Alþýðublaðið - 14.07.1920, Side 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
H.Í
ræður nokkrar stúlkur til síldarvinnu á Reykjaríirðí
næst komandi síldarútgerðartímabil. — Upplýsingar
því viðvíkjandi á skrifstofu félagsins á Vesturgötu 5.
Reykjavík 12. júlí 1920.
Hi. Eg-g-ert Ólafsson.
Xili konangnr.
Eftir Upton Sinclair.
Þriðja bók:
Pjónar Kola konnngs.
(Frh.).
„t seytjánda bás. Þeir voru þar
«llevu — Rafferty, Flanagan gamli
og Svíinn Jóhannson. Þeir eru
nær dauða en lífi •— gátu ekki
talað, segja þeir. Þeir vilja eng-
um Ieyfa að koma nálægt þeim“.
Fleiri raddir heyrðust; en sú
sem svarað hafði, vakti eftirtekt
Jessie.
„Þeir hafa þá inni í vogarskýl-
inu, og konurnar heimta að fá að
vita, hvernig mönnum þeirra líð-
ur, en þeir vilja ekki segja það.
Þeir reka þær aftur eins og
hundal'
Hávaði og grátur heyrðist úti
fyrir, Hallur fór út, og kom
augnabliki síðar inn með unga
stúlku í slitnum bómullarkjól og
mjög greinilega rautt hár. Hallur
studdi hana, og hún hné niður á
stól, huldi andlitið í höndum sér
og grét.
Jessie horfði á hana. Hún sá,
hve unga stúlkan var æst, og
kendi í brjóst um hana, en þó
var það einhver innri rödd, sem
andæfði. Hún kærði sig ekkert
um það, að taka nærri sér það,
sem hún gat ekki ráðið bót á.
Auðvitað þjáðust þessir veslingar,
en allir urðu að þjást, við því
varð ekki gert. Æsing ungu stúlk-
unnar var að nokkru leyíi sprott-
in af reiði, það fann Jessie, og
gremja hennar óx. Það var eins
og persónuleg ákæra á ungu stúlk-
una. Ekki ósvipað jafnaðarmensku-
ástríðu Halls, sem kom henni
bæði í vandræði og gerði hana
ráðþrota.
„Mary", sagði Hallur og reyndi
að sefa hana, „læknarnir munu
gera það, sem þeir geta, fyrir
mennina. Þeir geta ekki látið
konurnar vera að flækjast fyrir
sér".
„Ef til vill geta þeir það ekki,
Joe, en það er ekki þaðl Þeir
hafa komið upp með lík, sem
fundust þar, sem sprengingin varð
— í smá bútum. Og enginn fær
að sjá þau. Er það líka vegna
læknanna? óaei, það er til þess,
að þeir geti iogið til um það, hve
margir hafi farist. Þegar þeir telja
þá gera þeir einn mann úr þrem-
ur til fjórum mönnum. Og afþví,
verða konurnar æfar. Eg sá kon-
una hans Zamboní reyna að kom-
ast inn í skúrinn, en Pete Hanún
greip í bringu hennar og hratt
henni aftur á bak. Eg vil fá
bóndann minn, æpti hún. Hvað
ætlarðu að gera með hann? Hann
er í smábútum. Komdu þá með
bútana! Hvaða ánægju ætli þú
hefðir af þeim? Ætlarðu að éta
þá?“
Rósa, og jafnvel Jessie, æptu
upp yfir sig af hryllingi og reiði.
Hallur studdi hendinni vingjarn-
lega á handlegg Maryar. „Það er
ekkí svo ilt, Mary, þeir ná að
minsta kosti mönnunum upp úr
námunni".
„Já, ætli það nú? Ef til vill
loka þeir sumum námuhlutunum
neðanjarðar. Æ, þið hefðuð átt
að heyra frú Zamboni æpa, ves-
linginn, hálf stund er liðin, og
hún hefir ekki einu sinni fengið
að vita, hvort, maður hennar er
lífs eða liðinn!"
Við Elliðaárnar.
(Klakahöggið.)
Eg er að mylja mold og klaka,
moka og höggva ailan daginn,
starf mitt verður alt að engu,
erfiða eg fyrir bæinn.
Verkfræðinga valin þekking
í vetur hefir orðið úti —
afturgengin er hún orðin
aðdáun hans Jóns á Knúti.
i af /<?.
Lítil lóð
við eiiwiverja aðalgötuna
óskast til kaups. — Upp-
:: lýsingar í síma 951. ::
Nýkomnar
tvöfaldar harmonikur.
Hlióðfærahús Rvíkur.
Kaupakona óskast á fyr-
irmyndarheimili í Árnessýslu, Uppl.
á Vitastfg 16.
Vill nokkur lána fátækum
húsnæðislausum en áreiðanlegum
manni 6000 kr.? til að koma upp
yfir sig skýíi. Tilboð merkt: Skýli,
sendist Alþbl. fyrir 20. þ. m.
Budda með peningum tap-
aðist í miðbænum. Skilist á aígr.
Alþbl. gegn fundarlaunum.
Einhleypur maður óskar
eftir herbergi nú þegar. Upplys-
ingar á afgreiðslu Alþbl.
Tómar kjöttunnur kaupir Kaup-
félag Reykjavíkur (Gamla bank-
anum).
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friðriksson.
PreatsmiójaH Gutenberg.