Morgunblaðið - 26.02.1965, Side 2
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 26. fébrúar 1965
Bndæmafærö
á Vestfjöröum
H ísafirði, 25. febrúar: —
r f DAG voru Breiðdalsheiði og
Botnsheiði ruddar og fært er nú
S Önundarfjörð og Súgandafjörð
sem mun vera algert einsdæmi á
Jiessum tíma árs. Lítill snjór var
á heiðunum, en harðfenni mikið
og var nokkuð érfitt að ryðja,
]þegar ýturnar byrjuðu á verkinu
í morgun.
Að undanförnu hafa verið hlý-
indi á Vestfjörðum og þurrviðri.
Vegir hafa þornað og gróður tek-
. ið við sér í görðum.
Heita má, að nær allir fjallveg
ir á Vestfjörðum séu nú færir,
enda hefur þessi vetur verið á-
kaflega snjóléttur og hvergi á
öllum Vestfjörðum er snjór í
byggð; einungis harðfennisskafl
ar hér og þar til fjalla.
Þingmannaheiði er talin ófær,
vegna snjóa, en þó jeppa-fær, að
sögn kunnugra.
Síðastliðinn mánudag fór
Kristján bóndi Steindórsson á
Kirkjubóli i Langadal við þriðja
mann á jeppa yfir Þorskafjarðar
heiði, alla leið í Króksfjarðar-
nes. Tjáði Kristján fréttamanni
Mbl., að 70 til 80 metra langur
skafl væri vestan við hlið mæði
veikigirðingarinnar á heiðinni og
smáskafl við brúna yfir Högná,
en að öðru leyti hefði heiðin ver
ið mjög vel fær. Hins vegar væri
vegurinn í Þorskafirði mjög
slæmur og seinfarinn. Mun það
algert einsdæmi, að fært sé yfir
Þorskafjarðarheiði á góu.
Fréttamaður Mbl. talaði í dag
við Erling Magnússon, vega-
verkstjóra í Melbæ í Króksfirði.
Sagði hann, að vegir þar um
slóðir væru yfirleitt fremur slæm
ir og aurbleyta hefði verið mikil,
en mjög farið að síga úr þeim.
Kvaðst hann ætla upp á Þorska-
fjarðarheiði á morgun, til þess
að athuga þar aðstæður og hvort
fýsilegt væri að ryðja veginn
þar.
Úr Reykhólasveit hefur verið
fær til Reykjavíkur öðru hverju
í langan tíma, en vegirnir eru
ekki góðir og hefur öxulþungi
verið takmarkaður við 7 tonn.
Erlingur taldi, að snjólítið væri
á hálsunum í Barðastrandarsýslu
en vegir þar blautir. Þó mættu
þeir teljast jeppafærir. í Stranda
sýsiu eru vegir yfirleitt vel fær
ir og ekki mjög blautir. — H. T.
Hóta að sprengja
líkhús og kirkju
' New York, 25. febr. (AP):sem þær standa í líkhúsi í Har-
DM TÍU þúsund manns hafalem, þrátt fyrir hótanir um að
komið að líkbörum blökku- sprengja líkhúsið í loft upp.
mannaleiðtogans Malcolm X þar Framhald á bls. 27
— Inflúenzan
Framhald af bls. 1
er sama veirutegund og sú,
sem undan farið hefur valdið
— í byrjun janúar sl. varð
hennar vart í Leningrad og
um 20. sama mánaðar breidd-
ist hún óðfluga út og náði þá
m. a. til Moskvu og víðar um
inflúenzu-faraldri í Rússlandi
og Austur-Evrópu, og er þessi
stofn nefndur A2. Eftir að
Asíu-inflúenzán gekk 1957
'hefur þessi sami veirustofn
valdið inflúenzu-faröldrum
annað veifið hingað og þang-
að, meðal annars hér á landi
1963.
Austur-Evrópu. Samkvæmt
opinberum tilkynningum, sem
okkur hafa borizt, hefur veik
in síðan breiðst út til Pól-
lands og Tékkóslóvakíu og
loks Frakklands, Bandaríkj-
anna, Finnlands og Svíþjóðar.
Ekki er vitað um að aðrar
rá'ðstafanir hafi verið gerðar
erlendis af opinberri hálfu en
héj- hafa verið gerðar, þ.e.
einstaka starfshópar hafa ver
ið bólusettir.
— A2 inflúenza þessi telst
vera meðalþungur faraldur,
gangur yifirleitt mildur, en
mest hafa börn undir 7 ára
aldri veikzt. í vissum borgum
einkum í Moskvu og Leningr-
ad, náði hún geysimikilli út-
breiðslu, en ekki hefur verið
talað um dauðsföll.
