Morgunblaðið - 26.02.1965, Side 17

Morgunblaðið - 26.02.1965, Side 17
Föstudagur 26. febrúar 1965 MORGU N BLAÐID 17 11 ísspanginiar þéttast er austur með landi kemur. Þessi mynd tekin skammt frá Grímsey. (Ljósm.: Emil Ágústsson). Skjaldbreið varð að brjóta sér rennu í gegn um ísinn f GÆRMORGUN brauzt strandferðaskipið Skjaldbreið í gegn um ísbreiðuna við Hornbjarg og hér á eftir fer lýsing skipstjórans á því, svo og símtal við Óskar Aðalstein, vitavörð á Galtarvita: Blaðið átti í gær tal við Guð jón Guðmundsson á Eyri í Ingólfsfirði, en hann er um- boðsmaður Rikisskip þar á staðnum. Skjaldbreið var þá nýfarin frá Ingólfsfirði áleið- is til Ólafsfjarðar en hafði um morguninn farið fyrir Horn- bjarg. Guðjón á Eyri hafði rætt við Magnús Einarsson, skip- stjóra á Skjaldbreið, um ferð skipsins fyrir Hornbjarg og í gegnum ísinn þar. Samkvæmt frásögn skip- stjórans var ísinn allt upp undir landi við Hornbjarg, en þegar Skjaldbreið kom þang- að sá skipstjórinn, að auður sjór var hinum megin við ís- breiðuna, sem var um 600 m breið þar sem skipið var. Skipstjóri tók það ráð, þar sem bezta veður var, logn og blíða, að reyna að ýta jökun- um frá með því að sigla skip inu á ísinn og mynda þannig rennu í gegn. Tókst þetta vel og komst Skjaldbreið leiðar sinnar án áfalla eða skemmda. Skipstjóri sagði, að góða veðr- j Jakaspðngln, sem nær upp i landsteina við Horn — og Skjald- breið „stjakaði“ sér í gegnum í gær. — (Ljósm.: I>. Sigtryggss.) inu hefði mátt þakka, hversu vel þetta tókst, því ekki hefði verið þorandi að reyna að brjótast í gegn hefði eitthvað verið að veðri. Skjaldbreið er nú á leið til Ólafsfjarðar, þar sem hún snýr við. Skipstjórinn taldi vafasamt, að hann kæmist til baka, því ísinn væri svo ná- lægt landi og ekkert mætti bera út af með v&ðrið til þess að hann yrði landfastur. Guðjón á Eyri sagði Morg unblaðinu, að hrein leið væri til Ólafsfjarðar sem stjgði, en oft hefði mikill ís verið á Húnaflóa áður fyrr. Meira að segja hefði verið haegt að ganga milli Hornbjargs og Skaga árið 1918, því þá hefði íshellan náð langt út á haf. Þá átti blaðið símtal við Óskar Aðalstein, vitavörð á Galtarvita, og spurðist fyrir um hafísinn, sem er ekki langt undan þar vestra. Óskar sagði, að úr vitanum sæist ekki til íssins, þótt sæmi legt skyggni væri Og fallegt veður. Hann kvaðst stundum hafa orðið var við ísjaka, en ekki síðustu daga. Hann sagði, að ísinn væri skammt undan og gerði norð anátt yrði hann ekki lengi að reka upp að landi. „>að er ekkert grín að fá hann hér upp undir. Það er hálfgerður kvíði í mér út af því“, sagði Óskar. „Það er meiri ís hér um slóðir en verið hefur allt frá því ég byrjaði sem vitavörð- ur“, sagði hann, „en ég hef ekki farið hér upp á fjöllin til að gá að honum, þótt öruggt megi teljast að sjást mundi til hans. í vetur hef ég stundum farið upp á Öskubak og stund- um séð til íssins, en þaðan er góð sýn langt út“, sagði Óskar Aðalsteinn. „AnnarS hefur þetta verið undarlegur vetur“, sagði hann, „því skiptzt hafa á mik il norðanveður og fannfergi og sumarblíða. Nú er meira að segja farin að koma upp smá- vegis gróður". Að lokum bað Óskar Aðal- steinn fyrir kveðjur til ætt- ingja og vina og sagði að öll- um hans þar vestra liði vel. — Mesti is Framhald af bls. 1. Þröstur Sigtryggsson skipherra, sem stjórnaði fluginu, sagði tíð- indamanni blaðsins að bátarnir yrðu við þessar aðstæður að gæta mikillar varkárni og mætti ætla að á siglingu inn í jaka- hrönglið og út fengju bátarnir „pústra“ og högg álíka og er þeir leggjast að bryggju. LÝSING ASTANDSINS Bezt lýsing ferðarinnar og á- standsins er hið greinargóða yfir- lit sem Jón Eyiþórsson gaf blaða- mönnum í vélinni eftir að ís- kortið hafði verið teiknað sam- kvæmt sjónflugi eða mælingum með fullkomnum radartækjum landhelgisvélarinnar. Jóni fórust svo orð: Við