Morgunblaðið - 05.02.1964, Page 13

Morgunblaðið - 05.02.1964, Page 13
Miðvikudagur 5. febr. 1964 MORGUNBLADID 13 Refstaður í átta hundruð manna héraði Rabbat við Pál á Refstað um áhugamál Vopufirðinga — Þú ert náttúrlega kominn liingað til höfuðborgarinnar til að ná í lækni — eða prest? — Nei, hvorugt, svarar Páll Metúsalemsson, bóndi á Refstað í Vopnafirði, þegar ég átti tal við hann fyrir helgina. „Ég kom aðallega til að leita fyrir mér imeð kaupfélagsst.íóra. Guðjón Ólafsson, sem verið hefur fyrir Ikaupfélaginu hjá okkur undan- farin 4 ár, lætur af störfum nú í vetur. Hann flytur til Akra- ness. Okkur vantar líka lækni og prest. Læknirinn á Þórshöfn — Friðrik á Þórshöfn, — er settur til að þjóna héraðinu í vetur. Hann kemur vikulega til Vopna- fjarðar og lætur i té þjónustu sína. Það er 2—3 tíma ferð á bil Ihingað norðan af Þórshöfn, ef færð er sæmileg. Sóknarpresturinn á Skeggja- etöðum, sr. Sigmar Torfason er eettur til að þjóna Hofspresta- (kalli. Hann á muh skemmri veg Ihingað að sækja heldur en lækn irinn. Það er ekki nema klukku- stundar ferð heiman frá honurn suður yfir Sandvíkurbeiði til V opnafj arðarkauptúns. — Hvað er margt fólk í Vopna- fjarðarhreppi núna? — Það eru víst alveg um' 800 fnanns, þar af rúmur helmingur í kauptúninu. Fólkinu er alltaf að fjölga. Árið 1951 voru 300 íbúar. — Fjölgar þeim „á kostnað“ Bveitarinnar? — Já, að nokkru. Suanir koma að vísu lengra að. Aðrir flytj- ast þangað úr sveitinni. — Leggjast þá jarðir í eyði? — í Selárdal eru 3 jarðir auð- Br, Lýtingsstaðir, Leifsstaðir og Áslaugarstaðir. Bnn fremur Þor- brandsstaðir í Hofsárdal. — Eru þesasr jarðir einkaeign? ' — Já, allar. En ég hef heyrt að a.m.k. sumar þeirra verði seld ar Reykvíkingum. Þeir ætla að rækta lax í ánum. — Vildi hreppurinn ekki kaupa þær? — Nei, hann hafnaði því. Hann stendur nú í mörgum fjárfrek- um framkvæmdum. Svo á hann jarðir ofar í sveitinni. Þær eru notaðar sem afréttur. — Að hvaða verkefnum er hreppsfélagið að vinna núna? — Þau eru mörg. Það er nú verið að ljúka við byggingu lækn isbústaðar. Ég fullyrði, að það þarf enginn að forðast Vopna- fjarðarlæknishérað í framtíðinni vegna þess að húsakosturinn sé elæmur. Svo er skólabygging í undirbúningi í þorpinu. Það er búið að teikna hann og talsvert fé er til í sjóði. Árið 1962 lagði 6Íldarverksmiðjan, sem er eign Ihreppsins, fram hálfa milljón kr. til skólahússins. Svo kemur fram lag ríkisins. A fjárlögurium í ár munu vera áætlaoar hátt í 700 þús. kr. til Vopnafjarðarskóla. — Þessi skóli er bara fyrir þorpið? — Já. Sveitin hefur sinn heima Vistarskóla á Torfastöðuim. — Fleiri framkvæmlir? — Já, vatnsveitan fyrir þorp- ið. Það er mjög fjárfrekt verk, enda má ekki horfa í kostnað- inn, þegar um það er að ræða, að ná í gott neyzluvatn. Þá má nefna mjólkurstöð kaup félagsins, sem tók til starfa í haust. Hún er til húsa á efri hæð í kaupfélagsbyggingunni. Langflestir bændur sveitarinnar selja mjóik til stöðvarinnar. Hún fær 800—1000 lítra á dag. En það er ekki flutt nema annan hvern dag. Það eru hagkvæmari vinnu brögð meðan mjólkin er ekki meiri en þetta. Páll Metúsalemsson. — Selst þessi mjólk í þorpinu? — Á sumrin er hún oft lítil. Þá hefur þurft að flytja mjólik frá Akureyri í stórum stíl. Nú er unnið úr henni að nokkru, hvernig sem gengur nú að selja smjörið þegar þar að kemur. — Samgöngurnar eru náttúr- lega mál málanna hjá ykkur í Vopnafirði eins og annars stað- ar úti á landsbyggðinni? — Já, samgöngurnar og raf- magnið. Kannsfce það sé bezt að minnast á raímagnið fyrst. 