Morgunblaðið - 21.04.1965, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 21. apríl 1965
PRINSESSAN ÓL DÓTTIR
Margrét Svíaprinsessa, sem
gift er John Ambler, forstjóra
flutningafélags í London, ól
dóttur sl. miðvikudag. Er það
fyrsta barn þeirra hjóna. Mar-
grét er barnabarn Gústafs
Adolfs, Svíakonungs.
-
KRÚSJEFF 71 ÁRS
Moskvu, AP-NTB:
Nikita Krúsjeff, fyrrum for-
sætisráðherra, varð 71 árs á
laugardag. Hélt hann upp á af
mæli sitt á sveitasetri utan
við Moskvu ásamt börnum sín
um og b"™~börnum.
>f~
FULLTRÚAR KALLAÐIR
HEIM
Jakarta — AP-NTB:
Á laugardag hófust í Jakarta,
höfuðborg Indónesíu hátíða-
höld í tilefni þess, að tíu ár
eru liðin frá því að fyrsta ráð
stefna Afríku- og Asiuríkja
var haldin í Bandung. Fulltrú
ar 35 ríkja sitja hátíðahöldin,
þeirra á meðal Chou En-lai,
forsætisráðherra Kína, og
Phan Van Dong, forsætisráð-
herra Norður Vietnam. í gær,
þriðjudag, tilkynnti stjórn
Thailands, að hún hefði kall-
að fulltrúa sína heim vegna
þess að kommúnistaríkin
reyndu að nota hátíðahöldin
til áróðurs eingöngu.
HEIMBOÐUM FRESTAÐ
Washington — AP-NTB:
Á föstudag skýrði Johnson
forseti frá því, að hann hefði
ákveðið að hætta við allar fyr
irhugaðar heimsóknir'til ann-
arra ríkja fyrst um sinn vegna
ástandsins í Vietnam og vegna
mikilla anna heima fyrir. Einn
ig var tilkynnt að frestað hafi
verið heimsóknum nokkurra
þjóðhöfðingj a, sem hefjast
áttu á næstunni. Meðal ann
ars er fréstað heimsóknum
þeirra Lal Bahadur Shastris,
forsætisráðherra Indlands, og
Mohammed Ayub Khans, for-
sætisráðherra Pakistan. Var
frestunin áður tilkynnt í
heimalöndum þeirra. Hinsveg
ar kom Aldo Moro, forsætis-
ráðherra Ítalíu, á mánudag til
Bandaríkjanna í sex daga opin
bera heimsókn. Ræddi hann
við Johnson forseta á mánu-
dagskvöld og aftur á þriðju-
dag.
>f
FERÐABANN Á KÝPUR
Nocosia — AP-NTB:
Stjórnin á Kýpur bannaði á
skírdag allar ferðir til og frá
borgarhverfi tyrknéskra íbúa
höfuðborgarinnar, Nicosia. —
Engin mótmæli Tyrkja hafa
komið að gagni, og hafa tyrk-
nesk yfirvöld leitað aðstoðar
Sameinuðu þjóðanna. Einnig
hafa Tyrkir tilkynnt, að þeir
muni vísa úx landi öllum grísk
um íbúum Tyrklands, en þeir
eru nú rúmlega sex þúsund.
Erlendar fréttir um páskana
— í stuttu múli
traustum grundvelli, sem ekki
varir, eða sem kemur til með
að ógna nágrannalöndum Viet
nam“, sagði Wilson.
f ferð sinni kom Wilson við
í New York og ræddi þar við
U Thant, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna.
flaugastöðvum hjá Hanoi, höf
uðborg Norður Vietnam. Hafa
bandarísk yfirvöld staðfest
þetta. Talið er að hér sé um
að ræða eldflaugar til loft-
varna
.JRANDT í WASHINGTON
New York, 20. apríl. —
AP-NTB:
Willy Brandt, borgarstjóri V-
Berlínar, dvaldi í Bandaríkj-
unum yfir páskana og ræddi
þar við Johnson forseta, og
fleiri ráðamenn. Aðal umræðu
efnið var væntanleg endur-
sameining Þýzkalands. Haft
var eftir opinberum heimild-
um í Washington, að banda-
riská stjórnin hygðist reyna að
ná samkomulagi við stjórnir
Bretlands og Frakklands um
sameiginlega yfirlýsingu um
rétt Þýzkalands til sameining-
ar. Talið er að Vestur-Þjóð-
verjar hafi farið fram á, að
þesskonar yfirlýsing verði
birt hinn 8. maí nk., en þá eru
tuttugu ár frá því að hersveit-
ir Hitlers gáfust endanlega
upp. í dag ræddi Brandt við
U Thant, farmkvæmdastjóra
SÞ. Snerust umræður þeirra
einkum um Vietnam.
ELDFLAUGAR í HANOI
Moskvu, — AP-NTB:
Alexei Kosygin, forsætísráð-
herrá Sovétríkjanna, réðist
harðlega á stefnu Bandaríkj-
anna í Vietnam í ræðu, sem
hann flutti í boði fyrir Yumz-
hagin Tsedenbal, forseta Mon-
gólíu, í Moskvu á mánudag.
Sagði Kosygin að héldu Banda
ríkjamenn áfram að nota eld
sprengjur og „eiturgas“ gæti
það haft í för með sér hliðstæð
ar árásir Viet Cong. Banda-
ríkin hefðu engan einkarétt á
nýtízku vopnum.
