Morgunblaðið - 27.05.1964, Side 2
2
MORGU H BLAÐID
Miðvlkudagur 27. aml 1964
S jóstangaveiöimóf-
/ð hefst á föstudag
FIMMTA alþjóða-sjóstangaveiði-
mótið verður baldið nk. föstudag,
laugardag og sunnudag. Mótið er
nú haidið í Reykjavík í fyrsta
skipti en áður hefur það fárið
fram í Vestmannaeyjum.
Formaður Sjóstangaveiðifélags
ins, Birgir Jóhannsson, tannlækn
ir setur mótið á fimmtudags-
kvöld í Sjálfstæðishúsinu. Borg-
arstjóri, Geir Hailgrimsson, flyt-
ur ávarp. Mönnum verða síðan
kynntar mótsreglur, og dregið
verður um báta.
KI. 9 á föstudagsmorgun halda
bátarnir siðan út á flóann. Ell-
efu bátar taka þátt í mótinu og
lun 60 veiðimenn. Færri útlend-
ingar taka þátt í mótinu en bú-
izt hafði verið við, eða innan við
tíu. Flestir eru Reykvíkingar og
þá Akureyringar og Keflviking-
ar. Farið verðui út kl. 9. árdegis
alla dagana, en komið inn kl. 5
eftir hádegi. Gert er ráð . fyrir
því að skipin verði eingöngu í
sunnanverðum Faxaflóa, úti á
Sviði og Hrauni og nærliggjandi
miðum. Slysavarnafélagið hefur
lofað því, að björgunarbáturinn
Gísli J. Johnsen fylgdist með
skipunum þessa þrjá daga.
G«ta má þess, að meðal þátt-
takenda er aflaklóin Haraldur
Ágústsson, skipstjóri á vb. Guð-
mundi Þórðarsyni frá Reykjavík.
Skipstjórar á hinum ellefu bát-
uim, sem taka þátt í mótinu, eru
mjög áhugasamir um veiðiskap-
inn, og vill hver hlut síns báts
sem beztan, ekki síður en á ver-
tíð. Til nokkurs er líka að vinna,
því að aflasælasta skipinu hlotn-
ast silfurbikar að mótslokum.
Sjóstangaveiðimótinu lýkur á
sunnudagskvöld með hófi í Sjálf
stæðishúsinu. Verða þá verðlaun
afhent.-''
Ferðaskrifstofan Saga hefur
séð um undirbúning mótsins í
samráði við stjórn Sjóstangaveiði
félagsins og i samvinnu við hafn
arstjórn og önnur borgaryfirvöld.
Vb íslendingur II. er einn bátanna, sem verður notaður á sjó-
stangaveiðimótinu. í gær var verið að snurfusa hann. (Ljósm.
Mbl. Ól. K. M.).
Ræningi frú Dass-
ault ófundinn
PARÍS, 26. maí (AP—NTB). —
Enn leitar franska lögreglan að
fjórða manninum úr hópi þeirra,
sem rændu frú Madelaine Dass-
ault aðfaranótt laugardags. Hin-
ir þrír mennimir voru hand-
teknir í gær, en leiðtogi þeirra
er ófundinn.
Hinsvegar hefur lögreglan nú
skýrt frá því að þessi fjórði
maður, sem hingað til hefur
gengið undir nöfnunum „Gust-
ave“ og „Dominique" sé gamall
kunningi hennar og þekktur
bófi. Heitir hann Jean Jacques
Casanova og er 36 ára. Hans er
leitað ekki einungis fyrir ránið
á frú Dassault, heldur einnig
fyrir morð á lögregluþjóni í júií
í fyrra og fleiri glæpi.
Öll frönsku blöðin birta nú
myndir aí Casanova og vara
menn við honum. Segir í aug-
lýsingu lögreglunnar að hætt sé
við því að hann beiti byssu ef
honum er ógnað. Casanova starf-
aði á árunum 1958—60 við tíma-
ritið Jours de France, sem
Dassault fjölskyldan á.
Sjálf gat frú Dassault ekki
Fjölmennosti
gestnhópur
Loitleiða
HINGAÐ munu koma ekki
færri en 80 gestir í boði Loft-
leiða, er hin nýja Rolls Roys
400-vél félagsins kemur til 1
landsins, sem keypt hefir ver
ið frá Canadair,
Gert er ráð fyrir að vélinj
komi hingað hinn 28. maí og
munu gestir þá dveljast hér
í tvo daga, fyrri daginn í
Reykjavík, en hinn síðari
munu þeim verða sýndar
sveitir austan Fjalls, að því er
Sigurður Magnússon blaða-
fulltrúi tjáði blaðinu í gær. ^
Unnið er að undirbúningi
móttöku gestanna, en dagskrá
ekki að full gerð enn.
Þetta er fjölmennasti hópur
boðsgesta er Loftleiðir hafa
haft á sínum snærum hérlend ’
Tis. Gestirnir eru m. a. blaða-
menn og fuUtrúar ferðaskrif-
stofa.
