Morgunblaðið - 30.01.1965, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 30.01.1965, Qupperneq 20
20 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 30. janúar 1965 Victoria Holt: HöföingjasetriÍ Amma var við dyrnár þegar við komum að kofanum. Ég stóð á öndinni, þegar ég var að segja henni, hvað gerzt hafði, en Kim bar Jóa inn og lagði hann á gólfið. .— Ég held, að hann sé fót- brotinn, sagði hann. Amma kinkaði kolli. Svo hjálp uðust þau að því að binda spelku við fótinn. Það var eins og draumur að sjá Kim þarna í kof- anum og taka við skipunum frá ömmu. Hann beið meðan hún þvoði sárin og rauð á þau smyrsl um. Þegar hún hafði lokið því, sagði Kim. — Ég held nú samt sem áður, að það væri betra að leita læknisins. — Það er bezt svona, sagði amma einbeitt. Kim yppti öxlum og fór. Við amma vöktum yfir Jóa alla nóttina. Um morguninn viss- um við, að hann myndi lifa þetta af. En hættan var enn ekki úti. í hvert skipti sem við heyrðum fótatak, hrukkum við upp, af hræðslu við, að Kim hefði sagt frá þessu hjá Larnston og að ein- hver væri að koma til að taka Jóa fastan. Undir hádegi var barið að dyr um. Við opnuðum skjálfandi. Mellyora Martin stóð þarna og brosti til okkar. Á handleggnum bar hún körfu með hvítum dúk yfir. — Góðan daginn, sagði hún blíðlega. — Ég kem hérna með dálítið handa sjúkiingnum. Við gláptum á hana, og amma sagði órólega: — Handa Jóa . . .? . Mellyora kinkaði kolli. — Ég hitti hr. Kimber í morgun. Hann sagði mér, að drengurinn hefði dottið niður úr tré. Og ég hélt, að hann myndi hafa gott af þessu . . . Hún rétt fram körfuna. Amma tók við henni. — Þakka yður fyrir, ungfrú. . . Mellyora brosti. — Ég vona, að honum batni fljótt. Við stóðum við dyrnar og horfðum á eftir henni þegar hún fór, en svo bárum við körfuna inn. Undir dúknum voru egg, smjör, hálfur kjúklingur og eitt brauð. Við litum hvor á aðra. Kim ætlaði ekki að segja frá neinu. Við höfðum ekkert að óttast af réttvísinnar hálfu. Ég hef sjaldan verið eins ham ingjusöm og á þessari stundu og og seinna þegar ég hugsaði til þess, sem ég átti Kim að þakka, vissi ég, að ég myndi aldrei gleyma því. Jói var lengi að ná sér, og þegar hann loksins fór að ganga, sáum við, að þetta áfall hafði gert hann farlama. Hann var lengi daufur í bragði og aðeins ef ég kom með meidda kanínu til hans, var eins og bráði ofurlítið af honum. Ég sá, að ég yrði alltaf að útvega honum ein- hverja skepnu til að hugsa um. Veturinn kom og hann var harður, með byijum og stormum. Amma varð veik og það var eins og henni ætlaði ekki að geta batnað. Hún fékk óráð og kallaði á Pedro og ég varð dauðhrædd um, að hún mundi deyja. Jafn- vel eftir að hún komst á fætur, hafði hún þrálátan hósta, sem var henni til ama. Ég bannaði henni að fara út og fór heldur sjálf í hennar stað, til að safna jurtum og rótum, sem hún notaði í meðölin sín. En það komu nú annars held- ur ekki svo margir, hvbrt sem var, til að spyrja hana ráða. Ég heyrði suma vera farna að efast um hæfileika hennar. Gat hú.n kannski læknað sjálfa sig? Þessi drengur hennar var haltur, og hafði þó bara dottið niður úr tré- Nei, Bea amma var alveg hætt að vera neitt dásamleg! Þessi lystugu kjötstykki komu ekki lengur til okkar. Nú komu engir þakklátir viðskiptamenn til að skilja eftir kartöflu- eða baunapoka við dyrnar. Brauð og undanrenna, sem við sníktum hjá nágrönnunum, voru