Morgunblaðið - 30.01.1965, Side 5
Laugardagur 30. janúar 1965
MORGUNBLAÐIÐ
5
4
- Eyborg sýning á Bogasal -
í dag er opnuð í Bogasaln-
um í Þjóðm.injasafninu mál-
verkasýning Eyborgar Guð-
mundsdóttur. Sýningin ver'ð-
ur opin frá 30/1. — 7/2, og
alia dagana frá ki. 2 — 10.
Þegar komið er inn í sýn-
ingarsalinn blasa við manni
björt og hrein málverk, sem
öll eru byggð á geometriskum
formum. Á sýningunni eru 35
verk, sem flest heita ærið
torkennilegum nöfnum. Sýn-
ingarskráin, sem að hálfu levti
er á frönsku, er hin mesta
gersemi, prýdd fjöimörgum
myndum Eyborgar. Þar er að
finna fróðlegt ávarp Georges
Foimer um geometriska mynd
list, en hann segir þar m.a.
um myndlist Eyborgar: „f
myndbyggingunni er jafnvægi
og dirfska, og hún leiðir
aldrei til þess, sem við bjugg-
umst við, heldur til annarrar
og öruggari lausnar, sem við
föliumst á.“
Þá skrifar Henri Ghopin,
ritstjóri þekkts listatímarits
i París, bréf til Eyborgar, þar
sem kennir margra fróðlegra
og forvitnilegra grasa.
Tímarit Monsiur Chopins,
......... ^
segir Eyborg, að fjalli um hin
ar nýju listastefnur, Avant
Garde, bæði í rituðu máli og
myndlist.
Henri Chopin segir í lok
bréfsins: „Farið yðar eigin
leiðir, leikið yðar og verið
klaufsk, látið vísindunum eft-
ir að skjátlast ekki. Satt að
segja, já, ég hef það vissulega
á tilfinningunni, þegar ég
horfi á það, sem þér gerið, að
þér séuð ein af þeim, sem
munu taka þátt i arkitektúr
framtíðarinnar.“
Sem fyrr segir verður sýn-
ing Eyborgar opin í Bogasaln-
um frá kl. 2 — 10 dagana 30.
janúar til 7. febrúar.
GAMALT og gott
Blight skipstjóri á Bounty,
|>ótti harður í horn að taka, jafn-
vel á þeirra tíma mælikvarða.
Hann notfærði sér hin ströng-
ustu ákvæði sjólaganna út í ystu
sesar, ef svo bar undir, þar á
meðal refsaði hann með „níu hala
kettinum“, en þó var honum ekki
alls varnað í mannúð. Hann var
nefnilega sá fyrsti, er fram-
kvæmdi hugmyndina um þrjár
vökur, á skipi sínu, og þótti
slíkt mikill „luxus“ me'ðal sjó-
manna. Ekki var þetta þó gert
af einskærri mannúð. Blight sá
nefnilega, að með þessu fyrir-
komiulagi náði hann meiri vinnu
út úr skipverjum, meirf reglu og
betri skipsstjórn.
Smdvarningur
•Á-; • ■
Agræðsla hornhimnu heppnast
belur ef gefandi og sjúklingur
eru í bló'ðflokki, sem eiga saman.
eru í blóðflokkum, sem eiga
saman.
25. des. voru gefin saman af
séra Óskari J, Þorlákssyni ung-
frú Sigurbjört Gunnarsdóttir og
Örn Sigurðsson. Miklubraut 72.
(Studio Guðmundar, Garðastræti
8. Rvík).
65 ára var í gær Guðlaugur G.
Guðmundsson, bóndi Stóra-Laug
ardal, Tálknafirði.
Spakmœli dagsins
Peningarnir eru þér vinnu-
kona, ef þú kannt með þá að
fara, annars eins og hjákona.
Horaz ((65—8 f.Kr.).
Rómverzkt skáld.
Laugardagsskrítlan
Dómarinn: „Lögregluþjónninn
ber, að þér hafið verið drukkinn
og reynt að klífa upp í ljóskers-
staur.“
Sökudólgur: „Já, sannarlega,
yðar velborinheit, sannarlega
gerði ég það, en það höfðu nú
verið þrír krókódílar á hælunum
á mér næstum alla nóttina, og
satt að segja voru þeir farnir að
fara déskoti í taugarnar á mér.“
VÍSIJKORiM
Eg þekki mína mörgu galla,
mér þeir fylgja allar stundir.
Ég er alltaf fús að falla
í freistni, ef að svo ber undir.
Stefán Stefánsson,
Siglufirði.
ÍFrá VERND: Skrifstofa fé-1
lagssamtakanna er flutt á 4
Smiðjustíg 7, gengið inn frá/
Hverfisgötu. *
10 ára afmæli sœnudagaskóla
Sunnudagaskólinn við Holtaveg á 10 ára afmæli nú um helgina. Hann hóf starf sitt 30. jan. 1955
og voru þá mætt 200 börn. Fjöldi barna hefur lagt þangað leið sína á liðnum árum. Sunnudagaskól-
inn býður öll börn velkomin kL 10:30 Uh. á morgun tsunnudag). Myndin sýnir sunnudagaskóla-
börnin 20. marz 1955.
Árshátíð
Stangveiðifélags Reykjavíkur verður haldin í Sig-
túni við Austurvöll laugardaginn 6. febrúar 1965
og hefst kl. 18:00. — Aðgöngumiðar verða seldir á
skrifstofu félagsins, Bergstaðastræti 12B, 30. og 31.
janúar frá kl. 14:00—18:00.
Sanikvæmisklæðnaður. Skemmtinefndin.
Félag Snæfellinga og Hnappadæla Reykjavík
minnir á 25 ára afmœlishót
félagsins að Hótel Borg í kvöld kl. 7. Nokkrir óráð-
stafaðir aðgöngumiðar verða til afhendingar í dag
kl. 9—13 í klæðaverzlun Þorgilsar Lækjargötu 6a.
Kona óskast
TIL EIDHÚSSTARFA FRÁ KL. 5 E.H.
Kjötbúð Vesturbæjar
Bræðraborgarstíg 43.
MATSVEIIMIM
óskast strax á m/b Sæúlf frá Tálknafirði, sem er
155 rúmlestir að stærð.
Upplýsingar hjá Landssambandi ísl. útvegsmanna.
Flutningstilkynning
Viðskiptavinir vorir athugið að við höfum flutt
verzlun og verkstæði okkar að Hverfisgötu 37.
BALDUR JÓNSSON S.F.
Hverfsgötu 37 — Sími 18994.
4—5 herb. og eldhús
óskast 14. maí. — Fernt fullorðið í heimili.
Upplýsingar í síma 16510 og 14434.
Starfsstulka
óskast nú þegar.
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkonan.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Rennismíði
Getum bætt við okkur rennismíði.
Vélsm. [ysteins Leifssonar hf.
Síðumúla 17 — Sími 18662.
Stálskip til sölu
Dieseltogari 220 brt, smíðaár 1963.
Dieseltogari 200 brt. tilbúinn í febrúar, 600 ha. vél.
Dieseltogari 114 brt. smíðaár 1960, togveiðarfæri
fylgja. — Ennfremur fragtskip og olíuflutningaskip
af öllum stærðum á hagkvæmu verði og til afhend-
ingar strax. — Upplýsingar í símum 19950 og 19251.