Morgunblaðið - 02.04.1964, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.04.1964, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 2. apríl 1964 MORCUNBLAÐIÐ 17 Friðrik Guðjónsson Fæddur 6. okt. 1897. Dáinn 24. marz 1964. f MEIR en fjóra áratugi er ég búinn að skrifa svo margar dán- arminningar að sjálfum er mér fyrir löngu farið að ofbjóða. Rétt eins og ég. gaeti ekki eftirlátið þetta öðrum, sem þá líka oftast mundu mér færari til þess. Og búinn var ég að ætla mér að nú skyldu þær ekki verða fleiri. En svona er það samt, að enn tek ég til hinnar fyrri iðju. Við fráfall Friðriks Guðjónssonar þykir mér sem ég megi ekki þegja, heldur verði- ég að kveðja hann með nokkrum minningarorðum. Hann hafði nú um sjö ára skeið átt heima undir mínu þaki og við umgengist daglega, alltaf farið vel á með okkur, svo að aldrei sem listmálari. Á listaverk er ég ekki dómbær, en ekki leyndi það sér, að hver mynd hans var fögur og mundi hvarvetna verá til hí- býlaprýði. Hvorki á þessu sviði né öðru lét hann mikið yfir sér. Hann var manna fjarlægastur skrumi og mikillæti, hverja stund hægur og prúður, en þó léttur í máli og smákíminn, hafði næmt auga fyrir öllu broslegu og gat gert að því. góðlátlegt gaman. Illkvitni eða kerskni átti hann ekki til í fari sínu og öllum mönnum vildi hann vel, enda mun hann éngan óvildarmann hafa átt. Svo var hann hagur í höndum að unun var að sjá hann vinna, á hverju sem hann snerti, og þó að hann sýndist ekki fara sér hart, ætla ég að eitt dagsverk hans hafi jafnast á við tvö margra annarra, er af meiri asa unnu. Öll báru handaverk hans fagran svip. Þau hjónin eignuðust þrjú börn, sem öll lifa: tvær dætur, sem báðar eru vel giftar, enda sagðar fyrirmyndar-húsmæður. Sú eldri, Sesselja, er gift Gott- skálk lækni Björnssyni, en sú yngri, Sigrún, Eggert símstjóra Haraldssyni á Patreksfirði. En í foreldrahúsum er sonurinn, Guð- jón, sem nú er í fimmta bekk menntaskólans; ætla ég að hann sé hið bezta mannsefni, hefur erft dagfarsprýði. foreldra sinna, en um reglusemi alla mun hann eiga alltof fáa líka meðal sinnar kynslóðar. „En hver sér nú um þurkinn heyinu hans?“ Með þeirri spurningu lýkur sagnaskáldið góða einu sinna litlu meistara- verka. Hefði Friðrik Guðjónsson verið í grennd við Þórð, mundi vísast hafa mátt sVara, að það væri hann líklegur til að gera. Einhver þeirra, er þau Friðrik og Sigríður réttu hjálparhönd mun nú árangurslaust spyrja svipaðr- ac spurningar — eins og við bíð- um svars við spurningu Einars. Sumum kann að þykja það bros- legt, að sjálfur má ég spyrja þess arar spurningar í mjög þröngum skilningi. Flest þau sumur, er Friðrik var sambýlismaður minn, var mínu heilsufari þannig hátt- að að ég gat lítt eða ekki hirt um grasflötina í garðinum mínum. Aldrei bað ég hann að sinna henni. En þegar hann sá að nú þurfti að fara að slá hana, fór hann og gerði svo umtölulaust. Ég.get ekki um þetta vegna þess að ég óttist að í sumar leggist ekkert til; ég er alveg kvíðalaus um það. Ég get þess vegna hins að þarna er ofurlítil spegilmynd af hugarfari