Morgunblaðið - 05.02.1964, Side 17

Morgunblaðið - 05.02.1964, Side 17
Miðvikudagur 5. febr. 1964 MORGUNBLADIÐ 17 Þórður Jónsson, látrum: .Reykingabann í félagsheimiium' Einar Sveinbjörnsson og Olav Kielland Kielland stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Einar Sveinbjörnsson einleikari Á ÖFTUSTU síðu Morgunblaðs- ins 21. jan. síðastliðinn var grein sem vakti athygli mína, vil ég því ræða hana nokkuð, og mín sjónar mið varðandi hana. Fyrirsögn greinarinnar var: „Tillaga landlæknis: Reykinga- bann í félagsheimilum og samsv. stofnunum". Aðalefni greinarinnar var sím- tal sem Morgunblaðið átti við Sigurð Sigurðsson landlækni, út af hættu þeirri er tóbaksreyking- ar skapa þeim er þær iðka. Og einnig um tillögur þær, þar að lútandi sem landlæknir sendi rík- isstjórninni fyrir meir en ári, svo sem kunnugt er. í samtali þessu virðist land- læknir hafa lagt aðaláherzlu á að mælast til þess við ríkisstjórnina, að koma á reykingabanni í fé- lagsheimilum, og samsvarandi stofnunum, eins og hin stórletr- aða fyrirsögn greinarinnar ber með sér. Hér finnst mér veigamesta at- riðið, í 6 liða tillögum landlæknis til rikisstjórnarinnar, vera gert að því veigamesta, og þessvegna ræði ég það aðallega. Ég hef uríl nokkur ár haft lítils- háttar með félagsheimili að gera, og er því ekki með öllu ókunnur rekstri þeirra. Mér verður því á að hugsa til þess, með hvaða hætti ætti að framkvæma rætt bann, ef ríkisstjórnin færi að „tillögu landlæknis“, sem ekki er óeðlilegt að hún geri. Þegar lög um félagsheimili voru sett og reglur samkv. þeim, þá er þar meðal annars það ákvæði, að ekki má veita, eða neyta áfengis innan veggja félagsheimilanna. Öllum landsmönnum er kunn- ugt, hvernig í heild hefur tekizt að framfylgja því banni. Margir hafa haft tilhneigingu til þess í ræðu og riti, að kasta steinum að eigendum og stjórnendum félags- heimilanna, á þann veg, að þeir geri ekkert til að halda áfenginu frá félagsheimilinu, eða til að halda þar uppi reglu og velsæmi, aðeins sé hugsað um að ná í sem mestan gróða. Þetta er þó svo rangt og ómaklegt sem frekast má vera. Ég svara því hilclaust fyrir hönd allra sem með félagsheim- ili hafa að gera, að þeir mundu mikið vilja til vinna, að losna við áfengið og það sem því fylgir frá félagsheimilunum, en þeir ráða ekki við það, við þær aðstæður sem ríkja í okkar þjóðfélagi í þessum málum, og alþjóð er einnig kunnugt um. Við úti um land, erum I vand- ræðum að fá nokkurn mann til löggæzlu á okkar samkomum, sem ekki er óeðlilegt, því ef ein- hver maður er með ölæði og uppi stand, þá er ekkert hægt af hon- um að gera, svo um hann fari, svo vel sem lög gera ráð fyrir. Við höfum enga lögreglubíla til taks, og við höfum ekkert fanga- hús nær okkur hérna sunnan til á Vestfjörðum, en á ísafirði, svo er sennilega víðar. Löggæzlu- mennirnir verða því að vera með óróasegginn eða seggina í hönd- unum, helzt þar til af honum rennur víman, slíkt vill enginn gera. Þegar svona er ástatt, þá ættu flestir að geta getið sér þess til, hvaða áhrif það mundi hafa, ef einn eða tveir löggæzlumenn ættu að fara að vísa frá inngangi, fjölda fullorðinna manna eða unglinga, sem væru undir áhrif- um áfengis. Það verður því oftast svo, að sá kostur er valinn að reyna að láta samkomuna fara fram, með menningarbrag, þrátt fyrir áfengið, sem venjulega tekst vonum fremur, en reglurn- ar um notkun félagsheimila eru samt sem áður brotnar. Félagsheimilasjóður greiðir allt að 40% byggingarkostnaðar fé- lagsheimilanna, ef fé er fyrir hendi. Hin 60% eru venjulega svo þungur- baggi á húsunum, að skemmtanahald er þeim ill nauð- syn, ef ekki annað. Hverju sveitarfélagi er nauð- synlegt að hafa einhver húsa- kynni fyrir íbúa sveitarinnar til mannfunda, og