði stórra eldflauga, sem borið geta þunga gervihnetti. Saturnus-flaugin er fyrirrennari þeirra flauga, sem fyrirhugað er að nota, er það því kemur, að menn verða sendir til tunglsins. Stærsti gervihnöttur Sovétríkjanna, Sputnik VII, vó 14,3 tonn. Skv. upplýsingum banda- rísku geimferðastofnunarinn- ar, NASA, er tilgagurinn með geimskoti þessu fyrst og fremst þrenns konar: Kanna hæfni fyrsta þreps eldflaugarinnar, en það hefur aldrei verið reynt, er hreyflar þess starfa af fullri orku. > >V Kanna hæfni annars þrepsins, sem knúið er fljótandi eldsneyti (vatns- efni). Kanna einkenni og flug- eiginleika sjálfs geim- farsins. Vfirlýsing Kína engin hótun í sömu tilkynningu segir, að engin gervihnöttur hafi áður borið jafn mikið af rannsóknartækjum, og verða upplýsingar sendar til jarðar frá alls 1183 slíkum tækj- um. í hnettinum eru m.a. 8 kvikmyndavélár og sjón- varpsmyndavél. Vélunum verður síðan náð aftur, er þeim verður skotið frá hnett- inum, og falla til jarðar. \ Gervihnötturinn fer nú umhverfis jörðu með um 25.000 km hraða á klst. — Fjærst jörðu er hann í 751 km, næst í 260 km fjarlægð. Umferðartími hans er 94.8 mín., og myndar braut hans 31.4 gráðu horn við miðbaug. Kemur það vel heim við áætlaða braut, að sögn sér- f ræðinga. Ekki er gert ráð fyrir, að hnötturinn verði lengur á lofti en eina viku, sagði í síðastu fréttum í kvöld. (Sjá nánari frásögn af Saturnuseldflauginni, á bls. 10 í dag). Pessi mynd var tekin í gær á Kennedyhöfða, er Saturnus- eldflaugrin hóf sig á loft. Margir sérfræðingar telja, að með þessu geimskoti — flaugin vó 562 tonn, fullhlaðin, gervihnöttur- inn sjálfur 19 tonn — hafi Bandaríkin tekið við forystunni af Sovétrikjunum, í smíðt geimflauga. — Símamynd frá AP. París, 29. jan. — NTB Upplýsingamálaráðherra frönsku stjórnarinnar, Alain Peyrefitte, skýrði svo frá í dag, að yfirlýsing Peking- Villandi fyrirsögn í FYRIRSÖGN á forsíðu Mbl. í gær sagði: „Fiskverð til sjó manna hækki um 15%. Eins og þeir hafa þegar í stað séð, sem lásu fyrstu málsgrein f-réttarinnar, átti að standa í fyrirsögninni „hækki uim 6“. Biðst Mbl. velvirðingar á þeirri leiðu prentvillu, en von ar að hún hafi ekki valdið neinum misskilningi, þar sem hún leiðréttist sjálfkrafa í fyrstu málsgrein. stjórnarinnar, sem gefin var út í gær, sé aðeins staðfesting á stefnu kínverskra ráða- manna, stefnu, sem þeir hafi fylgt um langt skeið, og öllum hafi verið kunn. Það var að loknum ríkis- ráðsfundi, að Peyrefitte gaf þessa yfiílýsingu. Jafnframt sagði hann, að ekki stæði fyrir dyrum að fella niður sam- skipti við þjóðernissinna- stjórnina á Formósu. í>á sagði Peyrefitte, að De Gaulle, Frakklandsforseti, hefði nýlega sent franskan hershöfð- ingja, Zinovi Pachkof'f, til For- mósu. Hefði hershöfðinginn þar skýrt Chiang-kai-chek frá því, að fyrir dyrum stæðu stjórnmála- samskipti Frakklands og Alþýðu- lýðulýðveldisins Kína. Haft er eftir áreiðanlegum Framihald á bls. 2. Sovézk orustuþota grandaði bandarísku flugvélinni — Sovézka stjórnin ber fram mótmæli, og segir engum aðvörunarmerkjum hafa verið sinnt * Moskva, Wiesbaden, 29. jan. AP, NTB. TALSMENN. sovézku stjómarinnar skýrðu svo frá í dag, að sovézk orustu þota hefði í gær skotið nið ur bandaríska æfingaflug- vél, yfir A-Þýzkalandi. — Áhöfn æfingaflugvélarinn ar, þrír liðsforigjar, létu lífið. Frásögnin um örlög flug vélarinnar var birt í mót- mælaorðsendingu, sem sovézka utanríkisráðuneyt ið afhenti ambassador Bandaríkjanna í Moskvu, Foy D. Köhler, í dag. Flugvélin. hvarf í gær, en hún hafði þá lagt upp í æfingaferð frá flugvelli við Wiesbaden. Bandarísk heryfirvöld í V-Þýzkalandi skýra svo frá, að flugvél- in muni hafa villzt. Þegar í gær hafði verið leitað upplýsinga hjá sovézkum heryfirvöldum um afdrif flugvélarinnar, en svar ekki fengizt. í sovézku orðsending- urrni er sagt, að flugmenn æfingaflugvélarinnar hafi ekki sinnt aðvörunarmerkj úm. Vélin var af gerðinni T-39 Saberliner, knúin tveimur þrýstiloftshreyfl- um. Frásögn sovézku yfirvald- annaer á þessa leið: „.... Framh- á bls. 23. Bondnríkin mótmæln BANDARÍKIN mótmæltu í gærkvöldi aðförinni að bandarísku æfingaflugvél- inni, yfir A-Þýzkalandi. — Segir í mótmælunum, að flugvélin hafi verið í æf- ingaflugi, enda óvopnuð, og hafi hún greinilega villzt. Hafi flug hennar á engan hátt stefnt Sovét- ríkjunum í hættu. Mál þetta mun litið mjög alvarlegum augum vestan hafs. Hafa Bandaríkin tekið forystu í Saturnus - flaugin þyngsta og stærsta tlaug, sem enn hefur verið skotið á lofft

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.