Morgunblaðið - 24.06.1964, Side 21
Miðviku'dagur 24. júní 1964
MORGU N BLAÐIÐ
21
Til sölu
4 — 5 herb. íbúðarhæöir
íbúðirnar eru í algerum sérflokki, 110 ferm. 4—5
herb. að stærð í þríbýlishúsi á bezta stað við Mela-
braut á Seltjarnarnesi. Stórkostlegt útsýni, 1000
ferm. lóð. íbúðirnar eru allar með sér þvottahúsi,
sér hitalögn, sér inngangi og bílskúrum, íbúðirnar
verða seldar fokheldar og verða tilbúnar til afhend-
ingar 1. ágúst nk. — Teikningar til sýnis á skrif-
stofunnL
Skipa- og iasteignasalan
Lóðarsíandsetning
Get bætt við nokkrum lóðum til standsetningar.
SHtltvarpíö
Miðvikudagtir 24. júni.
7:00 Morgunútvarp.
7:30 Fréttir.
12:00 Hádegisútvarp.
13:00 „Við vinnuna**: Tónleikanr.
15:00 Síðdegisúvarp.
18:30 Ix>g úr söngleikjum.
18:50 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Jónsmessuhátíð bænda:
Dagskrá tekin saman af Agnari
Guðnasyni.
a) Baldur Baldvinsson bóndi á
Ófeig^stöðum flytur ferða-
þátt:
Þingeylngar í I>ýzkalandi.
b) Jóna Þórðardóttir húsfreyja
á r^axamýri segir frá:
Sveitalífið er dásamlegt.
e) Jón Bjarnason í Garðsvík á
Svalbarðsströnd talar: Ldtið
um Dúskap, meira um kveð-
skap.
d) Elín Aradóttir húsfreyja á
Brún i Reykjadal flytur frá
sögu: Orlofsferð, andleg upp-
tyfting.
e) t>orsteian Sigurðsson bóndi á
Vatnsleysu, formaður Bún-
aðarfélags íslands, flytur
stutta.ræðu: Jónsmessan, há-
tíð sveitafólksins.
Ennfremur fáein sönglög.
21:00 íslenzk tónlist: Lög eftir Elsu
Sigfúss.
21:15 „Businn Kadraba og latínustíll-
inn hans*’ smásaga eftir Jaro-
slav Hasek.
4ra herb. íbúð
Til sölu er nýleg 4ra herb. íbúð á 2. hæð í sam-
býlishúsi við Álfheima. — Stærð ca. 100 ferm.
Tvöfalt gler. Er í ágætu standi.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
íbúð til sölu
Við Sólheima er til sölu í 3ja íbúða húsi hæð, sem
er 153 ferm. 2 samliggjandi stofur, 3 svefnherbergi,
eldhús með borðkrók, bað o. fl. Á hæðinni er og
sér þvottaliús. Uppsteyptur bílskúr fylgir. Hæðin
er nú þegar fokheld. Mjög gott útsýnL
ÁRNI STEFÁNSSON
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
FRÓÐI BRINKS PÁLSSON
garðyrkjumaftur — Sími 20875.
STÚLKA
óskast til léttra skrifstofustarfa. Tilboð, merkt:
„Miðbær — 4638“ sendist afgr. Mbl.
Vilborg Dagbjartsdóttir þýðir og
les.
21:30 Danslög frá Vínarborg: Max
Greger og hljómsveit hal s
leika.
21:45 Frimerkjaþáttur.
Sigurður Þorsteinsson flytur.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Kvöldsagan: „Örlagadagar fyrír
hálfri öld'4 eftir Barböru Tuch-
XIV. — bókarlok.
Hersteinn Pálsson les.
22:30 Lög unga fóiksins.
Ragnheiðhr Heiðreksdóttir
kynnir.
23:20 Dagskrárlok.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
FLUGNÁM
Lærið að fljúga hjá elzta og fullkomnasta flugskóla landsins. — Getum bætt við
nokkrum flugnemum vegna komu nýrra k ennsluflugvéla. — Innritun daglega.
Flugskólinn ÞYTUR. — Sími 10880 — Reykjavíkurflugvelli.
Nýja efniS, sem komið er 1
stað iiðurs og dúns i sófapúða
og kodda. er Lystadun.
Lystadun ér ódýrara, hrein-
legra og endingarbetra, og
þér þurfið ekki fiðurhelt
léreft.
Kurlaður Lystadun er ákjós-
anlegasta efnfð f púða og
kodda.
HALLDOR
JÓNSSON H.F.
landsmálafélagið Vörður
SUMARFERI VARDAR
Sunnudagimt 28. júní 1964
Að þessu sinni er förinni heitið um hinar breiðu byggðir Árnessýslu, og ekið eins og leið liggur fyrst
upp í Svínahraun og farinn nýi vegurinn um Þrengslin og komið á Ölfusveginn skammt frá Hlíðar-
dal og ekið inn Ölfus. Hjá Hveragerði er svo snúið austur á bóginn að Selfossi. Frá Selfossi er haldið
austur Flóann, hjá Skeggjastöðum, og á svonefndu Flatholti skiftast vegir og verður farið um Skeið-
in framhjá Skeiðháholti og Vörðufelli hjá Reykj um og Skeiðárréttum og haldið upp á Sandlækjar-
holt framhjá Stóru Laxá að Flúðum. Frá Flúðum liggur svo leiðin upp Hreppa og ekið hjá Brúarhlöð-
um yfir Hvítá og haldið að Gullfossi. Frá Gullfossi er svo haldið að Geysir. Frá Geysir verður svo far-
inn hinn nýi vegur út í Laugardal, og ekið eftir Laugardalsbyggðinni að endilöngu og komið að Laug-
arvatni. Þá verður ekið til Þingvalla og liggur svo leiðin yfir Gjábakkahraun hjá Hrafnagjá og komið
í Þingvallasveit og ekið svo Mosfellsheiði til Reykjavíkur.
Kunnur leiðsögumaður verður með í förinni
Farseðlar verða seldir í Sjálfstæðishúsinu (uppi) og kosta kr. 275,00 (innifalið í verðinu er miðdeg-
isverður og kvöldverður). Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishúsinu kl. 8 árdegis, stundvíslega.
Stjórn Varðar.