Morgunblaðið - 27.05.1964, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 27.05.1964, Qupperneq 22
22 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 27. amí 1S64 ^ W ......................... ...... ............ ' ........ | Vinnur Real Madrid í 6. sinn? r / UrsEiftaSeikur um Evrópubikar- iartn í kvöid 800 LÖGREGLUMENN hafa verið kvaddir til gæzlu á Prat- er leikvanginn í Vínarborg í kvöld. Þar verður háðuj úr- slitaleikur um Evrópubikarinn í knattspyrnu og eigast við Real Madrid og Milan. 75 þús. að- göngumiðar eru löngu uppseld- ir og seldur hefur verið sjón- varpsréttur af leiknum sem nær til hundruð milljóna manna. — Lögregluvörðurinn er kvaddur á vettvang til að fyrirbyggja að nokkuð sem líkist ólátum þeim er urðu í Perú og urðu 350 manns að bana geti orðið. Real Madrid ætlar sér að vinna Evrópubikarinn í 6. sinn. Liðið vann Evrópubikarinn 5 fyrstu skiptin sem um hann var keppt eða árin 1956—1960 (incl.) Liðið hefur auk þess í 6. sinn verið í úrslitaleik um bikarinn en þá vann Benefica og loks komst þýzka liðið Eintrecht í úrslit einu sinni. Real Madrid hefur tekið þátt í keppninni um Evrópubikarinn öil níu árin, sem hann hefur verið í umferð, komizt 6 sinn- um í úrslít og unnið 5 af þeim leikjum. Tveir leikemnn liðsins mæta í úrslitum um bikariinn í 6. sinn, miðherjinn di Stefani og v .útherjinn Gento. Puskas verð- ur einnig með í framlínu í úr- slitaleiknura í kvöld og verður því enginn nýliðabragur á fram- línunni. En þetta eru „spræk gamalmenni“ sem vel kunna að fara með knött. Það eru yngri menn í liði Mil- an og liðið sem slíkt er í fyrsta sinn komið í úrslit í þessari vin- sælu „stjörnukeppni". Styrkur ítalanna liggur í vörninni en hægri armur sóknarinnar er og sagður mjög beittur. Illllllllllllllllllllllllilllllllillllllillllllllllllllllllllllllllllli Nýtt sundsvæði rís í Laugardal SUNDSVÆÐIÐ í Lauigardal er nú loksins að taka á sig mynd. Upphaflega 'hafði verið ákveðið að sundsvæðið yrði fyrsta mannvirkið sem risi á hinu nýja íþróttasvæði en framlkvæmdir hafa dregizt ár frá ári. En nú rís mannvirkið öllum til gleði og ánægju — ekki sízt þeim þúsundum sem sótt hafa Sundlaugarnar ár frá ári. Sundsvæðið I Laugardal verður sérlega vandað. Þar verður 50 metra laug — sem sagt fyrsta löglega keppnis- lauigin fyrir al'þjóðamót í Reykajavík en tvær 50 m laug ar eru til á landinu, í Hvera- gerði og í Rey'kjanesi við ísa fjarðardjúp. Út úr aðallauginni verður vaðlaug fyrir börn, stór og Sérkennileg , lögun þar sem öll börn geta fundið vatns- dýpi við sitt hæfi. Við laugarnar er stór bygg- ing með búninigsklefum og böð'um ásamt skrifstofu og starfsmannahúsi og ofan á þaki þess áhorfendasvæði sem rúmar um 2000 manns í sæti. Við þetta nýja sundsvæði skapast möguleikar fyrir stór um aukinn fjölda að nota úti- böð og sól'boð en verið hefur í gömlu laugunum. Vatnið í hinum nýju verður hið sama og í þeim gömlu en allur að- búnaður nýtízkulegri og betri þó margir uni vel við gömlu laugarnar. Myndin sýnir byggingar- framkvæmdir við nýju laug- ina, sem er hin fyrsta og lang stærsta af 3 sundlaugum sem fyrir'huguð eru framtiðinni á íþróttasvæðinu í Laugardal. Riiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifitiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.tiiiiiiiiiiiiirn íiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuniiinr Cöngukeppni á SigBufirÖi Sumarbúðir drengja í KR- skála ■ Skálafelli Siiglufirði, 24. maí ‘64. SIGLUFJARÐARMÓT í skíða- göngu var háð hér í dag, og var mótstaður uppi á „Súlum“, (uppi í fjöllunum sunnan Siglufjarðar- kaupsaðar). Keppendur voru frekar