Eru þeir, sem áður hafa
veikzt eða verið bólusettir við
veikinni, ónæmir fyrir henni,
úr því að um sömu veiruteg-
und er að ræða og áður hefur
valdið inflúenzu hér?
— Talið er, að um 60%
þeirra, sem bólusettir eru,
verði ónæmir fyrir veikinni.
Verulegt ónæmi endist vetrar
langt, en fer úr því dvínandi,
en helzt að nokkru leyti í
nokkur ár.
Þurfa þá þeir, sem tóku veik
ina fyrir tveimur árum eða
voru þá bólusettir, áð iáta
bólusetja sig á nýjan leik?
— Já, ef menn vilja tryggja
sig gegn veikinni. Þó er talið,
að þeir sem hafa verið bólu-
settir í Asíu-inflúenzunni
1957 og síðar gegn þessum
sama veirustofni, þurfi aðeins
eina bólusetningu. Aðrir þurfa
að fá tvær bólusetningar með
nokkurra vikna millibilí.
Hafa ber þó í huga. að ein-
ungis 60% .þeirra, sem bólu-
settir eru, mynda móteitur.
Því miður er ekki hægt að
vita hverjir þessir 60% eru,
því að svörun einstaklinganna
vi'ð bólusetningunni segir
ekki örugglega til um það.
— Bólusetningunni fylgja
stundum eymsli og roði á
bólusetningarstað og oft einn
ig slappleiki og væg sjúkdóms
einkenni og einstaka menn fá
hita, en þessar aukaverkanir
geta stafað af eggjahvítuefn-
um, sem í bóluefninu eru.
Eru fyrirhugaðar opinberar
ráðstafanir vegna veikinnar
um fram það, sem þegar hefur
verið gert?
— Nei, búið er að bólusetja
þá starfsmannahópa, sem
mest koma í snertingu við er-
lenda ferðamenn, og þá, sem
sízt má án vera, ef veikin
skyldi brei'ðast út hér á landi,
svo sem hjúkrunarlið, slökkvi
liðsmenn, lögreglumenn o.fl.
Viljið þér ráðleggja ein-
hverjum sérstökum að láta
bólusetja sig?
— Já. Lasburða gamal-
menni, sjúklingar með asuna,
lungna- og hjartasjúkdóma og
þeir, sem á einhvern hátt eru
sérstaklega veiklaðir ættu að
láta bólusetja sig. Enn frem-
ur tel ég ráðlegt, að bændur
og sjómenn láti bólusetja sig
og aðrir þeir, sem hætta er
á að verði að sinna störfum
sínum þótt veikir yrðu.
Frá undirritun samninga í skrifstofum Fiugfélags íslands í gær. Frá hægri: Örn Johnson, for-
stjóri, Mr. Switzer frá Fokkerverksmiðjunum, Guðmundur Vilhjálmsson, forma-ður stjórnar
FÍ, Bergur G. Gíslason og Kjartan Tliors, stjórnarmeðlimir FÍ. (Ljósm. Mbl.: Ól.K.M.)
Samningar undirritaðir um
kaup á annarri Fokkervél
FÍ tryggar sér íorkaupsrétt
að þriðju véSinni
KLUKKAN hálfsex í gær
undirritaði Örn Johnson, for-
stjóri Flugfélags íslands,
samning við Fokker-flugvéla-
verksmiðjurnar í Hollandi um
kaup á annarri Fokker Friend
ship-fluvél fyrir FI, sem af-
hendast skal í lok marz 1966.
Fyrri Fokkervél FÍ verður af-
hent í lok apríl eða í byrjun
maí nk. Samninginn undirrit-
aði fyrir hönd verksmiðjanna
Mr. Switzer frá söludeild
þeirra. I samningnum er Flug-
félagi Islands jafnframt
tryggður forkaupsréttur að
þriðju Fokker Friendship-vél-
inni, ef félagið tæki ákvörðun
um að kaupa þá vél.
Örn Johnson ræddi við blaða-
menn á fundi í gær í tilefni samn-
ingsgerðarinnar. Hann sagði að
eftir nána yfirvegun hefði Flug-
félag íslands talið að Fokker
Friendship-vélarnar hentuðu bezt
til þess að endurnýja innanlands-
flugvélakost félagsins. Þær væru
í notkun víða um heim, og hefðu
gefið mjög góða raun í hvívetna.
Hann kvað samninginn um
seinni vélina gerðan með þeim
fyrirvara að ríkisábyrgð fengist
fyrir láni, sem næmi 80% af
kaupverði hennar. Þegar hefði
verið leitað til ríkisstjórnarinnar
vegna þessa, og hún hefði sýnt
mikinn skilning á málinu. Það
yrði lagt fyrir Alþingi einhvern
næstu daga, og kvaðst Örn John-
son vona, að þingmenn myndu
sýna skilning sinn og Velvilja í
þessu máli.
