Morgunblaðið - 30.04.1964, Side 10
10
MORGUNBLADIÐ
Flmmtudagur 30. april 1964
Staðsetning Anchorage
var fra' upphafi hættuspil
• f heimsfréttunum segir
fátt frá Alaska frá því jarð-
skjálftarnir miklu og afleið-
ingar þeirra voru á allra vör-
um. En íbúar ríkisins horfast
daglega í augu við þessar af-
leiðingar og eiga fyrir hönd-
um margra mánaða og jafn-
vel ára endurreisnarstarf.
• Tjónið af völdum jarð-
skjálftanna er nú áætlað 500
milljónir dollara, minnst —
eða sem svarar nálægt 22.5
milljörðum íslenzkra króna.
í borginni Anchorage einni
voru u.þ.b. 200 heimili lögð
algerlega í rúst og 1500 urðu
fyrir meiri háttar skemmdum.
Nokkrir bæir og þorp þurrk-
uðust út að heita má. Bátar,
skip og hafnarmannvirki lösk-
uðust. Langir vegakaflar eyði-
lögðust, járnbrautarlínur und-
ust til eins og þunnar vírræm-
ur væru, og einar sautján brýr
eyðilögðust með þeim afleið-
ingum, að landleiðin til fjölda
bæja og þorpa lokaðist. 75%
af iðnaði ríkisins lamaðist, þar
á meðal margar helztu niður-
suðuverksmiðjur þess. Þús-
undir manna misstu atvinnu
sína og mörg fyrirtæki ramba
á barmi gjaldþrots.
Andspænis þessu ástandi
standa íbúar Alaska, aðeins
250.000 talsins. Fjárhagur rík-
isins var ekki of góður áður en
þessar náttúruhamfarir dundu
yfir og má því nærri geta, að
útlitið er ekki beinlínis glæsi-
legt. Og þó — íbúarnir eru
bjartsýnir og reiðubúnir að
takast á við erfiðleikana. Þeir
eru þess fullvissir, að þeim
mun takast að byggja ríkið
upp á nýtízkulegri hátt en áð-
ur var, að iðnaðurinn verði
byggður upp samkvæmt
ströngustu nútíma kröfum, er
muni gera hann arðvænlegri,
að betur verði fylgzt með því
en áður, hvar sé byggt — og
að í framtíðinni verði betur
byggt en til þessa.
• Hættuspil
Því að sérfræðingar benda
nú á, að staðsetning Anchor-
age-borgar og margra þeirra
bæja, er verst urðu úti í járð-
skjálftunum hafi frá upphafi
verið hættuspil. Staðir þessir
eru á miðju eins mesta jarð-
skjálftasvæðis jarðar — og
það sem verra er, þeir voru
byggðir upp á jökulruðning-
um, meira eða minna lausum
leirlögum. Sérfræðingar eru
enn að vinna úr mælingum og
upplýsingum um jarðskjálft-
ann og verður því starfi vart
lokið fyrr en eftir marga mán-
uði. En þeir vita þó þegar, að
upptök jarðskjálftans voru
um það bil 160 km austur-suð-
austur af Anchorage, í Prince
Williams Sound og á 30—40
km undir yfirborði jarðar,
sem er tiltölulega grunnt. —
Slíkir jarðskjálftar eru venju-
lega snarpastir og valda hvað
mestu tjóni. Þeir verða venju-
lega fyrir hreyfingar á jarð-
skorpunni meðfram löngum
sprungum, er myndast hafa í
hana. Undir eðlilegum kring-
umstæðum liggja fletir bergs-
ins beggja vegna sprungnanna
þétt saman. Engin hreyfing er
þó í berginu en mikil spenna
myndast smám saman með-
fram sprungunni. Taki berg-
fletirnir að hreyfast í sprung-
unni losnar úr læðingi hin gíf-
urlega orka, sem hlaðizt hefur
upp í berginu báðum megin.
Mestur hluti orkunnar kemur
fram sem bylgjuhreyfing,
orkumestu bylgjurnar fara
eftir jarðskorpunni með ógn-
arhraða og hrista hana og
skekja, aðrar bylgjur fara
þvert í gegnurri jörðina.
