Morgunblaðið - 12.02.1965, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
27
Föstudagur 12. februar 1965
Bítillinn Ringó
gifti sig í gær
London, 11. febr. — AP:
TROMMULEIKARI hinna
heimsfræsu Bítla, Ringo Starr,
sem verið hefur í giftingarhug
leiðingum um langt skeið hef
ur nú gert alvöru úr öllu sam
an og gengið að eiga unnustu
sína, Maureen Cox. Hún er frá
Liverpool eins og Ringo og
hinir Bítlarnir, 18 ára að aldri.
Sjálfur er Ringó 24 ára. Maur
een kynntizt Ringo um það
leyti, er hann gekk í lið með
Bítlunum.
Nú eru aðeins tveir Bítl-
anna lausir og liðugir, Georg
Harrison og Paul McCartnny.
Reyndar hefur lengi ríkt kær
leikur milli Paul og leikkon-
unnar Jane Asher, en hún er
systir söngvarans Peter Ash-
er (Peter and Gordon).
Hjónavígsla Rino og Maur-
een fór fram í kyrrþey, en að
henni lokinni fóru hjúin í
brúðkaupsferð, sem vart get-
ur þó varað lengi, því Ringo
þarf að vera mættur til skrafs
og ráðagerða I London á mánu
daginn vegna nýrrar kvik-
myndar, sem er á döfinni hjá
Bítlunum.
Viðbrögð unglinganna, er
þessi tíðindi bárust voru ærið
mismunandi. Sumir töldu, að
þessi ráðstöfun Ringo yrði
ekki til að draga úr vinsældum
Bítlanna — aðrir sögðu, að
þetta þættu alls engin tíðindi.
— Hefði Mick Jagger hjá
Rolling Stone hins vegar átt
í hlut, liti málið öðruvísi út,
sagði 15 ára gömul stúlka,
þegar leitað var álits hennar
á málinu.
Hin hamingjusama Maur-
een Cox var áður lærlingur
í andlitssnyrtingu á snyrti-
stofu, en líklega mun hún láta
af því starfi, þar eð Ringo á
ótaldar milljónirnar.
Fulltrúar I.oftleiða og Canadair, sem sömdu um kaupin. — Talið frá vinstri: P. E. Heybroek,
sölusérfræðingur frá Canadair; Max Helzel, sölustjóri Lockheed;R. F. Conley, lcgfr., forstjóri
söludeildar Canadair; F. C. Lasicr, lögfræðiráðunautur Canadair; R. Agar, forstjóri verkfræði-
deildar Canadair; R. Delany, lögfræðiráðunautur Loftleiða í B rndaríkjunum; Einar Árnason,
flugstjóri, í stjórn Loftleiða; E. K. Olsen, flugdeiidarstjóri, i stjórn Loftlciða; Alfreð Elíasson,
framkvæmdastjóri Loftleiða; Kristján Guðlaugsson, hrl., stjórnarformaður Loftleiða og Sigurður
Helgason, forstjóri, varaformaður stjórnar Loftleiða.
— Loftleiðir
Framh. af bls. 1
ar með haustinu, en ekki hefði
endanlega verið afráðið um það
enn. Verð á þeim vélum væri um
350 þúsund dollarar og hefði það
heldur farið hækkandi. Þá upp
lýsti hann, að þegar hefði verið
samið um leigufiug sumarsins
að mestu.
Viðhald hinna nýju véla mun
fara fram hjá Lockheed-verk-
smiðjunum í New York. Bæta
þarf við áhöfnum hjá félaginu og
er gert ráð fyrir þvi, að þær
verði alls 40 í sumar, en voru 24
á sl. sumri. Gert er ráð fyrir, að
ráða þurfi erlenda menn á vél-
arnar að einhverju leyti á með-
an íslendingar eru þjálfaðir.