1 þorpinu er stór dieselrafstöð, enda er þar mikil orkuþörf í sam bandi við síldariðnaðirin á sumr- in. Þaðan mun eiga að leiða raf- orku um sveitina. Eftir henni bíða menn og „finnst hver stund in leið og löng“ þangað til ljós- in koma. Þess vegna halda menn að sér höndum með að koma upp einkastöðvum, end;_ þótt það sé kleift með þeim lánuim sem raf- orkusjóður veitir. (Hér má, inn an sviga geta þess, að nú munu lánaðar 28 þús. kr. út á 4 kw. díselstöð, sem kostar 40—45 þús. kr. Talað hefur verið um að hæfcka þetta lán upp í 100%, — þannig að menn fái lánað allt vélarverðið og þurfi ekki að legglja út annað en fyrir tækjum, leiðslum o.s.frv. Sé um vatnsafl- stöð að ræða, eru lánaðir 2/3 kostnaðar allt upp í 130 þús. kr. til 20 ára. Þessu er skotið hér inn í til þess að sýna hvaða stuðning það opinbera veitir ein stakling'um, sem brjótast í því að afla sér rafmagnsins á eigin spýt ur, unz orka frá ríkisrafveitun- um nær til þeirra). — Eru ekki vatnsaflstöðvar í Vopnafirði? — Bara þrjár — allar litlar, sín fyrir hvern bæ. Einhverjar mælingar munu hafa verið gerð- ar við stærri fallvötn, en mér er ókunnugt um hvaða árangur þær hafa borið. Og ekki munu hafa verið gerðar neinar áætla-nir um stærri virkjanir. En hvernig sem þetta verður í framtíðinni, þá er það víst, að rafmagnsmálið er aðkallandi úrlausnarefni fyr- ir sveitirnar í Vopnafirði. Þess er að vænta að þar verði stefn- an mörkuð sem fyrst, svo að fólk ið viti á hverju það á von og einstaklingar haldi ekki að sér höndum með nauðsýnlegar fram- kvæmdir. — Og svo eru það samgöng- urnar?. — Já, vitanlega eru þær mifcils verðar bæði innanhéraðs og út úr héraði, á láði og legi og lofti. — Um héraðið er vegakerfið alltaf að batna. Hver hlutur verður eftir hinum nýju vega- lögum er enn óráðin gáta. Það sem er mest aðkallandi nú er brú á Hofsá hjá Þorbrandsstöð- um, sem gerir mögulega hring- keyrslu um austursveitina. Vonir standa til að sú brú komi á þessu ári. Flugið er mikilvægur þáttur í samgöngum okkar Vopnfirðinga. Við höfum flugvöll, sem er ágæt lega staðsettur sunnan við fjarð- arbotninn. En hann er frefcar lág ur og 'þyrfti að hækka hann upp til þess að hann leggðist ekki undir snjó og klaka, kennske þegar verst gegnir. Björn Páls- son heldur uppi áætlunarferðum hingað — eina ferð í viku allan ársins hring. Svo er sjúkraflug- ið hingað stundað jöfnum hönd- um frá Reykjavík af Birni, og frá Akureyri af Tryggva Helga syni. Um síldveiðitímann eru flugferðir hingað mjög tíðar. Um samgöngurnar á landi, að og frá héraði, er það að ségja, að áætlunarferðir eru hingað frá Akureyri annan hvern dag allt sumarið. Vörubílar koma hingað oft í viku alltaf 1 gar fært er, það er bæði fljótara og þægilegra að fá vöruna land /eginn heldur en sjóleiðina. Vanti mann ein- hvern hlut getur hann verið kom inn frá Reykjavík eða Akureyri með bílnum strax daginn eftir. — Eru menn þá hættir að nota skipin? — Nei, sei, sei, nei. Það væri nú of mikið sagt. En þegar sam- göngunum í lofti og á landi hef- ur fleygt jafn mikið fram og við vitum, þá er engin furða að fólk ið taki þær ferðir fram vfir sjó- inn. Eg hygg, að strandferðaskip- in hafi oft ákaflega fáa farþega — nema þá skemmtiferðafólk í hringferð á sumrin — og vöru- flutningarnir hljóta að minnka mikið líka þegar þessir stóru og burðarmiklu bílar eru ekfci neima 20 klukkustundir að aka alla leið sunnan úr Reykjavík og austur á Vopnafjörð. — Hvað viltu svo segja að lokum? . — Ekki annað en leggja á- herzlu á þetta tvennt: Það þarf skjótar og ákveðnar aðgerðir í rafmagnsmálunum og það þarf að veita yngri bændum aufcna aðstoð til að þeir geti stækkað búin sem allra fyrst. G.Br. Styrkir til sumar- námskeiðs ÞÝZK stjórnarvöld bjóða fram tvo styrki handa íslenzkum stú- dentum eða kandidötum til að sækja þriggja til fjögurra vikna sumarnámskeið við háskóla í Sambandslýðveldinu Þýzkalandi á sumri komanda. Hver styrkur nemur 500 þýzkum mörkum, en auk þess fá styrkþegar 580 mörk til greiðslu ferðakosnaðar. Um- sæfcjendur skuli eigi vera yngri en 20 ára og að öðru jöfriu eigi eldri en 30 ára. Námskeið þau, sem hér um ræðir, eru haldin við ýmsa þýzka háskóla og eingöngu ætluð út- lendingum. Fjalla þau um mis- munandi efni varðandi þýzfca tungu, menningu, listir, efnahags mál o.fl. Þess skal getið, að ung- um hljómlistarmönnum, sem styrk hljóta, gefst kostur á að sækja hljómlistarhátíðir í stað námskeiða. Skrá um námSkeiðin, sem um er að velja, og nánari upplýsing- ar um þau, fást í menntamá'la- ráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg. Þar fást og sér- stök umsóknareyðublöð, og skal umsóknum, ásamt tilsfcildum fylgigögnum, komið til ráðuneyt isins eigi síðar en 25. febrúar n.k. (Frá Menntamálaráðuneytinu). Nguyen Khanh, hershöfðingi, sem tekið hefur völdin í S.