Morgunblaðið - 30.01.1964, Page 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
v
yimmtudagur 30. jan. 1064
ANNAST SKATTA-
FRAMTÖL
einstaKlinga, félaga, tótr
Og fl. — Samningagerðrr.
— Títni ettir samtcomulagi
Friðrik Sigurbjörnsson
lögfræðtngur, sími 16941
Fjölnisveg 2
Bílamálun - Gljábrennsla
Vönduð vinna. Merkúr h.f.
Hverfisgötu 103. — Sími
21240 og 11275.
Sængur
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. Eigum dún- og fið-
urheld ver. Dún- og gæsa-
dúnsængur og koddar fyrir
liggjandi.
Dún- og fiffurhreinsurin
Vatnsstíg 3. — Sími 18740.
Nýr 12 tonna bátur
til sölu. Nánari upplýsing-
ar í síma 33062.
Ungur maður
m e ð verzlunarskólapróf
ósltar eftir atvinnu sam
fyrst. Tilboð merkt: „Stund
vís — 9015“ sendist afgr.
MbL
2ja—3ja herbergja íbúð
óskast til leigu í 5—6 mán-
uði. Tilboð sendist afgr.
Mbl. fyrir 1. febrúar,
merkt: „9166“.
Til sölu
stórt nýtt segulbandstæki,
kíkir og barnakerra. —
Sími 36829.
Takið eftir
Sauimum skerma og svunt-
ur á barnavagna og kerrur.
Áklæði í mörgum litum,
öldiugötu 11, Hafnarfirði.
Sími 50481.
Atvinna óskast
Ungur maður óskar eftir
atvinnu strax, hefur verzl-
unarskólapróf og bílpróf.
Uppl. í síma 3-40-37 milli
kl. 4—6 í dag og á morgun.
Gamaldags ruggustóll
óskast til kaups. Uppl. í
sima 11825.
Til sölu
Norge kæliskápur, eldri
gerð, ný uppgerður og með
nýju frystikerfi. Uppl. í
sima 20031.
Sniðnámskeið
Dömur. Sníðið föt ykkar
sjálfar, eftir hinu auðvelda
Pfaff-kerfi. Næsta nám-
skeið 3. febr. Innritun dag-
lega. — ólina Jónsdóttir,
Bjarnarstíg 7, sími 13196.
Hafnarf jörður — Atvinna
Tvær stúlkur ósikast í bið-
skýli. Uppl. í síma 13992
og 51889 milli kl. 7—8.
íþróttakennarar
Fundur í íþróttakennara-
félagi íslands verður hald-
inn í Breiðfirðingaibúð,
uppi, föstud. 31. janúar kl.
8.30. Fjölmennið.
Stjórnin.
FAGNIÐ með fagnendum. og grátið
með grátendum. (Kóm. 12. 15).
í dag er Fimmtudagur 30. janúar.
30. dagur ársins 1904.
Árdegisliáflæði kl. 6:23.
Bilanatilkynningar Rafmagns-
veitu Reykjavíkur.' Sími 24361.
Vakt allan sólarhringinn.
Næturvörffur er í Iðunnar-
apóteki vikuna 25. 1. — 1. 2.
Simi 11911-
Kopavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9:15-8 laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga fra kl.
1-4 e.h. Simi 40101.
Nætur- og helgidagavarzla
lækna í Hafnarfirði það sem
eftir er mánaðarins
25. — 27. Jósef Ólafsson (sunnud)
27. — 28. Kristján Jóhannesson
28. — 29. Ólafur Einarsson
29. — 30. Eiríkur Björnsson
30. — 31. Páll Garðar Ólafsson
31. — 1. febr. Jósef Ólafsson
SlysaVarðstofan í Ileilsuvemd-
arstöðinni. — Opin allan sólar-
hringinn — sími 2-12-30.
Neyffarlæknir — simi: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema iaugardaga.
Holtsapótck, Garðsapótek og
Apotek Keflavikur eru opin aiia
virka daga kl. 9-7, nema laugar-
daga fra kl. 9-4 oe helgidaga
frá kl. 1-4. e.h.