mannfagnaðar þegar með þarf, og einmitt það, er eitt aðalhlutverk félagsheimila fámennra sveita, og svo það, að veita félagsmálastarfsemi hverr- ar sveitar húsaskjól. Hlutverk fé- lagsheimilanna er því margþætt, og þau nauðsynleg menningar- þjóðfélagi, við okkar aðstöðu. Það má benda á, þó engin af- sökun sé félagsheimilunum, að áfengi er víðar um hönd haft á samkomum en í þeim, og staðir eins og Þjórsárdalur og aðrir slík- ir eru þeim óviðkomandi, en á þessum stöðum mun einnig vera reykt. En þannig hefur farið með bannið það. Eiga nú félagsheimil- in að fá annað bann, við sömu að- stæður. Ef svo verður, sé ég ekki fram á annað en það fari á sömu leið, þar verður reykt eftir sem áður. Ég mundi telja líklegra til árangurs, að óska eftir því, með áberandi auglýsingum í húsunum að ekki væri reykt. Bann á bann ofan, án þess að nokkur mögu- leiki sé til þess að framfylgja því banni, ættum við íslendingar að vera búnir að fá nokkra reynslu af. Það vill svo til, að fáum dögum áður en Morgunblaðið birti „til- lögu landlæknis", að hinn þekkti „Velvakandi" sama blaðs, kom á framfæri umkvörtun frá kunn- ingja sínum sem var í Tónabíói, til að sjá þar merka mynd. Hann kvartaði yfir því, að þeg- ar sýning stóð sem hæst, tóku fjórir piltar að reykja fyrir aftan hann, sem honum líkaði að von- um illa, svo hann benti þeim á, að bannað væri að reykja meðan á sýningu stæði. Viðbrögðin voru þau hjá pilt- um þessum, að því er Velvakandi hefur eftir kunningja sínum, að eftir það blésu þeir reyknum sem mest að vitum mannsins, en ekki nóg með það, heldur áréttuðu pilt arnir með því, þegar út var kom- ið og maðurinn seztur undir stýri á bíl sínum, að hrækja þá í andlit hans. Mundu nú ekki viðbrögð pilta þessara hafa verið svipuð, ef þeir hefðu verið staddir í félagsheim- ili úti á landi, ekki er ólíklegt að gera ráð fyrir því. En hversu mörgum sinnum miklu auðveld- ara, á ekki að vera að kveða nið- ur svo yfirgengilegan ruddaskap, eins og þarna -kemur fram, í sjáfri höfuðborginni, heldur en í félagsheimilum, í afskekktum sveitum landsins, ef fyrir kæmu. Það er að segja, ef' á að gera það með valdi. Samanb. það, er sagt var frá í blöðunum sama dag og umrædd umkvörtun var birt. Að Hótel Saga hafi beðið um lög- reglu, til að vera til taks fyrir utan þegar samkomu lauk þar í húsi okkar bænda, og fékk þegar tvo bílfarmá en sá hópur lögreglu manna var vart kominn á stað- inn, þegar þeir kölluðu um tal- stöð, eftir öllu tiltæku liði stöðv- arinnar sér til aðstoðar. Þetta er ekki svona auðvelt úti á landi, að ná til sterkrar lög- gæzlu. Okkar viðbrögð verða því oftast þau, að komast hjá árekstr- um og átökum í lengstu lög, og má hver lá okkur sem vill. Okkar sterkasta vopn er að reyna að fá siðgæðiskennd hvers samkomu- gests í lið með okkur, en ekki með valdi. En, eru þá félagsheim- ilin þeir staðirnir, þar sem ungl- ingarnir taka flestir sinn fyrsta reyk? Ég neita því. Skoðanakönnun sem fram fór, ekki alls fyrir löngu, meðal nem- enda 16—-17 ára í skólum Reykja- víkur, komst að eftirfarandi nið- urstöðu: í 10 ára bekkjum, er 10. hver drengur byrjaður að reykja, en aðeins tæplega 2 af hverjum 100 stúlkum. í 12 ára bekkjum reykir 7. hver drengur og 16. hver stúlka. Þessu segir Morgun- blaðið frá 19. jan. sl. ásamt sam- tölum sem blaðið átti við marga unglinga um reykingar þeirra, og styðja þau samtöl þessa skoðana- könnun, sem nokkuð réttar upp- lýsingar. Blaðið hefur einnig eftir krökkunum, að helztu reykinga- staðir þeirra séu salerni skól- anna, „sjoppurnar" og stræti borg arinnar. Væri ekki líklegra til árangurs, ef bann á að vera aðalbjargráðið, að beita því einnig í barnaskól- unum, eins og í félagsheimilun- um, nú, kannske er bannað að reykja í barnaskólum