Morgunblaðið - 12.03.1965, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.03.1965, Blaðsíða 24
24 MORCUNBLAÐIÐ Fostu&agur 12. marz 1965 T Victoria Holt Höfðingjasetrið Bíddu andartak — ég ætla rétt að bregða mér hér tem r"<* stela blómi handa mcknmu gömlu. — Ég hef lofað þeim. Ég sagði Hetty það. Hann hefði gifzt þér í staðinn fyrir að drepa þig, en svo var hún, skilurðu . . hún kom út úr veggnum og hún gerði þér illt og ég varð til þess að hleypa henni út. Hún er vond . . . hún ætti að fara inn í múrinn aftur. En kærðu þig ekki. Þú færð frið. — Reuben, sagði ég veiklu- lega. — Nú verð ég að fara. — Þú ferð þangað sem þú átt að vera. Ég fer með þig þangað. — Hvar er það? Hann teygði andlitið næstum framan í mig og rak upp þennan hræðilega hlátur, sem mundi fylgja mér það sem eftir væri ævinnar. — Þú veizt góða mín. Þú veizt það mætavel. — Reuben, sagði ég. — Þú varst áður búinn að elta mig hing að í kofann, var það ekki? — Já, já, en þú læstir þig inni. En það hefði ekki þýtt neitt ef ég hefði verið tilbúinn. En nú er ég tilbúinn. . . — Tilbúinn til hvers? — Og aftur fyllti þessi sami hlátur kofann. — Slepptu mér, Reuben- bað ég. — Já, ég skal sleppa þér, fína frú, sleppa þér þangað sem þú átt heima. Og það er ekki á þessari jörðu. Ég ætla að setja þig þangað sem þú varst þegar ég ónáðaði þig. Hlustaðu á mig, Reuben. Þú hefur misskilið þetta allt. Þú sást engan í múrnum. Þú ímynd- aðir þér það bara út af þessum sögum . . . hún var okkur ekkert viðkomandi. — Ég sleppti þér út. Það var hræðilegt að gera það. Athugaðu hvað þú gerðir henni Hettey okk- ar. Nú hef ég litla hreiðrið þitt, sem bíður eftir þér. Og þar skal fara vel um þig og þá geturðu engum gert mein framar . . . og ég get sagt Hetty, hvað ég hef gert. — Hetty er dauð. Þú getur ekkert sagt henni. Ég hopaði á hæl frá honum og yzt út í stofuna, en þar var engin undankomuleið. Hann hélt áfram að tauta um dauðu systur- ina sína, brosti enn og nálgaðist mig stöðugt. Sterku hendurnar seildust eftir mér. Ég fann þær um kverkarnar á mér . . kreista úr mér lífið. Það var kalda næturloftið, sem lífgaði mig aftur. Mér var flökurt og ég var veik og með verk í hálsinum. Limirnir voru stirðir og ég átti bágt með að ná and- anum. Ég gat ekkert séð því að ég var sveipuð einhverjum poka- druslum, en ég vissi, að það var verið að að bera mig eitthvað burt. Ég reyndi að hreyfa hand- leggina, en gat ekki og brátt fann ég, að þeir voru bundnir á bak aftur. Ég var rígbundinn og ósjálf- bjarga, rétt eins og skepna, sem verið er að fara með í sláturhús- ið. Og ég skynjaði með hryllingi, hvert Reuben var að fara með mig. í brjálsemi sinni hafði hann gert eina persónu út úr mér og nunnunni, sem var múruð inni í vegginn og hann hafði fundið. Fyrir honum var ég Sjöunda Mærin úr Larnstonklaustrinu. Við höfðum stanzað. Pokarnir voru teknir utan af mér og ég hctrfði upp á stjörnurnar. Það var þá nótt og ég vissi, hvar ég var, því að nú gat ég séð garðinn með eins og hann hafði verið þegar veggjunum í kring og múrinn . . við vorum þar öll þennan dag, Mellyora, Justin, Johnny, Kim og ég. Og nú var ég þar ein . . . ein með brjáluðum manni! Ég heyrði hann hlæja lágt, þennan ægilega hlátur, sem mundi fylgja mér það sem eftir væri. Hann dró mig fast upp að 38 veggnum. Það var gat á honum, eins og verið hafði í fyrra skipt- ið. Hann hafði opnað það aftur. Ég gat heyrt erfiðan andardrátt hans, þegar hann tróð mér inn í gatið. Reuben, andvarpaði ég. Nei, í guðs bænum ekki. . . . — Ég var hræddur um, að þú værir dáin, sagði hann. — Það hefði ekki verið rétt. Ég er fegn- astur, að þú skulir vera lifandi enn! Ég reyndi að tala og biðja hann og reyndi að æpa. Aumur háls- inn á mér var eins og lokaður og þó að ég beitti öllum mínum viljakrafti, gat ég engu hljóði upp komið. Þarna var ég komin, og stóð inni í veggnum, alveg eins og ég hafði staðið forðum, þegar við vorum öll börn. Reuben sást ekki nema eins og svartur skuggi. Ég sá múrsteininn í hend- inni á honum og ég vissi alveg hvað hann ætlaði að fara að gera. Um leið og leið yfir mig, datt mér snöggvast í hug: — Allt sem ég hef gert, hefur leitt mig hing- að, alveg eins og það, sem hún gerði, kom henni hingað. Við höfðum gengið sömu brautina, en ég hafði ekki vitað af því. Ég hélt, að líftið gæti orðið eins og ég sjálf vildi . 