Morgunblaðið - 24.06.1964, Blaðsíða 3
Miðviku'dagur 24. juní 1964
MORGUNBLAÐIÐ
HÉR á Sig'luíirði tóiku
nokkrir vaskir drengir sig
saman fyrir skömimu og
byggðu sér félagsheimili úr
staurum úti í sjó. í»að er
næstum fullbúið nú og heÆ-
ur verið tekið í rnotkun. Hús-
ið er 4 herbergi og gangur
niðri, auk tveggja herbergja
í risi. Til flutninga til og frá
húsinu, sem drenigirnir nefna
Sjávarborg, hafa j>eir litla
Árni gjEi'dkeri, sækir tvo af félögiun sínum.
Sjávarborg
á Siglufirði
kænu. Ég er 80 kg að þyngd,
en þeim óx ekkert í augurn
að ferja mig út í Sjávarborg,
þegar ég heimisótti þá á dög-
unum.
Strákarnir stofnuðu í byrj-
un með sér félagssikap í þeim
tilgangi að reisa hús þetta,
þar sem þeir gaetu stytt sér
stundir. Lög félagsins voru
ekki mjög ftókin, enda að-
eins í gildi meðan Sjávar-
borg var í bygigingu. í>au
hljóða svo: Allir skulu vinna
að byggingunni meðan á verk
inu’ stendur, en mæti einhver
félagsmanna ekki til vinnu,
skal hann greiða kr. 2,00 í
sjóð, sem nota skal til að
kaupa fyrir nagla og aðrar
byggingarvörur. Árni, gjald-
keri, sagði mér á ferjunni á
leiðinni út í Sjávarborg, að
nauðsynlegt hefði verið að
meðl.imimir fengju sér frí
við og við, til þess að eitt-
hvað kæmi í sjóðinn. Ann-
ars kvað hann mest af bygg-
ingarefninu hafia fengizt í
fjörunni og af öskuha-ugun-
um, sem eru þama í grennd-
inni.
Með-limir félagsins hafa að
sjálfeögðu með sér verka-
skiptin-gu. Kristján er for-
stjóri, arkitekt, trésmíða-
meistari og uppfinnin-gamað-
ur, Árni gjaldkeri, Ma-gnú-s
kokkur, Árni kyndiari, Björn
aðstoðarm-aður, Kjartan
hjálparko-kkur, Þórður að-
stoðarmaðuir, Bjöm aðstoðar-
mað-ur og Guðbrandur vél-
sögn. Guðbrandur notar ekki
vélsög við starfa sinn, beld-
ur hefur verið skírður nafni
þess-u, þar sem vinnubrögð
hans í höndum þykja líkjast
vélsög. S.K.
Ferjan á leið
(Ljósm. Steingr.
Sjávarborg með eigendurnaá þaki. Talið frá vinstri: Magnús, Ámi, Björn, Kjartan, Þórð-
ur, Björn, Guðbrandur, Ámi og KrLstján.
' w, a 'í'
Sigurður Magnússon endur-
kosinn form. Kaupmanna-
samtakanna
AÐALFUNDUR Kaupmanna-
samtaka Islands var haldinn í
Reykjavík, fimmtudaginn 11.
þ.m.
Formaður samtakanna Sigurð-
ur Magnússon setti fundinn og
tilnefndi sem fundarstjóra Sig-
urð Óla Ólafsson, alþingismann
á Selfossi, en fundarritara Einar
Ólafsson, kaupmann á Akranesi.
Formaður samtakanna flutti
þessu næst yfirlitsræðu um
störf samtakanna á liðnu stai-fs-
ári og benti á þau verkefni sem
úrlausnar biðu og Kaupmanna-
samtökin þyrftu að vinna að í
næstu framtíð. Þannig mætti
ekki lengur dragast að endur-
skoðun löggjafar um verzlunar-
atvinnu færi fram og breytingar
á henni gerðar til samræmis við
breyttar aðstæður og til þess að
gera réttarstöðu kaupsýslu-
manna ákveðnari og tryggari.
