Morgunblaðið - 27.05.1964, Page 23

Morgunblaðið - 27.05.1964, Page 23
Miðvikudagur 27. amí 1M4 MORGUNBLAÐIÐ 23 Það njósnuðu fleiri en ég segir Wennerström ofursti / Ber sakir á látinn hershöfðingja Stjörnubíó sýnir nú myndina Síðasta sumarið, sem gerð er eítir samnefndu verðlaunaleikriti Tennessee Williams. Aðalhlutverk leika Elizabet Taylor, Katharine Hepburn og Montgomery Clift. Myndin hefur átt vinsældum aðfagna allsstaðar erlendis og einnig hér. — Ráðstefnur Framh. af bls. 24 skammlausa pjónustu sé hægt að veita þekn, er taka þátt í þeim, heldur og fyrir þá, sem að upp- lýsingum um þaer vinna, og öðr- um er vildu hafa not af þeim. Benda má á að hvarvetna erlend is er þetta ekkert launungamál. Blaðinu er kunnugt um etfir- taldar ráðstefnur og heimsóknir: Hinn 1. júní koma hingað Rotary-félagar frá Svíþjóð, 48 halsins, og dvelja hér 3 daga, en halda siðan áfram til Canada. Hinn 3. til 10. júni verður nor- ræn ráðstefna lagastúdenta. Þann 6.—9. júní kemur hópur sókn hingað á vegum ríkisstjórn evrópskra blaðamanna í heim- arinnar og Alþjóðaibankans. 2.—13. júnií verður fjórða ráð- stefna um endurskoðun kennslu- bóka í landafræði á vegum Evrópuráðsins og menntamála- ráðuneytisins. Dagana 12.—16. júní verður fundur iþróttafulltrúa Norður- landa hér. 21.—28. júní ráðstefna fulltrúa norrænna farfugla. Hinn 22.—26. júni verður hald- in hér aliþj'óðleg ráðstefna um fiskimál. Þann 30. júní heimsækir prins Philip, eiginmaður Bretadrottn- ingar, ísland. 30. júní koma hingað fulltrúar é vegum Krábbameinsfélagsins. Á tímabilinu 27. júní til 24. júlí verður rekinn norrænn lýðhá- skóli í Reykjavík, sem endar með viku ferðalagi um ísland. 2.—14. júlí verður haldinn hér tfjórði fundurinn um landafræði- bækur á vegum Evrópuráðsins. Dagana 6—9 júlí verður ráð- stefna þingmannanefndar NATO hér í Reykjavik. Haldin verður norræn æsku- lýðsráðstefna dagana 10. júlí til 8. ágúst. 11.—26. júli verður skandinav ísk ráðstefna bindindismanna hér. Hinn 27. júli hefst hér ráð- ítefna norrænu bændasamtak- anna NBC og stendur 2 daga. Hinn 1. ágúst efnir Landssam- band íslenzkra verzlunarmanna til ráðstefnu hér. 4.—8. ágúst 40 ára hátíð Rauða kross íslands með ráðstefnu nor rænu Rauða kross samtakanna. 9.—15. ágúst 4. norræna ráð- etefna vatnasérfræðinga. Um miðjan ágúst verður fund ur blaðafulltrúa utanrikisráð- herra Norðurlandanna hér í borg. Dagana 24.—26. verður hér ráðstefna norrænna rafmagns- verktaka. Hinn 30. ágúst verður hér þing lútherska allþjóðasamibandsins (LWF) og stendur til 5. sept. Fleiri ráðstefnur kunna að verða hér í sumar, en ekki hefur blaðinu tekizt að afla séi upp- lýsinga um þær enn sem komið er. ! Þá skal hér gotið helztu rann- sóknarleiðangra, sem hingað eru væntanlegir í sumar. Helztu erlendir rannsóknarleið angrar, sem Rannsóknarráð rikis ins hefur veitt leyfi til að stunda rannsóknir hér á landi í sumar eru þessir: Frá Englandi: Dr. George Walker, ásamt Iþremur öðrum til framhaldsrann sókna í landafræðilegum efnum. Hópur brezkra vísindamanna til bergsegulfræðilegra rann- sókna sumurin 1964 og 1965. For ingi leiðangursins er dr. R.L. Wilson. VerQa aðallega á Aust- fjörðum. Koma um mánaðamót júní—júlí og verða 3 mánuði. Náttúrurannsóknir í Glerárdal sumarið 1964. Tveir vísindamenn