Morgunblaðið - 12.03.1965, Side 8

Morgunblaðið - 12.03.1965, Side 8
8 MORCUNBLAÐIÐ T Föstudagur 12. marz 1965 Verður Áburð arver ksmiö jan gerð að ríkisfyrirtæki? f GÆR var til 1. umræðu í Neðri deild frumvarp Framsóknar- manna um, að Áburðarverksmiðj au verði gerð að ríkisfyrirtæki. Gerði Áffúst Þorvaldsson grein fyrir frumvarpinu, en síðan tal- aði Ingólfur Jónsson, landbúnað- arráðherra. Það kom fram m.a. í ræðu ráðherrans, að það væri rétt, ef alþingismenn yrðu nú í aðalatriðum sammála um það að breyta lögunum um Áburðar- verksmiðjuna, að þá væri engin ástæða að fresta því og eðlileg- ast, að lögunum yrði breytt á ' þessu þingi. f Efri deild var frumvarp um Húsnæðismálastofnun ríkisins helzta mál á dagskrá og mælti Emil Jónsson félagsmálaráðherra fyrir þvL NEDRI DEILD Áburðarverksmiðja ríkisins Ágúst Þorvaldsson (F) gerði grein fyrir frumvarpi um Áburð arverksmiðju rikisins, sem þing menn Framsóknarflokksins í Neðri deild eru flutningsmenn að. Með frum- varpi þessu er gert ráð fyrir eins og segir í greinargerð með því, að setja á stofn Áburðar- verksmiðju ríkis ins sem sjálf- stæða stofnun í eigu ríkisins, sem lúti sérstakri stjórn, sem kosin sé af Alþingi. Áburðar- * verksmiðja ríkisins taki við öll- um eignum og réttindum, skuld- um og ábyrgðum Áburðarverk- smiðjunnar h.f. og komi að öllu leyti í hennar stað. Hlutabréf Áburðarverksmiðjunnar h.f., sem eru í eigu annarra en ríkisins, skulu tekin eignarnámi sam- kvæmt mati þriggja manna, sem haestiréttur tilnefnir. Þá segir ennfremur í greinar- gerðinni, að flutningsmenn frumvarpsins telji ríkisrekstur hvorki aeskilegt né eftirsóknar- vert rekstrarform í sjálfu sér, þar sem öðru verður með eðlilegum hætti komið við. Á hinn bóginn er markaður okkar þjóðfélags svo lítill, að stórfyrirtæki, sem framleiðir fyrir innlendan mark- ^að, hlýtur oftast að sitja að hon um eitt án alls aðhalds af eðli- legri samkeppni. Slíkt fyrirtæki nýtur því algerrar einokunarað- stöðu, sem ekki er eðlilegt að sé í höndum annarra en ríkisheild- arinnar, allra sízt eftir að því hefur verið falið að sjá um alla áburðarsöluna, eins og verið hef ur undanfarið. Áburðarverksmiðjan í Gufu- nesi framleiðir fyrst og fremst áburð fyrir innlendan markað, og innflutningur áburðar er tak- markaður við það magn, sem verksmiðjan annar ekki að fram leiða, og þaer tegundir, sem hún framleiðir ekki. Þannig nýtur verksmiðjan algerrar einkaað- stöðu á áburðarmarkaðinum í landinu. Með tilliti til þessa telja flutn ingsmenn það fyrirkomulag, sem nú er á rekstri Áburðarverksmiðj unnar, alveg óeðlilegt, og það er skoðun þeirra, að tímabært sé, að ríkið leysi til sín hlutabréf annarra hluthafa í verksmiðjunni og taki rekstur hennar að fullu í sínar hendur, og miðar frum- varp þetta að því. Ingólfur Jónsson, landbúnaðar ráöherra talaði næstur. Sagði hann m.a., að Einar Olgeirsson hefði mörg undanfarin ár flutt frumvarp um að ríkið yfirtaki hlutabréf Áburðarverksmiðjunn- ar og að Áburðarverksmiðjan verði að öllu leyti eign ríkis- ins. Þetta frum- varp hefur verið rætt, en það hef ur ekki komizt úr nefnd. 