og hátterni manris- ins. Svona var það ávallt um hann — og þá ekki síður hús- freyjuna. Þeim var aldrei nóg að lifa sjálfum sér. Slíku fólki er gott að kynnast — og slíkra manna gott að m'inn- ast. Sn. 3. Sjötug í dag lliia Einarsdóftir féll skuggi á, og ég hafði reynt hann að svo mikilli vinsemd og góðvild að slíkt ætti ekki að vera gleymt — og er enda ekki gleymt, þó að vegi skilji nú um stund En margmáll ætla ég ekki að gerast. Hann var sjálfur enginn mælgismaður. Og ævisagnaritari hef ég aldrei verið. Ættfræðingur er ég ékki heldur. En í umgengni við menn hef ég jafnan veitt því nokkra athygli, hverjir mér virt- ust þeir vera. Friðrik Guðjónsson var fædd ur í Laxárholti á Mýrum og ólst upp þar og á Ökrum unz hann árið 1915 kom hingað til Reykja víkur og tók að nema trésmíði. Eftir örfá ár snéri hann sér aðal- lega að rammasmíð, vann fyrst hjá Guðmundi Ásbjörnssyni, sem þá var hér mestur athafna- maður í þeirri grein, en var síðan allmörg" ár hjá Ólafi Magnússyni í verzluninni Kötlu, allt til þess er hann opnaði sína eigin vinnu- stofu 1935. Hana rak hann síðan við ágætan orðstír til þesser hann toK banasóttina. Hann andaðist í Landsspítalanum að morgni þess dags er að ofan greinir. Þann 18. júlí 1931 kvæntist Friðrik stúlku af Eyrarbakka, Sigríði Vigfúsdóttur, sem lifir hann. Víst ætla ég að hann væri lánsmaður alla ævi, en efalaust er það, að sá dagur, sem færði honum þann lífsförunaut, var mesti gæfudagurinn á öllu hans æviskeiði, og bjart var yfir þeirra hjónabandi allt til þess er hann andaðist I örmum hennar. Mun líka einmælt um þessa konu að hún hafði flesta þá kosti er konu mega prýða. Varla mundi ókunn- uga er þeir sjá hana, — hægláta, ekki stórvaxna og ekki þrek- vaxná, — gruna að hún væri tveggja maki til allra afkasta. Svo er það þó. Samt mun það Bannast sagna, að meira sé um vert mannkosti hennar, því að þeir eru með fágætum. Og sam- hent voru þau hjónin til allra góðra verka. Hitt má vera að okkur, er 1 sambýli við þau bjuggum, hafi stundum virzt sem vart kynnu þau sér hóf um risnu og góðgerðasemi. Og vafasamt hvort allir þiggjendurnir væru hjálpseminnar maklegir. Ber- sýnilegt var það hverjum manni, að ekki mundu þau safna í korn- hlöður, svo mikið sem þau þó bæði lögðu að sér um vinnu. Þau hlífðu sér hvorugt. s Nokkuð var Friðrik kunnur ÁRIÐ 1896 geisa hræðilegir jarð- skjálftár um allt _Suðurlandið, þar sem þeirra gætti ef til vill mest, en lítið 2ggja ára stúlku- barn borið út um baðstofu- glugga heimili síns, fáum augna- blikum áður en heimili fjöl- skyldunnar hrynur í rúst. Menj- ar þessarar náttúruihamfarar má en sjá í hlíðum Ingólfsfjalls. Hörð var æfi þessa fólks og óblíð. Stúl’kubarn þetta, Una, fæddist þeim hjónum Ingveldi Erlends- dóttur og Einari Þórðarsyni, bónda að Heimalandi í Hraun- gerðishreppi í Flóa, 2. apríl 1894. Snemma mun hin harða lífs- barátta hafa fallið litlu stúlk- unni í skaut, því frá 9 ára aldri mun hún haft mátt til vanda- lausra, ólst hún upp þar í Flóa og Holtunum, sem hún dvaldist um unglingsár. En þrátt fyrir nærri allsleysi