Morgunblaðið - 26.02.1965, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 26.02.1965, Qupperneq 21
' Fðstudagur 26. febröar 196? MORCUNBLAÐIÐ 21 SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA ÆSKAN OG FRAMTÍÐIN RITSTJÓRAR: GUNNAR GUNNARSSON, JÓN E. RAGNARSSON OG RAGNAR KJARTANSSON r ^ Amælisverð iromkomo veitingahússins Glaumbæjar — Reka ungt iólk undir 21 úrs aldri irú borðum kaupi það ekki úiengi — Tíðkast slíkt víðar? |Er aukið eitirlit með | veitingahúsum nauð- | synlegt? ATVIK það, sem lýst er her á síðunni, úr Glaumbæ og er vafalaust ekkert einsdæmi þar og jafnvel víðar er slíkt reg- inhneyksli, að ekki verður yf- ir þagað né við unað. Að eitt veitingahús skuli leyfa sér að hleypa inn ungu fólki á aldrinum 18—21 árs og setja áfengiskaup þess undir lög- aldri sem skilyrði fyrir því að fá borð og geta þar með haldizt við á staðnum er óaf- sakanlegt og vissulega til þess að koma ungu fólki upp á ótímabæra áfengisdrykkju, svo ekki sé meira sagt. I framhaldi af þessu hafði Æskulýðssíðan samband við Lúðvíg Hjálmtýsson, formann Sambands veitinga- og gisti- húsaeigenda og sagði honum af fyrrnefndu atviki. Sagði Lúðvíg þetta slæmar fréttir og harma að slíkt gæti átt sér stað því atburðir sem slíkir væru síður en svo í hag þeirra, er reka veitingahúsin, og sem yfirleitt reyna að stuðla að góðri þjónustu við gesti sína. Lúðvíg benti á það, að eftir að söluverð gosdrykkjaflösk- unnar er komið upp í 25—30 kr. væri gosdrykkjasalan ekki síður ábatasöm en sala áfeng- is. Hins vegar væru þjónar yfirleitt upp á söluprósentu og hefðu því mest upp úr áfengissölunni. Sagiðst Lúð- víg ekki trua þvi að oreyndu að slíkt væri gert að undir- lægi forráðamanna hússins. Aðspurður hvort hann teldi nauðsynlegt að auka eftirlit með veitingahúsum vegna þess, sem áður hefur verið minnst á og einnig í sambandi við önnur atriði, sbr. yfirfyll- ingu húsanna, taldi Lúðvíg að vissulega bæri að viðhalda eftirliti og framfylgja þeim reglum, sem fyrir væru en vandinn lægi ekki síður í því „móral“-Ieysi, sem vart verð- ur hjá almenningi og þá um leið hjá hluta af gestum veit- ingahúsanna. Þessi atburður svo og um- mæli formanns Sambands veit inga- og gistihúsaeigenda und- irstrikar betur en fyrr mikil- vægi þess, að eftirliti með vín- veitingahúsum af hálfu hins opinbera sé framfylgt til hins ítrasta, svo og að forráðamenn veitingahúsa veiti starfsliði sínu að sama skapi slíkt að- hald að staðirnir fái ekki á sig slæmt orð að óþörfu. Sé á stöðum þessum hins vegar ekki farið eftir lágmarks kröfum er það skylda hins opinbera að grípa fram í með því að taka af brotlegum stöð- um vínveitingaleyfið — annað og minna dugar ekki, ef ósam- anum á ekki að líðast að vaða uppi í f"Ilum herklæðum. R. Kj. Fró fjöllefli Friðriks Ólaissonor við unga Sjólistæðismenn SUNNUDAGINN 7. febrúar tefldi Friðrik Ólafsson, stór- xneistari, fjöltefli á vegum Heim- dallar F.U.S. í Valhöll. Teflt var á nær 20 borðum og vann Frið- rik öll utan 4 jafntefli. Fjölmarg- ir áhorfendur voru að fjölefii þessu, sem var einn liður í tóm- stundastarfsemi Heimdallar. Var félagsmönnum mikill fengur í í því að fá Friðrik Ólafsson á sinn fund og á hann miklar þakk- ir skilið. (Ljósm. Árni Lárusson). U N G T par kom nýléga að máli við síðuna og sagði sínar farir ekki sléttar af viðskipt- um við veitingahúsið Glaumi- bæ. Sl. laugardagskvöld hugð- ist fyrrnefnt par fara og skemmta sér við dans í Glaum