Morgunblaðið - 09.10.1964, Blaðsíða 18
18
MORGU NBLAÐIÐ
Föstudagur 9. okt. 1964
„Hver noidur sitt handklæði“
STEiNER
hr ndþurrkuskáparnir
með pappírsþurrkunum.
Tryggja fyllsta hreinlæti.
Lækka handklæðakostnaðinn.
Gjörið svo vei að leita upplýsinga.
TKmmmmi
APPIRSVORUR"*
SKÚLAGÖTU 32. — SÍMI 21530.
Lokað
til kl. 14 í dag.
' * *
AscfeSr ölafsson
heildverzlu.n
t
Systir mín
JÓ.NÍNA HANNESDÓTTIK
Freyjugötu 5,
andaðist 7. þ m. ; Borgarspítalanum.
F. h. systkina og annarra vandamanna.
Jón Hannesson.
Öllum þeim er sýndu vinsemd og vinarhug með nær-
veru sinni og minningargjöfum við andlát og jarðarför
fósturföður míns
ÞORSTEINS ÞORSTEINSSONAR
frá Hjörsey,
íæri ég innilegustu þakkir.
Hjörleifur Sigurðsson.
Innilegar þr.kkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför móður minnar og tengdamóður
SOFFÍU ÞÓRÐARDÓTTUR
Magnea Sjöberg, Friðrik Jesson.
Hjartanlega þckkum við auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför
EINARS GÍSLASONAR
trésmiðs.
Gísli Einarsson, Sigurjón Einarsson,
og aðrir vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa
LÁRUSARJÓNSSONAR
Sólvallagötu 60.
Sveina Lárusdóttir,
Jón Lárusson,
Pétur Lárusson,
tengdabörn og barnabörn.
Fimintugtir i gær:
Jakob V. Hafstein
ÞAÐ var eldsnemma vors, árið
1921, að Havsteensfjölskyldan
steig á land á Húsavik og hasl-
aði sér starfsvöll í ókunnum akri.
Hjónin, þrír drengir o>g þrjár
stúlkur, sú yngsta reifabarn,
voru leidd til stofu heima hjá
mér. í stofunni ríkti vandræða-
þögn ókunnugra. Heim.afólk
horfði feimið á feimið aðkomu-
fólk og allir voru lagðir á
kvarða. Fimm ára heimamaður
áttaði sig fyrst á hlutunum og
sneri sér að 5 ára aðkomumanni
og mælti: „Viltu koma út og at-
ast?“ Þá brast ísinn og þá hófst
áratuga vinfengi og samfylgd
þessara tveggja stóru fjölskyldu
hópa. Jakob og Jóhann voru á
aldur við mig og frá þessari
stundu fylgdumst við að í leik,
í starfi og í skólabekk um 14 ára
skeið.
Á háskólaárum skildu leiðir í
bili og lítil voru bein samskipti
okkar í milli í ólgusjó lífsbarátt-
unnar, er fótfestu var ieitað, enda
vettvangir óskildir. Aldrei slitn-
aði þó þráðurinn, er í frumæsku
var bundinn og nú eftir aðal
lífssprettinn, erum við að finn-
ast aftur í blómagarði minning-
anna frá æsku- og skólaárunum.
Jakob Hafstein var góður æsku
félagi og skólafélagi. í engum
manni einum héfi ég fundið jafn
marga og fjölbreytta þræði and-
iegra og líkamlegra íþrótta. í
æsku var hann síiðkandi knatt-
spyrnu, frjálsar íþróttir, skíða-
og skautaíþróttir og yfirleitt all-
ar íþróttir, sem reyndu á líkam-
legt algervi Og manndóm, og
fram á síðustu ár var hann starf
andi í stærsta íþróttafélagi höfuð
staðarins. Hann var hvatamaður
og frumherji að stofnun og starfi
Völsunga á Húsavík. Hann gaf
því félagi nafn og þá veit maður
hvaða bókmenntir hann las þau
árin.
Snemma fór Jakob að kemba
Búðarána og Botnsvatn með
öngli eftir litlum lontum og
stærri. Bryggjan á Húsavik var
hans leikvangur einnig með
bambusstöng í hendi og á litlum
kænum var oft farið á handfæri
út fyrir bökuna og stundum var
beitt línu með mörgum önglum
lögð í sjó. Hræddumst við stund-
um í bjarta hrefnuna, er hún
í torfum klauf yfirborð sjávar-
ins með horni sínu og ávölu baki,
en ekki fékk heimurinn að vita
um þann beig og lífróður að
landi var skýrður á annan hátt.