Reykjavík- ur, eins og í Tónabíói, en hvers vegna er banninu ekki fram- fylgt, á stað þar sem ekki þarf nema veiía hendi til að fá fleiri bílfarma af löggæzlumönnum á staðinn? Ætli það sé ekki það, að þeir sem húsráðin hafa, finni það betur en margir aðrir, að það er ekki hægt að framfylgja banni á þessu sviði, nema að vissu marki, þó börn eigi í hlut, án þess að misbjóða sínu eigin siðgæði, en það er sama og afsala sér valdi. Mín skoðun er sú, að sterkasta vopnið í baráttunni við áfengi og tóbak, sé að finna í fyrsta lið til- lagna landlæknis, sem sé fræðsla og svo bindindisstarfsemi í skól- um landsins, hvort sem þeir eru í Reykjavík eða uppi í sveit, barnaskóli eða menntaskóli. En, en sem komið er, fer ákaf- lega litið fyrir slikri fræðslu, að því er séð verði, hana ber því að auka, og nota til þess þá auglýs- inga- og kennslutækni sem við höfum yfir að ráða. Slík fræðileg herferð mundi gefa mun meiri árangur gegn áfengi og tóbaki, heldur en lokun allra félagsheim- ila úti um byggðir landsins. Látrum, 27. 1. 1964 Þórður Jónsson. BLAÐAMENN voru í gær boð- aðir á fund stjórnar Sinfóníu- hljómsveitarinnar, en þar kynnti Arni Kristjánsson hljómsveitar- stjórann, Olav Kielland, og ein- leikarann Einar Sveimbjörnsson. Árni sagði, að óþarft væri. raunar að kynna Kielland fyrir íslendingum, því að hann hefði komið hingað oft áður og stjórn að hljómsveitinni. Hann væri raunar fóstri henn- ar, því að það hefði verið hann, sem í fyrstu byggði hana upp. Væru 13 ár síðan hann kom hér í fyrsta skipti. Árni kynnti eim.ig einleikar- ann, Einar Sveinbjörnsson, sem léki nú einleik í Sibeliusarkon- sertinum. Hann hefði alls leikið einleik með hljómsveitinni hér i Reykjavík þrisvar sinnuim. Olav Kielland er mjög sterkur persónuleiki, skemmtilegur með afbrigðum og kann sjóð af sög- um af tónlistarmönnum og músik lífi og runnu þær yfir viðstadda eins og stórfljót, öllum til óbland innar ánægju. Hann sagðist hafa flogið yfir Atlantshafið 12—14 sinnum, og munaði engu, að hann gæti tek- ið að sér að stjórna flugvélinni, svo vel þekkti haim leiðina. Bezt þætti honurn þó að ferð- ast með Kristjáni skipstjóra á Gullfossi, en það yrði ekki á allt kosið. Hann minntist með ánægju skipta sinna við íslenzka tón- listarmenn, og miáski sérstaklega á 13. norrænu tónlistarhátíðinni, sem haldinn var hér í Reykja- vík. Kielland hefur áður stjórnað 2. sinfóníu Brahms hér í Reykja- vík. Hefði hann haldið, að hann gæti ekki lengur fundið neitt nýtt í henni, eins og alltaf væiri hægt í verkum Beethovens og Mozart, en nú hefði hann fundið smávegis nýtt, að vísu ekki mik ið, en þó eitthvað, sem kæmi á óvart. Hann ræddi Karneval í París eftir Svendsen, og sagði það vera erfitt verk. Hann vildi gjarn an vera með Svendsen i París á Montmartre, í góðu skapi, því að Svendsen væri þannig maður. Hann sagði skemmtilega sögu frá hjónabandi Svendsen, þegar kona hans gerðist svo afbrýðissöm útí tónverk hans, að hi' n tók sig til og brenndi nokkrum hluta þeirra! Olav Kielland sagðist haifa stjómað öllum sinfónium Beet- hovens nema þeirri 9., en sem kunnugt er skrifaði Beethoven 9 sinfóniur alls. Gunnar Guðm-undsson fram- kvæmdastjóri skýrði að lokum frá þvi, að þetta væru 9. hljóm- leikar hljómsveitarinnar, og þeir 1. í seinni hlutanum. Hljómleikarni-r verða í Há- skólabíói fimmtudaginn 6. febr. og hefjast þeir kl. 21. Skemmtifundur fyrir félaga og gesti verður haldinn í Sigtúni fimmtudagin 6. febr. kl. 20,30. Til skemmtunar: Einsöngur: Guðmundur Jónsson. Listdans: Elisabeth Hodgshon. Gamanþáttur: Karl Guðm. og Leo Munro. Savanatríóið syngur. — Dans. STJÓRNIN. Sendisveinn óskast á ritstjórnarskrifstofu vora. Vinnutími kl. 6 — 11 e. h.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.