Örn Johnson gat þess, að fyrri
vélin, sem kemur í vor, verði tek-
UM NÆSTU helgi, 27. og 28.
febrúar, efnir Varðberg í Reykja
vík til ráðstefnu um „KJARA-
MÁL í ATLANTSHAFSRÍK J -
UNUM“. Verður þar fjallað um
nokkra þýðingarmikla þætti í
violleitni þsssara ríkja til að
bæta kjör þegna sinna. Meðal 4 j
fyrirlestra, sem fluttir verða á
ráðstefnunni, mun Olav Brun- j
vand, aðalritstjóri frá Osló og
fyrrv. aðstoðarráðherra, flytja
erindi um „Efnahags- og kjara-
þróun í austri og vestri“, en
þeim málum er hann sérstaklega
kunnugur, m.a. af ferðalogum 1
sínum, bæði austan tjalds og
vestan.
Fjórir fyrirlestrar og umræðu-
hópar.
Ráðstefnan verður sett af for
manni Varðbergs, Herði Einars-
syni, laugardaginn 27. febrúar
kl. 13:30 í Glaumbæ við Fríkirkju
veg og verður fyrirlestur Olav
Brunvand sfðan fyrst á dag-
skránni þennan fyrri dag ráð-
stefnunnar. Þá mun einnig
Sveinn Björnsson, framkvæmda-
stjóri Iðnaðarmálastofnunar ís-
lands, flytja erindi um „Hlut
hagræðingar í efnahagsþróun og
kjarabótum“.
Síðari dag ráðstefnunnar munu
þátttakendur snæða saman há-
degisverð í Sigtúni við Austur-
völí, en að honum loknum verð-
ur störfum ráðstefnunnar haldið
áfram þar á staðnum. Mun Ósk-
ar Hallgrímsson flytja erindi um
„Vinnutíma hér og erlendis —
leiðir til styttri vinnutíma" og
Framhald á bls. 27
Olav Brunvand
in í notkun á helztu innanlands-
leiðunum, til Akureyrar, ísafjarð
ar og Vestmannaeyja. Er seinni
vélin kæmi, yrði fleiri leiðum
bætt við, en þetta væri þó að
nokkru háð hvaða framkvæmdir
yrðu í flugvallarmálum innan-
lands. Þá kvað hann einnig
mundu verða athugað hvort ekki
væri hægt að nota aðra vélina til
Færeyjaflugs, en það yrði þó h’ð
því, hvað gert yrði í flugvallar-
málum þar.
Fokker Frienship-vélarnar eru
mun hraðfleygari en DC-3-vei-
arnar, sem FÍ notar nú innan-
lands. Meðalhraði þeirra er 440
km á klukkustund, og styttist
flugtíminn til Akureyrar um
hálfa klukkustund frá því sem
nú er. Nú tekur 1 klst. og 20 mln.
að fljúga þessa leið, en með Fo’-k
er Friendship mun það ekki taka
nema 50 mínútur.
Örn Johnson gat þess, að kaup-
verð seinni vélarinnar væri nær
hið sama og þeirrar fyrri, eða 40
milljónir króna fyrir hvora vél.
Þar við bættist að FÍ legði til
Rolls Royce Dart hverfihreyfxa,
sem félagið ætti, og kostuðu beir
4 milljónir kr. fyrir hvora vél.
Örn Johnson sagði að undir-
búningur að því að taka nýju vél-
ina í notkun væri löngu hafinn.
Nú stæði yfir í Reykjavík nám-
skeið fyrir flugmenn, og kenndu
þar tveir menn frá Fokker-verk-
smiðjunum. Þá hafa flugvirkjar
frá FÍ farið til Hollands og setið
námskeið hjá verksmiðjunum.
Mr. Switzer kvað Fokker-verk-
smiðjunum mikla ánægju að því
að eiga viðskipti við Flugfélag
Islands. Hann sagði að síðan
fyrsta Fokker Friendship-vélin
var pöntuð 1958 hafi verksmiðj-
urnar fengið 315 pantanir á þess-
um flugvélum, að sölunni til FÍ I
gær meðtalinni. 265 flugvélar
hafa verið afgreiddar og eru þær
í notkun um allan heim, m.a.
Japan, Ástralíu og víðar. Vélarn-
ar hafa verið seldar til 32 landa.
Þær væru framleiddar í Hollandi.
en Fairchild-flugvélaverksmiðj-
urnar bandarísku framleiddu
einnig Fokker Friendship-vélar,
en aðeins fyrir Bandaríkjamark-
að. —
Hæðin yfir Grænlandshafi
og Grænlandi var ekkert far
in að láta sig í gær og má Evrópu.
gera ráð fyrir aðgerðarlausu
veðri áfram hérlendis, en í
hægri norðanátt og kuldum í ?