-Vietnam í HÓPI ÞEIRRA hershöfð- ingja í S-Vietnarr., sem þekkt- ir eru fyrir leikni í póker, er Nguyen Khanh. Fyrir nokkru er spilamennskan stóð hvað hæst, er hann sagður hafa unnið um 50.000 (ísl) krónur af öðrum hershöfðinga, sem nokkuð hefur komið við sögu í vetur, Ton That Dinh. í fyrri viku fékk Khanh aftur góð spil á höndina, og þá tók hann völdin í S-Viet- nam. Hann vék félaga sinum, Dinn, frá völdum, lét fang- elsa hann, ásamt þremur öðr- um, fyrrverandi ráðan-önnum. Þeir, sem til þekkja, segja, að Khanh sé ekki síður leik- inn stjórnmálamaður en fjár- hættuspilari. Þótt undirferli og baktjaldamakfc séu langt frá þvi að vera óþekkt fyrir- bæri, þá kom valdataka Khanh mjög á óvart. Þeir voru reyndar ekfci margir í höfuðborginrii, sem gerðu sér grein fyrir því, að Khamh var kominn til Saigon, frá Hue, en þar hafði hann haft á höndum stjórn fót- gönguliðsins. Rhamh er fæddur í bænum Tra Vinh, í S-Vietnam, 8. nóvember 1927. Hann er því áratug yngri, en þeir menn, sem hann vék frá völdum. Khanh lauk námi í herskól- anum í Dalant árið 1950. Síð an nam hann frekari herstjórn arlist í Hanoi, sem áður var aðalvirkisbær Frakka í Indó- kína, en er nú höfuðborg N- Vietnam. Khanih hélt síðan, eins og mjög margir félagar hans, til framlhaldsnáms, bæði í Frakk landi og Bandaríkjunum. Hann gekfc í skóla fyrir fót- göguliða í Frafcklandi, en nam herstjórn í Bandarífcjunum. Khanh gekfc í nýlenduher Frafcka 1954, og hafði þá liðs- foringjatign. Það var árið, sem Frakkar héldu burt frá Indókína. Er S-Vietnam varð sjálfstætt ríki, gekk Khanh í þjónustu Ngo Dinh Diem, forseta, sem velt var úr sessi í byltingunni í nóvember sl. Er forsetinn sendi Khan til að bæla niður trúarbragðaofsókn ir, þá gekfc hann að því starfi, ásamt Duong Van Minh, hers- höfðingja, sem réð lögum og lofum í S-Vietnam undan- farna þrjá mánuði. 1955 varð Khan yfirmáður herráðs Minih, og 1960 varð hann hershöfðingi. Khan er giftur, og tveggja barna faðir. Khanh tók þátt í nóvember byltingunni, gegn Diem, för- seta. Þremur árum áður hafði Khanh þó barizt með forsetan um. er fallihlífaliðar reyndu að tafca völdin í landinu. Þá lagði Khanh líf sitt i hættu, er hann ók inn í garð forseta- hallarinnar, sem þá var undir Skothríð. Sá, sem Khan'h átti þá fvrst og fremst í höggi við, var for- ingi fallhlífarliðanna. Nguyen Chanh Thi. Þeir tveir sneru nú bökurn saman, er Minh var vikið frá. Enn hefur engin staðfesting Nguyen Khanh. fengizt á því, bvernig Khanh rnuni takast í baráttunni við kommúnista. Margir, sem hafa umgengizt hann, segja, að erfitt sé að ráða nokkuð af fasi hans, og komi hann stundum þanniig fyrir sjónir, að telja mætti hann tækifæris sinna. Er erlendir sendifulltrúar í Saigon telja þó,- að Khanh kunni að reynasf vel, og bent hefur verið á, í því sambandi, að þær herdeildir, sem hann stjórnar, eru í hópi þeirra bezt öguðu, í öllu landinu. Þá er það rífcjandi skoðun, að megi nofckuð af því .marka, hvernig Khanh undirbjó bylt- inguna, þá ætti honum að geta tekizt að skipuleggja vel sófcn ina gegn kommúnistum. Hins vegar segja margir, sem bölsýnari eru, að Khanh eigi eftir að vinna fylgi .meiri hluta hers landsins, og því sé sú hætta fyrir hendi, að hon- um verði velt úr sessi. Nú er a.m.k. meira undir því komið, hvernig hann heldur á spilun um, en nokkru sinni fyrr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.