Canadair verksmiðjurnar hafa
alls smíðað 39 vélar af þeirri
gerð, sem Loftleiðir hafa keypt,
og eru þessar tvær nýjustu þær
síðustu, sem smíðaðar hafa verið
af verksmiðjunum. ,
Með þessum kaupum eiga Loft
leiðir alls 9 flugvélar og taka
þær alls um 1260 manns, farþega
og áhafnir.
Hér fer á eftir fréttatilkynn-
ing félagsins urri hina nýgerðu
samninga:
„Að undánförnu hafa staðið
yfir samningaumleitanir milli
stjórnar Loftleiða og fulltrúa frá
kanadisku flugvélaverksmiðjunni
Canadair um kaup Loftleiða á
tveim flugvélum til viðbótar
þeim tveim, sem félagið keypti í
fyrra af gerðinni Rolls Royce
400. Einnig fóru fram viðræður
um stækkun á farþegarými flug-
vélanna.
Samningar hafa nú verið und-
irritaðir um þetta, en samkvæmt
þeim kaupa Loftleiðir nú tvær
Roils Royce 400 flugvélar, og
verða þá alls fjórar vélar af þess-
ari gerð í eigu Loftleiða. Er þess
rétt og skylt að geta, að ein meg-
inástæða þess, að stjórn Loft-
leiða tók nú þessa ákvörðun er
sú, að reynslan af þeim tveim
RR-400 flugvélum, sem félagið
keypti í fyrra hefir verið svo góð
að hyggilegt þótti að tryggja Loft
leiðum þær tvær flugvélar af
þessari gerð, sem enn voru ó-
seldar, áður en fyrrgreindir samn
ingar voru undirritaðir.
Fyrri flugvélin af þeim tveim,
sem nú hefir verið samið um,
verður notuð til þjálfunar áhafna
frá miðjum nk. aprílmánuði, en
hin verður fullbúin til farþega-
flugs 15. maí nk. Gert er ráð fyr
ir að önnur flugvélin verði not-
uð til áætlunarflugferða, og kem
ur hún I stað þeirra Cloudmaster
flugvéla, sem fara út úr áætlun
arflugi frá þeim tíma, en hin
einkum til leiguferða, og er fyrir
hugað að auka nú verulega þann
þátt í starfsemi félagsins.
Samanlagt kaupverð flugvél-
anna beggja nemur um 10 millj.
Kanadadollara, en það samsvar-
ar rúmum 400 milljónum ís-
lenzkra króna. Eigi eru varahlut
ir þar innifaldir, heldur hefur sér
stakur samningur verið gerður
um þá.
Kaupverð á að fullgreiða á
næstu sjö árum. Seljendur hafa
hvorki krafizt banka- né ríkis-
ábyrgðar, en Loftleiðir gera ráð
fyrir að greiða andvirði vélanna
af eigin gjaldeyristekjum.
Yitað er að mörg flugfélög hafa
nú í huga að festa kaup á flug-
vélum af stærri gerðum en þeim,
sem nú eru algengastar, og hafa
nokkur þeirra til athugunar að
lengja sumar þeirra tegunda,
sem nú, eru í notkun til þess að
auka farþegarými þeirra. Stjórn
Loftleiða hefir, að vandlega í-
huguðu máli, talið nauðsynlegt
að gera ráðstafanir til að félagið
geti á næstunni orðið samkeppn
isfært við hinar nýju gerðir flug
véla, en fyrir því hefir nú verið
samið við Canadair flugvélaverk
smiðjurnar um lengingu á öllum
fjórum flugvélunum af gerðinni
Rolls Royce 400. Þess má geta,
að burðarmagn Rolls Royce 400
flugvélanna er nú miklu meira
en farþega- og farangursrými
þeirra. Þess vegna hefir það all-
lengi verið á döfinni hjá Canadair
að lengja þessa gerð flugvéla, og
auka þannig farþegarými þeirra
úr 160 sætum í 189. Við þetta
lengist bolur flugvélar um 5 m.
Er áætlað, að lengingu allra flug
vélanna fjögurra verði lokið árið
1967.