aðalfæða okkar og stundum var meira að segja það af skornum skammti. — Amma, sagði ég einn dag- inn. — Ég sé ekki annað en ég verði að fara að vinna okkur eitthvað inn. Hún hristi höfuðið, en ég mis- skildi samt ekki augnaráðið hjá henni. Ég var nú orðin þrettán getið um telpu af mínum aldri, sem lifði óhófslífi eins og fín dama. Jói gat ekki unnið, en ég var sterk og hraust. — Við skulum athuga málið, sagði hún. — Ég er búin að hugsa það, sagði ég. Ég verð að svipast um eftir atvinnu. Ég nefndi það ekki við hana, hve mjög hugur minn gerði uppreisn gegn tilhugsuninni um að verða vinnukona hjá einhverj um og hve mig hryllti við því að verða að yfirgefa hana og Jóa og fara eitthvert annað, til ókunn ugra. En hún las tilfinningar mínar án þess að ég léti þær í Ijós. — Þetta yrði nú ekki nema í bili, sagði hún. — í sumar verð ég komin á fætur aftur. — Ég ætla að bjóða mig fram á Trelinketmarkaðnum í næstu viku, sagði ég einbeitt. Þessi markaður var haldinn tvisvar á ári í þorpinu Trelinket, sem var röskar tvær mílur frá Larnston. Við höfðum alltaf farið þangað áður fyrr, bæði til að skemmta okkur og svo til að selja meðölin hennar ömmu. En þetta ár höfðum við ekkert til að selja, og þar sem Jói gat held ur ekki gengið þangað, var þetta allt orðið breytt. Ég lagði af stað ein, og höfuð- ið á mér var eins og úr blýi, og stolt mitt troðið niður. Hversu oft hafði ég ekki áður er ég gekk gegn um markaðinn, horft á mennina og konurnar, sem stóðu á ráðningarpallinum, og þakkað guði fyrir að vera ekki eins og þetta fólk? Mér fannst þetta alveg eins og þrælamark- aður. En hjá þessu varð ekki komizt, ef maður þafnaðist at- Vinnu, því að húsbændurnir komu þarna til að ráða vinnu- fólk, sem þeim leizt líklega á. Nú átti ég að verða ein í þeim hópi. Þetta var bjartur vordagur, en einhvernveginn gerði sólskinið bara illt verra. Allsstaðar var kæti, fyrirgangur og hávaði. Þarna var heit nautasteik og gæsasteik til sölu við sölupall- ana og haugarnir af bökuðum baunum. Þarna voru sölumenn að selja allt milli himins og jarð ar — gamla skó og fatnað, söðla- smíði, potta og pönnur og jafn- vel skartgripi. Þarna voru spá- menn og skottulæknar — sem öskruðu upp ágæti meðalanna sinna. Sumir þeirra höfðu verið viðskiptamenn Beu ömmu. Og skammt frá stað þar sem verið var að steikja gæs yfir opnum eldi, var ráðningarpall- urinn. Ég fann til blygðunar, þegar ég horfði á hann. Nokkrar ára. Hver hafði svo sem heyrt I manneskjur stóðu þegar á hon- Blaðburðarfólk óskast til blaðburðar í eítirtalin hverfi pitrgwMalíili Sími 22-4-80 Me5filholl Lindargötu Háteigsveg Skólavörðustíður Húrra! Það er hætt að rigna. um. Að hugsa sér, að ég, Ker- ensa Carlee, ætti að fylla þenn- an hóp. Mér datt í hug, að ég mundi hata ilminn af steiktri gæs héðan í frá. Allir þarna1 í kring virtust vera hlæjandi; og ég varð reið öllum og öllu. En ég gat ekki farið heim og sagt ömmu, að ég hefði gefizt upp og gugnað á síðasta augna- bliki. Ég gat ekki farið heim og verið þeim til byrði — ég, sem var heilbrigð og sterk. Ég nálgaðist pallinn einbeitt og gekk upp trétröppurnar öðru megin, og svo stóð ég þarna ásamt hinum. Tilvonandi húsbændur skoðuðu okkur með áhuga. Meðal þeirra sá ég Pengaster bónda. Ef hann réði mig, væri það ekki sem verst. Hann var talinn sann- gjarn maður og almennilegur við fólkið sitt. En þá sá ég tvennt, sem kom mér til