frá Croydon Natural History and Scientific Society. Hópur frá Nottingham. Landa- fræðirannsóknir á sunnarverðu landinu. Leiðangursstjóri er Har old Radage. Hópur frá British School Ex- ploring Society kemur hér í kynn is- og rannsóknarleiðangur, alls 80 manns. Mun aðallega dveljast við Langjökuil og Hofsjökul. Frá Frakklandi: Gert er ráð fyrir að franskir vísindamenn komi í sumar að skjóta upp mælingaeldiflaug til rannsókna á elektrónum og pró- tónum í ytra Van Allenbeltinu. Frá Belgíu. H. Tazyeff kunnur eldfjalla- vísindamaður kemur til rann- sókna á hinum nýju eldfjöllum út af Vestmannaeyjum. Frá Þýzkalandi: Hr. Gerhard Zech frá háskól- anum í Göttingen, kemur til berg segulfræðilegra rannsókna í sam ráði við Eðlisfræðistofnun H. í. Stokkhólmi, 26. maí (AP—NTB). SÆNSKA lögreglan gaf í dag nýjar upplýsingar um réttarhöld in í máli njósnarans Stig Wennerström, ofursta. Kemur þar fram, að Wennerström kveðst ekki vera eini her- foringinn í Svíþjóð, sem stund- aði njósnir fyrir erlend ríki, heldur sakar hann hershöfðingj- ann Bengt Jacobsson um njósn- ir í þágu Bandaríkjanna og NATO. Jacobsson er látinn, og getur því ekki sjálfur svarað fyrir sig, en talsmenn varnar- mála í Sviþjóð segja að enginn fótur sé fyrir ásökununum. Wennerström segir að þegar hann var flugmálafulltrúi við sænska sendiráðið í Moskvu árið 1943 og stundaði njósnir bæði fyrir Austur og Vestur, hafi Jacobsson . verið millgöngu- maður milli hans og bandarísku leyniþjónustunnar. Einnig segir Wennerström að þegar rúss- neskir yfirboðarar hans í leyni- þjónustunni fóru fram á að hann útvegaði upplýsingar um varnarmd á Norðurlöndum og afstöðu Norðurlandanna til NATO, hafi Jacobsson gert hon- um kleift að ljósmynda leyni- gögn um þessi mál. „Það má segja að framkoma hans (Jacobssons) við mig hafi verið eins og framkoma yfir- manns við undirmann", sagðl Wennerström. Hann bætti því við að hann hafi reiðst Jacobs- son og það hafi verið ein ástæð- an fyrir því að hann ákvað að njósna aðeins fyrir Sovétríkin í framtíðinni. Bo Westin ofursti, formaður sérfræðinganefndarinnar, sem rannsakar hver áhrif njósnir Wennerströms hafa á varnir Svíþjóðar, lýsti því yfir í dag að þessi ummæli Wennerströms um Jacobsson væru lýgi og upp- spuni. Jacobsson hafi aldrei ná- lægt njósnum komið, en Wenner ström væri sá níðingur, að bera slíkar ásakanir á látinn mann. Frá Bandaríkjunum. Mr. Jack A. WoJfe frá U.S. Department of the Interior til grasafræðilegra rannsókna og plön tusöf nunar. Mr. William C. Steere, frá New York Botanical Garden, kemur til jurtafræðilegra rann- sókna. Landbúnaðarráðstefna á Hellu um helgina SAMBAND ungra Sjálfstæðis- manna og Fjölnir FUS í Rang- árvallasýslu efna ti’l helgarráð- stefnu um landbúnaðarmál á Hellu n.k. sunnudag 31. maí og hefst ráðstefnan kl. 15.00 stund- víslega. Á ráðstefnu þessari munu flytja framsöguerindi Ing- ólfur Jónsson, landbúnaðarráð- herra og tveir unigir búvísinda- ■menn, þeir dr. Bjarni Helgason og dr. Sturla Friðriksson. Að loknum framsöguræðum verður 'þátttakendum skipt í umræðu- hópa, en síðan fara fram almenn- ar umræður. Ráðstefna þessi er fyrst og fremst ætluð Sjálfstæðismönnum, yngri sem éldri, í Suðurlands- kjördæmi. Þeir sem hyggjast taka þátt í henni geta tilkynnt þátttöku