Sumaráætlun Loftleiða verður
senn fullgerð, og verður hún í öll
um aðalatriðum svipuð og I
fyrra, og verður þar ekki um
neina verulega aukningu að ræða
á sætaframboði. Cloudmasterflug
vélarnar verða í förum milli fs-
lands, Bretlands og Norðurland-
anna, en þar að auki munu sumar
þeirra notaðar til leiguflugs, sem
fyrr segir.
Viðhald Rolls Royce 400 flug-
vélanna verður fyrst um sinn i
New York, þar sem Loftleiðir
hafa enn ekki fengið aðstöðu til
þess að framkva&ma það á Kefla-
víkurflugvelli, en félagið hefir
lengi leitað leiða til þess að fá
þar flugskýli til afnota, og hefir
engin viðunandi úrlausn enn
fengizt á því máli“.
— Veturliði
Framhald af bls-. 8
hvað? Flestar þessar myndir
eru málaðar fyrir áhrif frá
fjörunni, skerjum og fjöru-
grjóti — og klettum, meðal
annars Hljóðaklettunum og
Dimmuborgum. Ég hef dvalizt
mikið við Breiðafjörð og
Barðaströnd. Þar í fjörunni
eru möng undurfalleg mótív.
Áður fyrr málaði ég mikið frá
litlum þorpum út um landið,
hús og fugla — en hef nú fært
mig ofan í fjörurnar. Þær eru
ævintýraheimar, með alls
konar mótívum og myndum.
Mér finnst mönnum hætta til
að gleyma fjörunni, — þeir
eru alltaf uppi í fjöllum —
sem er ágætt líka. En ég mála
aldrei fjöll — það gerðu
gömlu mennirnir og Scheving
málar sjóinn og sjómennina,
Engilbert ástina og ég fjör-
una.
— Og hvað verður sýningin
lengi opin?
— Eina viku, daglega frá
kl. 1 til 10 síðdegis — það er
að segja, ef húsið heldur.
Nokkrir af forystumönnum Loftleiða, er þeir skýrðu í gær frá samningsgerðinni. — Talið frá
vinstri: Þórarinn Jónsson, flugáhafnastjóri; Einar Árnason, flugstjóri; Kristján Guðlaugsson, hrl,
stjórnarformaður; Sigurður Magnússon, blaðafulltrúi; Alfreð Elí;isson, framkvæmdastjóri og
Martin Pedersen, deildarstjórL - (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Kosygin í postullega
reisu til ISI-Kóreu
Pyongyang, N-Kóreu,
11. febr. — NTB: —
ALEXEI KOSYGIN, forsætisráð
herra Sovétrikjanna, kom til Py-
ongyang í Norður-Kóreu í morg-
un. Hann lýsti því yfir í kvöld,
að Sovétríkin væru mjög fylgj-
andi sameiningu kommúnista-
rikjanna. í veizlu, sem forsætis-
ráðherra Norður-Kóreu hélt
Kosygin í kvöld sagði sá síðar-
nefndi, að það skipti höfuðmáli
að fullkomin eining næðist með
kommúnistum, því að „heims-
valdasinnar" reyndu nú allt hvað
þeir gætu til þess að sundra
þeim.
Áður en Kosygin fór frá Pek-
ing á fimmtudag, ræddi hann við
Mao tse tung, leiðtoga kínverskra
kommúnista, Liu Shaou Chi, for-
seta, og fleiri ráðamenn kín-
verskra kommúnista. Hin opin-
- ÚTVARPIÐ
Framhald af bls. 6
á Italíu, þar sem hann stundaði
nám frá 1929—1935. Sú fjárfest-
ing hins kunna athafnamanns hef
ur skilað þjóðinni í heild góðum
arði. Stefán starfaði síðan lengst
sem fastur söngvari hjá Konung-
lega leikhúsinu í Kaupmanna-
höfn og vann sér mikla frægð. Á
sl. ári lét hann af störfum þar,
en er nú vinsæll söngkennari i
Kaupmannahöfn.