Áhugi Jakobs á veiðiskap batt
hann órjúfandi böndum við þann
helming allra Húsvíkinga, sem
sjóinn stunduðu og vinfengi
þetta hefzt nú í þriðja ættlið
meðal sjómanria frá Húsavík.
Þegar æðri skólaganga hófst
tóku sprotar andlegra íþrótta að
festa ræitur í brjósti Jakobs og
þar var hann næsum jafnvíg<ur
á öllum sviðum. Hann er meist-
ari í meðferð íslenzkrar tungu
í bundnu og óbundnu máli.
Hendur hans handleika ritstílinn,
svartkrítina, vatnslitaburstann
og olíulitakústinn með þeim hag
leik og snyrtimennsku að ávalt
hefur valdið mér öfund. En vel
hefi ég unnað Jakobi þessara
hæfileika, enda hefur hann jafn-
an miðlað mér nokkru af „produ
kti“ sínu af meðfæddu örlæti.
Jakob var ávalt góður skékmað-
ur, allt frá drengjakeppni miili
Stangbekkinga og Beinbekkinga
á Húsavik fyrir 1930, gegnum
símakeppnir menntaskólaáranna
allt til einmennings- og fjöl-
keppna við alþjóðameistara síð-
ari ára. Þá minnist ég glöggleiga
fyrsta sigurs Jakobs í Thaliu-
heimi í leikfimissal barnaskól-
ans á Húsavík um 1924, en þar
var þá af ungu fólki í Ung-
mennafélagi Húsavíkur flutt íeik
ritið „Strikið" eftir Pál J. Ár-
da.1, skáld. Jakob kemur hlaup-
andi inn á sviðið með fasi miklu:
„Skipið kemur, skiipið kemur,
kaupmannsins vörur með.“ Kaup
maður svarar: „Þú lýgur** og
Jakob svarar aftur með miklum
þjósiti: „Og þú lýgur, ég hef
skipið séð“. Lerngra var ekki það
hlutverk, en vel fannst mér hon-
um takast túlkun þess. Auk
nefndra andlegra íþróta, þá held ,
ég að Jakob hafi bezt gert skil
sönglist, tónlist og lagasmíði,
enda tvitugur landskunnur fyrir
þátttöku í MA-kvartettinum.
Þessari upptalningu læi ég nú
lokiðt þótt mörgu fleira mætti
hreyfa.
Eflir nýafstaðna endurfundi
við æskuvin er mér ljóst, að
Jakob er hamingjumaður. Jakob
á innri sálarfrið, tákn lífsham-
ingju. Jakob er alltaf í góðu
skapi, þótt blæða kunni innri
und. Það sýnir karlmennsku
hans. Jakob á alltaf holl ráð og
telur ekki eftir sér handtök til
liðsinnis þeim, sem til' hans leita.
í ólgusjó lífsbaráttunnar hefur
hann ávalt verið hinn glaði og
gleðiveitandi, þótt á bæði borð
innri sálarstyrk. Það er hans arf
leifð frá els-kulegum og göfug-
um foreldrum. Jakobi vini mín-
um, samhentri konu hans frú
Birnu og mannvænlegum og
elskulegum börnum þeirra færi
ég óskir vel-farnaðar og heilla á
þessum degi frá mér og mínum
og frá öllum þeim vinum Jakobs,
sem ekki ná að þrýsta hönd
hans á þessum tímamótum. Vale,
vale, vinur kær.
Stefán Bjarnason, verfr.
IMauðungaruppboð
annað og síðasta, á neðri hæð húseignarinnar nr.
107 við Bústaðaveg, hér í borg, talin eign Þóru
Ásgeirsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri miðviku-
daginn 14 október 1964, kl. 2.30 siðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Lokað
frá kl. 9—3 vcgna jarðarfarar.
Guðrúnarbúð
m
Verkamenn óskast
til starfa hjá Kópavogskaupstað. Uppl.
hjá verkstjórunum í síma 40955 og 40584
frá kl. 7—8 næstu kvöld.
Konur — Kópavogi
Kona óskast í vinnu hálfan daginn, fyrir
hádegi. — Uppl. að Mnghólsbraut 36.
Tíl sölu
Falleg 5 herb. íbúð í tvibýlishúsi í Hliðunum.
Selst tilbúin undir tréverk.
*
Olafur Þorgrímsson
hæstaréttarlögmaður.
Austurstræti 14 — Sími 21785.
Upplýsíngafóórcusta
Bandaríkjarcna
óskar eft.ir að ráða starfsfók. Góð kunn-
átta í ensku og vélritun nauösynleg.
Æskilegt, að umsæjandi hafi dvalið
í Bandaríkjunum. Umsóknareyðublöð af-
hendast í Upplýsingaþjónustunni, Haga-
torgi 1, frá k. 9—18 næstu daga.