Þessi ummæli Kosygins
komu í kjölfar fregna um, að
verið væri að koma upp eld-
HANOI NEITAR
FRIÐARUMLEITUNUM
Saigon, Hanoi,
London — AP-NTB:
Allmikið var um loftárásir
flugvéla frá bandaríska flug-
hernum og frá flugher Suður-
Vietnam á stöðvar Viet Cong
og bækistöðvar í Norður Viet
nam um páskana. Réðust vél-
arnar á brýr, vegi og herstöðv
ar, og segja fréttir frá Saigon
að árangur hafi verið mikill.
Ekki ber fréttum saman um
hve margar flugvélar hafi ver-
ið skotnar niður, en Banda-
ríkjamenn segjast hafa misst
tvær þyrlur.
Johnson Bandaríkjaforseti
flutti ávarp á laugardag og i-
trekaði þar samningsvilja sinn
um frið í Vietnam án nokk-
urra skilyrða. Hann sagði að
Bandaríkjamenn semdu aldrei
öðruvísi en samningarnir
tryggðu Suður Vietnam fullt
sjálfstæði. Ef sú trygging feng
ist ekki væri ekkert, sem gæti
fengið bandarisk yfirvöld til
að kalla heim herlið sitt frá
Suður-Vietnam.
Fulltrúar 17 „óháðra" ríkja
hafa skorað á yfirvöldin i
Norður-Vietnam að setjast að
samningaborði með Banda-
ríkjamönnum og fleiri aðilum
á grundvelli tilboðs Johnsons
forseta. En á mánudag, annan
í páskum, neituðu yfirvöldin
að verða við þessari áskorun.
Einnig neituðu þau að heimila
Sameinuðu þjóðunum mála-
miðlun. Segja yfirvöldin í Han
oi, að frumskilyrði fyrir við
ræðum sé að bandaríkski her
inn hverfi á brott frá Suður
Vietnam.
Patrick Gordon Walker,
fyrrum utanríkisráðherra
Bretlands, er á ferð um Asíu,
og hefur brezka stjórnin
mælzt til þess að hann fái að
ræða við kínversk yfirvöld í
Peking, aðallega um ástandið
í Suðaustur Asíu. Hefur Pek-
ingstjórnin ítrekað að hún
muni ekki taka á móti full-
trúa brezkú stjórnarinnar á
þessu stigi.
Ýmsir hermálasérfræðing 1
ar Bandaríkjanna komu til
Honolulu á mánudag og hófu
þar viðræður um ástandið í
Suður Vietnam. Meðal þeirra,
sem þangað komu, er Robert
S. McNamara, varnarmálaráð-
herra, Maxvell D. Taylor,
sendiherra í Saigon og Earle
G. Wheeler, hershöfðingi og
forseti bandaríska herráðsins.
SENDIHERRA I PEKING
Moskvu, AP-NTB:
Tilkynnt var í Moskvu á skír-
dag að Sergei Lapin, aðstoðar
utanríkisráðherra, hafi verið
skipaður sendiherra í Peking.
Lapin hefur verið ráðherra
frá 1962, en var um tíma sendi
herra í Austurríki. Hann átti
sæti í alþjóðaráðstefnunni í
Genf 1954 um framtíð Indó
Kína, en sú ráðstefna ákvað
m.a. skiptingu Vietnam.
STEWART f BELGRAD
Belgrad — AP-NTB:
Michael Stewart, utanríkisráð
herra Breta, kom á páskadag
í opinbera heimsókn til Jú.gó-
slavíu ásamt konu sinni. Utan
ríkisráðherra Júgóslavíu,
Koca Popovic, og kona hans
tóku á móti gestunum. Mun
Stewart ræða við ráðamenn í
Belgrad um þau heimsvanda-
mál, sem efst eru á baugi i
dag.
SPAAK KVÆNIST
Brússel — AP-NTB:
Paul-Henri Spaak, utanríkis-
ráðherra Belgíu og fyrrum
framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, kvæntist á
skírdag frú Simonne Dear. —
Spaak er 66 ára en frú Dear
56. Hann er ekkjumaður, en
hún fráskilin.
Harold Wilson, forsætisráðherra, kom til New York á mið-
vikudag. Var mynd þessi tekin, er hann ræddi þar við U
Thant, framkvæmdastjóra Sameinuð þjóðanna.
STYÐJA STEFNU
BANDARÍKJANNA
Washington AP-NTB:
Harold Wilson, forsætisráð-
herra Bretlands, kom til
Washington á skírdag til við-
ræðna við Johnson forseta, en
hélt heim til London á föstu
daginn langa. Að loknum við-
ræðunum sagði Wilson við
fréttámenri, að Bretar styðji í
einu og öllu stefnu Bandaríkj
anna í Vietnam og fögnuðu
þeir ummælum Johnson, að
hann væri reiðubúinn til samn
inga. „En við höfum ekki á-
huga á að ná skjótunnum
friði, sem ekki er byggður á
Frá hátíðahöldunum í Jakarta í tilefni tíu ára afmælis Bandung ráðstefnunnar. Frá vinstri:
Chou En-Iai, forsætisráðherra Kína, Sukarno, forseti Indónesíu og Pham Van Duong, forsæt-
isráðherra Norður-Vietnam.