Morgunblaðið - 29.08.1965, Page 2
2
MORGUNSLAÐID
Sunnudagur 29. ágúst 1965
Eláb&rm sma
og seiiivaxin
Húsavík, 27. ágúst.
BLÁBERJASPRETTA á þessu
sumri mun teljast fremur góð, én
þó eru þau frekar smá og sein-
þroska. Töluvert hefur verið tínt
og í hretinu undanfarna daga
hafa ber ékki skemmzt hér, enda
fylgdu því óveðri engin naetux-
frost.
Um krækiberjasprettu er minna
vitað, því hér er ekki venja að
tína krækiber fyrr en komið er
fram í september.
Bílsiys í Banda-
ríkjunum
Vinton Louisiana, 23. ágúst, AP.
ELLEFU manns léiu
lífið í bílslysi skömmu fyrir mið
nætti í gær, er árekstur varð
milli flutningavagns og lang-
ferðabifreiðar rétt utan við Vin-
ton. Ríkislögreglumenn frá
Texas og Lousiana komu fyrstir
á vettvang og hófu björgunar-
störf.
Dr. Bjami Helgason
Svavar Gests leggur niður
hljómsveitina og vendir
sínu kvæ&i í kross
Þeir, sem fara í Súlnasal-
inn í þaust og vetur, munu
ekki sjá Svavar Gests á
hljómsveitarpallinum og
dansa við undirleik hinnar
vinsælu hljómsveitar hans,
því nú ber engm hljómsveit
nafn Svavars Gests. Hann
hefur lagt hana niður og hef-
ur sagt skiiið við hljómsveit-
arstarfið eftir 20 ára dygga
þjónustu.
Þetta þykja að vonum stór
tíðindi, því fáir hafa aflað
sér jafnmikílla vinsælda í
skemmtanalífinu á undan-
förnum árum og Svavar
Gests. Þann 15. ágúst lék
hann með hljómsveit sinni á
héraðsmóti Sj ál fstæððsmanna
að Kirkjubæjarklaustri og að
því loknu þakkaði hann fé-
lögum sínum samveruna og
hélt heimleiðis glaður í
bragði.
Mörgum finnst e.t.v. undar
legt, að maður, sem áunnið
hefur sér jafnmiklar vinsæld-
ir og Svavar Gests, yfirgefi
skyndilega starfssvið sitt á
bezta aldri — og þess vegna
spurðum við Svavar um á-
stæðuna, þegar Mbl. átti tal
við hann í gær:
— Það er alllangt síðan ég
fór að líta í kring um mig,
eins og sagt er — og leita
að nýju starfi. Ég var orð-
inn hálfþreyttur á hljóm-
sveitarstarfinu, búinn að vera
við þetta síðan ég var strák-
ur, fyrst tvö ár í hljómsveit
hjá öðrum, þá nýkominn frá
tveggja ára hljómlistamámi í
Bandaríkjunum. Síðan sextán
ár með eigin hljómsveit. Öll
kvöld að beiman, mikill er-
ill, aldrei stundlegur friður.
— Og hvaða starf fannstu
svo?
— Ja, ég vár einna helzt
að hugsa um að gerast far-
maður. Góðar tekjur, góð frí
í landi. Stundum.
— Þú hefur e.t.v. kynnzt
f armennskúnni ?
— Ekki nútíma far-
mennsku. En þegar ég var
strákur var ég líka að hugsa
um að gerast farmaður, fór
á Súðinni eina ferð kring um
land. Þetta var hraðferð, tók
ekki nema 30 daga og ég
hætti að kasta upp eftir 31
dag.
— En nú eru komnar
sjóveikipillur.
— Já, þessvegna hætti ég
við að gerast farmaður í ann-
að sinn og — í alvöru talað
— ég ætla að helga mig
hljómplötu-útgáfu. Ég hef að
undanförnu gefið út plötur,
hef kallað þær SG-hljómplöt-
ur, og ég hef trú á að það
geti nægt mér í framtíðinni
ef ég held vel á spilunum.
— Hefur hljómplötusala
aukizt það mikið hér á landi
að jrægt sé að lifa á slikri út
gáfu?
—Hljómplötusala hefur
aukizt mjög mikið. En hvort
hægt er að lifa á hljómplötu-
útgáfu — ja, það fer auð-
vitað eftir því hvað út er
gefið. Það er ekki hægt að
selja hvaða hljómplötu sem
er, en ég hef margt á prjón-
unum og ég er að vona að
næstu plöturnar gangi jafn-
vel og þær 12, sem ég hef
þegar gefið út. Næstu daga
sendi ég t.d. frá mér plötu
með 6 lögum úr Járnhausn-
um.
— En hvemig hefur þér
Svavar Gests.
þótt hljómsveitarstarfið?
—- í rauninni hefur mér
alltaf þótt það skemmtilegt,
enda þótt ég væri orðinn
þreyttur á því. Sennilega er
það vegna þess, að ég tek
allt mjög alvarlega, sem ég
tek mér fyrir hendur. Legg
Framhald á bls. 11.
IMýr
héraðsSæknir
ÍSLEIFUÍt Halldórsson hefur
verið skipaður héraðslæknir í
Hvolshéraði frá 1. september.
Merkilegt erindi dr.
B;arna Helgasonar
á skógræktarfundi ■ gær
Blönduósi 28. ágúst.