1959 mun fjárhags- nefnd hafa skrif að hluthöfum og leitazt eftir því, hvort þeir vildu á frjálsan hátt láta hlutabréfin af hendi. Svar barst frá Sambandi ísl. samvinnu var það neikvætt. Svar barst félaga, sem á stærsta hlutinn og einnig frá nokkrum af hinum hluthöfunum og þeir töldu sig ekki á þessu stigi málsins geta svarað ákveðið um það, hvort þeir vildu af frjálsum vilja láta hlutabréfin af hendi. Nú er það ljóst með flutningi þessa frumvarps, sem hér um ræðir, að afstaða Framsóknar- flokksins hefur breytzt frá því 1959, því að þá vildu þeir ekki með frjálsum vilja láta hluta- bréfin af hendi. Það væri rétt, sem Ágúst Þorvaldsson hefði sagt, að hlutabréfin í Áburðar- verksmiðjunni væru tiltölulega lítil upphæð miðað við það, sem verksmiðjan kostaði, þegar hún var byggð. Hún mun hafa kostað um 130 millj. kr. og í greinargerð með frumvarpi Einars Olgeirs- sonar segði, að áætla megi verð mæti verksmiðjunnar í dag 350 millj. kr. Ráðherrann kvaðst telja það ekki óeðlilegt, þótt afstaða manna til þessa máls væri nokk- uð önnur nú heldur en 1959 og það er vegna þess, að nú standa fyrir dyrum miklar breytingar í verksmiðjunni og stækkun. Það væri þörf á að stækka verksmiðj una um allt að því helming. Það hlýtur að hafa mikinn kostnað í för með sér, og ef verksmiðjan á áfram að vera rekin sem hluta- félag, væri vitanlega eðlilegt, að hlutaféð væri aukið um leið og lagt er í nýjan kostnað. Nú væri hann í miklum vafa um það, að einkafjármagn sé fyrir hendi, til þess að auka hlutaféð og það gæti því verið, að aðrir hluthaf- ar heldur en þeir, sem standa að SÍS og kaupfélögum SÍS, hefðu einnig breytt eitthvað um skoð- un síðan 1959, hvað þetta snertir og þá ekki sízt vegna þess, að þeir telji sig ekki á þessu stigi hafa fjármagn til þess að auka hlutaféð. Það mætti gera ráð fyr ir, að stækkun verksmiðjunnar kosti mikla fjárhæð. Hann hefði ekki þær tölur fyrir hendi, en það hljóta að vera frekar hundr uð millj. heldur en aðeins tugir millj. og þá væri óeðlilegt, að hlutaféð væri ekki aukið, ef nota á áfram hlutafélagsformið við rekstur verksmiðjunnar. Ráðherrann ræddi síðan nokk uð um starfsemi Áburðarverk- smiðjunnar og sagði þar m.a., að Áburðarverksmiðjan hefði þegar sparað þjóðarbúinu mikinn er- lendan gjaldeyri og gert landbún aðinum mikið gagn. Þá sagði hann ennfremur, að nauðsynlegt væri að búa þannig um hhút- ana að um verksmiðjuna mætti verða friður, og ef ekki er einka fjármagn fyrir hendi til þess að auka hlutaféð væri vitanlega ekk ert um annað að gera heldur en breyta lögunum þannig, að Á- burðarverksmiðjan verði ríkis- fyrirtæki. Að vissu leyti væri hún ríkisfyrirtæki í dag, þar sem ríkið á meiri hlutann af hluta- fénu og meiri hlutinn af stjórn- inni er kosin af Alþingi. Ráð- herrann sagðist vilja taka það fram, að þetta rekstrarform, sem hefur verið á verksmiðjunni, hafi alls ekki hindrað góðan rekst ur verksmiðjunnar og honum dytti ekki í hug að halda það, að rekstur verksmiðjunnar hefði verið betri, þótt aliir 5 stjórnar nefndarmennirnir hefðu verið kosnir af Alþingi. Vissulega hefði verksmiðjan haft aðhald, þar sem bannað er í lögum verk smiðjunnar að selja áburðinn á hærra verði heldur en kostnaðar verði. Og verðið á áburðinum hef ur oftast verið lægra heldur en sams konar innfluttur áburður hefði kostað. Hann teldi því, að þótt Áburðarverksmiðjunni hafi verið falinn innflutningur á áburði, væri það út af fyrir sig ekki ástæða til þess að breyta lögunum. Gert væri ráð fyrir því, að hlutabréfin verði innleyst eftir hlutlausu mati dómkvaddra manna og væri varla hægt að hugsa sér eðlilegri leið heldur en hana, hvað það snerti. Ráð- herrann tók það fram, að hann væri ekki hlynntur ríkisrekstri og að alls ekki ætti að vera ríkis- rekstur, nema þar sem öðru verð ur ekki við komið. Hann sagðist telja, að það ætti að vera félags- og einstaklingsrekstur, þegar um nu félags- eða einkafjármagn réði við það, en það væri margt í okkar þjóðfélagi, sem ekki yrði rekið undir öðru formi en ríkis- rekstri. Ráðherrann sagðist ekki gera ráð fyrir því, að í framkvæmd breyttist reksturinn til batnaðar við það, þótt allir 5 nefndar- mennirnir yrðu kosnir af Al- þingi, og það væri ekki ósenni- legt, að sömu mennirnir yrðu kosnir og nú eru í stjórn. í fram- kvæmdinni og rekstrinum yrði engin breyting, en annað hvort ætti fyrirtæki að vera hreint hlutafélag eða ekki hlutafélag. En Áburðarverksmiðjan væri nú 350 millj. kr. virði, eins og Einar Olgeirsson héldi fram, og svo yrði verksmiðjan stækkuð og kostnaður við það yrði ef til vill 200 millj. kr. eða meira, en hlutaféð aðeins 10 millj. kr., sagð ist ráðherrann vilja taka undir það bæði með Einari Olgeirs- syni og Ágústi Þorvaldssyni, að þá væri varla hægt að nefna það nema að nafninu til hlutafélag. Og því væri ekki að neita, að undir hlutafélagsforminu hefði verið reynt að vekja tortryggni og óánægju og jafnvel haldið fram, að þeir, sem keyptu hluta- bréf í verksmiðjunni, hafi gert það í gróðaskyni. Þeir hugsi sér -að þéna á rekstri verksmiðjunn- ar, enda þótt staðreyndirnar sýni það, að flest árin, sem verk- smiðjan hefur starfað, hafi ekki einu sinni verið borgaðir vextir af hlutabréfunum, hvað þá það, sem kalla mætti arð. Ágúst Þorvaldsson hefði sagt, að það væri nauðsynlegt að skapa aðhald og breyta lögunum og gera þetta að ríkisfyrirtæki til þess að skapa meira aðhald eftir að verksmiðjan hefði einkasölu á öllum áburði í landinu. Og m.eð því að segja það, að það þurfi að skapa aukið aðhald frá því, sem verið hefur, er verið að gefa það í skyn, að það séu jafnvel ein- hverjar smugur fyrir hluthafana til þess að hagnast á rekstri þessa nauðsynlega fyrirtækis, sem þó á lögum samkvæmt að selja fram leiðsluna á lægsta kostnaðar- verði og ekki halda meira eftir árlega við uppgjör heldur en nauðsynlegt mætti telja til af- skrifta, svo að hægt sé að halda fyrirtækinu við og endurnýja þær vélar, sem verða ónýtar. Ráðherrann sagðist því álíta það rétt að breyta lögunum, eins og væri komið og sérstaklega vegna þess, að stækkun stendur fyrir dyrum og það virðist vera leið til þess að útiloka þá tor- tryggni, sem reynt hefur verið að ala á. Það virtist vera leið til þess að skapa ró og frið í kring- um þetta fyrirtæki, sem þyrfti að stækka og verða öflugra. Ráðherrann sagði, að það væri sjálfsagt, að sérfróðir menn at- huguðu bæði frumvarp Einars Olgeirssonar og frumvarp Fram- sóknarmanna og athuguðu hverju þyrfti að breyta. Frum- varp Framsóknarmanna væri að ýmsu leyti fyllra, en hann gerði ráð fyrir því, að við nákvæma athugun þyrfti ýmsu að breyta og sjálfsagt væri að vanda til þessarar löggjafar sem allra bezt. Ráðherrann tók það fram að lok- um, að það væri rétt, að ef al- þingismenn yrðu nú í aðalatrið- um sammála um það, að það ætti að breyta ákvæðum lag- anna, þá væri engin ástæða til að fresta því og þá væri lang eðlilegast, að lögunum yrði breytt á þessu þingi. Var umræðum um frumvarpið síðan frestað. Læknaskipunarl ög Umræðum um frumvarpið til nýrra læknaskipunarlaga var haldið áfram í gær og töluðu þá Sigurvin Einarsson (F), Birgir Finrvsson (Alþfl.), Jón Skaftason (F), Kristján