að hopa á hæl í örvænt- ingu. Þetta var brytinn og ráðs- konan í Klaustrinu. Þau gátu ekki átt nema eitt erindi á mark- aðinn og nú nálgðustu þau óðum pallinn. Nú fór ég að verða alvar lega hrædd. Það hafði lengi ver- ið óskadraumur minn að búa í Larnstonklaustrinu og þann draum ætlaði ég að láta rætast. En bara ekki verða þar vinnu- kona. Aldrei vinnukona! Þá auð- mýkingu hefði ég aldrei getað þolað! Hundruð mynda þutu gegn um huga minn. Ég hugsaði til Justin Larnston skipandi fyrir með hroka, Johnny, sem hló að mér og minnti mig á, að ég væri vinnukind, Mellyoru og Kim, sem kæmu til tedrykkju hjá fjöl skyldunni og sjálfrar mín stand- andi með kollhúfu og svuntu að stjana kring um þau. Ég brann af reiði og blygðun við tilhugs- unina. Ætti ég að stökkva af pall- inum og hlaupa heim? Ég sá sjálfa mig vera að segja ömmu alla söguna. Hún mundi skilja þetta. Hafði ég ekki sjálf — en ekki hún — fundið upp á að fara þetta? á þeirri stundu gat ég ekki dulið kvíða minn. Hún kom strax til mín, og augnaráðið var órólegt. — Kerensa! Hún talaði lágt og horfði spyrjandi á mig. Ég varð reið yfir því, að hún skyldi hafa séð mig svona auð- mýkta og hvernig gat ég annað en hatað hana, þar sem hún stóð þarna svona fín — og frjáls? — Ertu að ráða þig? — Hvað sýnist þér? svaraði ég og var önug. — En . . þú hefur ekki gert það fyrr. — Það eru erfiðir tímar, taut- aði ég. Hjónaleysin frá Klaustrinu voru að nálgast. Brytinn var þegar farinn að horfa á mig og augun ljómuðu, heit og hugsandh Mellyora leit á mig og sá, hvernig mér varð við þetta, og hún varð æst á svipinn. Hún greip andann á lofti og flýtti sér að taka til máls. — Við erum að leita að stúlku, Kerensa. Heldurðu, að þú vildir koma á prestsetrið? Þetta var alveg eins og náðun. Draumurinn ætlaði ekki að ræt- ast á versta veg. Ég átti ekki að fara í Klaustrið og inn um bak- dyrnar þar. Ef ég gerði það, vissi ég, að hinn raunverulegí draumur minn mundi aldrei rætast. — í prestsetrið? stamaði ég, og gat enn ekki trúað þessari heppni minni. Hún kinkaði kolli ákaft. — Já, okkur vantar stújku. Haggety var nú kominn rétt að okkur. Hann sagði: — Góðan daginn, ungfrú Martin. Gaman að sjá yður á markaðnum. Við frú Rolt erum hér að svipast um eftir tveim stúlkum í eld- húsið. Hann leit til mín og litru augun ljómuðu. — Þessi lítur líklega út, sagði hann. — Hvað heitirðu? Ég lyfti höfði og var hroka- full. — ^Þér komið ofseint, sagði ég. — Ég er ráðin. En þá kom ég auga á Melly- oru, fína og frísklega í bómull- arkjólnum slnum með ljósa hárið niðurundan stráhattinum. Við sáumst á sama andartaki og KALLI KUREKI wTek byssu hans af steininum. Af hveriu. hendur hans eru bundnar“. Skyndilega sparkar Kalli byssunni inn í eldinn.... ,...og skotin byrja að sprynga hvert á fætur öðru. Carðahreppur Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Garðahrepp er að Hof- túni við Vífilsstaðaveg, sími 51247. AKUREYRI Afgreiðsla Morgunbiaðs- ins er að Hafnarstræti 92, sími 1905. Auk þess að annast þjón- ustu blaðsins við kaupend- ur þess í bænum, er Akur- eyrar-afgreiðslan mikilvæg- ur hlekkur í dreifingarkerfi Morgunblaðsins fyrir Norð- uriand allt. Þaðan er blaðið sent með fyrstu beinu ferð- um til nokkurra helztu kaup staða og kauptúna á Norður- iandi, svo og til fjölda ein- staklinga um allan Eyjafjörð og víðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.