4 . og líklega hefur hún hugsað eins. . Ekki veit ég hve lengi ég hef verið þarna meðvitundarlaus. En gegn um einhverja þoku ofsjána og sársauka heyrði ég rödd, elsk- aða rödd, sem tautaði: — Ker- ensa! Sterkir armar hófu mig á loft, varlega og blíðlega. — Veslings, veslings Kerensa! Það var Kim, sem hafði fundið mig. Kim, sem hafði bjargað mér./Kim, sem var að bera mig úr myrkri og dauða inn í Klaustr ið. Ég lá veik í nokkrar vikur. Ég var látin vera í Klaustrinu, og Mellyora kom þangað til að hjúkra mér Eina nóttína vaknaði ég upp af þessari venjuiegu martröð, þegar ég þóttist lokuð inni í múrn um og grét í örmum hennar. — Mellyora, sagði ég. Ég verð- skulda að deyja fyrir allar synd- ir mínar. — Þei, þei! Þetta máttu ekki vera að hugsa um. — Ég ég hef syndgað. Og engu minna en nunnan forðum. Hún sveik loforð sín og ég mín. Ég sveik vináttulofoi'ðin, Mellyora. — Þig hefur verið að dreyma, sagði hún blíðlega. — Það er engin ástæða til að hræðast. — Stundum finnst mér hann Reuben vera hér inni og ég reyni að æpa upp, en enginn heyrir til mín. — Það er búið að flytja Reu- ben til Bodmin-vitfirringahælis- ins. — Hvernig sótð á því, að Kim skyldi minna mig og bjarga mér? — Hann hafði séð, að eitthvað hafði verið hreyft við múrnum. Hann minntist á þetta við Reu- ben, sem sagði, að hann hefði hrunið aftur. . En Kim gat ekki skilið, hvernig á því gæti staðið, þegar gert hefði verið við hann fyrir nokkrum árum . . . já, þú manst, þegar við vorum krakkar. — Já, ég man það vel. Við vorum þar öll saman. ... — Svo komst þú ekki heim, og ég fór auðvitað til Kims . . . auðvitað. — Já, sagði ég hægt, — auð- vitað _fórstu til Kims. — Ég vissi, að þú hafðir farið í kofann, svo að við fórum fyrst þangað. Hann var ekki læstur og hurðin stóð meira að segja upp á gátt. Þá varð Kim hrædd- ur. Hann minntist þess, að Reu- ben hafði talað eitthvað einkenni lega við hann um Hetty. Hann gat sér þess til, að eitthvað væri að, og víð gætum orðið einhvers vísari með því að athuga múrinn. Og svo var guði fyrir að þakka, að við komum áður en það var orðið um seinan. Ég fór að hugsa um allt, sem ég ætti Kim að þakka . . . Senni- lega líf Jóa og áreiðanlega ham- ingju hans . . mitt líf og ham'- ingju mína framvegis. Bráðum verðum við saman, hugsaði ég, og allt sem á undan er gengið verður gleymt. — Ég vaknaði aftur um nótt- ina, kjökrandi. Mig hafði dreymt, að ég stæði á tröppunum, ásamt Mellyoru og hún rétti leikfangs- fílinn að mér. Ég þóttist segja: — Það var hann, sem varð Judith að fjörtjóni. Nú ertu frjáls, Mellyora, frjáls að eiga hann Justin. Ég hrökk upp og sá, að Melly- ora stóð hjá mér. — Það er allt í lagi, sagði hún, — þetta var ekki annað en Ijótur draúmur. — Það var kafli úr fortíðinni, Mellyora. — Þú veizt ekki sann- leikann í-málinu. Ég hef verið vond. — Svona máttu ekki tala, Ker ensa. — Ég hef gert þér rangt til og ég verð að segja þér frá því. Ég ætia að segja þér frá, þegar hún Judith dó. Þetta var ekki eins og fólk hélt. Ég veit, hvernig hún dó. En ég þagði þegar ég hefði átt að tala. Ég eyðilagði lífið fyrir þér, Mellyora. — Hvað ertu að segja? sagði hún og starði á mig. — Hlustaðu á mig, sagði ég í örvæntingu minni. — Manstu eftir Nelly . . . fílnum, sem hann Carlyon hafði fyrir leikfang? Hún varð óróleg á svipinn. Það var greinilegt, að hún hélt mig vera með óráði. — Manstu það? nauðaði ég. — Já, auðvitað. Hann er enn til hérná. — Judith datt um hann. Rifan, sem þú gerðir við . . . það var eftir skóhælinn hennar. Fíllinn lá á stigagatinu og hún datt um hann. Ég faldi fílinn fyrst um sinn, af því að ég vildi