TJm kvöldið voru leiknir þættir
úr „Faust“ eftir Goethe í þýðingu
Bjarna frá Vogi. Allt í ljóðum.
Það var „taxtinn“ í þá daga. Og
harðrímað. Ekki veit ég hve marg
ir hafa sett af sér böll og bíó, til
að hlusta á brot úr þessu heims-
fræga listaverki hins þýzka skáld
jöfurs. Kannske Mefistoteles sé
farinn að tapa fylgi meðal yngri
kynslóðarinnar? Við reynum þá
að líta til með honum gömlu
mennirnir.
Svelnn Krlstlnsson.
— Ólafsvik
Framhald af bls. 26
félagið notið mjög góðs af veru
Sævars hér.
Ráðgert er að sýna leikinn á
nærliggjandi stöðum, svo sem
Grafarnesi, Stykkishóimi og
sennilega í Borgarfirði.
Þeir sem leika eru Sigurdís
Egilsdóttir, Kristín Sæmundsdótt
ir, Lúðvík Þórarinsson, Hinrik
Konráðsson, Gunnar Eyjólfsson
og Emanuel Ragnarsson.
— Hinrik.
bera tilkynning, sem út var gefin
í Peking um fund kommúnista-
leiðtoganna, var mjög stuttara-
leg, og gaf ekki einu sinni til
kynna, að viðræðurnar hefðu far
ið fram i „andrúmslofti vináttu“
sem venja er þó að geta um.
Er Kosygin kom til Pyongyang
var á móti honum tekið af for-
sætisráðherra Norður-Kóreu,
Kim II Sung, og mörgum þúsund
um manna á flugvellinum. Blað
höfuðborgarinnar lagði áherzlu á
samstöðu kommúnistalandanna
við komu hins sovézka forsætis-
ráðherra. I stuttri ræðu, sem
Kosygin hélt á flugvellinum,
kvaðst hann vona, að heimsókn
sín mundi stuðla að auknum sam
skiptum Norður-Kóreu og Sovét
ríkjanna.
Þeir sem með málum fylgjast
í Moskvu telja að heimsókn Kosy
gins til hinna þriggja Asíulanda
marki nýja tíma í samskiptum
Kína og Sovétríkjanna. Talið er
að Kínverjar og Rússar hafi fyrst
og fremst rætt áætlanir um fund
25 kommúnistaríkja, sem hefjast
eigi í Moskvu 1. marz, en áður
höfðu Kína, Norður-Vietnam og
Norður-Kórea gefið til kynna,
að þau mundu virða þann fund
að vettugi. Talið er, að rússneska
sendinefndin hafi reynt að telja
fyrrnefnd lönd á að taka engu
að síður þátt í fundinum.
— N-Viet-Nam
Framh. af bls. 1
af árásum flugvéla frá banda-
rísku flugþiljuskipunum, en í
þeirri seinni voru sprengju- og
nrrustuvélar frá flugvöllum í (
S-Viet Nam. Þar voru einkum á ;
ferðinni Douglas Skyraider flug
vélar. Engin þeirra vð!a var ;
skotin niður. Hinsvegar er sex
flugvéla stjórnar S-JViet Nam
saknað.
Tali'ð er að hinar fjórar banda-
rísku flugvélar, sem saknað er,
hafi verið skotnar niður í fyrri
árásinni, sökum þess að þær urðu
að fljúga lágt vegna lélegra veð ,
urskilyrða.
Flugvélar þær, sem þátt tóku í
seinni árásinni. voru velflestar ,
staðsettar í Da Nang, sem er mik- ,
ilvæg flugstöð, og er varin banda
rískum flugskeytum af gerðinni
Hawk.
Flugvélar Bandaríkjamanna
og stjórnar S-Viet Nam vörpuðu
80 tonnum af sprengjum á hern
a'ðarstöðvar N-Viet Nam við
Chap Li i dag.
: