Morgunblaðið - 26.02.1965, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 26. febrúar 1965
IþróttasvæðiFHvi
Reykjanesbraut
Axeí Krístfánsson fcrstjóri
kjcrinn formaður FH
AÐALFUNDUR Fimleikafélags
Hafnarfjarðar var haldinn 31.
janúar sl. í Góðtemplarahúsinu í
Hafnarfirði. Fundurinn var fjöl-
mennur.
Fráfarandi formaður félagsins
V a 1 g a r ð Thoroddsen flutti
skýrslu aðalstjómarinnar. Skýrsl
an bar það með sér að mikil
gróska er nú í starfsemi félags-
ins, sem Valgarð kvað mest að
þakka að á sl. ári hafi verið
tekin upp deildarskipting innan
félagsins.
Deildir félagsins héldu aðal-
fundi sína í desembermánuði sl.,
og samkvæmt hinum nýju félags
lögum eiga formenn þeirra sæti
í aðalstjórn félagsins.
Samkvæmt skýrslu Finnboga
F. Arndals gjaldkera félagsins á
F. H. við sama vanda að stríða
og íþróttafélög almennt, að erfitt
er að afla umfangsmikilli íþrótta
starfsemi nægilegt rekstrarfé.
Aðalstjóm félagsins er skipuð
sjö mönnum og kýs aðalfundur
fimm þeirra, þar sem deildir fé-
lagsins hafa haldið aðalfundi
sína og formenn þeirra eiga sæti
í aðalstjórninni.
Eftir að stjómarkjör hafði far-
ið fram verður stjórn F. H. skip-
uð eftirtöldum mönnum.
Formaður Axel Kristjánsson,
v.form. Hallsteinn Hinriksson,
gjaldkeri Finnbogi F. Amdal, rit-
ari Valgeir Óli Gíslason, með-
stjómandi Kristófer Magnússon,
formaður Handknattleiksdeildar
Gísli H. Guðlaugsson og forrnað-
ur Knattspymudeildar Ámi
Ágústsson. í varastjórn eiga
sæti: Birgir Bjömsson, Bergþór
Jónsson, Valgarð Thoroddsen og
varaformenn deildanna Ragnar
Magnússon fyrir Knattspyrnu-
deildina.
Helzta og brýnasta verkefni
nýkjörinnar stjómar Fimleikafé-
lags Hafnarfjarðar verður að
sjálfsögðu áframhald á uppbygg-
ingu íþróttasvæðis þess, sem
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar var
svo rausnarleg að úthluta lands-
svæði til. Nú þegar hefur verið
mælt út fyrir knattspymuvelli
og frumdrög að fyrirkomulagi
liggur fyrir. Einnig hefur svæðið
verið hallamælt, og sléttað með
jarðýtu. Sú vinna sem lögð hefur
verið í þetta er að verðmæti fast
að 200 þús. kr., sem er skuldlaus
eign félagsins.
Ekki er að efa, að þegar völlur
hefur verið lagður mun hann
leysa brýna þörf félagsins urn
aukna og bætta aðstöðu til
íþróttaiðkana og ekki sízt vera
fjárhagslega lyftistöng fyrir starf
semina alla, þar sem staðsetn-
ing svæðisins er á mótum einnar
mestu umferðaræðar landsins.
Svæðið liggur á móti Önglaverk-
smiðjunni við nýja Keflavíkur-
veginn rétt upp að hraunbrún-
inni. — í svæðisnefnd eiga sæti:
Axel Kristjánsson, Albert Guð-
mundsson, Valgarð Thoroddsen,
Bergíþór Jónsson, Kristófer Magn
ússon, Gísli H. Guðlaugsson og
Ólafur Kristjánsson.
Fulltrúaráðið
Innan félagsins er fulltrúaráð,
sem er skipað fyrrverandi for-
mönnum o. fl. Á liðnum árum
hefur félagið ekki notið þess sem
skyldi. Nú er ætlunin að blása
rækilega í þær glæður. Pátt mun
vera árangursríkara til fram-
dráttar félagi, af fyrrverandi og
núverandi framámenn þess legg-
ist á eitt um að vinna því gagn
á sem stærstum grundvelli. Vai-
garð Thoroddsen mun nú taka að
sér að brýna fulltrúaráðið til
starfa.
Annori umíerð um Evrópubikur
í körfuknuttleik lokið
I
Tæknimerki í
köriuknuttleik
Til eflingar körfuknattleiks
hérlendis ákvað KKÍ, að
koma á keppni um tækni-
merki, að sænskri fyrirmynd.
Þrautir þessar og próf skuiu
skapa grundvöll að tækni og
getu í körfuknattleik og eru í
fjórum stigum, járn, bronz,
silfur og gull. Þátttaka hefur
verið nokkur, en þrautir þess
ar eru það þungar, að það
krefst mjög mikillar æfingar
og getu að fullljúka þeim. Nú
í ársibyr jun höfðu 20 lokið gull
stiginu 3 silfurstiginu 6 bronz
stiginu oig 8 járnstiginu.
Nú virðist álhugi imglinga
út um land glæðast mjög og
hafa 140 nemendur í Núps-
'S’kóla nýlega lokið járnstiginu
og munu nú flestir tilbúnir
til próifs 1 bronzstiginu, en
mikill áhugi ríkir þar í skól-
anum að ljúka gullstiginu á
komandi vori Einnig hafa
unglingar í Stykkisihólmi haf-
ið æfingar og nokkrir þegar
lokið járn og bronzstigi, og
von er á enn fleirum á næst-
unni.
Með þátttöku þessara ung-
linga er lagður grundvöllur
að körfuknattleiksliðum fram-
tíðarinnar og ættu nú fleiri
skólar og íþróttafélög að feta
í fótsporin og hefja æfingar
sem fyrst..
Stjórn KKÍ veitir þeim er
óska allar nánari upplýsingar
um tæknimerkin og fyrirkomu
lag þrautanna.
7. jan. 71:72 (40:33)
AEK — Antwerpse, Athens
14. jan. 85:70 (43:32)
Alviks BK — OKK Beograd,
Bromma 6. jan. 80:136 (44:61)
OKK Beograd — Alviks BK,
Belgrade 14. jan 155:57 (60:17)
SC Chemie — Spartak ZJS,
Halle 5. jan. 76:82 (36:34)
Spartak ZJS — SC Chemie, \
Brno 9. jan. 83:66 (38:36) ,
Lokomotiv — TS Wisla, Sofia
10. jan. 79:61 (47:36)
TS Wisla — Lokomotiv,
Cracovie 17. jan. 82:54 (43:27)
Afrek og
fegurð
SUNDFÓLKIÐ hefur sett sinn
svip á íþróttalífið undanfarna
daga. Hér koma tvær síðustu
myndirnar frá sundmótinu.
Önnur sýnir stöllurnar þrjár,
Matthildi (t. vinstri) Guð-
mundsdóttur Á, Evu Ferhm
frá Svíþjóð og Hrafnhildi
Guðmundsdóttur ÍR, í við-
bragðinu í einu sundanna. —
Hrafnhildur vann allar
kvennagreinar mótsins en hin
ar skiptust á um 2. sætið.
Á minni myndinni er Eva
Ferhm að aflokinni keþpni í
einni grein. Hin sænska stúlka
þótti að glæsileg ekki gefa
mörgum fegurðardrottning-
um eftir. Hún varð 16 ára
fyrri dag mótsins.
Eftir að Elisabet drottning hafði slegið Stanley Matthews til riddara fyrir framlag hans til
kanttspyrnu, en það gerði hún í tilefni 50 ára afmælis hans, var þessi mynd tekin. Sir Stanley
er þar að horfa á heiðurslaun, sem þrír af Olympíuþátttakendu m Breta hlutu við sama tækifæri
í Buckinghamhöll. Voru þau Bobbie Brightwell, kona hans Ann Packer og Mary Rand sérstak-
lega heiðruð, en þau unnu tvö gullverðlaun, 3 silfurverðlaun og bronsverðlaun í Tokíó.
ÚRSLIT í 2. umferð Evrópubik
arkeppni í körfuknattleik 1965.
í svigum staðan í hálfleik.
Helsinki K.T. — Real Madrid,
Helsinki 6. jan. 100:109 (50:60)
Real Madrid — Helsinkin K.T.
Madrid 16. jan. 97:51 (43:23)
ÍR — Lyon, Reykjavík 10. jan.
42:74 (18:37)
Lyon — ÍR Villeurbanne, 17. jan.
84:19 (43:15) .
Honvéd — Ignis-Varese, Buda-
pest 7. jan. 84:74 (37:32)
Ignis-Varese — Honvéd, Varese
14. jan. 67:56 (36:29)
Antwerpse — AEK, Anvers
Innan skamms fer fram í
Vlsír fjögura landa keppni í
cnattspymu. Mætast þar
andslið Svía, Spánar, Alsír
>g Marokko.
Fram og FH
sigruðu
f GÆRKVÖLDI voru leiknir
tveir leikir í 1. deild í handknatt
leik, Fram vann Víking með
32:20 og FH vann KR með 25:19.
CHELSEA sigraJði tilrauna-
landslið í V-þýzkalandi á
mánudaginn, eða 1—0. Leik-
urinn fór fram í Duisburg.
Barry Bridges skoraði einasta
mark leiksins 8 mín fyrir
leikslok.