komum að ísröndinni 54 sjómílur vestur af Grænu- hlíð og flugum síðan með henni fyrir mynni ísafjarðardjúps'. Þar liggur gisin ísbreiða, þar sem skip komast í gegn í björtu. ís- rastir ná alveg upp að Straum- n'esi og Kögri en eru mjóar og færar í birtu sem fyrr segir. Er austar dregur fjarlægist ís- inn landið, einkum er stór vík norður í ísbreiðuna norður af Húnaflóa, en út af Skagafirði þverbeygir hún að landinu og er 4 sjómílur út af Siglunesi. Þar á kafla liggur hún með land- inu, en fjarlægist aftur og eru einstakir ísjakar vestur af Gríms- ey en norður af eynni er sam- hangandi og alllþétt ísbreiða eins langt og séð verður. ísinn liggur svo til austurs, með landinu, en norður af Hraun hafnartanga á Sléttu gengur ís tunga til suðurs og er aðeins 12 sjómílur frá landi. ísinn liggur svo í boga 60 km NA af Langanesi og beygir þar til suðurs og syðsta tungan nær suður á móts við Gunnólfsvíkur- fjall og er þar 150 km undan landi. FÆRIST AUSTUR Isinn hefur yfirleitt færzt austur á bóginn síðan í gær og tungan austur af Langa- nesi bendir sérstaklega til þess að Austur-íslandsstraumurinn sé farinn að hafa áhrif á ís- rekið, enda eru áberandi marg ar mjóaT en þéttar rastir í þessari tungu með aðeins jafca stangli á milli. Þessar ísrast- ir virðast stefna þvert á strauminn og að óbreyttri vindstöðu er mjög hætt við að ísinn haldi áfram að reka suður með Austfjörðum og er ekki eins og sakir standa hægt að sjá fyrir afleiðingarnar af því. — Hverjar eru hættuleg- ustu afleiðingar þess, spiutt tíðindamaður Mbl.? — Að Austfirðir kunna a0 fyllast af ís, ef straumur o* vindur leggjast á sömu sveiL Það sem við þyrftum nú afl fá, hélt Jón áfram, er kröftug SA-átt til að keyra isinn tU baka norðu'r og vestur. SAGA FYRRI ÁRA I miklum ísárum hefur þaS komið alloft fyrir að ís reki allt suður fyrir Hornafjörð og siðar vestur með suðurströnd- inni hjá Eyjum allt fyrir Reykjanes og inn á Faxaflóa. 1914 var ís fastur við Langa nes og var að flækjast þar frám í júnímánuð. 1911 var is við Austfirði og fyllti Austfirði alla suður tíl Beruf jarðar. 1902 í marzlok voru hafþök af ís fyrir Austfjörðum og rak íshroða allt vestur fyrir Ing- suður undir Papey. Á 19. öld skeði það oft að ís ræki suður í Beruf jörð, suð- ur í Lón og í önnur skipti suður ndii Papey. Árin 1821, 1826 og 1835 bar ís fnamhjá Vestmannaeyjum og skeði það alltaf í maimán- uði. EKKI ÞÉTTUR YFIRLEITT — Aðspurður um eðli íss þess sem sást í könnunarfluginu í gær svaraði Jón: — ísinn er ekki þéttur né þungur út af Vestfjörðum og verður ekki landfastur nema í hvassri norðanátt. Hættan er. meiri við Austfirði, því straum- urinn þar er svo áhrifaríkur; ísjaðarinn er mjög brotinn, einskonar kurlís og yfirleitt alls staðar sundurlaus — eins og hellulagt sé. ísrastir eru hins vegar margar samfellJar og eru þessi rastabelti mest áberandi er austur með landinu dregur. En ístungurnar eru þannig að ef frost gerir þá er hætt við að ekkert skip komizt í gegn nema ísbrjótar. Isinn virðist 80—100 sm. Þykk- ur. Stöku jakar sína að þeir hafa riðlast og að í sumum tilfellum hafi ísinn hrannast upp. En yfir- leitt virðist þetta vera vetrarís, sem hefur brotnað upp. Hann er allur smágerður, engir borgarís- jakar sjást. Þéttleiki íssins er þetta 2/8 og upp í 4/8 út af ísafjarðardjúpi en er austar dregur er þéttleik- inn víða 8/8 og mundi kallast hafþök ef hann næði yfir stærri svæði en spangirnar eru. ísinn sást í dag illa fyrir þoku en þar sem ísinn var þéttastur létti þokunni en yfir lónunuiii á milli grúfði þoka, sagði Jón Eyiþórsson að lokum. í jakahrönglinu. — vissara að fara að Það er hrollvekjandi að sjá Djúpbátana inn Hér er einn djúpt inn í hrönglinu. Það er öllu með sát. En vogun vinnur — vogun tapar. — (Ljósm.: Þröstur Sigtryggsson).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.