í Alaska eru slíkar sprung-
ur algengar, enda eru jarð-
skjálftar þar tíðir. Sprungan,
sem olli jarðskjálftanum á
föstudaginn langa kann að
vera alllangt undir yfirborði
jarðar — en einnig kann ein-
hver hluti hennar að finnast á
yfirborðinu, eins og t.d. í jarð-
skjálftanum 1899 í Yakutat,
þegar bergið beggja vegna
sprungunnar misgekk svo, að
15 metra klettaveggur mynd-
aðist.
Ekki er að fullu skorið úr
um styrkleika þessa jarð-
skjálfta, þar sem ekki hefur
verið unnið endanlega úr mæl
ingum. En dr. Richter, höfund
ur Richter-styrkleikamælisins,
telur að hann hafi verið 8.4
stig. Hefði slíkur jarðskjálfti
farið um þéttbýlt landsvæði,
hefðu fórnarlömb hans, að á-
liti sérfræðinga, getað skipt
þúsundum, í stað tæpra
tveggja ■ hundraða, eins og
reyndin varð í Alaska.
Orkan, sem leystist úr læð-
ingi í þessum geysilegu ham-
förum var, að sögn sérfræð-
inga, milljón sinnum meiri en
orka kjarnorkusprenginganna
á Hii-oshima og Nagasaki.
• Rek meginlandanna
Enda þótt vitað sé, hvað
veldur jarðskjálftum, er enn
óljóst hvaðan sú mikla orka
kemur, sem skyndilega getur
komið sprungu í jarðlögunum
á hreyfingu. Skýringin, sem á
síðustu árum hefur rutt sér æ
meir til rúms er byggð á kenn
ingunni um „rek meginland-
anna“ (Continental drift).
Samkvæmt henni er undir
jarðskorpunni heitt, seigfljót-
andi efni, sem þenst út og ryð-
ur sér braut upp undir og í
gegnum jarðskorpuna. Sjálf
skorpan er tiltölulega þunn,
nokkrir tugir kílómetra og
þynnri undir höfunum. Sem
kunnugt er hefur komið í Ijós,
að hryggur liggur eftir endi-
löngu Atlantshafi, gegnum ís-
land og suður úr — suður fyr-
ir Afríku, þar sem hann sveig-
ir í austur og aftur í norður.
Eftir hryggnum endilöngum
er víða sprunga, og sams kon-
ar sprunguhryggur liggur suð-
ur Kyrrahaf. Talið er að meg-
inlöndin fljóti á hinu seigfljót-
andi efni — hreyfing þeirra
er ógn hæg, en þó hafa mæl-
ingar sýnt, að Atlantshafið
muni breikka um nokkra
sentimetra á ár hverju og
Kyrrahafið mjókka að sama
skapi.
Þegar árið 1620 vakti
Francis Bacon athygli á því,
að Suður-Ameríka og Afríka
væru þannig lagaðar, að svo
virtist, . sem mætti fella þær
saman í eina heild. Næstum
þrem öldum síðar, árið 1920,
tóku Þjóðverjinn Alfred
Wegener og S-Afríkumaður-
inn Du Toit upp hugmynd
þessa og renndu undir hana
jarðfræðilegum stoðum. Kenn
ingar þeirra fengu lítinn byr,
og það var ekki fyrr en fyrir
tíu árum, er jarðeðlisfræðing-
ar fóru að mæla jarðsegulsvið
í gömlu bergi — sem henni
var verulega sinnt. Þeir fundu
þá, að segul„norður“ berglaga
Inn á þetta kort eru merkt helztu jarðskjálfta- og eldsumbrota svæði heimsins.
Þannig hefur rafeindaheili vísindamanna í Cambridge raðað
upp heimsálfunum.
benti oft og tíðum í allt aðra
átt en þá, sem nú er viður-
kennt „segulnorður“. Og þeg-
ar mælingar voru bornar sam-
an, hvaðanæva úr heiminum
fóru menn að íhuga betur hug
myndina um rek meginland-
anna. Sú skýring leitaði á, að
afstaða meginlandanna hvers
til annars og til pólanna hefði
breytzt. Síðan hefur margt
komið fram kenningunrii til
stuðnings.
Fyrir nokkrum vikum var
haldin í London ráðstefna vís-
indamanna um þá nýju heims-
mynd, sem við blasir, vegna
nýjustu rannsókna á þessu
sviði. Þar kom m.a. fram, að
rafeindaheili hefði verið lát-
inn reikna út hvernig raða
skyldi meginlöndunum saman,
þannig að þau félli sem bezt í
eina heild. Útkoman var eins
og meðfylgjandi mynd sýnir.