Thorlacius (F) og Gylfi Þ. Gíslason menntamála- ráðherra. Var frumvarpinu síðan vísað til heilbrigðis- og félags- málanefndar. Vernd barna og ungmenna Frumvarp um vernd barna og ungmenna var til 3. umr. í gær og varð umræðunni ekki lokið, er fundi var frestað í Neðri deild síðdegis í gær til kl. 8:30 um kvöldið. Verður nánar skýrt frá þeim umræðum í blaðinu á morg un. EFRI DEILD Húsnæðismálastofnun ríkisins Emil Jónsson, félagsmálaráð- herra, mælti fyrir frumvarpi um húsnæðismálastofnun rikisins. Gerði ráðherrann grein fyrir frumvarpinu og rakti efni þess, en það hefur að geyma tillögur ríkisstjórnarinn- ar í húsnæðis- málum og hefur verið skýrt ýtar lega frá þeim áð ur hér í blaðinu. Skiptist frum- varpið í 5 kafla: I. Um stjórn stofnunarinnar og hlutverk. IL Um byggingarsjóð ríkisins og veð lán til íbúðabygginga. III. Um sparnað til íbúðabygginga. IV. Um útrýmingu heilsupillandi húsnæðis og að lokum eru ýmis ákvæði. í umræðum um frum- varpið tóku til máls auk félags- málaráðherra Alfreð .Gíslason (Alþbl.), Helgi Bergs (F), Egg- ert G. Þorsteinsson (Alþfl.) og Gils Guðmundsson (Alþbl.). Var frumvarpinu síðan vísað til 2. umræðu og heilbrigðis- og félagsmálanefndar. Aðstoð við fatlaða. Þá var frumvarp um breytingu á lögum um aðstoð við fatlaða af greitt sem lög frá Alþingi. Um 500 ræktendur hafa misst garðlönd sín Erfiðleikar á leyfum til garðhúsabygginga UM 400 kartöfluræktendur i Reykjavík eru nú að missa garð- lönd sin vegna þess að verið er að taka svæðin í byggð og auk þess voru 98 garðskikar lagðir niður í fyrra. Til að bæta úr þörfinni fyrir garðlönd i staðinn hefur Hafliði Jónsson, garðyrkju- stjóri leitað eftir samþykki borg- arráðs til að halda áfram að út- búa garðlönd í Skammadal í Mosfellssveit og að fá að reisa þar lítil hús eftir tilbúnum upp- dráttum, þar eð fjarlægð er svo mikil frá bænum, en erfiðlega hefur geiyjið að fá leyfi til að reisa slík hús í Mosfellssveit. Um þessar mundir er verið að segja upp leigu á öllum ræktuð- um blettum á Rauðavatnssvæð- inu, þar sem eru 300 garðlönd ofi nýbúið er að taka úr leigu 100 garðlönd á svæðinu neðan við Háskólann, þar sem Norræna húsið á að rísa. Sl. sumar var auk þess sagt upp leigu á 98 garð- skikum í Vatnagörðum. Þarna hafa því um 500 manns misst garðskika sína, oig hvergi í borg- arlandinu er til svæði fyrir þessa garðræktendur, en eftirspurn eftir garðlöndum hefur mjög aukizt, bæði við það að hætt var að greiða niður kartöflur og einn- ig hefur Hjarta- og æðasjúk- dómafélagið haft þarna hvetjandi áhrif, að því er Hafliði telur. Segir hann áberandi hve mikið af kyrrsetufólki vilji nú fá garð til að rækta sér til heilsubótar og til að £á hreyfingu. Telur hann að ekki sé hægt annað en að gera1 eitthvað fyrir þetta fólk, ekkl síður en t.d. knattspyrnuunn- endur í bænum. Auk þess sem þetta fólk framleiði matvæli og skapi með því þjóðarverðmæti. í Skammadal eru nú tilbúin garðlönd fyrir 330 manns, en ekki var hægt að taka þau í not- kun í fyrra og engin hús voru byggð þar. Nú er líka verið að taka til viðbótar hlíðarnar upp af Reykjahlíð og gætu 200 manna fengið igarða þar. Eru þessi garð- lönd öll samtengd eða það sem nýtilegt er til ræktunar. Ætlunin var svo að fara inn á þá nýju braut að leyfa fólki að reisa þarna lítil hús eftir ákveðinni snoturri teikningu, af stærðinni 13— 18 ferm., en leyfa efcki að Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.