Morgunblaðið - 30.01.1965, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.01.1965, Qupperneq 24
SERVIS SERVIS SERVIS SERVIS SERVIS 25. tbl. — Laugardagiv 30. janúaf 1965 Stóraukinn frjáls innflutningur Bjarni Ölafs- s»n dreginn til Færeyja Einkaskeyli til Mbl. Þórshöfn, Færeyjum 29. jan. ÍSLENZKI togarinn Bjarni Ólafsson verður í dag dreginn til færeyskrar hafnar af fæj-- eyska línuhátnum Tungufossi. Bjarni ólafsson var staddur 35 mílur sunnan Akrabergs á Færeyjum í útsynningi er skipið fékk eitthvað í skrúf- iiina, og varð að kalla á að- stoð. Veður er gott og er búizt irið skipunum til Þórshafnar i fyrramálið. BLAÐINU barst í gær frétta- tilkynning frá viðskiptamála- ráðuneytinu, þar sem skýrt er frá því, að ríkisstjórnin hafi ákveðið að stórauka frjálsan innflutning frá þvi sem nú er, og að gert sé ráð fyrir tals- vert meiri úthlutun á frjáls- um gjaldeyri til kaupa á þeim vörutegundum, sem enn eru háðar innflutningsleyfum. Á bls. 6 er sagt frá erindi dr. Gylfa Þ. Gíslasonar í frétta- auka Ríkisútvarpsins um hið aukna viðskiptafrelsi. Eftirtaldar vörutegudir munu verða á frílista frá og með 30. janúar: Ávaxtapulpa, gúmmígólf- dúkur, línoleum, þakpappi, flóki, prjónaður ytri fatnaður úr baðm- ull, hlutar til mannvirkja úr járni og stáli, miðstöðvarofnar og katlar, málmsmíða- og trésmíða- vélar og hlutar, leikföng, blýant- ar, krít og ýmsir smærri liðir. Þá verður eftirtöldum vörum bætt við frílistann frá 1. júlí nk.: Prent- og skriftpappír og pappírs- vörur, baðmullarvefnaður, borð- búnaður úrl eir, postulíni og gleri, naglar og ritvélar. Richard Taylor enn tekinn, kærður fyrir landhelgisbrot Öðinsmenn telja hann 2,9 sjóm. innan markanna — Taylor harðneitar Akureyri, 29. jan. SEINT í gærkveldi tók varð- skipið Óðinn Hull-togarann Pet- er Scott H 103, þar sem hann var að veiðum vestur af Gríms- ey. Skipstjóri er gamall góð- kunningi Landhelgisgæzlunnar sjálfur Richard Taylor. Var komið með togarann hingað kl. 7 í morgun t»g réttarhöld í máli skipstjóra hófust kl. 17:45 í dag. Taylor, skipstjóri, hefur þrisv- ar áður sætt ákæru fyrir ís- lenzkum dómstó'.um. Hann var fyrst dæmdur fyrir landhelgis- brot á togaranum Othel’b árið 1960, þá ári síðar til fangavist- ar fyrir líkamsárás á lögreglu- þjón á ísafirði, en var sleppt af Litla Hrauni rétt fyrir jól eftir skamira dvöl. Að síðustu var Taylor tekinn í september 1964 ákærður fyrir landhefgisbrot á togaranum James Barry en sýkn aður bæði í undirrétti og síðar í Hæstarétti fyrir 2 mánuðum. Dómisforseti er Sigurður M. Helgason, fulltrúi bæj arfógeta, en meðdómendur skipstjórarnir Bjami Jóhannesson og Þorsteinn Stefáixsíján. Fulltrúi saksóknara er Bragi Stemarsson, hdíl. Vegna Landihelgisgæzlunnar er Gísli Einarsson, hrl. og verjandi á- kærða Gísli ísleifsson, hrl. Dóm- túlkur er Ragnar Steí'ánsson, menntaskólakennari. Samkvæmt skýrslu skipherra á Óðni, Þórarins Björnssonar, Richard Taylor (t.h.) ræðir við Jón Egils, umboðsmann brezkra 1 togaraeigenda á Akureyri, í réttarhléi í gær. (Ljósm.: Sv. P.) Hugðist fú sér nokkrar bröndur Samtal við TaySor skipstjóra AKUREYRI, 29. janúar. — Richard Taylor gekk hnar- reistur og rólegur inn í dóms- sal bæjarfógetaembættisins í dag, þegar rannsókn hófst í máli hans. Varð ekki á honum séður neinn kvíði eða æðra og svaraði hann einarðlega og af myndarlegri festu öllum spurningum sem fyrir hann voru lagðar, sumum jafnvel svolítið meinlega. Fréttamaður Mbl. hitti hann skamma stund að máli þegar hlé varð á réttarhaldinu. — Hefur skoðun yðar á ís- lenzku réttarfari