heimamundsins, nema frábærar seiglu og dugn- aðar, arfur blóðins frá móður- inni, sem var annáluð dugnaðar- kona, bryst þessi unga stúlka til náms í unglingaskóla að Odda á Rangárvöllum hjá séra Skúla Skúlasyni. Síðan hefur Una verið vel lesandi á danska tungu og reyndar fleiri norðurlanda- mál. Enginn vafi er á, að draum- ur til frekari náms, hefur dulizt með hinni- ungu mey, en kostir fáir. Ekki skyldi staðar numið, því til Reyikjavíkúr er haldið árið 1913, og litlu eftir mun hún hafa hafið saumanám hjá vel þekktri saumastofu í Reykjavík Árið 1917 kemur til landsins frá Vesturheimi, gjörfulegur ungur maður, norskættaður ís- lendingur, sonur Önnu Marie og Jóns heitins Jónssonar beykis. Ungi maðurinn, Magnús hyggst heimsækja foreldra sína, en þau höfðu flutzt búferlum frá Hauga sundi í Noregi, og Jón beykir gerðist hér hinn mikilvirkasti iðnaðarmaður. Magnús Jónsson var því fæddur og uppalinn í Noregi, en hafði flutzt með systkinum sínum til Kanada, sennilega í framaleit. En for- lögin færa þennan son heim til feðra hans til funda við foreldra, og þar hittir hann Unu Einars- dóttur. Þessi unga, greinda og glæsilega stúlka varð svo brúður hans 1918. Hér hefst svo eittbvert það bezta hjónaband, sem ég minnist. Maðurinn minn hefur oftlega minnst þess við mig, hversu glæsileg og skemmtileg þessi hjón voru, er þau ung bjuggu í næsta húsi við fjölskyldu hans. En síðar átti Magnús eftir að verða kennari og húsbóndi hans um mörg ár. Árið 1929 ráðast þau hjónin í að kaupa húsakynni af Mjólkur- félagi Reykjavíkur að Vatnsstíg 10 hér í borg, er rekið hafði kornmyllur í bakhúsinu. Fluttist fjölskyldan í lítið timburhús fram við götuna, en er Mjólkur- félag Reykjavíkur hafði rýmt bakhúsin, hóf Magnús stjálfstæð- an rekstur í trésmíði sem hann hafði stundað með öðruna, frá því hann kom til landsins. Barn að aldri kynnist ég fjölskyldunni á þessu ári, og fylgist með, hvernig Magnús byggir upp af litlum efnum all-líflegan at- vinnurekstur á þeim árum, sem allur atvinnurekstur lamast af heimskreppunni. Magnús hóf hér algjörar nýjungar á smíði glugga og hurða fyrir hýbýli manna, svo og innréttingar í hús. Smíð- aði hann mikið fyrir nýbýlasjóð og þar með allmarga bændur. Voru mikil umsvif og fjör utan um verkstæði Magnúsar, margt ágætra manna unnu þar og lær- 'lingar. En erfiðir tímar hertu oft að fjármálunum, og þá kom í ljós, hve vel kvæntur maður Magnús var, mun hvergi ofmælt, hverju grettistaki góð kona lyftir manni sínum. Greind, sjálfs- öfluð menntun og meðfædd hag sýni húsfreyjunnar ávöxtuðust hér. Auk umsvifamikilla húsmóður starfa, var mikill gestagangur og gestrisni. Allur fatnaður saumaður, prj'ónaður af snjöllum höndum húsfreyjunnar. Spárn- aður, hófsemi og nýtni gætt í hvívetna, jafnvel kveinikaði kon an sér ekki við að binda um sár manna, ef smá slys urðu við vinnu manna á verkstæðinu. Og móðirin, hin kvenlegi fjölvís, liðsinnti við nám barnanna, sú sem kenndi börnum sínum til starfs, kenndi jafnvel danska tungu, hún hafði alltaf tíma. Enn voru krepputímar 1936, og þá var ráðizt