fáir, og vantaði t.d. tvo garpa, Þórhall Sveinsson, Islandsmeistara í skíðagöngu 17-19 ára, en hann meiddist lítilsháttar á fæti fyrir stuttu. Og Birgir Guðlautgsson, fyrrv. íslandsmeistari í göngu, en hann gat ekki keppt vegna ®nna við 'húsbyggingu, — svo og eymsla í baki. Brautina lagði Baldur Ólafs- son, og var hún um 12 km. löng. Fyrstur í göngu karla 20 ára og eldri varð íslandsmeistarinn Gunnar Guðmundsson á 50 mín. eléttum .Annar varð Svéinn Sveinsson á 51 mín. og 10 sek. Þriðji varð Guðmundur Sveins- EFNT verður til sumarbúða fyrir drengi í skála KR í Skála- felli í sumar með sama sniði og áður hefur tíðkast. Tvö nám- skeið verða höfð og er umsjón- armaður og leiðtogi sá sami og áður Hannes Ingibergsson íþróttakennari. Fyrra námskeiðið verður frá 18. júní og stendur í þrjár vikur til 9. júlí. Síðara námskeiðið hefst 11. júlí og stendur til 1. ágúst. Námskeiðin eru ætluð drengj- um eingöngu á aldrinum 8—11 ára. Þarna er farið í íþróttir og leiki, gönguferðir og kvöldvök- ur skipulagðar með drengjunum sjálfum. Allar upplýsingar um nám- skeiðin má fá í síma 24523 og á skrifstofu Sameinaða sími 13025. Sveinn Sveinsson í göngukeppni. Arangur lians er íraoær því ; hann er á sjónum nær allt árið. son á 51 mín. og 16 sek. í göngu 17-19 ára varð fyrstur Björn Ólsen á 52,26 — en sama vegalengd og í eldri flokknum var gengin. Veður var gott, en sólarlaust. S.K. Gunnar Guðmundsson. Jónasarmótið 13. júní Sundmót ÍR (Jónasarmótið) fer fram í Sundlaug -Vesturbæj- ar laugardaginn 13. júní 1964 kl. 15:00. Keppnisgreinar verða: 400 m. skriðrund karla 100 — flugsund karla 200 — bringusund karla 200 — fjórsund karla 200 — bringusund kvenna 100 — flúgsund kvenna 50 — skriðsund drengja 50 — bringusund telpna 3x50 m. þrísund kvenna 4x50 — fjórsund karla. Aukadagur í Sundhöll Reykja- víkur mánudaginn 15. júní kl. 20:30. Greinar: 100 m. skriðsund karla 50 — skriðsund karla 100 — bringusund karla 100 — baksund karla 100 — skriðsund kvenna 100 — bringusund kvenna 100 — baksund kvenna 50 — bringusund drengja 50 — skriðsund telpna 3x100 m. þrísund karla. Þátttökutilkynningar skal skil- að til Guðm. Gíslasonar, síma 37925, við Sundthöll Reykjavíkur fyrir þann 2. júní n.k. Sunddeild ÍR. M0LAR Finnskt knattspyrnulið er íþróttafréttamenn þar í landi höfðu valið vann danskt úrvalslið í Helsinki í gær með 3—0. f hléi var staðan 0—0. Rytkönen, sem áður fyrr var atvinnumaður var bezti maður leiksins og skoraði tvö markanna. Að- eins 5000 manns sáu leikinn þrátt fyrir ákjósanlegt veð- ur. — hefur verið síðan Sonja Henie, hin norska, sté sama spor. — Hollenzka skautadrottn- ingin (listhlaup) S. Dijkstra ‘tem unnið hefur tvenn OL- gull hefur kvatt áhuga- mennskuna og gerzt atvinnu listhlaupari á skautum og mun í framtíðinni sýna list- ir sínar hjá „Ice-show-holi- day“ í Bandaríkjunum. — Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um samning hennar, en fullyrt er að hann sé sá bezti sem gerður Leitt hefur verið til lykta málið sem upp reis er leikur Argentínu og Perú í knatt- spyrnu var truflaður með óspektum og táragasi með þeim afleiðingum að 350 manns létu lífið í Perú. — Komust aðilar að samkomu- lagi um að sigurinn væri Argentínu. Argentínumenn voru sigurstranglegastir í keppninni og höfðu flest stig. Þeir eru þá þegar ör- uggir um sæti í 15 liða keppni í Tókíó. Perú og Brazilía eiga að bítast um hitt sætið sem Suður-Amer- íkuliði er ætlað í úrslita- keppninni í Tókió. Leikur milli Iandanna fer fram í Ríó de Janeiro 7. júní og hann sker úr um hvort liðið fer til Tókíó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.