ekki láta kenna Carlyon um slysið . . . og . . og seinna vegna þess að ég hélt, að ef það sannaðist hafa verið tilviljun, mundi Justin aldrei fara að heiman. Þá hefði hann gifzt þér. Og þú hefðir eign azt son, sem hefði erft allt ■— allt sem ég var að sækjast eftir handa Carlyou. Það varð þögn í herberginu, svo að ekkert heyrðist nema tifið í klukkunni. — Heyrðirðu til mín, Melly- ora? — Já, svaraði hún lágt. — Og hatarðu mig ekki fyrir að eyðileggja líf þitt? spurði ég. Hún þagði um stund og ég hugsaði: Ég er búinn að missa MeHyora. Fyrst ömmu og svo Mellyoru. — Þetta er svo langt um liðið, sagði hún. — Já,' en þú hefðir getað átt hann Justin. Þú hefðir getað orð ið hefðarfrúin í Klaustrinu. Þú hefðir getað eignazt börn, hefði ég ekki gert þetta. Ó, Mellyora, hvað _þú hlýtur að hata mig. — Ég gæti aldrei hatað þig, Kerensa. Auk þess. . . . — Ó, þú ert svo góð . . alltof góð. Ég hata þessi gæði þín, Mellyora. Þau gera þig svo veik- geðja. Ég yrði hrifnari af þér ef þú þytir upp í vonzku við mig! — Já, en það gæti ég ekki gert núna. Þetta var rangt af þér. Og það var illa gert. En það er nú umliðið. Og nú get ég ekki ann- að en þakkað þér, Kerensa. Því að ég er fegin, að þú fórst að eins og þú gerðir. — Fegin? Fegin að hafa misst manninn, sem þú elskaðir? sagði ég steinhissa. — Fegin að eiga að verða einmana alla ævi? — Ef til vill hef ég aldrei elskað Justin. Og ég er ekki eins veikgeðja og þú heldur mig vera. Ef ég hefði elskað hann, hefði ég aldrei sleppt honum. Og ef hann hefði elskað mig, hefði hann aldrei farið að heiman. Justin elskaði einveruna. Nú er hann hamingjusamari en nokkru sinni áður. Og það er ég líka. Það hefði verið slæmur misskiln ingur ef við hefðum farið að eig- ast. Og þú hefur forðað okkur frá því, Kerensa. Á fölskum for- sendum að vísu . . . en þú bjarg- aðir okkur nú samt. Og ég er fegin, að mér var bjargað . . . Ég hefði aldrei getað höndlað svona hamingju, ef ekki þú hefðir ver- ið. Og það ættirðu alltaf að muna. — Þú ert að reyna að hugga mig Mellyqra, eins og alltaf áður. En það er bara ekki hægt að hugga mig eins og krakka. — Ég ætlaði nú ekki að segja þér það, heldur bíða með það þangað til þú værir orðin frísk- ari. En þá höldum við líka veizlul — Af hvaða tilefni? — Ég vissi það undir eins og hann kom heim. Og hann vissi það líka. Og það var aðalástæðan til þess, að hann langaði að koma heim aftur. — Hvert? — Kim, auðvitað, sagði Melly- ora. — Hann er búinn að biðja mín. Ó, Kerensa, hvað lífið get- ur verið dásamlegt! Nú skilurðu, hversvegna ég get verið þér þakk lát en ekki reið. — Þú . . . og Kim . . . nei, það getur ekki verið. Hún hló. — Þú hefur verið að sýta, allan þennan tíma, og hugs- að um Justin. En það er nú um- liðið, Kerensa. Og það, sem liðið er, skiptir ekki máli lengur, heldur það, sem framundan er. Skilurðu það ekki? Ég hallaði mér út af og lokaði augunum. Jú, hvort ég skildi það- Ég sá dramana mína alla farna út um þúfur. Zg hafði ekk- ert af fortíðinni lært. Og nú horfði ég inn í framtíðina, þar sem ekkert var nema svarta- myrkur, rétt eins og í múrnum, Garðahreppur Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Garðahrepp er að Hof- túni við Vífilsstaðaveg, simi 51247. AKUREYRI Afgreiðsla Morgunbl.aðs- ins er að Hafnarstræti 92, sími 1905. Auk þess að annast þjón- ustu blaðsins við kaupend- ur þess í bænum, er Akur- eyrar-afgreiðslan mikilvæg- ur hlekkur í dreifingarkerfi Morgunblaðsins fyrir Norð- urland allt. Þaðan er blaðið sent með fyrstu beinu ferð- um til nokkurra helztu kaup staða og kauptúna á Norður- landi, svo og til fjölda ein- staklinga um allan Ey jaf jörð og víðar. KALLI KUREKI — -K— ~Xr ~ Teiknari: J. MORA Atshez/ff newt's S/SNAL, THEOL-T/MEZ WH/2LS, DZAWS, ANO F/eesf .Urn leið og lögreglustjórinn gefur merkið, snýr Skröggur sér við, dreg- ur upp byasuna og hleypir af.“ / „Þetta ætti að duga.“ Kalli slær til með byssuskeptinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.