í að stækka íbúðarhúsið, smekklegri hæð bætt ofaná litla íbúðarhúsið og öllu húsinu breytt í nýtizku horf og múrhúðað að utan. Þó voru öll börnin ennþá heima í barna og unglingaskólum. Hér rýmkaðist hagur fjölskyldunnar mjög, þarna ríkti sönn hamingja, umgyrt heilbrigðri skynsemi. Þarna var enginn staður of fínn til að börn og fólik skyldi ekki dveljast á frjáls, og glöð. Þarna var bókakostur góður og vel not- aður, og húsbóndinn margfróður, og mússi'kalskur, leikandi á skemmtileg lítil blásturshljóð- færi, stundum samdi hann hug- ljúf lög. Seinna fékk hann sér orgel. Hvað ég minnist glettina tilsvara og spaugsyrði, þarna ríkti skemmtilegur heimilisandi. Bæði voru þau hjón reglusöm og regla ríkti í öllu heimilishaldi. Á sumrum stofnuðu hjónin stund- um til skemmtilegra ferðalaga með vinnufélögum húsbóndans, sem ég minnist með mikilli gleði. Sjálf voru þau mikið og gott ferðafólk og ferðuðust mikið um byggðir og óbyggðir, einnig er- lendis, þó síðar yrði. Fannst mér því frúin eins og kjörin, er hún var kosin til að veita forstöðu ferðanefnd Kvenfélags Hall- grímssóknar, en það starf hefur hún haft með höndum um nokk- ur ár. Þótti mér því fara vel á því í byrjun stríðsáranna skyldu þessir vinir mínir festa kaup á skemmtilegri jörð, eða hluta úr stórbýlinu Stórafljót í Biskups- tungum, þar er sundlaug og hverahiti. Þar byggðu þau sér vandað sumarhús, og þar voru þau í essinu sínu. Una hefur alla tíð haft áhuga og yndi af garð- rækt, og naut sín þar vel með börnum og barnabörnum. Það er nú svo, hafi maður kynnzt góðum hjónum, verður annars vart minnst án hins. Síð- astliðið sumar höfðum við, vinir fjölskyldunnar, hlakkað til að halda hátíð á 70 ára afmæli hús- bóndans 30. júlí. Engin- ástæða var til annars en svo myndi verða, en 4. júlí var Magnús skyndilega burt kvaddur, eftir er ófyllt skarð, en ljúfar og þakk- látar minningar. Una og Magnús eignuðust 5 börn. Stúlkubarn misstu þau kornabarn, en upp komust, Jón, trésmiður, kvæntur Ingibjörgu Pálsdóttur, Ásta, gift Einari Ein- arssyni, Einar, trésmiður ókvænt ur, Inga Maria, gift Eberg Elef- sen. Fríður hópur barnabarna fylgir þessum fjölskyldum. í dag, 2. apríl er hin unglega amma sjötug. Hversu innilega samgleðjumst við hjónin, Unu Einarsdóttur og allri fjölskyldu hennar, með þafcklæti fyrir löng og ágæt kynni Vinkona. Stúlka 'óskast ti'l afgreiðslustarfa strax. Upplýsingar í síma 18680 kl. 10—16 í dag. Bílamálun Okkur vantar vana menn strax. IUerkúr hf. Hverfisgötu 103. IVIýjung sem spsrar vinnu og fyrirhöfn Silfur, sem skín og gljáir vik um saman án þess að á það falli, þegar þér notið undra silfur-áburðinn. HAGERTY TARNISH PREVENTIVE sem hreinsar, fægir og ver silfrlð því að það falli á það, og þér þurfið ekki að nota á- burðinn aftur langtímum saman, en aðeins strjúka yfir silfrið með þurrum klúti, svo það gljái og skíni sjálfri yður og öðrum til augnayndis. Fæst hjá silfursöium borgarinnar, hjá úrsmiðum o.fl. Heildsölubirgðir: H. ÓLAFSSON & BERNHÖFT Símar 1-97-90. — Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.