nokkuff breytzt frá því að þér voruð síðast fyrir rétti? — Nei, ekki ennþá, en ég skal játa, að það fer nokkuð eftir niðurstöðu þessa máls. Ég hef enga ástæðu til að Framhald á bls. 23 sásf to'gari í ratsjá varðskipsins kl. 21:08 í gærkveldi og mældist hann vera 2,9 sjómílur innati fiskveiðitakmarkanna suður af Framh. á bls. 2, Jafnframt hefur viðskiptamála- ráðuneytið auglýst innflutnings- kvóta fyrir vörur, sem enn eru háðar innflutningsleyfum, og gilda þeir fyrir þetta ár. Er þar gert ráð fyrir talsvert meiri út- hlutun á frjálsum gjaldeyri til kaupa á þessum vörum í ár held- ur en í fyrra. íþrótta- fréttirnar eru á bls. II 'i dag Skozks togara saknað á INIorðurslóðum Fór frá Aberdeen 13. janúar — Neyðarkall til skipa á íslandsmiðum SÍÐASTLIÐNA 2 daga hefur Loftskeytastöðin hér sent út neyðarkall til allra skipa hér við land um að skozka toigarans Blue Crusader A 251 sé saknað. Um 18 til 20 manns eru um borð. Blue Crusader fór frá heima- höfn sinni Aberdeen 13. janúar síðastliðinn og hefur ekkert til hans spurzt síðan. Búizt var við að togarinn mundi halda á mið- in við Færeyjar eða ísland. AP- fréttastofan skýrði Morgunblað- inu svo frá í skeyti í gær, að flugvél frá RAF, brezka flug- hernum, hafi farið frá Wick i Skotlandi í gær og framkvæmt víðtæka leit að Blue Crusader og haft samband við togara á þessum slóðum, en allt án árang- urs. Flugvélar Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli , hafa um hálfs mánaðar skeið svipazt um eftir togaranum. Leitinni mun verða haldið ófram í daig, ef veður leyfir. Kaupmannahöfn, 29. janúar. (Nordfoto). Þessi mynd var tekin af Jarlinum seint í dag. — Aðeins þrír menn eru eftir um borð. 600 lítrar af genever í Jarlinum í K-höfn YfirmerRn og 2 hásetar í gæzluvarðhaldi SKIPST J ÓRI, 1. og 2. vél- stjóri og 2 hásetar af íslenzka flutningaskipinu Jarlinum fró Flateyri hafa verið hnepptir í gæzluvarðhald í Kaupmanna- höfn, sökum þess að 600 flöskur af genever fundust í skipinu við leit, sem gerð var, þegar tollyfirvöldin komust á snoðir um það að skipverjar vseru að bjóða smyglað áfengi til kaups. Hér fer á eftir skeyti frá Rytgaard, fréttaritara Mbl. í Kaupmannahöfn: Fimm menn af flutninga- skipinu Jarlinum sitja í gæzluvarðhaldi meðan toll- yfirvöldin rannsaka smygl- mál, sem upp er komið. Skip- ið er í Kaupmannnahöfn til viðgerðar. Brytinn og 1. stýri- maður eru farnir af skipinu og munu þeir ekki liggja undir neinum grun svo að vit- að sé. Þrir menn eru enn um borð. Toliyfirvöldin vilja ekkert láta hafa eftir sér ann- að en það, að mennirnir fimm séu hafðir í haldi grunaðir um brot á tollalögunum. Það mun hafa verið af ein- skærri tilviljun, að Jarlinn kom til Kaupmannahafnar. fundust Hann varð fyrir 2 vikum fyr- ir vélarbilun á leið frá Sví- þjóð og þurfti að leitá hafnar. Lagðist skipið að Löngulínu og lá þar lengi. Þar kom, að skipverja tók að skorta fé, og reyndu þeir að koma ein- hverju af ólöglegum áfengis- farmi skipins í peninga. Farm- urinn var 600 heilflöskur af hollenzkum genever, sem komið hafði verið fyrir i 50 kössum. Tollyfirvöldin munu 26. janúar hafa fengið grun um þennan varning, sem ekki mun í samræmi við anda laganna og voru þá 4 mann- anna handteknir og hinn 5. í gær. Ekki er vitað með vissu, hvort eitthvað hafði verið selt af áfengi úr Jarlinum, áður en skorizt var í leikinn. Jarlinn er mjög eyðilegur síðan handtökurnar fóru fram og hafa menn tekið eftir því, að íslenzki fáninn hefur ekki verið dreginn niður, þótt Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.