AÐFUNDUR Skógræktarfélags-
ins hélt áfram hér í dag. Hófst
hann með því kl. 10 um morg-
unninn að dr. Bjarni Helgason
flutti mjög fróðlegt og athyglis-
vert erindi um jarðveg. Sýndi
hann fjölda mynda máli sinu
til skýringar.
Hákon Bjamason skógræktar-
stjóri flutti 'þvínæst erindi um
skógrækt á Vestfjöröum. Lýsti
hann ferð sínni og Snorra Sig-
txfðssonar um Vestfirði nú í sum
ar, en þeir heimsóttu flesta þá
staði, þar sem unnið er að skóg-
rætkt á Vestfjör'ðum. Var akóg-
ræktarstjóri bjartsýnn á fram-
tíð skógræktarinnar í þessum
landshluta.
f gær ferðuðust fulltrúar og
gestir á aðalfundi Skógræktar-
félagsins um Vatnsdal og skoð-
uðu þar skógarlundi að Hauka-
gili og Hofi. Fundarmenn fengu
frábærar móttökur hjá Vatns-
dælingum og Skógræktarfélagi
Húnvetninga, sem stóð fyrir
rausnarlegum veitingum í hin-
um nýju og glæsilegu vei'ðihús-
um við Þórdísarlund. Einnig voru
Þingeyrar heimsóttar og lýsti
Jón Pálmason á Þingeyrum
hinni merku kirkju staðarins
fyrir gestum og sagði sögu henn-
ar.
Á morgun, sunnudag, mun
fara fram stjórnarkosning og
tiillögur verða afgreiddar. Fund-
inurn mun fjúka um hádegi á
sunnudag.
mmmm ---_ --
Dómaratríóið í leiknum. í miðið er hinn kunni skojeki dómari R. H. Davidson.
Eitt frægasta lið heimsins
á Laugardalsvelli í dag
I DAG kiukkan fimm er leikur Keflvíkinga og ungversku
meistaranna, Ferencvaros, á Laugardalsvelli. Komu ungversku
meistaranrta má telja einn stærsta viðburð á knattspyrnusviðinu
hérlendes. Liðið er eitt sterkasta og frægasta félagslið heimsins,
7 leikmanna þess hafa leikið í A-landsliði Ungverjalands, 4 í B-
landsliði. 4 voru með í lokakeppni heimsmeistarakeppninnar í
Chile 1962, og þrír þeirra eru Olympíumeistarar frá Tokíó, en
á leikunum þar sigraði landslið Ungverja.
morgun, og voru meira að lægja í dag.
segja 9 vindstig í Æðey. —
Skemmtileg minning.
I Ein rósin af mörgum í sigur-
ríkri sögu ungverska liðsins
Ferencvaros er sigurinn í „borga
keppni Evrópu" á s.l. vori. í úr-
| slitaleik þeirrar keppni vann
Ferencvaros ítalska liðið Juvent-
us og hafði áður „slegið út“
| ensku meistarana Manch. United,
og þar á undan spánska liðið
Bilbao.
Undirritaður hafði tækifæri til
að sjá leik Ferencvaros og Bilbao
í Budapest í maí s.l. og getur
fullyrt, að ef Ungverjunum tekst
upp, þá verður enginn svikinn
sem á Laugardalsvöllinn kemur
í dag. Reyndar mætti heldur
segja að enginn knattspyrnu-
unnandi ætti að láta tækifærið
til að sjá slíkt lið sér úr greip-
um ganga.
Það sem mér er minnisstæðast
frá leik Ferencvaros þarna í
Budapest er sóknarleikur miðju-
tríósins og hraði og leikni Feny-
vesar vinstri útherja. Þá gleymist
heldur ekki leikur Juhasz mið-
varðar né heldur Orosz vinstri
framvarðar, því yfirferð þeirra
er slík og styrkleiki til varnar og
sóknar svo mikill, að unun er á
að horfa.
En miðjutríóið er skemmtilegt.
Leik þess stjórnar miðherjinn,
Albert. Hann lætur ekki mikið
á sér bera oft langa leikkafla,
en þegar hann eygir tækifæri,
geysist hann fram með óvenju-
legum hraða og hefur svo örugga
knattmeðferð á hraðanum, a3
vörn fárra liða fá truflað hann.
Oft leikur hann ásamt einum eða
tveim samherjum allt frá iðju
og komast þeir með ógnarhraða
gegnu vörfnina og í skotstöðu.
Gerist þetta svo snöggt, að marg
ir átti sig ekki á hlutunum. En
mistakist upphlaupið, fer Albert
hægt til baka — svo hægt, að
hann var í þessum umrædda leik
nokkrum sinnum í rangstöðu
þegar félagar hans höfðu hafið
næsta upphlaup.
Leiknum lyktaði með 3—0 sigrl
Ferencvaros. Var mikil barátta
i leiknum fyrst, en þó voru Ung
verjarnir allan tímann betri.
Það er einstakt tækifæri að fá
slíkt lið hingað til lands og yrði
erfitt eða næstum útilokað nema
í tilefni af slíkri keppni, sem
leikur liðanna tveggja í dag er
liður í.
Keflvíkingar hafa enga sigur-
möguleika, en þeir hafa tækifæri
ti lað veita áhorfendum leik, sem
iengi mun í minnum hafður.