Ennfremur bæri að vinna að því
að stofnlánadeild verði komið
upp fyrir verzlunina, hliðstætt
því sem aðrir atvinnuvegir
hafa. Að lokum hvatti hann
kaupmenn eindregið til þess að
hyggja vel að öllum nýjungum
í verzlunarrekstri og færa sér í
nyt reynslu annara þjóða í þess-
um efnum, ef það mætti verða
til þess að auka framleiðni
verzlunarinnar, bæta þjónustu
Sigurður Magnússon
við neytendur og draga úr dreif-
ingarkostnaði, en einmitt með
þessu gætu kaupmenn lagt drjúg
an skerf til þess að varðveita
Útvarpið og afturgangan
MÖRGUM blöskraði það, að i
hverjum fréttatímanum af öðr-
um í ríkisútvarpinu var ítarlega
skýrt frá afturgöngu kommún-
ista. Hefur þó útvarpið yfirleitt
reynt að gæta þess að skýrt væri
hóflega frá pólitískjim samkom-
um og aðgerðum stjórnmála-
flokka. En nýr háttur virðist nú
vera upp tekinn og ætti sam-
kvæmt því að margendurtaka, ef
stjórnmálaflokkar halda sam-
kundur eða fundi og greina sem
ítarleigast frá öllu, sem þar á
fram að fara, ásamt nákvæmum
timamörkum. Ekki fer heldur á
milli mála, að ríkisútvarpið hafi
tekið trúanlegar upplýsingar
„kommúnista" um fjölda þeirra,
sem í göngunni voru, og ættu
fréttamenn þó að hafa nokkur
kynni af sannleiksgildi slikra
upplýsinga úr þeim herhúðum.
Reiði kommúnista
Kommúnistar voru að vonum
sárgramir út af því, að allur al-
menningur gerir stólpagrín að
göqgutilburðum þeirra og öllum
fíflalátunum í sambandi við
afturgönguna. Fjöldi manns ók
til móts við afturgönguna og
skellihlógu að vonum. Á útifund-
inum, sém haldinn var í göngu-
lok, voru nokkur hundruð hnípn-
ar sálir, gamli kommúnistakjarn-
inn og nytsömu sakleysingjamir,
sem aldrei láta sig vanta, þegar
kommúnistar þurfa á þeim að
halda. Hinsvegar gerðu allmarg-
ir sér það til gamans að horfa
á þetta lokaatriði sirkusins;
menn stóðu auðvitag langt frá
„fundarmönnunum“, svo að
menn héldu ekki að þeir til-
heyrðu lappamenningarfélaginu.
þann árangur sem náðzt hefur
í efnahagsmálum þjóðarinnar a
undanförnum árum og stuðlað
að auknum hagvexti.
Að lokinni ræðu formanns
flutti Sveinn Snorrason skýrslu
framkvæmdastjórnarinnar um
störf stjórnarinnar á liðnu starfs
ári sem verið hefur eitt umsvifa-
mesta og erilsamasta í sögu sam
takanna.
Viðskiptamálaráðherra, dr
Gylfi Þ. Gíslason heimsótti fund
inn og hélt ræðu um efnahags-
málin, þróun þeirra að undan-
förnu og horfur. Hefur úrdrátt-
t;r úr ræðu ráðherrans verið birt
ur í dagblöðum.
Á fundinum ríkti mjög mikill
einhugur um störf Kaupmanna-
samtakanna og létu fulltrúar
aðildarfélaganna, en þau eru 17
að tölu auk einstaklinga, í ljósi
eindreginn stuðning við þau mál,
sem stjórnin hefur haft til með
ferðar á síðastliðnu starfsári.
Fulltrúi einstaklinga í stjórn
Kaupmannasamtakanna var end
ux-kjörinn, Sigurður Óli Ólason,
Framhald á bls. 17
STAKSTEI^AR
Tillaga að skjaldarmerki til
handa „Samtökum hernámsand-
stæðinga“.
Fíflalætin halda ennþá áfram.
Síðasta tiltækið er það að ráð-
ast á lögrciS'Iustjórann í Reykja-
vík fyrir það, að lögreglan hef-
ur gefið upplýsingar um fjölda
þeirra, sem í afturgöngunni voru.
Segjast kommúnistar ætla að
leggja fram lista meg nöfnum
þeirra, sem fóru suður til Kefla-
víkur. Sjálfsagt geta þeir fengið
200 komúnista til að skrifa nöfn
sin á slíkan lista, þótt ekki hafi
nema helmingur þeirra nennt
að labba sunnan úr Keflavík. En
alveg er óþarft fyrir dauðþreytta
mennina að fara nú enn á stjá
og labba á milli 200 manna með
beiðni um uppáskrift, því að
sönnunargögnin í þessu máli
liggja fyrir. Þannig birti Morg-
unblaðið í gær skýra loftmynd
af afturgöngunni allri. Á frum-
myndinni er mjög auðvelt að
telja fjölda göngumanna og
jafnvel á prentaðri myndinni í
blaðinu. Tala þeirra er 111 með
lögreglumanninum á mótorhjól-
inu og hún breytist ekkert við
það, þótt safnað sé uppáskrift-
um. En meðal annarra orða:
hvers vegna verða kommúnistar
ekki við þeirra áskorun Morgun-
blaðsins að telja sjálfir fjöldann
á myndinni? Það var þeim marg-
boðið á blaðamannafundi í gær,
en harðneituðu.