I.O.O.F. 5 = 1451308(4 = N.K.
n MÍ.MIR 59641307 >í~ = 7.
Orð lífsins svara 1 sima 10000.
Nixon
Myndin hér að ofan sýnir Nixon, fyrrum varaforseta Bandaríkj-
anna taka við bókinni, sem um er rætt í þessari grein, úr hendi
varaforseta A. O. T.
HINGAÐ til Reykjavíkur kom sl.
sunnudag hr. G. Meyerheim, for-
stjóri Danmerkurdeildar AOT
Tourist Service. Félag þetta heit-
ir fullu nafni American Over-
seas Tourist Service of New
York, Inc., er umsvifamikið í
ferðarpálum og gefur m. a. út
myndarlega leiðsögubók á ári
hverju í 100.000 eintaka upplagi,
sem er svo dreift um heim allan
af ferðaskrifstofum, flugfélögum
og öðrum aðiljum. í bókinni er
að finna- margskonar fróðleik
sem að gagni kann að koma fyrir
ferðalanginn, svo sem almennar
upplýsingar um ferðalög, hótel,
veitingahús, verzlanir o. m. m. fl.
A síðastliðnu ári var Island
kynnt í bók þessari í fyrsta
sinn. Er þar að finna margskonar
upplýsingar um landið og auk
þess auglýsingar frá fjölmörgum
fyrirtækjum. Kaflinn um ísland
er á alls 16 blaðsíðum og er þar
margt mynda.
Hr. Meyerheim hyggst ferðast
um landið eftir því sem ástæður
leyfa og kynna sér ferðamálin
í öðrum landshlutum og hitta
kunningja er hann kynntist á
ferðum sínum um landið í fyrra.
Hann kveður bókina munu verða
tilbúna til dreifingar í maímián-
uði nk., og segir hann vonir
standa til að hlutur íslands í
þeirri bók verði eigi minni en á
síðasta árL
Fréttatilkynining.
sá NÆST bezti
Kona hringdi í gær og viidi hafa þennan næst bezta í dag.
Þegar Jónas Jónsson var ráðherra hér á árunum átti hann sér
bæði vini og óvini eins og gengur.
Það var einhverju sinni að fundum þeirra Jónasar og séra Bjarna
Jónssonar bar saman- Þeir voru ekki sammála í pólitík, eins
og allir vita-
Þetta var í samkvæir.l einu hér í bæ.
Jónas vek sér að prestmum og sagði:
„Er það satt, sem ég hef heyrt, séra Bjami, að við messugerðir
sértu hættur að biðja fyrir ríkisstjórninni?
Nei, það eru hrein ósannindi, svaraði séra Bjarni, mér hefur
sannarlega aldrei íundis'. meiri þörf á því en einmitt núna!
GÓÐA TUIMGL
UM þessar niundir eru mörg
tungl á lofti yfir Reykjavík,
en sjö sóiir aðeins í heimi
skálda.
Gerfihnötturinn Echo II er
á ferð hér yfir og geta máski
einhverjir^ séð hann.
Myndin, sem hér fylgir sýn-
i^ okkar gamalkunna tungl,
sem hefur fylgt jörðinni frá ó-
munatíð, tunglið, sem veldur
flóði og fjöru, og gömlu menn
irnii* töldu, að gæti ráðið
veðri og vindum, og hver
veit, nema það sé satt?
Þetta er iíka sama tungl-
ið, sem orðið hefur skáldun-
um #að yrkisefni, Það sama,
sem hefur veitt angurværð-
inni og róniantíkinni" inn í
líf elskenda um áraraðir.
Þessi mynd er tekin, í
stjörnukíki, þegar hann Máni
okkar er háífur og það hefur
hann fram yfir öll gerfitungí,
sejrn ailtaf eru full.
Eimskipalélag Reykjavikur h.f.:
Katla er í Keflavik. Askja er í Rvík.
Kaupskip h.f. Hvitanes fór f morgun
frá Reyöarfirði áleiðis tíl Keflavík-
ur.
Hafskip h.f.: Laxá er I Hamborg.
Rangá «r í Keflavík Selá er í Kvik.