IMefnd til að auka menn-
ingarsamskipti Islands
og Danmerkur
AD FRUMKVÆÐI próf. Þóris
Kr. Þórðarsonar, formanns
Dansk-íslenzka félagsins, hefur
verið sett á laggirnar nefnd, sem
stuðla skal að ga.gnkvæmum
menningarskiptum íslands og
Danmerkur, einkanlega með til-
liti til þýðinga á skáldverkum
hvors landsins um sig yfir á
tungu hins. Nefndin var stofnuð
í tilefni af heimsókn Pouls P. M.
Pedersens, hins kunna danska
— Taugaveiki
Framhald af bis. 1.
hafi hvaðan sóttin er npp-
runnin, og að vonir stæðu til
að unnt yrði þegar á morgun
að einangra alla, sem hugsan-
legt er að hafi smitazt.
Fyrstu tugavejkisjúkling-
arnir voru fluttir til sjúkra-
húss inni í miðri borginni, en
nú hafa þeir allir verið fluttir
til annars sjúkrahúss utan við
Aberdeen, þar sem auðveld-
ara er að einangra þá.
Af hinum sýktu eru 17
börn, 42 konur og 31 karl-
maóur.
Ijóðaþýðanda, hingað fyrir
skömmu í sambandi við útgáfu á
þýðingum hans á ljóðum Steins
Steinars, sem út komu hjá Helga
felli og Gyldendal undir nafn-
inu „Rejse unden löfte“. Bókin
er fyrsta bindi i ljóðaflokki, sem
ber heitið „Moderne islandsk
lyrikiibliotek‘‘, og er í ráði að
út komi alls 12 bindi í þessum
flokki á næst.u 5 árum. Hefur
Pedersen unnið að þessum þýð-
ingum á undanförnum árum og
áður sent út sýnisbók íslenzkra
nútímaljóða, sem hann nefndi
„Fra hav til jökel“ og kom út
hjá Munksgaard 1961. Nefndin
mun eiga náið samstarf við Ped
ersen og jafnframt stuðla að frek
ari þýðingum islenzkra prósa-
verka á dönsku og svo þýðingum
danskra skáidverka á íslenzku.
í nefndinni eiga sæti Gunnar
Gunnarsson, sem er heiðursfor-
maður hennar, Baldvin Tryggva-
son, Ragnar Jónsson forstjóri
Helgafells, Sigurður A. Magnús-
son og Þórir Kr. Þórðarson. Ráð-
gert er að hliðstæð nefnd verði
stofnuð í Danmörku innan
skamms.
þekkt Casanova af myndum lög
reglunnar vegna þess að hann
gekk alltaf með grímu. En einn
þremenninganna, sem teknir
voru, játaði við yfirheyrslu að
Casanova hafi verið upphafs-
maðurinn að ráninu. Áður hafði
kona ein þekkt aftur Casanova
sem manninn, er stal bíl henn-
ar. En bílinn notuðu ræningjarn
ir við ránið.
Fjöldi lögreglumanna tekur
þátt í leitinni að Casanova.
I A
\ Austur-
I velli
ÍÞESSAR myndir tók Ijós-;
imyndari Morgunblaðsins, Ól-|
iafur K. Magnússon í blíðskap;
iarveðrinu á þriðjudag, þegar|
Iverið var að vinna að gróðuri
Isetningu á Austurvelli, þari
Isem Ingólfur Arnarson heyj-l
jjaði á fyrstu árum íslands-1
I byggðar.
— Búrhveli
Framh. af bls. 24
dregið á ensku, „sperm
whale“, og Norðmenn kalla
hann stundum „spermval“
eða bara „sperrn“. Annars
heitir hann „kaskelot“ eða
„pothval“ á dönsku. Haus-
lýsið var verðmætt áður og
úr því unnin ýmis fita.
Annars sóttust menn ekki síð
ur eftir efni þvi, sem mynd-
ast í maga og görnum búr-
hvalsins, og heitir ambur eða
ambra. Efni þetta myndast af
leifum smokkfiska, sem eru
eftirlætisfæða búrhvela, og
var það notað til ilmefna-
gerðar. — Búrhvalir eru
dreifðir um öll heimshöfin.
Ferðast þeir í flokkum, sem
gamall hvalur, „skólameist-
arinn“, stjórnar. Aðalheim-
kynni þeirra eru milli 40.
gráðu norðlægrar breiddar og
40. gráðu suðlægrar breiddar.
Hingað norður eftir munu svo
til eingöngu hvötu hvalirnir
leita, en blauða kynið, hval-
kýrin, heldur sig sunnar
ásamt hvalkálfunum. — Að
lokum má geta þess, að búr-
hvalurinn getur verið leng-
ur í kafi en nokkur annar
hvalur, eða upp undir klukku
stund.