Sir Edward Bullard frá Cam-
bridge skýrði frá þessum rann
sóknum og því með, að raf-
eindaheilinn væri nú önnum
kafinn að reikna saman
Ástralíu og Suðurskautsland-
ið. —
Þá hafa frekari rannsóknir
á sjávarbotninum gefið hinar
merkilegustu upplýsingar,
einkum rannsóknir á sprung-
unum miklu. Hreyfing megin-
landanna er talin stafa af því,
að seigfljótandi berg stígur
upp undir yfirborð jarðar i
Atlantshafssprungunni og ýt-
ir sundur meginlöndunum sitt
hvorum megin Atlantshafsins.
Er talið, að áður fyrr, fyrir
svo sem hálfri annarri milljón
ára, hafi Ameríka, Evrópa og
Afríka legið saman. Umbrota-
samt er 'í sprungusvæðinu,
svo sem íslendingar þekkja
öðrum betur.
Þar sem meginlöndin fjar-
lægjast þannig Atlantshafs-
megin hljóta þau að nálgast
Kyrrahafsmegin. Er þau ýta á
undan sér jarðskorpunni undir
Kyrrahafinu leggst hún í fell-
ingar og myndast ýmist fjall-
garðar eða djúpar lægðir. Þar
sem fjallgarðarnir springa
brjótast gosefnin upp á yfir-
borð jarðar.
Alaska er á mótum þriggja
rekandi hluta jarðskorpunnar.
N-Ameríku rekur til suðvest-
urs, hluta af botni Kyrrahafs-
ins rekur til norðvesturs og N-
Asíu rekur til suðausturs. Á
þessum mótum er svokölluð
Fairweather-sprunga með-
fram strönd Alaska, þar sem
jarðskjálftar eru tíðastir — og
Aleutaboginn, sem myndazt
hefur við það, að Síbería þrýst
ist í suðausturátt, en á Aleuta-
eyjum h.afa eldgos sem kunn-
ugt er verið mjög tíð. Fair-
weather-sprungan og Aleuta-
boginn skerast í nágrenni
Anchorage.
3
— Farið i fjós
Framhald af bls. 3
komu blaðamanna, svo að
hann hefði getað „ þrifið til
og haft allt í röð og reglu.“
„Á sumrin er oft margt í
heimili hjá okkur gömlu hjón
unuim,“ sagði Grímur, er við
gengum yfir túnið á-
leiðis að gróðurhúsunum.
„Stundum erum vig 10 eða 12.
Alls eru á sumrin um 50
manns að Syðri-Reyfcjum.
Svo býr Grétar, sonur rninn,
Ihér líka með konu sinni og
þremur börnum. Hann er
núna með vörubílinn okkar í
Þorlálkshöfn að keyra fisk.
Þama sjáið þið s«n hans, nafna
minn, með hjól'börurnar.
Hann er fjögurra ára. Við
erum í 'hálfgerðum vandræð-
um með hann, því að hann
setur í gang öll tækin hérna
hjá okkur. í fyrra vissum við
ekki fyrri til en hann var bú-
inn að setja af stað vöru'bíl-
inn.“ Það bregður fyrir afa-
stolti í svip Grims, er hann
ræðir um sonarson sinn.
„Við höfum flest hentug-
ustu tæ'kin til að heyja,“ hélt
Grímur áfram .„Þrjár dráttar
vélar, jeppa og vörubíl. Svo
eigum við gnýblásara, sem
blæs votu og þurru heyi I
hús. Ef við höfum 6 manns I
heyvinnu, þá getum við I
góðri tíð heyjað 80 til 100
hesta á dag.“
Þá sýndi Grímur olckur
frystígeymslu fyrir 100
skrokka, sem eru á jarðhæð
íbúðarhúss Grétars. Hann hef
ur á 4. hundrað fjár au!k
kúnna. Fjöldi smærri bygg-
inga eru að Syðri-Reykjum og
eru þau öll með sama snyrti-
lega yfirbragðinu og fjósið.
Sængur
fylltar með Acryl-ull, —
Nylon-ull og Dralon-ulL
Koddar og sængur í mis-
munandi stærðum. —•
Marteinn Einarsson & Co.
Laugav. 31. Sími 12816.