Morgunblaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 1
24 sí3ur
Blún bar þyngsta gervihnöfi, sem
farið hefur umhverfis jörðu
4
Kennedyhöfði, 29. janúar — AP — NTB: —
Kl. 15.25 í dag, eftir íslenzkum tíma, hóf þyngsta
og aflmesta eldflaug heims sig á loft frá skotpalli
á Kennedyhöfða, í Florida.
Eldflaugin, Saturnus I, var 50 m. há, vó full-
hlaðin 562 tonn, en gervihnöttur sá, Sem hún bar,
vegur 19 tonn. Sjálft geimskotið tók tíu og hálfa
mínútu. Þá var gervihnötturinn kominn á braut
umhverfis jörðu.
Sérfræðingar telja, að með þessu afreki hafi
Bandaríkjamenn sennilega tekið forystuna af sov-
ézkum vísindamönnum, í smíði stórra eldflauga,
sem borið geta þunga gervihnetti.
Saturnus-flaugin er fyrirrennari þeirra flauga,
sem fyrirhugað er að nota, er það því kemur, að
menn verða sendir til tunglsins.
Stærsti gervihnöttur Sovétríkjanna, Sputnik
VII, vó 14,3 tonn.
Skv. upplýsingum banda-
rísku geimferðastofnunarinn-
ar, NASA, er tilgagurinn með
geimskoti þessu fyrst og
fremst þrenns konar:
Kanna hæfni fyrsta
þreps eldflaugarinnar,
en það hefur aldrei verið
reynt, er hreyflar þess starfa
af fullri orku. >
>V Kanna hæfni annars
þrepsins, sem knúið er
fljótandi eldsneyti (vatns-
efni).
Kanna einkenni og flug-
eiginleika sjálfs geim-
farsins.
Vfirlýsing Kína
engin hótun
í sömu tilkynningu segir,
að engin gervihnöttur hafi
áður borið jafn mikið af
rannsóknartækjum, og verða
upplýsingar sendar til jarðar
frá alls 1183 slíkum tækj-
um.
í hnettinum eru m.a. 8
kvikmyndavélár og sjón-
varpsmyndavél. Vélunum
verður síðan náð aftur, er
þeim verður skotið frá hnett-
inum, og falla til jarðar.
\
Gervihnötturinn fer nú
umhverfis jörðu með um
25.000 km hraða á klst. —
Fjærst jörðu er hann í 751
km, næst í 260 km fjarlægð.
Umferðartími hans er 94.8
mín., og myndar braut hans
31.4 gráðu horn við miðbaug.
Kemur það vel heim við
áætlaða braut, að sögn sér-
f ræðinga.
Ekki er gert ráð fyrir, að
hnötturinn verði lengur á
lofti en eina viku, sagði í
síðastu fréttum í kvöld.
(Sjá nánari frásögn af
Saturnuseldflauginni, á bls.
10 í dag).
Pessi mynd var tekin í gær á Kennedyhöfða, er Saturnus-
eldflaugrin hóf sig á loft. Margir sérfræðingar telja, að með
þessu geimskoti — flaugin vó 562 tonn, fullhlaðin, gervihnöttur-
inn sjálfur 19 tonn — hafi Bandaríkin tekið við forystunni af
Sovétrikjunum, í smíðt geimflauga. — Símamynd frá AP.
París, 29. jan. — NTB
Upplýsingamálaráðherra
frönsku stjórnarinnar, Alain
Peyrefitte, skýrði svo frá í
dag, að yfirlýsing Peking-
Villandi
fyrirsögn
í FYRIRSÖGN á forsíðu Mbl.
í gær sagði: „Fiskverð til sjó
manna hækki um 15%. Eins
og þeir hafa þegar í stað séð,
sem lásu fyrstu málsgrein
f-réttarinnar, átti að standa í
fyrirsögninni „hækki uim 6“.
Biðst Mbl. velvirðingar á
þeirri leiðu prentvillu, en von
ar að hún hafi ekki valdið
neinum misskilningi, þar sem
hún leiðréttist sjálfkrafa í
fyrstu málsgrein.
stjórnarinnar, sem gefin var
út í gær, sé aðeins staðfesting
á stefnu kínverskra ráða-
manna, stefnu, sem þeir hafi
fylgt um langt skeið, og öllum
hafi verið kunn.
Það var að loknum ríkis-
ráðsfundi, að Peyrefitte gaf
þessa yfiílýsingu. Jafnframt
sagði hann, að ekki stæði fyrir
dyrum að fella niður sam-
skipti við þjóðernissinna-
stjórnina á Formósu.
í>á sagði Peyrefitte, að De
Gaulle, Frakklandsforseti, hefði
nýlega sent franskan hershöfð-
ingja, Zinovi Pachkof'f, til For-
mósu. Hefði hershöfðinginn þar
skýrt Chiang-kai-chek frá því, að
fyrir dyrum stæðu stjórnmála-
samskipti Frakklands og Alþýðu-
lýðulýðveldisins Kína.
Haft er eftir áreiðanlegum
Framihald á bls. 2.
Sovézk orustuþota grandaði
bandarísku flugvélinni —
Sovézka stjórnin ber fram mótmæli, og
segir engum aðvörunarmerkjum hafa
verið sinnt *
Moskva, Wiesbaden,
29. jan. AP, NTB.
TALSMENN. sovézku
stjómarinnar skýrðu svo
frá í dag, að sovézk orustu
þota hefði í gær skotið nið
ur bandaríska æfingaflug-
vél, yfir A-Þýzkalandi. —
Áhöfn æfingaflugvélarinn
ar, þrír liðsforigjar, létu
lífið.
Frásögnin um örlög flug
vélarinnar var birt í mót-
mælaorðsendingu, sem
sovézka utanríkisráðuneyt
ið afhenti ambassador
Bandaríkjanna í Moskvu,
Foy D. Köhler, í dag.
Flugvélin. hvarf í gær, en
hún hafði þá lagt upp í
æfingaferð frá flugvelli
við Wiesbaden. Bandarísk
heryfirvöld í V-Þýzkalandi
skýra svo frá, að flugvél-
in muni hafa villzt. Þegar
í gær hafði verið leitað
upplýsinga hjá sovézkum
heryfirvöldum um afdrif
flugvélarinnar, en svar
ekki fengizt.
í sovézku orðsending-
urrni er sagt, að flugmenn
æfingaflugvélarinnar hafi
ekki sinnt aðvörunarmerkj
úm. Vélin var af gerðinni
T-39 Saberliner, knúin
tveimur þrýstiloftshreyfl-
um.
Frásögn sovézku yfirvald-
annaer á þessa leið: „....
Framh- á bls. 23.
Bondnríkin
mótmæln
BANDARÍKIN mótmæltu í
gærkvöldi aðförinni að
bandarísku æfingaflugvél-
inni, yfir A-Þýzkalandi. —
Segir í mótmælunum, að
flugvélin hafi verið í æf-
ingaflugi, enda óvopnuð,
og hafi hún greinilega
villzt. Hafi flug hennar á
engan hátt stefnt Sovét-
ríkjunum í hættu.
Mál þetta mun litið mjög
alvarlegum augum vestan
hafs.
Hafa Bandaríkin tekið
forystu í
Saturnus - flaugin þyngsta og stærsta
tlaug, sem enn hefur verið skotið á lofft