til skrifstofu SUS í Reyikjavík, sími 17100, Óla Guð- Kjartssonar, Selfossi, formanns FUS í Árnessýslu og Jóns Þor- gilssonar, Hellu, formanns Fjöln- ir FUS í Rangárvallasýslu. Sérstakar ferðir verða skipu- laigðar frá Selfossi á ráðstefnuna og gefur Óli Guðbjartsson allar upplýsingar um þær. Ungir sjálf stæðismenn i Suðurlandskjör- dæmi eru eindregið hvattir til þess að fjölmenna á Hellu n.k. sunnudag. Árni Grétar Finnsson, formað ur Sambands ungra Sjálfstæðis manna mun setja ráðstefnuna n:eð stuttri ræðu. S jálfvirk símstöð sett upp á Húsavík Húsavík 25. maí. f DAG komu hingað fjórir menn frá Landssímanum, þrír íslend- ingar og Svíi, til þess að setja upp sjálfvirka símstöð hér á Húsavík. Áætiað er að uppsetn- ing stöðvarinnar muni taka 4 mánuði, er hún er komin í gagn- ið eiga Húsvíkingar, Reykvík- ingar og Akureyringar að geta valið símanúmer á stöðunum milliliðalaust. — Fréttaritari. — Minning Framh. af bls. 15 hjá þeim, sem bezt þekktu Freyju að hún var ekki lengur heil heilsu, þó mun engan hafa grun- að að hún sem var aðeins 33 ára gömul, ætti svo skammt eftir ó- lifað. En vegir guðs eru órann- sakanlegir. Eg bið góðan guð að sty^kja móður Freyju, sem var svo fjarri heittelskuðu barni sínu síðustu stundir þess og hefur nú misst svo mikið. Þeim, sem vildu senda móður hennar samúðarkveðju, skal bent á það, að móðir hennar heitir Margarethe Búrmeister, og himilisfang hennar er: HAMBURG-SASEL SASELBECKSTRASSE 86. Freyja Búrmeister var hjúkrun arkona atf lífi og sál, nærgætin og elskuleg við sjúklinga sína. Allir, sem nutu umönnunar henn ar munu ávallt minnast hennar með þakklæti. Hildigard Kolbeinsson. Síld til Akraness Akranesi, 26. maí. JÖRUNDUR II. kom hingað inn í dag með tæpar 100 tunnur xaf síld, sem landað var í bræðslu, og Höfrungur III. með 400 tunn- ur ag góðri síld, sem verður hraðfryst. Skírnir fékk 100 tunn- ur síldar. Síldin sú er smá, svo að hann heldur sjó og kemur ekki inn. — Oddur, I wiiiii/ii^ icmh i guua I veðrinu á þriðjudag niðrt við i höfn. Svarta skipið til vinstri . er þýzka eftirlitsskipið (,,Fischereischutzboot“) Meer ! katze (Marköttur), en ljósa j | skipið til hægri er enskur vig- t dreki. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.). - Kinverjár Framh. af bls. 1. var gerð, og að Bandaríkjamenn hafi með eftirlitsflugi sínu yfir stöðvar Pathet Lao á Krukku- sléttu stigið fyrsta sporið í átt- ina til beinnar aðildar að hern- aðaraðgerðunum. í tillögu Breta um að boða til ráðstefnu er haldin í Laos og að hana sitji sendiherrar ríkjanna 14 í Vientiane, sem eru manna kunnugastir um ástandið þar. Varðandi afskipti Kínverja af aðgerðum kommúnista í Laos, segir Chen Yi, utanrikisráða, í svari sínu til Breta að því mið- ur sjái kínverska stjórnin sér ekki fært að verða við þeim til- mælum. Segir Chen Yi að Bretar mistúlki orsök óeirðanna í Laos. Bardagar hafi brotizt út að nýju á Krukkusléttu eftir að her stjórnarihnar og hægrisinna réðst á stöðvar kommúnista, segir ráðherrann. Árás þessi mis tókst, og kommúnistum tókst að ig segir ráðherrann að ógnaröld hrekja stjórnarherinn frá Krukkusléttu. Því miður geta Kínverjar því ekki orðið við psk Breta um að reyna að stöðva framsókn kommúnista.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.