bæ, en aldurstakmark er þar yfirleitt 18 ár, að því er síð- an fékk staðfestingu á hjá húsinu, sem hefur vínveitinga leyfi eins og almenningi er mjög svo kunnugt. Við inn- göngudyr var gestum gert skylt að sýna vegabréf til stað- festingar aldurs, sem gekk snuðrulaust fyrir sig. Er inn var komið tókst herranum eftir nokkra erfiðismuni að ná í borð hjá einum þjónin- um. En þegar fyrst skyldu pantaðar á borðið tvær gos- drykkjaflöskur á kr. 25 flask- an en ekki áfengi eins og þjónninn virtist telja sig eiga heimtingu á, kom heldur en ekki babb í bátinn og bað hann þau að hafa sig á brott frá borðinu, sem hann sagði upptekið þrátt fyrir að þau hefðu fengið borðið að þvi er virtist á meðan áfengissölu- möguleikinn var með í spilinu. Parið hrökklaðist frá borðinu yfir sig undrandi á hegðun „þjónsins** og tókst ekkl að fá borð fyrr en seinna um kvöldið og á öðrum stað í hús- inu. En þá tók ekki betra við og var sama upp á teningnum, og þeim tjáð að þau gætu haft sig á brott frá borðinu hið skjótasta ef engin áfeng- iskaup yrðu höfð í frammi af þeirra hálfu. — Þarf því les- endum síðunnar ekki að undra þó parið hafi horfið á brott og muni ekki gera sér tíðförult í þetta „villta vest- ur“ höfuðborgarinnar. (Sjá rammargein annars staðar á síðunni). Launþegaklúbbur ungra Sjálfst-manna hefur starfsemi sína á ný - Leiðbeinandi verður Pétur Sigurðsson alþm. Birgir K£aran ræðir um kommúnism. á 1- f undi U M svipað leyti á síðasta ári hóf starfsemi sína Launþegaklúbbur Heimdallar og samanstóð starf- semi hans af 5 fundum og 2 kynnisferðum fram til vors. Sl. haust voru síðan aftur haldnir fundir og nú n.k. miðvikudags- kvöld hefst starfsemin á ný með því að Birgir Kjaran hagfræð- ingur mun ræða við þátttakendur klúbbsins um kommúnismann. Þessi fyrsti fundur klúbbsins að þessu sinni verður settur af for- manni Heimdallar, Styrmi Gunn- arssyni en leiðbeinandi og stjórn- andi klúbbsins verður Pétur Sig- urðsson, alþm. Sem fyrr byggist starfsemin upp á fyrirlestrum, umræðum, fyrirspurnum, kvik- myndasýningum, kynnisferðum o. fl. Sem fyrr er sagt mun Birgir Kjaran' verða frummælandi á fyrsta fundinum en í lok þess fundar verða sýndar kvikmyndir. Fundirnir verða haldnir vikulega á miðvikud. og á öðrum fund- inum mun Birgir fsl. Gunnars- son, borgarráðsmaður, fyrrv. for- maður Heimdallar fræða þátttak- endur um ræðumennsku og Pét- ur Sigurðsson, stjórnandi klúbbs- ins útskýra uppbyggingu ræðu. f lok þessa fundar verður sýnd kvikmynd með ræðum nokkurra frægra stjórnmálaskörunga. — Þriðja atriðið í starfsemi klúbbs- ins verður kynnisferð í húsa- kynni borgarstjórnar Reykjavík- ur en þar mun borgarstjórinn, Geir Hallgrímsson, ræða við þátttakendur. Á fjórða fundin- um mun Magnús Óskarsson, hæstaréttarlögmaður útskýrm helztu atriði fundarreglna auk þess sem hann mun gera nokkur skil misbeitingu kommúnista í verkalýðshreyfingunni á því sviðl. Á þessum fundi munu þátt- takendur einnig fá ýmiss prent- uð gögn um fundarreglur, sena fyrir liggja, auk þess sem þátt- takendur geta fengið á meðan starfsemin stendur yfir margs konar bækur, bæklinga og fleira er að innlendum og erlendum stjórnmálum lúta. Hvað áfram- haldandi starfsemi snertir verð- ur hún ákveðin í' samráði viS þátttakendur, hvort sem un verður að ræða fyrirlestra elleg- ar þó frekast málfundi Loka-' Framhald á bls. 18 Pétur Birgir Birgir IsL Geir Magnúa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.