H.f. Jöklar: Drangajökull kemur
til Rvíkur 31. þm Langjökull fór
26. þm. frá Vestmanr.aeyjum til Norr
köping, Gdynia, Hamborgar og Lond-
on. Vatnajökull kemur til Calais i
kvöld, fer þaðan til Rotterdam.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
Austfjörðum á norðurleið. Esja fer
frá Rvik í dag vestur um land í
hringferð. Hejólfur fer frá Vestmanna
eyjum í dag til Hornafjarðar. Þyrill
fór frá Fredrikstad í gær áleiðis til
Rvíkur. Skjaldbreið er á Norðurlands
höfnum. Herðubreið er á leið frá
Austfjörðum til Rvikur.
Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er
væntanlegt til Helsingfors 31. þ.m. ler
þaðan lil Hvngö og Aabo, Arnarfell
fór i gær frá Reykjavík til Reyðar-
fjarðar, Hull Rotterdam, Hamborgar
og Kaupmannahafnar Jökulfell fór
24. þm. frá Camden til íslands. Dís-
arfeU er í Kalmar fer þaðan til
Gdynia. Litlafell íór i gær frá Rvík
til Vestfjarða. Helgafell er væntan-
legt til Rvíkur 31. þm. Hamrafell er
væntanlegt til Hafnarfjarðar 2. febr.
Stapafell er væntanlegt til Bergen 31.
Fimmtudagsskrítlan
Bjórinn verkar misjaínt á
mannskapinn. Þegar Svíi fær
einum of mikið, syngur hann-
Þjóðverjinn séúir yfir í gæsa-
gang, Frakkinn grætur af ástar-
sörg, Fijininn lendir í slagsmál-
um, Daninn drekkur einn bjór I
viðbót. En íslenaingurinn? Ja,
það er enginn sterkur bjór til á
Islandi — er það ekki vel slopp-
ið?
GAMALT og goti
Komi þeir, sem koma vilja,
veri þeir sein vera vilja,
fari þeir, sem fara vilja, -
mér og mínum
að meinalausu.
Orð spekinnar
Sá, sem særir samvizku sína,
veitir sjálfum sér versta sárið.
Zwingli.
FRÉTTASÍMAR MBL.:
— eft<r iokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
þm,
Flugfélag íslands h.f.: Innanlands-
ílung. i dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir). Kópaskers, Þórs
hafnar og Egilsstaða. Á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar (2
ferðir). Vestmannaeyja, Xsafjarðar-
Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar og
Sauðárkróks.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Margrét Guðmunds
dóttir, Kambsveg 22 og Már Ósk
arsson, Réttarholtsveg 51.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband ungfrú *Auður Ás-
grímsdóttir, Þórshöfn og Angan
týr Einarsson, skólastjóri, Skúla-
garði./Heimili þeirra er að Skúla
garði^
Nýíega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Svala Guðmunds-
dóttir, Bólstaðarhlíð 16 og Már
Hólm Einarsison, Eskifirði.
Genaið ♦
Gengið 20. janúar 1964. k
• Kaup Sala
1 enskt pund ........ 120.16 120,4«
l BantíarikiadoUar 42.95 43.0«
1 Kanadadollar ....... 39.80 39.91
100 Danskar kr. ...‘. 622.46 624,0«
100 Norskar kr...... 600.09 601.63
100 Sænskar kr. .......... 827,95 830,1«
100 Flnnsk mörk 1.335,72 1.339.14
100 Fr. franki _______ 874,08 876,33
100 Svlssn. frankar .. 993.53 996.08
100 V-þýzk mörk 1,080,88 1.083.63
100 Austurr. sch.....- 166.18 166,60
100 Gyllinl -..... L.191.8U 1.194,87
100 Belg. frankl 86,17 86,39
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í blað-
inu í gær, að í minningargrein
um frú Ólöfu Guðmundsdóttur
eftir séra Jakob Jónsson féll nið-
ur nafn eins af börnum hennar,
Friðnýjar Sigfúsdóttur, sem er
skrifari á skrifstofu Landsímans
í Reykjavík. Hlutaðeigendur
eru beðnir velvirðingar á þessu.